Þjóðviljinn - 11.10.1980, Blaðsíða 23
Helgin 11,—12. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
Minningarorð:
Gísli Yagnsson
Mýrum, Dýrafirði
F. 3. ág. 1901 — D. 4. okt. 1980
Gisli Vagnsson fyrrum bóndi á
Mýrum i Dýrafirði andaðist i
Reykjavik laugardaginn 4. októ-
ber og er i dag til moldar borinn
frá Mýrakirkju. Gisli fæddist i
Fjaröarhorni i Gufudalssveit 3.
ágúst 1901. Foreldrar hans voru
Vagn Guðmundsson og Þuríður
Gisladóttir. Ölst Gisli upp hjá
foreldrum sfnum i Fjarðarhorni
til sex ára aldurs, en fluttist þá
með þeim að Hallsteinsnesi i
sömu sveit. Var hann á Hall-
steinsnesi til fermingaraldurs.
Siðar átti hann heima i Otradal i
Arnarfirði, en stundaði sjó-
mennsku á þilskipum bæöi frá
Bildudal og Þingeyri. 1923 gekk
hann að eiga unnustu sina Guö-
rúnu Jónsdóttur úr Sauðeyjum.
Settu þau saman bú á hálflendu
Rauösdals i Auökúluhreppi i
Arnarfiröi. Seinna flytjast þau
Vilja að
ísland
viðurkenni
Heng-Samrin
I fréttatilkynningu frá stjórn
Vináttufélags tslands og Vietnam
minnir hún á, aö Sameinuðu þjóð-
irnar muni innan skamms kveöa
upp árlegan úrskurð um lögmæti
fuiltrúa og telur, að tsland beri að
viðurkenna núverandi rfkisstjórn
Kampútseu, Heng-Samrin stjórn-
ina og hennar fulltrúa. Sé það i
samræmi viö þá reglu, aö viöur-
kenna skuli þá stjorn sem i raun
fer meö völdin I hverju rfki.
Árið 1979 voru fulltrúar Pol Pot-
stjórnarinnar úrskuröaöir lög-
mætir á þingi S.þ. ma. með full-
tingi íslands. Slðan hafa verið
birtar óvéfengjanlegar sannanir
fyrir þvi að á valdatíma Pol Pot-
stjórnarinnar voru framin fjölda-
morö og önnur óhæfuverk. Hafa
ber i huga að i árslok 1979 dró
Bretland til baka diplómatíska
viöurkenningu á Pol Pot-stjórn-
inni, segir stjórn Vináttufélagsins
og telur jafnframt rétt, aö tsland
styðji tillögu Heng-Samrin
stjórnarinnar um minnkun
spennu I Suðaustur-Asiu.
hjónin að Gljúfrá i sömu sveit.
Var þröngt til bús á báðum þess-
um jöröum, og varö Gisli þvi að
stunda sjómennsku með bú-
skapnum. Kom sér þá vel, að
Guðrún kona hans var búskör-
ungur hinn mesti, ekki sist þegar
börn bættust þeim hvert af öðru.
Um miöbik fjórða áratugarins
fluttust þau hjón aö Mýrum i
Dýrafirði og varð það forna
höfuöból eignarjörö þeirra, og
þar bjuggu þau, þar til synir
þeirra, Bergsveinn og Valdimar,
tóku við búi á jörðinni.
Böm Gisla og Guörúnar urðu
alls niu og lifa öll nema Sigur-
björg, er dó um fertugt frá mörg-
um börnum. Maður hennar var
Sigurður Guðmundsson i
Hjarðardal fremri I Mýrahreppi.
önnur böm Gisla og konu hans
eru: Einar starfsmaður við Há-
skóla Islands, Þuriður húsfreyja,
Kirkjubóli, Bjarnadal, önundar-
firði.Jón vélvirki i Reykjavik,
Una húsfreyja á Hvolsvelli, Alf-
heiður húsfreyja i Reykjavik,
Valdimar bondi á Mýrum og
hreppsstjóri I Mýrahreppi, Berg-
sveinn bóndi á Mýrum og Davið
læknir i Reykjavik. öll voru börn
þeira Gi'sla og Guðrúnar góöum
gáfum gædd og sérstakt mann-
kostafólk.
Hagur þeirra hjóna rýmkaöist
mjög eftir að þau fluttu að Mýr-
um, þótt Gisli yrði smám saman
að láta af hinum erfiðari störfum
vegna kölkunar I liðum, sem var
hinn kvalafyllsti sjúkdómur. En
aldrei var Gisli svo hrjáður að
ekki lýsti af ljúfmennsku hans i
svip og máli. Ennþá var þar hin
ágæta dugmikla kona Gisla
ásamt uppvaxandi börnum, sem
gerði þeim hjónum fært að sitja
Mýrar með aukinni sæmd, vax-
andi vinsældum og batnandi hag.
Kom hér ekki sist til, hvernig
þeim hjónum tókst að efla æðar-
varpið á Mýrum, svo aö til fyrir-
myndar varð. Atti Gisli ásamt
öðrum frumkvæöi aö stofnun
landssamtaka æðarvarpsbænda.
Einnig vann hann meö öðrum aö
hönnun fullkominnar dúnhreins-
unarvélar, sem hefur náö mikilli
útbreiöslu og létt mönnum þetta
erfiða og sóðalega starf. GIsli var
áhugamaður um öll félagsmál.
Starfaði hann að félagsmálum i
sveit sinni eftir þvi sem heilsa og
aöstæður leyföu. Hann var frjáls-
lyndur, fordómalaus og svo hress
4fg TILKYNNING
^ til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir septem-
ber mánuð er 15. október.
Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna rikissjóðs ásamt söluskattsskýrslu
i þririti.
Fjármálaráðuneytið
6. október 1980.
Allur akstur
krefst
varkárni
fS
Ýtum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
UUMFERÐAR
RÁÐ
i máli, aö svalandi andblær fylgdi
alltaf máli hans, hvort heldur var
á mannfundum eða i viðræöum.
Eftir þvi sem Gisla varð erfiðara
um vinnu og hreyfingu sökum
fötlunar sinnar jukust tómstundir
hans til lestrar og annarra and-
legra iökana. Hann var vel lesinn
i fræðum guðspekinga. Gisli lagði
sig eftir að setja fram hugsanir
i>ínar i bundnu máli. Orti hann
mikið af tækifærisljóðum og
lausavisum svo og náttúruljóö-
um. Ekki taldi hann ástæðu til aö
setja kvæði sin á prent. Hins
vegar las hann þau á samkomum
og flutti þau gjarnan vinum sin-
um í góðu tómi viö skál af göfugu
vini.
Ég, sem þessar linur skrifa, hef
átt þvi láni að fagna aö dveljast
um lengri og skemmri tima á
heimili þeirra Gisla og Guörúnar
viö leikogstörf með þeim hjónum
og börnum þeirra öllum. Hef ég
hvergi tekið þátt i sælla né feg-
urra mannlifi. Þökk sé þeim öll-
um lifs og liönum.
Gunnar Ossurarson
^ Matreiðslumenn
Almennur félagsfundur verður haldinn
miðvikudaginn 15. október kl. 15 að Öðins-
götu 7.
Dagskrá:
1. Kosning 2 fulltrúa og varafulltrúa á þing
Alþýðusambands íslands.
2. heimild til verkfallsboðunar.
3. önnur mál.
Stjórn Félags matreiðslumanna.
Fá!
rj’ UTBOÐ
Tilboð óskast i að gera fokhelt iþróttahús
Digranesskóla við Skálaheiði i Kópavogi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings Kópavogs i Félagsheimilinu
Fannborg 2 gegn 50.000 króna skilatrygg-
ingu.
Tilboðum skal skilað þar fyrir kl. 11:00
þHðjudaginn 4. nóv. n.k..
Bæjarverkfræðingur