Þjóðviljinn - 18.09.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 18. september 1980. ÞJÓÐVILJINN SIÐA 3
Skattamál einstœðra foreldra
Jákvæður
fundur
sagði Ingibjörg Björnsdóttir eftir viðrœður
við fjármálaráðherra
Félag einstæðra foreldra fékk
Ragnar Arnalds fjármálaráð-
herra á fund I fyrrakvöld til að
ræða skattamái félagsmanna,
sem hafa borið sig illa undan
nýju skattalögunum.
Rafmagns-
truflanír á
Austurlandi
„1 nótt var úrfelli á Norð—
Austurlandi. 100 mm úrkoma
mældist á Dalatanga og 70 mm I
Vopnafirði. Hvöss norð—austan-
átt var við ströndina en lygnara
inn til landsins. Svokölluð slyddu-
ising settist á rafmagnslínur”,
sagði Trausti Jónsson á Veður-
stofu Islands vegna frétta um raf-
magnstruflanir á Austfjörðum i
fyrrinótt.
Samkvæmt upplýsingum
Erlings Garðars Jónassonar raf-
veitustjóra á Austurlandi höfðu
Rafmagnsllnur sligast undan
þungri ísingunni,linur slitnað og
slár brotnað. A Egilsstöðum hafði
rafmagnsstaur farið á hliðina svo
og stæða undir linunni til Hlaða og
varö þar rafmagnslaust. Um
nóttina varð rafmagnslaust um
allt Mið—Austurland milli kl. 2.30
og 3.30.
í gær voru svo rafmagns-
truflanir á Egilsstöðum og á
Fljótsdalshéraöi fram eftir degi.
Ekki er vitað um truflanir
annarsstaðar en á Austurlandi en
Erling Garðar sagðist ekki hafa
fulla yfirsýn ennþá. Jörð var
alhvit i byggð og hitastigið við
frostmark. —-gb.
1 samtali við Ingibjörgu Björns-
dóttur formann Félags einstæðra
foreldra kom fram aö vel fór á
með fjármálaráðherra og fundar-
mönnum. Ragnar lýsti þvi yfir I
byrjun að framkvæmd skatta-
laganna yrði könnuð itarlega og
sérstaklega yröi athugað hvernig
,þau koma niður á einstæðum for-
eldrum.
Ingibjörg sagði aö þegar skatt-
seðlarnir fóru að berast mönnum
i hendur nú I sumar heföi komið i
ljós að margir einstæðir for-
eldrar, einkum þeir sem hafa eitt
barn á framfæri sinu, hefðu
komiö afar illa út. Þeir hefðu
haft samband við félagið, en nú
fyrst varð úr þvi að málin yrðu
rædd við ráðamenn. Ætlunin var
að fá fulltrúa þeirra flokka sem
stóðu aö lögunum til að sitja fyrir
svörum, en aðeins þeir Ragnar
Arnalds og Kjartan Jóhannsson
mættu ásamt Þorkeli Helgasyni
frá Reiknistofnun Háskólans.
Einstæöir foreldrar sem greiða
skatta eru nú 6760, þar af 3760
sem eru með eitt barn á framfæri
sinu. Þeir eiga 2200 börn undir 7
ára aldri.Margir fengu verulega
hækkun, enda þótt búið væri að
reikna út aö hópurinn i heild
myndi fá lægri skatta. Þegar
betur var að gáð kom I ljós að
hækkunin fólst einkum I út-
svarinu og er skýringin sú að
heimild til lækkunar útsvars var
ekki á skattseðlinum nú. Skatt-
greiðendur hafa rétt á að sækja
um lækkun til sveitafélaganna og
munurinn á sköttunum núna og I
fyrra liggur i þeirri lækkun sem
þá fékkst vegna ástæðna ein-
stæðra foreldra.
Sigrlður sagði að fundurinn
hefði verið mjög jákvæður og
félagið hefði þegar tilnefnt full-
trúa i nefnd til að kanna vanda
einstæðra foreldra, þau Jóhönnu
Kristjónsdóttur og Þorkel Helga-
son.
—ká
Samþykkt rikisstjórnarinnar
um Flugleiðamálið
Aðskildur fjárhagur
Atlantshafsflugsins
Eins og skýrt var frá I Þjóðvilj-
anum I gær hefur einróma verið
samþykkt I rfkisstjórn stefnu-
mótun um aðgerðir hennar varð-
andi vanda Flugleiða. Hér fara á
eftir meginatriðin úr samþykkt
rikisstjórnarinnar frá þvi I fyrra-
dag:
„Ljóst er aö sú ákvörðun Flug-
leiða hf., aö draga mjög úr eða
fella niður flugrekstur á Atlants-
hafsleiðinni á milli Luxemborgar
og Bandarikjanna mun hafa afar
viðtæk áhrif I ýmsum þjónustu-
greinum og skapa óvissu um at-
vinnu fjölda manna, auk þess sem
umtalsverðar tekjur rikissjóðs af
flugi þessu falla niður.
Aö þessu athuguöu telur rikis-
stjórnin rétt að stuðla að þvi, aö
umrætt flug megi halda áfram
með svipuöum hætti og verið
hefur enda verði það i höndum Is-
lensks flugfélags. I þessu skyni er
rikisstjórnin reiðubúin til þess aö
bjóöa eftirgreinda aðstoð:
Leiðrétting
1 fregn um andlát Kristjáns
Andréssonar i blaðinu I gær féll
niður nafn Jóhanns Kristjánsson-
ar I upptalningu á börnum
Kristjáns.
Þjóðviljinn biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
1. Rikissjóöur veiti I 3 ár bak-
ábyrgö sem nemi u.þ.b. þeim
tekjum sem rikissjóður hefur haft
af umræddu flugi (lendingar-
gjöld, leigugjöld á Keflavikur-
flugvelli, tekjur af frihöfn, opin-
ber gjöld of 1.), allt að 3 milljónir
á ári til greiðslu eða á eða upp I
rekstrarhalla sem kann aö verða
frá 1. okt. 1980 til 1. okt. 1983.
2. A fundi samgönguráöherra
Islands og Luxemborgar verði
leitaö eftir sambærilegri aöstoö
frá rikisstjórni Luxemborgar.
3. Eignarhluti rikissjóðs i Flug-
leiðum hf. veröi aukinn I 20 af
hundraði hlutafjárins.
Rikisstjórnin leggur jafnframt
áherslu á eftirgreind atriöi:
1. Atlantshafsflugiö verði eins
og frekast er unnt aöskiliö frá
grundvallarfluginu (innanlands-
flugi og nauösynlegustu tengslum
viö nágrannaiöndin) t.d. með að-
skildum fjárhag eins og hag-
kvæmt er.
2. Samstarf og samstaða
stjórnar og starfsliös Flugleiða
verði stórbætt. Stuölað verði aö
þvi aö koma á sem bestum starfs-
friði umrædd 3 ár, m.a. starfsliði
veröi gefinn kostur á auknum hlut
I i félaginu og aðstööu til að fylgj-
I ast með ákvarðanatöku. Teknar
' verði upp formlegar viöræður viö
j starfsliö um framkvæmd ofan-
j greindra atriöa”. — ekh
Um 60 manns mættu á fund einstæðra foreldra með Ragnari Arnalds fjármálaráðherra. A minni mynd-
inni sést Ragnar I ræöustóli, en annar gestur fundarins, Kjartan Jóhannsson alþm.,punktar hjá sér at-
riði sem fram komu i máli ráðherrans.
Ragnar Arnalds:
Vandinn verður kannaður
„Þetta var ánægjulegur
fundur”, sagði Ragnar Arnalds
fjármálarðherra um viðræður
sinar við einstæöa foreldra i
fyrrakvöld.
„Þaö var fjallaö um þann
vanda sem blasir við einstæöum
foreldrum. Þaö hefur komið 1 ljós
að allmargir i þessum hóp hafa
fengið verulega hærri skatta
eftir breytinguna á skatta-
lögunum, enda þótt hópurinn sem
heild fái lækkun.
Breytingin felst m.a. I þvi aö
áöur fengu einstæðir foreldrar
persónuafslátt eins og hjón, en nú
fá þeir hærri barnabætur. Hjá
þeim sem hafa eitt barn á fram-
færi sinu vega barnabæturnar
ekki upp á móti persónuafslætti
hjóna. Siðan hefur komið i ljós að
i fyrra var útsvar lækkað i
miklum mæli hjá einstæðum for-
eldrum, vegna heinilisaðstæöna.
en sú heimild hefur ekki verið
nýtt enn og það er vert að benda
einstæðum foreldrum á þann
möguleika að leita til sinna
sveitafélaga og sækja um lækkun
útsvars.
Niöurstaða fundarins var sú að
það væri sjálfsagt að skipa nefnd
til aö kanna vanda einstæöra for-
eldra og það mál er þegar komið
vel á rekspöl”, sagði Ragnar Arn-
alds. ■* ká
TOYOTA
Varahlutaumbodið
Ármúla 23 - Sfmi 81733
2ja ára ábyrgð og
saumanámskeið innifalið
i verði.
Fullkomin viðgerðar- og
varahlutaþjónusta.
Toyota
5500
með
sauma-
armi
Fullkomin þægi-
leg vél sem leikur
í höndunum á þér.
Sjálf virkur
teygjusaumur,
f jölsporasaumur,
kappmellusaum-
ur, blindföldun og
hnappagata-
saumur. Zig-zag
allt að 7 mm.
Verð
kr.
218.300
TOYOTA-
SAUMAVÉLA-
FJÖLSKYLDAN
Toyota saumavélar fyrir alla
Á verði fyrir alla
Á greiðslukjörum fyrir alla