Þjóðviljinn - 18.09.1980, Page 15
Fimmtudagur 18. september 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15'
Hringid í síma 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum,
Siðumúla 6.
lesendum
Prúðir unglingar í
Ég fór á rokktónleika i
Laugardalshöllinni á laugar-
dagskvöldið, „Hokk gegn her”.
Þar voru mættir unglingar, ein-
hverjar þúsundir sennilega, og
þetta unga fólk kom mér enn
einu sinni á óvart.
betta unga fólk, sem að
stærstum hluta virtist vera á
milli 15 ára og tvitugs, var ein-
staklega prútt og naut þeirrar
tónlistar sem borin var fram af
góðum listamönnum.
Athygli mina vakti sérstak-
lega, að þegar safnað var aur-
um handa frönskum flótta-
manni, lögðu flestir unglingar
eitthvað i baukinn. Þetta litla
dæmi sýnir á einkar ljósan hátt
að þetta unga fólk er ekki sá
skríll sem fjölmiðlar vilja oft
vera láta, og er ofsótt stööugt á
almannafæri, heldur ungt heil-
brigt og hugsandi fólk, sem
hægt er að binda vonir við.
Ég skrifa þetta lesendabréf til
að þakka fyrir samveru með
Höllinni
þessu fólki eina kvöldstund og
ég legg auk þess til að byggt
verði nokkur þúsund fermetra
stálgrindahús á Stór-Reykja-
vikursvæöinu og þessi skemma
veröi afhent æskulýðnum til
tónleikahalds og félagsstarf-
semi. Þetta framlag komi i
staðinn fyrir þá áráttu hinna
„fullorðnu” að hundelta æsku-
lýðinn sýknt og heilagt.
14. september 1980
Hrafn Sæmundsson
Móðurafi eða móðurfaðir?
Mishermt var i Þjóðviljan-
um fyrir nokkrum dögum aö
Pétur Guðmundsson skólastjóri
á Eyrarbakka væri alþingis-
maöur. Hann bauð sig fram til
þings, en féll einsog margir
góðir menn, sbr. visupartinn i
Alþingisrimunum:
Hristi lengi ljótan skailann
og lá svo óvigur.
En hann var talinn gáfumaður,
og ræðumaður góður.
Fróölegir eru ættartöluþætt-
irnir i blaðinu, en ef ég man rétt
var áeinum staö nefndur móður-
eða föðurafi og átt við afa
hlutaðeigandi i móöur- eöa
fööurætt.
Þetta er villandi. Föður eða
móðurafi minn eða móður-
amma eru t.d. vitaskuld lang-
amma min og langafi. Hér ætti
aö segja móöurfaðir og móöur-
móðir osfrv., enda forðast ætt-
fræöingar þetta fyrrnefnda
orðalag. Ég vona að ég muni
rétt, hafi engan fyrir rangri sök.
Jóhann Sveinsson,
frá Flögu.
Pennayinir um allan heim
Okkur hefur borist virðulegt
bréf frá pennavinamiðluninni
„Five Continents Club” á Nýja
Sjálandi. Þar er lensendum
blaðsins boöiö að skrifa og ger-
ast meðlimir i klúbbi þessum,
og munu þeir þá fá send frétta-
bréf með nöfnum og heimilis-
föngum pennavina um heim
allan.
Meðlimir klúbbsins skipta
þúsundum og erú I 150 löndum,
af öllum stéttum og á öllum
aldri. Markmiö klúbbsins er, að
þvi er segir i bréfinu, að stuðla
að vináttu þjóöanna og heims-
friði. Þeirsem áhuga hafa skrifi
Five Continents Club
Bethells Road,
Waitakere,
New Zealand.
Galdur SKRÝTLUR
Kunnið þið þennan
galdur? Hann er einfald-
ur. Þið takið tvo fimm-
kalla og látið þá standa
upp á rönd hvorn ofan á
öðrum, milli þumalfing-
urs og vísifingurs. Þetta
getur örugglega enginn
gert, nema hann kunni
galdra! Og galdurinn er
fólginn í því, að þið setjið
eldspýtu á bak við pen-
ingana — auðvitað svo
enginn sjái. Góða
skemmtun!
— Ég held það sé
ekkert óhollt að reykja.
Ég hef reykt alla ævi og
er orðinn áttræður.
— En ef þú hefðir ekki
reykt, þá værirðu kannski
orðinn níræður.
Strákur kom inn í
verslun og bað um poka
af fuglafræi. Kaup-
maðurinn þekkti strákinn
og saqði:
— En þú átt engan
fugl!
— Nei, ég ætla einmitt
að fara að sá honum.
— Ég lenti í slysi á
skautasvellinu, datt og
meiddi mig og þurfti að
liggja í þrjár vikur.
— Hvað ertu að segja!
Fraustu fastur við ísinn?
barnahornrid
Tólf punda tillitið
Kona sem vinnur viö vélritun
kemur I heimsókn, og frú Sims
finnst hún vita grunsamlega
mikið um manninn hennar.
Höfundurinn, James
Matthew Barrie, var sjálfur
aðlaður á sinni tið. Hann
fæddist i Kirriemur i Skotlandi
árið 1860 og stundaði nám i
Edinborg þar sem hann varð
siðan háskólarektor. Barrie
hóf rithöfundarferil sinn meö
ljóðum og frásögnum úr
heimahögunum. Kunnastur er
hann þó fyrir leikrit sin, sem
stundum eru gáskafull og
æfintýraleg, stundum þrungin
þjóðfélagsádeilu sem þó
verður aldrei leiöinleg. Ævin-
týraleikurinn „Peter Pan”
(1904) vakti mikía athygli. Af
öðrum verkum má nefna „The
Admirable Chrichton” (1902),
„What Every Woman Knows”
(1908) og „A Kiss for Cinder-
ella” (1916). Sjálfsævisaga
Barries, „The Greenwood
Hat” kom út 1937. Sama ár
leát hann i London.
Útvarpið hefur áður flutt
eftirtalin leikrit eftir Barrie:
Erfðaskráin (1935), Ástarsaga
prófessorsins (1964) og
Engum er Chrichton likur
(1973).
tí Útvarp
? kS. 21.40
Hvernig
er góður
skóli?
Hörður Bergmann náms-
stjori flytur I kvöld annað er-
indi sitt af þremur um skóla-
mál, og nefnir það „Hvernig
er góður skóli?”
— Spurningin „hvernig er
góður skóli?” og þá jafnframt
spurningin um hvernig hægt
sé að bæta skólastarfið voru
■ . efst i huga minum við
samningu þessara erinda, —
sagði Hörður. — Þau mynda -
heild að þvi leyti að megin-
þættir alls skólastarfs eru
skoðaðir frá dálitið mis-
munandi sjónarhorni i hverj-
um fyrir sig. Fyrst almennt,
samfara einskonar skilgrein-
ingu á skóla, og siöan — i
erindinu sem flutt verður i
kvöld — með tilliti til þess
hvernig góður skóli starfar aö
minu mati. Siðast er svo sama
viðmiðun notuð til að f jalla um
stöðu skóla hér á landi.
Athyglinni er beint að innra
starfi skóla; einkum grunn-
skólanna.
Ýmsum kann að þykja það
djörf ætlun, aö reyna að draga
upp mynd af þvi hvernig góður
Sumarvaka aö hausti
Útvarpið cr enn I sumar-
skapi, þótt haustið sé riöið i
garö. A sumarvökunni I kvöld
er fjölbreytt efni aö venju.
Sigriður Ella Magnúsdóttir
byrjar vökuna með þvi að
syngja Islensk lög við undir-
leik ólafs Vignis Alberts-
•sonar. Næst kemu Vilhjálmur
Hjálmarsson, fyrrum
menntamálaráðherra, og
flytur þirðja og siðasta erindi
sitt um Ishús og beitar-
geymslu. Erindið nefnist:
Nordalsishús og ishúsið i
Elliðaárhólmum.
Hnitbjörg nefnist dagskrár-
liður, sem felst i þvi að Baldur
Pálmason les kvæði eftir Pál
V.G. Kolka. Að þvi búnu ræðir
Gisli Kristjánsson við 94 ára
öldung, „hann Kristján á
Klængshóli”. Rúsinan i pylsu-
endanum er svo frásögn séra
Jóns Kr. ísfeld. Manntjónið
mikla á Arnarfirði 20. septem-
ber 1900.
—ih
Hörður Bergmann: Athyglinni
beint að innra starfi skólanna.
skóli starfar, um flókið mat sé
að ræöa og niðurstaðan hljóti
að vera háð reynslu, þekkingu
og lifsviöhorfum þess er færist
slikt i fang, skoöanir séu
skiptar, og þetta er hárrétt.
Þessvegna mun ég leitast við
að færa fram rök fyrir þeim
skoðunum sem fram eru sett-
ar, til að hlustandinn geti tekið
afstöðu til þeirra og skýrt fyrir
sjálfum sér eigin hugmyndir
um góöan skóla, — sagði
Hörður að lokum.
ih
Jfc Útvarp
kl. 22.35
Útvarpsjeikritiö sem flutt
veröur i kvöld heitir „Tólf
punda tillitiö” og er eftir
James M. Barrie. Þýðandi er
Þorsteinn 0. Stephensen, en
leikstjóri Rúrik Haraldsson. I
hlutverkum eru: Helgi Skúla-
son, Margrét Guðmundsdóttir
og Brynja Benediktsdóttir.
Flutningur leiksins tekur
rúman hálftima. Tækni-
maður: Georg Magnússon.
Harry Sims á að hlotnast sá
heiöur að verða aölaöur eftir
nokkra daga, og hann æfir at-
höfnina með konu sinni.
Ekkert má fara úrskeiðis, þvi
sá væntanlegi Sir Harry er
hégómlegur leiöindaskröggur.
Rúrik Haraldsson leikstýrir
fimmtudagsleikritinu.