Þjóðviljinn - 18.09.1980, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 18. september 1980.
Rauðsokkar
Ársf jórðungsfundur Rauðsokka-
hreyfingarinnar verður haldinn fimmtu-
daginn 25. september kl. 20.00 i Sokkholti,
Skólavörðustig 12.
Til umræðu: Vetrarstarfið, kvennahátið
o.fl..
Allir velkomnir. Rauðsokkahreyfingin
Frá Félagsvísindadeild
Háskóla Islands
Stúdentar á fyrsta námsári eru beðnir um
að koma til viðtals mánudaginn 22. sept.
kl. 10 i stofu 201, Árnagarði.
Annars- og þriðjaárs nemendur komi til
viðtals við kennara sama dag kl. 14.
AFRÍKUHJÁLPIN1980
Framlög þegar farin
að berast
Þegar eru farin aö berast fram-
lög i Afrikusöfnun Rauöa kross
tslands, en eins og skýrt hefur
veriö frá i Þjóöviljanum er
„Afrikuhjálpin 1980” sameigin-
legt verkefni Rauöa kross
félaganna á öllum Noröurlöndun-
um, og sagöi Jón Ásgeirsson
framkvæmdastjóri söfnunarinn-
ar aö þetta væri i fyrsta sinn sem
Noröurlandadeildir Rauöa kross-
ins einbeittu sér aö sameiginlegu
verkefni.
Afrikuhjálpin 1980 er til komin
vegna mikilla hörmunga og
hungursneyöar sem hrjáir 8—10
miljónir manna i NA-Afriku.
Astæöur hörmunganna eru miklir
þurrkar og uppskerubrestur en
auk þess fara menn mjög með
ófriöi á þessum slóðum. Giró-
númer söfnunarinnar er 120200,
og hvetur RKI menn til aö láta
sitt af hendi rakna.
Jón Ásgeirsson er sem fyrr seg-
ir framkvæmdastjóri söfnunar-
innar hér á landi en i
framkvæmdanefnd eru auk hans
Ólafur Mixa, formaöur RKt,
Björn Friðfinnsson gjaldkeri
RKl, Ásgeir Guðmundsson,
Bryndis Schram, Friða Proppé
Jón Óttar Ragnarsson, Matthias
Johannessen og Ólafur B Thors.
Jón Asgeirsson sagði aö tryggt
væri að peningarnir sem safnast
kæmusttil þeirra sem til er ætlast
og eru eftirlitsmenn og fulltrúar
Rauöa kross deildanna á Noröur-
löndum á þeim stööum sem mat-
arsendingarnar veröa sendar til.
—AI
Borgarbókasafn
I' Reykjavíkur
n
Starfsmaður óskast til skrifstofustarfa.
Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Launakjör fara eftir samningum við
Starfsmannafélag Reykjavikurborgar.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist safninu
fyrir 1. október 1980.
Borgarbókavörður.
Finnski píanóleikarinn
PEKKA VAPAAVUORI
heldur tónleika i Norræna húsinu fimmtu-
daginn 18. september 1980 kl. 20:30 og leikur
verk eftir Bach, Beethoven, Debussy,
Kullervo Karjalainen og Einojuhani Rauta-
vaara.
Aðgöngumiðar i Kaffistofu hússins og við
innganginn. — Verð kr. 2.000.
Verið velkomin NORRÆNA
HLISIO
Atvinna
Blönduóshreppur auglýsir laust til
umsóknar starf skrifstofustjóra, frá næstu
áramótum.
Umsækjendur skulu hafa viðskiptamennt-
un. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf skulu sendar til
sveitarstjóra fyrir 1. október 1980.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður i
sima 95-4181 á venjulegum skrifstofutima.
Sveitarstjóri Blönduóshrepps.
Síminn er 81333
DJOOVIUINN Siðumúla 6 S. 81333.,,*
Minning
Ingvar Olsen
frá Staðarhrauni, Reyðarfirði
Fæddur 1. okt. 1901 — Dáinn 19. ág. 1980
I fundaamstri og erli barst mér
hin kalda helfregn. Ingvar Olsen
var horfinn okkur sjónum og
þrátt fyrir allháan aldur og ýms-
an sjúkleika kom þessi fregn á
óvart.
Siöast er ég hitti Ingvar var
hann sem fyrr beinn i baki meö
bros á vör og hugöi á sumarferö ■
til sonar og dóttur suður á Horna-
firöi.
Þetta var á einum sólrikasta
degi, er i sumar kom eystra,og
sem oftast áöur var heiðrikjan i
svip hans og hann ræddi um dag-
inn og veginn i bjartsýni og trú á
tilveruna, öfugt við ýmsa þá
yngri, er ævinlega festa augun á
þvi neikvæða.
Iharöri og óvæginni lifsbaráttu
haföi Ingvari lærzt að æörast ekki
en taka þvi sem að höndum bar
með jafnaöargeöi og þrauka
áfram, þó erfiöleikar, ómegö og
fátæki væru förunautar um skeið.
Hann bjó á Stuðlum, þegar ég
man fyrst eftir.og mér er enn i
minni,þegar Ingvarkom heim og
rætt var um menn og málefni, aö
engum lagöi hann illt til, allt var
það á hinn veginn og þá ekki sið-
ur, hversu rólega hann ræddi um
eigin hag, eins og þar léki allt i
lyndi og vissi ég þó þá og enn bet-
ur síðar, hversu erfið og óvægin
kjör hann bjó þá viö. Meö sam-
taka dugnaði og óbilandi kjarki
allrar fjölskyldunnar var sigur
unninn á öllu og basliö yfirstigiö.
Þar var hlutur Stefaniu konu hans
meö miklum afbrigöum, þvi dug-
meiri konu veit ég vart. Saga
þeirrahjóna varekkert einsdæmi
á þeim tima, en hetjusaga er hún
engu að siður, sem svo margra
annarra, er hófu sig upp yfir alla
örðugleika og urðu vel bjargálna
meö dugnaði, hagsýni og vilja-
þreki. Þessa er okkur i dag hollt
að minnast i kapphlaupi okkar
um raunverulega, en þó meir
imyndaða velferö.
Mannvænlegir og duglegir syn-
ir áttu sinn hlut svo vissulega og
það hefur sýnt sig, aö áfall sem
Steindór sonur þeirra varö fyrir
hefur I engu megnaö aö svipta
hann lifstrú og viljastyrk. Þar
hefur ekki si'zt komið til hiö góða
veganesti foreldrahúsanna, þar
sem i engu var æörast.
Ekki ætla ég mér að rekja ævi-
sögu Ingvars, en á þaö helzta skal
minnzt.
Fæddur var hann að Teiga-
geröisklöpp á Reyöarfiröi hinn 1.
okt. 1901. Foreldrar hans voru
hjónin Anna Stefánsdóttir og Jens
Olsen sjómaður. A Klöpp ólst
hann upp og fðr ungur aö sækja
sjóinn meö föður sinum.
Siðan lá leiðin upp á Hérað, þar
sem hann var með bát ásamt öðr-
um á Lagarfljóti og flutti vörur og
fólk frá Egilsstööum og inn um
allan Fljótsdal. Þetta stundaöi
hann i4 ár,og tókst giftusamlega.
Hér var um aðræöa merkan þátt I
samgöngusögu Héraösins, sem
gera þyrfti rækileg skil. 1932
gengur hann aö eiga eftirlif-
andi konu sina: Stefaniu Stefáns-
dóttur. Þau bjuggu tvö ár á
Ketilsstöðum, eitt ár i Arnkels-
gerði, en aö Stuðlum í Reyöarfirði
fluttu þau 1936 og bjuggu þar í 13
ár. 1949 fluttu þau að Staðar-
hrauni i Reyðarfiröi og bjuggu
þar allt til ársins 1972, aö þau
fluttu inn i kauptúniö á Reyöar-
firði, keyptu þar húsiö Merki og
bjuggu þar siðan. Börn þeirra,
sem öll eru á lífi, eru: Jens bóndi
á Dynjanda i Nesjahreppi, Unnar
verkamaður á Akranesi, Asdis
húsmóðir á Höfn (hún ólst upp i
Neskaupstaö), Guömundur
rennismiöur á Akureyri, Stein-
dór, sjómaður i Hafnarfirði, Rún-
ar verkstjóri á Reyöarfirði og
Lars verkamaður, Reyöarfirði.
Þau eru hiö dugmesta fólk, og i
hvivetna efnismanneskjur.
Ingvar Olsen var greindur og
athugull maöur. Hann var mjög
affarasæll i aöalstarfi sinu, bú-
skapnum, arögæfni hans þar vel i
meöallagi jafnan og fór vaxandi
allt til siöustu búskaparára.
Traustleiki og góö yfirvegun ein-
kenndu skaphöfn hans alla, hann
rasaði i engu um ráö fram, en far-
sæld fylgdi jafnan i öllum störf-
um. Viðmótið var hlýlegt, góölát-
leg kimni einkenndi oröræöur
hans, hann var fastur fyrir og lét i
engu sinn hlut, en var þó manna
óliklegastur til að afla sér óvild-
ar, enda öll ágengni viös fjarri
öllu skaplyndi hans. Mér þótti
gott að ræða við Ingvar, hann var
öfgalaus maður, sem lifiö haföi
kennt marga lærdóma,en við allt
var hann sáttur, er hann leit yfir
liðna tið.og vil var ekki til i hans
munni, þvi siður beizkja yfir
neinu. Raunsæi og glöggskyggni
alþýðumannsins voru honum
eðlislægir kostir, sem mótuðu
manninn.
Ingvar annaðist konu sina frá-
bærlega vel i erfiðleikum hennar
siðustu árin og gerði allt, sem
hann gat.til að létta henni þá,
enda var Stefania sannarlega vel
að þeirri umhyggju komin.
Að leiðarlokum þakka ég Invari
hin góðu kynni og tryggð alla
jafnt við mig persónulega sem
þann málstað sem ég fýlgi. Slika
liðsmenn er ljúft aö eiga, þeirra
er lika saknað að verðleikum.
Stefaniu og öllum ástvinum sendi
ég hjartanlegustu samúðarkveðj-
ur minar sem minna. Það er bjart
yfir minningu Ingvars. Hans er
gott að minnast, þvi fordæmi
hans i lifinu var hvivetna hið
bezta. Helgi Seljan.
Verklegt nám fóstrunema á
dagvistarstofnunum:
Fóstrur áttu eftir
aö fjalla um málið
Missagt var i Þjóðviljanum i
gær að fóstrunemar væru
komnir aftur i verklegt nám á
dagvistarstofnunum á höfuð-
borgarsvæðinu eftir að sam-
komulag hafði náðst milli
fóstra og fjármálaráðuneytis
á mánudag. Hið rétta er að
samkomulagið átti eftir að
bera undir fund i fóstrufélag-
inu, sem boöaöur var i gær-
kvöld og fara nemarnir ekki
inn á stofnanir nema fundur-
inn samþykki samkomulagið.
Fundinum var hins vegar ekki
lokið i gærkvöldi þegar þjóð-
viljinn fór í prentun.
—AI