Þjóðviljinn - 10.09.1980, Síða 15
i- i itOi noirtWiWi
Umsjón: Edda Björk og Hafdís
Fyrir yngstu lesendurna:
ÓLI LES SÖGU
Einu sinni voru karl og
kerling í koti. Þau áttu
sér kálf. Nú er sagan
hálf. Hann hljóp út um
allan völl. Nú er sagan
öll.
GÁTUR
1. Hvaða land liggur næst
íslandi?
2. Hvar er mesta
rækt í heimi?
rosa-
3. Hvaða haf er saltast?
Svörin
morgun
Amma sagði Öla oft
þessa sögu. Honum þótti
sagan heldur stutt. Svo
sagði amma honum
söguna af Búkollu. Hún
var miklu lengri, og þótti
Öla það góð saga. Svo
kenndi amma Óla að lesa,
og þá gat hann lesið
söguna af Hans og Grétu,
Öskubusku og Kisu
kóngsdóttur og margar
fleiri sögur. Svo lærði
hann líka visuna sem
byrjar svona:
Að lesa og skrifa list*er
•góð,
íæri það sem flestir.
og hér koma þrjár spurn-
ingar úr sögunni:
1. Hvaða saga þótti Óla of
stutt?
2. Hvaða sögur las hann?
3. Hvernig er öll visan?
Eldspýt-
naþraut
Færið tvær eldspýtur
þannig að ruslið fari úr
fægiskóflunni, en eld-
spýturnar myndi samt
sem áður fægiskóflu.
Lausnin á þrautinni
birtist á morgun!
barnahornrið
— SIBA
Góðir en gallaðir þættir
Æmatmx
lesendum
Sjónvarpsþættirnir Helförin
eru athyglisveröir fyrir margra
hluta sakir, og ágætir svo langt
sem þeir ná. Ég efast ekki um
a& hér á landi er margt fólk sem
hefur ekki gert sér grein fyrir
þvi hvernig þaö var aö vera
Gyöingur á nasistatimanum.
Hinsvegar finnst mér aö
margt heföi mátt betur fara, og
þaö heföi veriö hægt aö gera
þetta miklu betur. Mér finnst
t.d. margir leikaranna alls ekki
nógu sannfærandi. Sá sem
leikur Jósef Weiss gæti sómt sér
ágætlega i hvaöa kúrekamynd
sem vera skal. Hann gæti lika
leikiö bandariskan bisnissmann
meö ágætum. En ekki Jósef
Weiss.
David Warner er frábær
leikari, en ég get ekki aö þvi
gert aö mér finnst hann ekki
vera að leika Heydrich, heldur
einhvern allt annan mann.
Þetta er dálitiö bagalegt þegar
um raunverulegar persónur er
að ræða.
baö getur vel veriö aö ein
stærsta ástæöan fyrir þvi aö
þættirnir virka ekki nógu sann-
færandi sé tungumálið: þaö er
erfitt aö imynda sér aö þessir
ensku og amerisku leikarar séu
aö leika Þjóöverja. Mér finnst
ekki hafa tekist aö endurvekja
andrúmsloft þessa timabils,
maöur hefur það alltaf á til-
finningunni aö þetta sé allt
meira og minna gert i stUdiói.
Jafnvel búningarnir eru ekki
þeir réttu, nema náttúrlega ein-
kennisbúningarnir.
Og svo er annað: nasistarnir
eru allir sýndir sem skepnur og
illmenni, en þeir eru gáfuö ill-
menni. Rússarnir fá i raun
miklu verri útreiö, þvi þeir eru
sýndir sem grasasnar. Og þaö
segir mér fróöur maöur að rúss-
neskan sem þeir töluöu hafi
bara verið bulí. Af hverju voru
þeir ekki látnir tala ensku eins-
og Þjóöverjarnir?
Þetta eru aö visu smamunir,
miöaö viö þau ósköp sem þætt-
irnir hafa fram aö færa af
þörfum upplýsingum. Til aö slá
botninn i þetta vil ég svo þakka
sjónvarpinu fyrir aö hafa tekið
þessa þætti til sýningar, og vona
að sem flest ungt fólk horfi á þá.
Þeir eru góöir, þrátt fyrir ótal
galla.
Sjónvarpsgleypir
Sjónvárpiö sýnir I kvöld
breska heimildamynd um
klerkana i tran, sem hafa ver-
iö ansi áberandi I heimsfrétt-
unum áiöan iranskeisara var
steypt.
En þessir klerkar eru
náttúrulega ekki fæddir i gær.
Klerkastéttin hefur löngum
veriö voldug i Iran, sem og i
öörum múhameðstrUarrikj-
um, og á sér langa og skraut-
lega sögu. Ef til vill getur
myndin gefiö okkur einhverja
skýringuá þvi furöulega fyrir-
bæri, að þegar Iranir hafna
vestræna munstrinu skuli þeir
snúa sér aftur i miöaldir, rétt
einsog valkostnirnir séu ekki
fleiri.
—ih
Khomeini — æöstur allra
voldugra klerka — leyfir
börnunum aö koma til sin.
Sjónvarp
kl. 21.05
Athyglisverð
söngkona
Poppunnendur þurfa ekki aö
vera meö böggum hildar I
kvöld, þvi aö sjónvarpiö ætlar
aö sýna hálftima þátt frá
sænskum kollegum sinum um
bresku söngkonuna Kate
Bush.
Viö höfum þaö eftir áreiðan-
legum heimildum, aö Kata
þessi sé meö þeim vinsælli og
virtari i poppheiminum um
þessar mundir. HUn semur
sjálf flest þeirra laga sem hún
flytur, leikur á hljómborö og
er auk þess fræg fyrir sérstæð-
an flutning, bæöi hvaö varöar
söng- og sviösframkomu, enda
mun hún hafa verið i læri i
dans- og látbragöslist.
—ih
Kate Bush — vinsæl I popp-
heiminum.
Sjónvarp
kl. 20.35
Þessa mynd tók — gel — I Melaskólanum þegar kennsla var aö
hefjast þar I slöustu viku.
s
I skólanum, í skólanum
Nú eru krakkarnir komnir
af staö meö skólatöskurnar
rétt eina feröina. Litli barna-
tlminn I dag er helgaöur skóla
og skólagöngu. Stjórnandi
þáttarins er Sigrún Ingþórs-
dóttir fóstra.
Svavar Jóhannsson 8 ára og
Maria Kristin Björnsdóttir 10
ára koma i heimsókn og flytja
leikþátt, sem gerist i skóla-
stofu. Lesin veröa ljóö og
þulur, m.a. ljóöiö Haust eftir
Margréti Jónsdóttur, og
Ragnheiöur Davíösdóttir les
tvær stuttar smásögur um
þetta mál málanna, skólann.
Sigrún Björg ætlar svo aö
segja hlustendum sinum frá
skólanum og hvaö biöi þeirra
þar I vetur og næstu vetur.
—ih
ÆjMí Útvarp
kl. 17,20
Helför lýkur
t kvöld veröur sýndur fjóröi
og sfðasti þáttur Helfararinn-
ar, og nefnist hann Heimtir úr
helju. Ekki veröa þó allir
heimtir úr helju, einsog nærri
má geta, og til litils aö biöa
eftir lukkulegum endi á
þessari voðalegu sögu.
I siðasta þætti var greint frá
örlögum Karls Weiss, sem
hafði tekiö þátt i aö mála and-
þýskar áróöursmyndir og
smygla þeim Ut úr fanga-
búöunum. Einnig var skýrt frá
þvi hvernig Erik Dorf lætur
bæta tækjabúnaöinn i Ausch-
witz til þess að „auka fram-
leiönina” einsog hann myndi
áreiöanlega oröa þaö, þessi
snillingur i aö nota fagleg orö
um glæpi sina og félaga sinna.
Röðin er nú komin aö
gettóinu i Varsjá. Flutningar á
fólki þaöan til Auschwitz og
Treblinka er hafinn, og
uppreisnar er aö vænta. Þvi
miöur var þessi hetjulega og
örvæntingarfulla uppreisn
dæmd til aö misheppnast.
Aö loknum siöasta þættinum
veröa umræöur um mynda-
flokkinn i sjónvarpssal.
ögmundur Jónasson frétta-
maöur stjórnar umræðunum,
en þátttakendur veröa Gisli
Agúst Gunnlaugsson, sagn-
fræöingur, Stefán Edeilstein
skólastjóri og Otto Michelsen
forstjóri. Umræöurnar munu
standa i 40 minútur. —ih
Sjónvarp
kl. 21.30