Þjóðviljinn - 18.09.1980, Qupperneq 16
DWÐVHMN
Fimmtudagur 18. september 1980.
Aöalsir.i Þjóftviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstudaga. L’tan þess tima er hœgt aö ná f blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins f þessum slmum : Kitstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Afgreiðsla
81285, ljósmvndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná I afgreiöslu blaösins isima 81663. 'Blaöaprent hefur sfma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 '81663
Grjótaþorpið skipulagt:
í gær kynntu borgar-
yfirvöld nýja skipulags-
tillögu að Grjótaþorp-
inu. Hún markar tíma-
mót i þeirri viðleitni að
varðveita húsin i
þorpinu og byggja
áfram á þeim verð-
mætum sem fyrir eru.
Aödragandinn er sú samþykkt
skipulagsnefndar borgarir.nar i
april 1979, að gerð skyldi skipu-
lagstillaga um verndun og endur-
nýjun Grjótaþorps i núverandi
mynd.
Meginhugmyndin að baki til-
lögunni er sU, að skipulags-
ákvæöum verði beitt til að stuðla
aö þvi, að sem flest hUsin standi
áfram og þeim verði komið i
sómasamlegt horf. A auðum
lóðum verði byggð ný hUs sem
taki mið af þeim sem umhverfis
eru aö formi til og efni.
Lóðaskipting verður óbreytt frá
þvi sem nU er að mestu leyti
nema i norðvesturhorni þorpsins,
en þar þarf að breyta mörkum
lóða til að hægt sé að hrinda
skipulagshugmyndum i fram-
kvæmd. Gert er ráð fyrir sömu
götustæðum og nú eru nema hvaö
Mjóstræti lengist i boga til
norðurs Ut á Vesturgötu.
1 tillögunni er hvatt til þess að
borgaryfirvöld geri verulegt átak
til þess að ganga endanlega frá
öllum opinberum svæðum i
þorpinu t.d. götum^angstigum og
almenningsgarði. Jafnframt
veröi hafist handa um endur-
bætur á hUsum i eigu borgar-
innar, eða, ef þau verða seld, þá
verði þaö með kvöðum sem
tryggja varðveislu þeirra og
viöhald um ókomin ár.
Þau umhverfislegu markmið,
Framhald á bls. 13
Hiðnýja skipulag Grjótaþorpsins. Verður Morgunblaöshöllin rifin? Ljósm. — gel.
Arkitektarnir Guðrún Jónsdóttir, Sigurður Harðarson og Hjörleifur
Stefánsson. Ljósm.: —gel.
Byggung á Eidigranda:
VILJA REISA 9
HÆÐA BLOKKIR
Aörir lóöahafar mótmæla að skipulagi sé breytt
Eins og skýrt var frá I Þjóö-
viijanum i sumar hefur Byggung
óskað eftir þvi viö borgaryfirvöld
aö breytt verði skipulagi á þvi
svæði á Eiösgranda sem félagiö
fékk úthlutað i vor. I staö þriggja
hæöa húsa vill féiagiö byggja allt
aö nfu hæöa blokkir og myndu
þær aö sjálfsögöu skeröa útsýni
fyrir aöra lóöarhafa á svæöinu og
valda skuggum og vind-
strengjum. Ósk Byggung er til
umfjöllunar I borgarkerfinu en
aörir lóöarhafar á Eiösgranda-
svæöinu hafa nú tekiö sig saman
og mótniælt þvf harölega aö
skipulaginu veröi breytt.
1 undirskriftarskjali, sem m.a.
liggur frammi á bensinstöðvum,
segir: „Við undirritaðir úthlut-
unarhafar á lóðum við Eiðs-
grandasvæðið II. áfanga) og
ibúar í nágrenni við Eiðsgranda
skorum á borgaryfirvöld að
framfylgja samþykktu skipualgi
á Eiðsgrandasvæði og mótmæl-
um harðlega að samþykkt verði
fram komin ósk um að reisa 9
hæða ibúðarhús meðfram Eiðs-
granda i stað þriggja hæða eins
og hið samþykkta skipulag gerir
ráð fyrir.”
Þegar hafa margir tugir manna
ritað nöfn sin undir þessi mót-
mæli og sagði einn lóöarhafa i
samtali við Þjóðviljann i gær að
ef borgaryfirvöld ætluðu einu
sinni enn að láta Byggung ráðsk-
ast með og breyta skipulagi
öðrum lóðarhöfum f óhag, þá
myndu allir lóðarhafar i nýja
hverfinu skila lóöunum sinum
aftur.
Astæðurnar sem Byggung teflir
fram með óskinni um
breytt skipulag erui að vegna
mjög mikillar jarðvegsdýptar
Mikil rimma innan norska Verkamannaflokksins:
Stjórn Nordlis í sjálfheldu
Deilan um bandariskra xopna-og birgðastöðvar harðnar
Frá Ingólfi Margeirssyni I
Osló:
Afstaöa Verkamannaflokks-
ins til bandariskra vopna- og
birgöastööva veröur æ óljósari.
Rikisstjórnin þarf á samstööu
flokksins aö halda til þess aö
koma málinu i gegn á Stórþing-
inu, en slik samheldni viröist
eiga langt I land.
Þaö er einkum vinstri armur
Verkamannaflokksins sem er
andvigur slikum stöövum á
norskri grund. Áætlanir rikis-
stjórnarinnar um staösetningu
birgöastööva I Þrændalögum
hafa oröiö til þess aö ýmsar
kenningar eru á sveimi um tii-
gang stöövanna. Meöal annars
hefur vcriö nefnt aö nota eigi
Noreg sem flugmóöurskip
Bandarikjanna i væntanlegri
árás á sovéska Murmanskflot-
ann.
Fulltrúaráðsfundi Verka-
mannaflokksins i Osló lauk að-
fararnótt miðvikudags án þess
að nein ákveðin afstaða væri
tekin til bandariskra vopna- og
birgðastöðva i Noregi. Eftir
miklar umræður var hætt viö
atkvæðagreiöslu um málið og
henni skotiö á frest til fram-
haldsfundar sem haldinn verður
11. nóvember.
Rikisstjórnin hefur lýst yfir
stuöningi sinum við byggingu
vopna- og birgðastöðva i
Þrændalögum, sem teknar yrðu
i notkun af bandariskum land-
gönguliöum ef til átaka kæmi á
norðausturvæng NATÓ. And-
staöan i Verkamannaflokknum
er hinsvegar það sterk, að enn
hefur flokksforystan ekki árætt
að ganga til atkvæöagreiðslu
um málið.
Niðurstaðan gæti orðiö nei-
kvæö og túlkuð sem vantraust á
rikisstjórnina. Landsfundur
Verkamannaflokksins sem
haldinn var fyrir rúmri viku og
átti að taka afstöðu til birgöa-
stöðvanna skaut einnig málinu á
frest.
Samtimis eykst þrýstingur
borgaraflokkanna á Verka-
mannaflokkinn og stjórnin hef-
ur verið gagnrýnd fyrir hald-
leysi i varnarmálum Noregs.
Það er þvi ljóst aö stjórn Nordlis
er komin i mikla sjálfheldu, og
allt bendir til þess að i uppsigl-
ingu sé haröasta rimma innan
Verkamannaflokksins i árarað-
ir.
Fréttin um fyrirætlanir rikis-
stjórnarinnar um byggingu
birgðastöðva i Þrændalögum
hefur einnig skapað ótta meöal
almennings þar um slóðir. Sl.
mánudag var stofnuð þar sam-
fylking gegn bandarískum
vopna- og birgðastöövum og
mun hún ráða til sin fastlaun-
aða ritara og setja upp skrif-
stofu i Þrándheimi.
Vikuritið Ny Tid birti i gær úr-
drátt úr magisterritgerð sem
bráðlega, verður lögð fram i
stjórnvísindadeild Oslóar-
háskóla. 1 ritgerðinni sem skrif-
uð er af Bjarna Eikefjord er sett
fram sú kenning að stöðvar
bandarfsku landgönguliða i
Noregi séu ekki reistar með þaö
fyriraugum að verja Norömenn
fyrir hugsanlegri innrás, heldur
séu þær hugsaðar sem árásar-
stöðvar á Murmansk-flota
Sovétmanna. Eikefjord sem
stuð.st hefur viö norsk- og
bandarisk hernaðarskjöl heldur
þvi fram að útþensla sovéska
flotans við Murmansk og lang-
drægar kjarnorkueldflaugar
hafi gert flugstöðvar Banda-
rikjamanna á Bretlandi og á
Islandi úreltar sem slikar, og
þvf vilji Bandarikin leggja
hernaðarlega áherslu á Miö-
Noreg. I þessu sambandi bendir
Eikefjord á að af 500 herflugvél-
um sem Bandarikin eru reiöu-
búin að senda til Evrópu komi
til átaka er um helmingur ætl-
aöur Noregi.
—IM/ekh
(allt að 6 m undir sjávarmáli)
verði grunnar svo dýrir að
þriggja hæða hús beri ekki kostn-
aðinn við þá. Hafa þeir mótmælt
kostnaðarútreikningum borgar-
verkfræðings í þessu efni og sagði
Þórður Þorbjarnarson i gær að
mikið bæri á milli sinnar niður-
stöðu og þeirra.
Atti hann hins vegar eftir
að fara yfir nýjustu athuga-
semdir félagsins, sem lagðar
voru fram i borgarráði á þriðju-
dag.
Sigurður Harðarson, formaður
skipulagsnefndar.sagði.að skipu-
lagsnefnd hefði skoöað hina nýju
skipulagstillögu Byggung en ekki
tekið neina afstöðu til hennar
ennþá. Hins vegar sagðist
Sigurður sjálfur vera mótfallinn
þvi að hróflað yrði við áður gerðu
skipulagi á þessu svæði, enda
snerti það hagsmuni fleiri aðila
en Byggung . Bjóst hann við að
skipulagsnefnd myndi fjalla
endanlega um þetta mál þegar öll
gögn varðandi kostnað lægju fyrir
væntanlega ekki siðar en i byrjun
næsta mánaðar. —AI
Ekki er ráð tiema...
17. júní
nefnd!
Það ætti að gefast nægur timi til
undirbúnings 17. júni hátiðahald-
anna i Reykjavik á næsta ári, þvi
á þriðjudag skipaði borgarráð
svonefnda þjóðhátiðanefnd, sem
sér um þau.
I nefndina völdust sömu menn
og sáu um 17. júni á þessu ári:
Þorsteinn Eggertsson, Hilmar
Svavarsson, Þórunn Sigurðar-
dóttir, Ömar Einarsson og Þór-
unn Gestsdóttir. 17. júni nefnd
hefur venjulega veriö kosin siöla
veturs eða snemma á vorin og
hafa nefndarmenn kvartað mjög
undan þvi að vegna ónógs undir-
búningstima og stutts fyrirvara
sé erfitt aö fá skemmtikrafta og
ná niður kostnaði við hátiða-
höldin. Eru þessar kvartanir
ástæðan fyrir þvi að nefndin fyrir
næsta ár hefur þegar verið
skipuð. — AI
Stoppaö
r • • j •
i gotin