Þjóðviljinn - 11.10.1980, Blaðsíða 7
' v"u, nvoo't • t.aiK a
Helgin 11.—12. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
VESTFJARÐALÍNAN TEKIN í NOTKUN:
Hún sparar 1,5
miljarð
Skrifað stendur: „Hinir siðustu verða
fyrstir"/ og má segja að þetta sannist á
Vestfirðingum nú/ þegar Vesturlínan
er tekin i notkun. Þeir hófu nefnilega
manna fyrstir baráttu fyrir lagningu
byggðalínu/ en eru svo manna siðastir
til að fá hana til sin. En betra er seint en
í vetur
aldrei/og nú er linan komin og verður
tekin í notkun i dag. Þessi rafmagnslina
mun gerbreyta orkumálum Vestfirð-
inga; ,/hún er stórkostleg bót fyrir
okkur"/ sagði Aage Steinsson forstöðu-
maður tæknideildar Orkubús Vest-
fjarða í samtali við Þjóðviljann.
Ótrúlegur
sparnaöur
Aage var nánar spurður um
þetta og benti hann á að nú myndi
keyrslu disál.véla algerlega hætt
nema i Strandaveitu, en aðveitu-
stöð þangað er ekki komin og mun
ekki koma fyrr en 1982. Keyrsla
þeirra diselrafstöðva, sem nú
verða stöðvaðar kostaði 1' mill-
jarðkróna sl. vetur og sagði Aage
að búast mætti við að ef keyra
hefði þurft stöðvarnar - næsta
vetur heföi kostnaðurinn ekki
orðið undir 1 1/2 milljarði króna.
Og sparnaðurinn á eftir að verða
enn meiri. Fjarvarmaveitur á
VestfjörBum fá ekki rafmagn frá
þessari linu fyrr en næsta sumar
og verða þær þvi um sinn að
keyra diselvélar, nú og svo þegar
Strandaveita kemur inn i dæmið
verður sparnaðurinn enn meiri.
Aage Steinsson var spurður um
hvort rafmagnsverð myndi lækka
á Vestfjörðum vegna þessa og
sagöi hann það ekki vera vegna
þess að Orkubú Vestfjarða stæði
illa fjárhagslega vegna lána
sem það hefði neyðst til að taka.
Þar að auki myndi Landsvirkjun
selja rafmagnið dýrara til Vest-
firðinga en annarra landshluta
um sinn, eða þar til nýr samning-
ur milli þessara aðila verður
gerður. Rafmagnsverð mun þvi
standa i stað, en ef linan hefði
ekki komið til, hefði rafmagns-
verðið orðið að hækka næsta
vetur.
Kostnaðurinn um
8 miljaröar
Kristján Jónsson forstjóri
RARIK sagöi að kostnaðurinn við
lagningu linunnar og aðveitu
stööva yrði um 8 miljarðar króna.
Og þá geta menn séö að linan
verður fljót að borga sig upp ef
hún sparar 1 1/2 miljarð króna i
diselkeyrslu næsta vetur. Að sögn
Kristjáns er linan vestur tekin út
úrNorðurlinunniviðHrútatungu i
Hrútafirði og þaðan er hún 161,4
km löng að Mjólkárvirkjun. Hún
liggur yfir Laxárdalsheiði, Gler-
árskóga, fyrir norðan Búðardal, i
gegnum Hvammssveit, Sælings-
dalsheiði og Saurbæ, yfir Gils-
fjörð, um Króksfjarðarnes og
Geiradal og Reykhólasveit, Guíu-
dal og yfir Þingmannaheiði og
Dynjandisheiði.
Kristján sagði að linan væri
tréstauralina nema þar sem hún
færi yfir Gilsf jörð og Þorskaf jörð,
þar hefði þurft að steypa og
einnig að reisa stálmöstur. Að-
spurður um hvort menn óttuðust
ekki skemmdir á staurum og linu
á hinum veðrasömu og snjóþungu
Loks tengist Mjólkárvirkjun landskerfinu þegar straumi verður hleypt á Vestfjarðalinuna.
heiðum vestra sagði Kristján að
linan væri mjög sterkbyggö og
hönnunarforsendur hefðu verið
háar. Gert væri ráð fyrir mikilli
isingu og háum vindhraöa þar
sem linan liggur og þvi væri ekki
ástæða til að óttast svo mjög um
skemmdir vegna veðurs eöa
snjóa og isingar. Hitt væri svo al-
veg ljóst að þessi lina gæti bilað
eins og allar aðrar linur en samt
væri ekki ástæða til að óttast um
meiri eða tiðari bilanir á Vestur-
iinunni en öðrum rafmagnslinum
i landinu.
Að lokum sagöi Kristján að
flutningsgeta linunnar yrði
hvergi fullnýtt til að byrja með,
en linan flytur 132 þúsund volta
spennu, eða það sama og byggð-
arlinan. Siðar mun svo rafmagns-
flutningur linunnar vaxa eftir þvi
sem þörf krefur.
Þola 20 sm ísingu
A tveimur stöðum fer Vestur-
linan yfir firði, Gilsfjörð og
Þorskafjörð og er linuhafið yfir
Gilsfjörð 833 m. en yfir Þorska-
fjörð 664 m. Arni Bjarni Jónasson
verkfræðingur, sem var ráðgjffi
við lagningu linunnar yfir þessa
firði, var spurður hvorl ekki væri
mikil hætta á að linan slitnaði
þarna i vondum veðrum að vetri
til.
Arni kvaðst ekki álita það, á-
lagsforsendur hefðu verið mjög
strangar og linan þyldi mikið álag
þar sem hún fer yfir firöina. Gert
væri ráð fyrir að linan þyldi 20
sm. isingu og um væri að ræða 60
tonna vira, þ.e. hver vir þolir 60
tonna álag. Gerð var sérstök
könnun á isingu og isreki á
þessum tveimur stööum áður en
styrkleiki linunnar var ákveöinn.
Taldi Arni mjög ótrúlegt að ising
á þessum slóðum gæti oröið 20
sm. á linu.
Aftur á móti benti Aroj á að
vissulega gæti linan bilað þarna>
eins og raunar allar rafn agns-
linur geta gert, og þá yrði nokkuð
tafsamt að gera við úti á fjörð-
unum. Hann benti ennfremur á,
að þessi linuhöf væru ekki þau
lengstu hér á landi, lengsta linu-
hafið væri yfir Hvalfjörð, um 900
m. langt.
Ljóst er af ummælum þeirra
sem gerst þekkja til, að ekki virð-
ist vera meiri hætta á bilunum
eða öðrum rafmagnstruflunum á
Vestfjarðalinunni en öðrum raf-
magnslinum hérá landi, þótt hún
liggi yfir firði og heiðar, þar sem
veður eru oft vond að vetrum og
snjóþungi mikill. Eins er ljóst að
linan mun gerbreyta rafmagns-
málum Vestfirðinga til batnaðar,
eins og Aage Steinsson sagði.
— S.dór.
GOODWYEAR
GEFUR 0'RETTA GRIPIÐ
FULLKOMIN HJOLBARÐASALA-
OG ÞJÓNUSTA
Felgum, affelgum og neglum
TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING
HJ0LBARÐAÞJ0NUSTAN
Laugavegi 172 - Símar 28080, 21240
[hIheklahf
PRISMA