Þjóðviljinn - 18.09.1980, Page 5
Fimmtudagur 18. september 1980. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 5
Nýr forseti í Suður-Kóreu:
Dæmir helsta and-
stæðing sinn til dauða
Einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar i Suður- kommúnista í Norður-Kóreu. Meira en tuttugu fylgis-
Kóreu/ Kim Dae-jung, var í fyrradag dæmdur til menn hans fengu fangelsisdóma, frá tveim árum og
dauða, sakaður m.a. fyrir að hafa sambönd við upp í tuttugu.
Þessi mynd er tekin á ritstjórnarskrifstofu I Kwangju. Chun hefur bannað 172 blöð og timarit, og kallar
þau „spillt”
Þessi pólitisku dómar eru
mjög rækileg staðfesting á þvi,
á hverju Suður-Kóreumenn eiga
von undir stjórn hins nýja
forseta, Chun Doo Hwans,
fyrrum hershöfðingja, sem lét
auðsveipan söfnuð, 2500 manna
„Þjóðarráðsstefnu einingar”
kjósa sig einróma (eitt atkvæði
á móti) til forseta fyrst i mán-
uðinum.
Asakanir þær sem bornar
voru á Kim Dae—jung þykja
fáránlegar.
„Okkar tfkarsonur"
Chun forseti var litt þekktur
hershöfðingi áður en Park
Chung einrræðisherra og forseti
var myrtur i október I fyrra. I
desember sá Chun sér leik á
borði i valdataflinu. Hann var
yfirmaður öryggissveita lands-
ins svonefndra og lét skyndilega
handtaka um 40 herforingja i
sambandi við morðið á Park.
Þar með var valdarán hans
komið hálfa leið. Hann gerði
Choi Kyu Hah forseta að valda-
lausu handbendi sinu og lét
hann svo segja af sér á ágúst.
Viku siðar sagði Chun af sér
herforingjatign, vegna þess að
samkvæmt stjórnarskránni má
forsetinn ekki vera úr hernum.
Chun, sem er sonur grasa-
læknis, nam við herforingja-
skóla landsins, siðar gekkst
hann undir „sérstaka” þjálfun i
Bandarikjunum og hann stjórn-
aði suðurkóreskri hersveit i
Vietnamstrlðinu — þær sveitir
voru þá sérstaklega illa
þokkaðar fyrir grimmd. Þessi
nýi einræðisherra er þvi „okkar
eigin tikarsonur” eins og
bandariskur diplómat hefur að
orði komist um annan einræðis-
herra.
Handtökuglaður
Chun hefur óspart verið
sakaður um að bera ábyrgð á
blóðbaðinu i borginni Kvangju i
mai, en þar hafði risið upp
fjöldahreyfing sem krafðist
þess að herlög yrðu úr gildi felld
og stefnt á lýðræði i landnu. Sú
uppreisn var bæld niður af mik-
illi grimmd. Chun hefur reynt
að afla sér nokkurs orðstírs með
þvi að reka 8000 embættismenn
fyrir spillingu og handtaka um
30 þúsundir manna sem hann
kallaði glæpamenn og
óeirðaseggi — eins er vist að að
baki slikra nafngifta felist við-
leitni til að taka hugsanlega
andstæðinga ^úr umferð á
fölskum forsendum.
Chun hefur ekki aðeins látið
dæma Kim Dae-jung sem eitt
sinn hafði r.æstum þvi sigrað
Park i forsetakosningum, til
Chun Doo Hwan veifar til
safnaðarins, sem hann lét kjósa
sig til forseta
dauða. Hann heldur og öðrum
stjórnmálaforingjum i haldi,
hefur lokað 172 blöðum og tima-
ritum og rekið 400 blaðamenn.
Chun er óspar á loforð um að
hann muni koma á lýðræðislegu
velferðarriki i Suður-Kóreu, en
ekki munu þeir margir sem
leggja trúnað á slikt tal. Siðast-
liðinn áratug hefur þriðjungur
þjóðarauðs i landinu safnast á
hendur 1% af fjölskyldum
landsins. Hagvöxtur var um
skeið allmikill, en er nú kominn
niður i 5,9%.
Hundsar Carter
Bandarikjastjórn hefur látib i
ljós óánægju nokkra með með-
ferð Chuns á andstæðingum
sinum, en ekki hefur mikil sann-
færing fylgt þeim umvönd-
unum. Chun veit, að Bandarikj-
menn ætla ekki að hreyfa við þvi
39.000 manna liði, sem þeir hafa
i Suður-Kóreu og telur sig þvi
hafa efni á þvi að ypta öxlum
þótt Carter muldri eitthvað fyrir
siðasakir. „Sumir útlendingar
eru að segja öðrum að gera hitt
og þetta” segir hershöfðinginn,
sérþjálfaður i Bandarikjunum,
og lætur sér fátt um finnast
—áb.
FRÉTTA-
SKÝRING
Norður- og Suður-Kórea:
Samanburdur
á ríkjum
Kóreuskaga er skipt mi11 tveggja ríkja, eins og
mönnum er kunnugt, og hafa þau fá vinsmaleg sam-
skipti átt síðan Kóreustríðinu lauk: hár veggur aðskilur
þau og yfir hann hafa ekki komist póstur né síma-
leiðslur.
Eftir morðið á Park í fyrra komst samt nokkur skriður
á viðræður um bætta sambúð og átti að byrja á að auð-
velda meðlimum þeirra fjölmörgu fjölskyldna sem
höfðu sundrast i Kóreustriðinu að hafa samband sin á
milli. En þróunin síðustu mánaða hefur svo aftur
stöðvað þessa þróun og er ekki liklegt að viðræður verði
teknar upp i bráð. Norðanmenn segjast sem fyrr hafa á
þeim mikinn áhuga.
Hvorugt þessara rikja hafa
fengið lof fyrir lýðræði: i
Norður—Kóreu er við lýði einhver
magnaðasta foringjadýrkun sem
sögur fara af. En það riki hefur
um margt staðið sig vel i efna-
hagslegri samkeppni við Suður—
Kóreu. Breska árbókin „Asia and
Pacific Rewiew” fyrir 1980 getur
þess, að árið 1978 hafi iðnaðar-
framleiðsla þar i landi aukist um
17 %. Þar er verið aö framkvæma
7 ára áætlun sem gerir ráð fyrir
12 % árlegum hagvexti (i
Suður—Kóreu var hagvöxtur i
byrjun áratugsins 9 % en er nú
kominn niður i 5,9 % ). Norður—
Kórea framleiðir, samkvæmt ár-
bók þessari, tvisvar sinnum
meira af raforku og stáli en
sunnanmenn, fjórum sinnum
meira af kolum og sex sinnum
meira af vélum ýmisskonar.
Arbókin gefur Norður-Kóreu og
gott orb fyrir öflugt menntakerfi
og heilsugæslu og mikinn fjölda
dagvistarstofnana. Þá hefur
Norður-Kórea að dómi heimildar-
ritsþessa, það fram yfir flest þró-
unarlönd, að þar er ekkert at-
Hluti af veginum sem skilur að kóreönsku rlkin tvö; hér fer enginn yfir nema fugiinn fijúgandi.
vinnuleysi, heidur skortur á
vinnuafli.
1 nóvember verður haldið sjötta
þing hins rikjandi kommúnista-
flokks I Norður—Kóreu, en slik
þing eru haldin á tiu ára fresti.
Þaðan mun vafalaust eitthvað
heyrast um samningamálin. Og
það efast víst enginn um að Kim
II—Sung verður endurkosinn leiö-
togi með miklu lófataki og sætum
hymnum. —áb