Þjóðviljinn - 15.11.1980, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helg>n 15. — 16. nóvember 1980
Dagný
Kristjánsdóttir og
Árni Bergmann
skrifa um
bókmenntir
Köld eru karlaráð
Lióstollur eftir Ólaf Gunnars-
son er býsna mögnuö bdk. Eftir
þvi sem maður brýtur heilann
meira um hana viröist mann:
dýpra á henni. Kannski er þaö
þannig meö allar góöar bækur —
en þessi er svolitiö sérstök.
Karlfrelsisbókmenntir
Nýja kvennahreyfingin fæddi af
sér urmul af kvenfrelsisbók-
menntum, sumum mjög góðum,
öðrum vondum — eins og gengur.
Samnefnari þessara bókmennta
voru gagnrýnin viöhorf til hinna
muöu vestrænu lýðræðisrikja
þar sem frjdlsir atvinnurekendur
kúga karla, karlarnir kúga kon-
urnar, konurnar börnin o.s.frv.
Gagnrýnir og hressir karlmenn
innan vinstri hreyfingarinnar
tóku vel við og byrjuðu að ráðast
af hörku gegn sinni eigin kúgun
og þeim mannskemmandi leik-
reglum sem karlmenn neyðast til
að gangast undir til að geta talist
„menn með mönnum.”
En þaðer skemmst frá að segja
að karlmenn sem hafa viljaö
reiða öxina aö rótum karlasam-
félagsins hafa hreint ekki átt auö-
velt uppdráttar. Róttæku konurn-
ar segja stoltar: „Ykkar barátta
er (að sjálfsögöu) töluvert
ómerkilegri en okkar!” Og ákaf-
lega margir róttækir karlmenn
vilja ekki ganga lengra en það aö
muldra vandræðalega: „En við
karlamir erum vissulega kúgaöir
lika . . . ” — og úr svipnum skin
vantrú þeirra á eigin staðhæf-
ingu.
Bók ólafs Gunnarssonar ætti að
geta vakiö góöa umræðu um kúg-
un karlmanna, enda er hún, að
minu mati, eitt af þvi besta sem
fram hefur komið i seinni tið um
mótun karlmanna i þvi karla-
samfélagisem viðbúum i'— bæði
kynin.
Súpermenn
Aðalpersóna bókarinnar,
Stefán, er fimmtán eöa sextán
ára. Hann er i skóla á veturnruen
sumarið þegar sagan gerist vinn-
ur hann i timburverksmiðju þar
sem pabbi hans er verkstjóri. 1
timburverksmiðjunni vinna að-
eins karlmenn. Á heimili Stefáns
eru karlmenn i meirihluta, systir
hans sér um heimilið fyrir pabb-
ann, eiginmanninn, soninn og
Stefán — móðir þeirra er á
sjúkrahúsi. Utan vinnu og
heimilis spreytir Stefán sig svo-
litið á iþróttum og þar eru aðeins
karlmenn. Stefán á enga vini,
hvorki stráka né stelpur. Heimur
hans er þannig karlmannaheimur
þar sem konur eru annað hvort
húsmæður eða eins konar „hlut-
ir” sem karlar nota og niðast á
kynferðislega.
Sá karlmannaheimur sem Ólaf-
ur lýsir i Ljóstoili er ekkert
barnagaman — það veröur að
segjast. 1 timburverksmiðjunni
vinnur Stefán við aö stafla timbri
og vinnufélagar hans i þvi eru
mjög ungir menn annars vegar og
gamalmenni hins vegar — eða
þeir aldurshópar sem settir eru i
skitverkin á flestum vinnustöð-
um. Sá grimmasti og harðasti 1
hópnum, Viðar, átján ára, ræður
„móralnum” og sá „mórall” er
ekki ýkja félegur.
Kvikindisháttur Viðars er fjöl-
breytilegur og grimmd hans og
ruddaskap eru litil takmörk sett.
Það skiptir hins vegar ekki máli
hve galinn þessi drengur er — það
sem skiptir máli er það að ailir
vinnufélagar hans ganga að þeim
leikreglum sem Viðar setur.
Otrúleikinn
skartaði
sínu besta
Guðbergur Bergsson:
Sagan af Ara Fróöasyni
og ilugborgu konu hans.
Mál og menning 1980.
I þessari stuttu skáldsögu er
Guöbergur búinn að yfirgefa
plássið þai sem hann héit sig
bókum saman og kominn aftur i
þann höfuðstað þar sem Tómas
Jónsson breyttist i kjallaraibúð,
sællar minningar, og mörg
hrikaleg tiðindi geröust af Ást-
um samlyndra hjóna.
Þessi saga er einfaldari að
gerð en flokkurinn um Suður-
nesjaplássið. Timinn er aðeins
einn dagur (og þarf ekki einu
sinni að bæta við: og þó sem
þúsund ár), persónurnar eru
svo fáar að vel veröur tölu á þær
komið, og þótt þær séu ekki neitt
sérstaklega skyldar persónu i
raunsæislegri sögu, þarf lesand-
inn samt ekki aö efast um hver
er hver. Ari Frööason er at-
hafnamaöur. Hugborg kona
hans er alki sem situr að sumbli
út i bilskúr meö Helga leigjanda
þeirra. Ari bregður á það ráð að
halda viö Ingu, konu leigjand-
ans. Atburöir dagsins eru ofur
hversdagslegir ef þeir eru settir
fram i fölsku formi skýrsl-
unnar: Ari yngri er sóttur á
leikvöllinn, Óli leigjandasonur
fer hjólandi heim, athafna-
fegðar úöa i sig ótal pylsum með
öllu, þegar þessir þrir koma
heim eru Hugborg og Helgi sest
að sumbli meðan popparar og
kokkarar riöa húsum. Og svo
framvegis. Ari og Inga fara með
strákana i spaugilegasta laxa-
túr...
Heljarslóðarorusta
Þessari sögu hefur verið likt
viö prakkarasögur og hefur
meiru veriö logið. Svo mikið er
vist, að með henni berst lesand-
inn um þjóöfélagsstigann meö
ærslum og ólátum. Stundum er
engu likara en við séum stödd i
miðri gullöld kvikmyndafars
ans — einkum þar sern segir
frá laxatúrnum með bensinleysi,
fiskleysi, bleytu, hálfgerðri
drukknun og aö lokum kemur
mikill suðupottur á öngulinn i
stað fisksins stóra. 1 annan stað
finnst lesanda, að Heljarslóðar-
orusta Gröndals standi Guð-
bergi nær en t.d. Ugluspegill og
það fólk. Tökum dæmi af
popparastriðinu mikla:
„Eins og óður maður æddi
Gunni gitar fram og haföi eld-
rauða stjörnugitarinn sinn aö
vopni, en hann var metir.n á
þrjár miljónir. Hundrað silfur-
stjörnur glitruðu á gitarnum,
þegar sólin frétti af æði Gunna
gitars. Hún vildi ekki vera eftir-
bátur hans, heldur skein hún
efld af vasaspegium fimm
stelpna. Sólin jók stjörnuglitrið
á gitarnum, og hún lék sér við
strengi og stjörnur, þvi þær eru
hennar leikföng. Aldrei hafði
sólin fengið hættulegri keppi-
naut um vinsældir heimsins en
Gunna gitar og Óla æpara” (bls
74).
Stórýkjur
Með öðrum orðum: það er
mikið einkenni þessarar bókar
(og þarf ekki að koma lesendum
Guðbergs Bergssonar á óvart)
að raunveruleikinn er skotinn á
kaf með ýkjum, utan á „venju-
legar” uppákomur hans eins og
samtal fóstra og stráka á leik-
velli eða pylsuát feðga er hlaöið
stórmerkjum og furöum og of-
boðslegum viðbrögðum. Eitt
einfalt dæmi úr upphafi sög-
unnar: strákurinn Óli heyrir bil
hemla við leikvöllinn með ógur-
legu iskri. Honum finnst að
„hljóðiö hlyti að skera eyrun af
krökkunum”. Þó veit hann aö
SVo er ekki. Engu að siöur eru
ekki margar linur liönar þar til
„eyrun höfðu eflaust fokið” af
einni fóstrunni „En hún greip
þau bæöi og smellti á sig með
lófunum” (bls 5). Þessi áfanga-
sókn imyndunaraflsins segir
nokkra sögu af aðferð Guð-
bergs.
Sem er einatt hnyttin, en
getur lika spólað eins og bill i
sandi þegar höfundurinn fellur i
þá freistni að nema of lengi
staðar við ákveöið tilefni. Þar
um má nefna annað dæmi úr
upphafi sögunnar: þegar
drengir og fóstrur stunda nafla-
skoöun.
Guðbergur Bergsson
Þanþol efnisins
Sem fyrr segir er ekki erfitt
að átta sig á persónum þessarar
sögu. Þær halda sig af nokkurri
trúmennsku við kroppinn á sér
og þann afstöðukjarna sem
heldur þeim saman. En þær eru
til margs visar, ýkjustillinn
reynir mjög á þanþol efnisins i
þeim.
Tökum dæmi af Ara Fróða-
syni. Hann þarf á sjálfs-
réttlætingu athafnamannsins að
halda: hann er einatt að bjarga
fyrirtækinu, þegar hann snýr
heim á kvöldin hefur hann það á
tilfinningunni að „heilagur
maður stigi inn i bil sinn eftir aö
hann hefur unniö sitt daglega
kraftaverk” (17). Nokkru siöar
er hann byrjaður á skensi um
auglýsingastarfsemi, rétt eins
og hann væri sjálfur meinfýsinn
niðurrifsmaður á borð við Guð-
berg Bergsson: „Ef við auglýs-
um okkur ekki sjálf með ráðum
og dáðum, blöndnum fáránleg-
asta fiflahætti, þá förum við
hreinlega ekki aöeins fram hjá
sa mferðam önnum okkar,
heldur lika fram hjá lifsföru-
nauti okkar og jafnvel sjálfum
okkur” (23). Ekki hefur hann
fyrr lokið sér af i þvilikum
spekimálum en hann þarf endi-
lega að gefa athafnaþrá sinni og
græðgi útrás með að stela af
diski sonar sins verstu fæðu i
heimi, frönskum kartöflum (bls
25)). Löngu siöar er reynt að
sætta okkur lesendur við slikar
sveiflur, meö þvi að skjóta þvi
að, að Ari Fróðason sé einatt að
„leika sin ýmsu hlutverk” — og
þó fyrst og fremst að gegna
þeirri skyldu hins feita bisness-
manns að vera „hrókur alls
fagnaðar” (131). Ekki vist hvort
viö þurfum svo mjög að hafa
hugann við slikar afsak-
anir — Ari er ekki einsdæmi,
strákarnir i sögunni róla sér
frjálslega milli bernskulegra
röksemda og einkar guð-
bergskra athugasemda, beint úr
hrosskjaftinum eins og enskir
segja. Enda er dagur sögunnar
allur undir þvi formerki að „það
leit helst út fyrir að ótrúleikinn
hefði ákveðiö að skarta öllu sinu
besta á þessum degi” (109).
Skothríð
Guðbergur skýtur fimlega á
eitt og annað sem er uppi á
teningnumnúum stundir (þetta
lýst er degi á okkar ári, Ari
Fróðason er einatt að kvarta
yfir þvi aö kommarnir ráði öllu i
landinu). Hann baunar á jafn-
réttisumræðuna, félagsfræði-
tiskuna (12), tæknitöfra I hvers-
dagsleikanum (11), söguskýr-
ingar Islendinga (79), og
blessað helvitis elsku Alþýðu-
bandalagið — já og á pólitiskt
tal yfirhöfuð þegar lýst er öku-
ferð til laxa. Margt af þessu er
skemmtilegt, Guðbergur hefur,
eins og menn ættu að vita,
húmor á við sjö manns og er
mesta meinhorn i þokkabót. En
hann er eiginlega ekki eins
grimmur við landsins börn i
þessari prakkarasögu og i ýms-
um stórum bókum sinum.
í tvær áttir
Sem fyrr var látið að liggja er
þessi saga af Ara Fróðasyni og
Hugborgu konu hans með að-
gengilegustu verkum Guðbergs.
Engu að siður ethúniþeim mæli
mótuð af þvi, að höfundur tekur
sér mikiö frelsi i niðurrööun
þeirra brota úr heiminum sem
hann tekur sér til handargagns,
að ástæða er til að hafa söguna
að tilefni til að minna á vissa
hættu. Guðbergur er i hópi höf-
unda, ekki stórum og alls ekki
samstæðum, sem trúa á imynd-
unaraflið en vantreysta raun-
sæinu, eru heimssmiðir með al-
veg ódulbúnum hætti. Þessir
höfundar eru, hver á sinn hátt,
nálægt þeim háska, að það
mikla frelsi sem þeir taka sér
leiði þá inn i nýja tegund að ein-
hæfni. Auk þess er lesandinn
stundum að velta þvi fyrir sér,
hvort islensk skáldsagnagerð sé
ekki eins og að gliðna og veröi
mönnum sifellt erfiðara að
komast i kallfæri hver við
annan. Þá er við það átt, að viö
stöndum annarsvegar uppi með
framúrstefnu sem alltof fáir
hafa getu eða forvitni til að
fylgja eftir, en á hinn pólinn
setjist ýmiskonar eltingarleikur
við markaöslögmálin, kannski
tilbrigði við þær „sannar játn-
ingar”sem Guöbergur minntist
á i viðtali fyrir skemmstu. Út-
hellingarbækur, einskonar
blanda af sjálfspyntingu og
sjálfshafningu. Og verði svo
langt á milli að varla nokkurt
kvikindi áræði að reyna að
skjóta brú yfir.
AB.