Þjóðviljinn - 15.11.1980, Page 15
Helgin 15. — 16. nóvember 1980 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 15
Ólympíumót
15. f5! -Df6 17. Rd6 + -Kf8
16. fxe6-Dxe6 18- Bc4
— Svartur gafst upp.
Skákmótið i Buenos
Aires var svo sannar-
lega ofarlega i hugum
manna ekki alls fyrir
löngu, þó einkum fyrir
glæsilega frammistöðu
Friðriks Ólafssonar sem
vann það afrek að
leggja að velli heims-
meistarann i skák,
Anatoliy Karpov. Vegna
starfa sinna fyrir FIDE
hefur Friðrik sáralitið
getað teflt og það kom
ljóslega fram i fyrstu
umferðunum á mótinu.
Næsta verkefni Friöriks verður
á Möltu þar sem hann mun tefla á
1. borði fyrir tslands hönd. Er
ekki óliklegt að hann geti notfært
sér þá æfingu sem hann hlaut i
Argentinu, liðinu til góðs. Það er
all-stór hópur sem heldur út til
Möltu næstkomandi miðvikudag
en það eru auk Friðriks og Inga
R. Jóhannssonar sem þegar hafa
leyst landfestar, Helgi Ólafsson,
Jón L. Arnason, Margeir Péturs-
son og Jóhann Hjartarson i karla-
sveit. Konurnar eru Guðlaug Þor-
steinsdóttir, ölöf Þráinsdóttir,
Birna Norðdahl, Aslaug Kristins
dóttir. Fararstjóri verður Guð-
bjartur Guðmundsson. Eins og
komið hefur fram getur Guð-
mundur Sigurjónsson ekki teflt að
þessu sinni og mun það vera i
fyrsta sinn sem hann missir út
Ölympiumót frá þvi að hann tók
fyrst þátt, i Havana 1966. Tefldar
verða 14 umferðir eftir sviss-
neska kerfinu og munu meira en
90 þjóðir hafa skráö sig til leiks,
sem, ef allar mæta, verður met-
þátttaka. Liðsuppstilling sterk-
ustu þjóðanna er nú kunn. T.a.m.
tefla fyrir Sovétmenn i réttri röð
eftirtaldir: Karpov, Polugaj-
evski, Tal, Geller, Balashov og
Kasparov. Spasski og Petrosjan
eru úti i kuldanum. Sigurvegar-
arnir frá siðustu keppni, Ung-
verjar,skilja Adorjan eftir heima
en sveitin verður skipuð eftirtöld-
um: Portisch, Ribli, Sax, Csom,
Vadsz og Farago. Enska sveitin
verður þannig: Miles, Stean,
Nunn, Speelman, Keene og Mest-
el.
Hvað varðar ástæðurnar fyrir
þvi að Adorjan er settur út úr
ungverska liöinu munu þær aðal-
lega eiga rætur sinar að rekja til
illdeilna á milli Ribils og Adorjan
og mun Ribli hafa sett fótinn fyrir
Adorjan.
Búast má viö harðri keppni á
Ólympiumótinu og verður fróð-
legtað sjá hvort Ungverjum tekst
að verja titil sinn frá siöustu
keppni. Hér kemur ein skák fra
ólympiumótinu á Kúbu 1966, sem
að flestra áliti er best skipulagða
ólympiumót sem haldið hefur
veriö frá upphafi.
Hvltt: R. Clavo (Spánn)
Allt getur gerst á ólympiumót-
um. Skyldu Islendingar verða
efstir?!
Möltu-farar ásamt forseta Skáksambandsins. Fremri röð frá v.: Ingi R. Jóhannsson, dr. Ingimar
Jónsson, Friörik ólafsson. Aftari röð: Helgi ólafsson, Jóhann Hjartarson, Jón L. Arnason og Guð-
bjartur Gunnarsson, fararstjóri. A myndina vantar Margeir Pétursson.
Rit Náttúrugripasafnsins á Akureyri
Náttúrugripasafnið á Akureyri
hefur á úndanförnum árum gefið
út (eða staöið að útgáfu á) fjórum
timaritum eöa ritseríum þ.e.:
Týli, timarit um náttúrufræði og
náttúruvernd.
Myndskreytt timarit, ætlað al-
menningi og fræðimönnum. Kem-
ur út tvisvar á ári um 50 bls. hvert
hefti. Það er gefið út i samvinnu
við Bókaforlag Odds Björnssonar
á Akureyri, sem annast um
prentun og dreifingu á þvi. Út eru
komnir 10 árgangar.
Acta botanica Isiandica —timarit
um islenska grasafræði.
Þetta timarit er arftaki
timaritsins Flóru, sem út var gef-
ið af Bókaforlagi Odds
Björnssonar á árunum 1963—1968.
Siðan 1975 hefur safnið séð eitt um
útgáfuna og frá sama tima hefur
ritið verið prentaö beint eftir
vélrituðum handritum. Ritstjóri
er Hörður Kristinsson prófessor.
Ritið er ætlað fræðimönnum og er
þvi aöallega skrifað á ensku. Það
er sent i skiptum við áskrift til
grasafræðistofnana um allan
heim. Askriftarverð hvers heftis
(árgangs) er kr. 5.000,-
Fjölrit Náttúrugripasafnsins á
Akureyri.
Eins og nafnið segir er þar um
að ræða fjölritaseriu, sem byrjað
var að gefa út árið 1971. Það er
fyrst og fremst ætlað til kynn-
ingar á niðurstöðum rannsókna
sem unnar eru við safniö eða á
þess vegum og kemur þvi ekki
reglulega út, en að meðaltali hef-
ur þó komið eitt hefti á ári (alls 10
hefti). Þar hafa m.a. birst niður-
stöður mengunarrannsókna, sem
gerðar voru á sjónum við Akur-
eyriárin 1971—1980. Einstök hefti
eru látin ókeypis til áhugamanna,
meðan nóg upplag er til, en séu öll
ritin tekin kosta þau kr. 10.000
(100 nýkrónur).
Arsskýrsla Náttúrugripasafnsins
á Akureyri.
Kemur að jafnaði út -árlega
fjölrituð (um 10—15 bls.) og flytur
aðeins skýrslu safnsins. Er til
upplag af henni frá 1968 (9 hefti
alls). Ókeypis.
Póstfang safnsins er:
Pósthólf 580, Akureyri.
Skoðið glæsilega
ARISTON
Með Ariston gæði og Ariston útlit verður valið auðvelt á
Ariston þvottavélinni.
Sparnaður: hún tekur inn heitt og kalt vatn, eða ein-
göngu kalt sem gerir mögulegt að leggja í bleyti við-
kvæmt tau við rétt hitastig. Annað for kerfi fyrir suðu-
þvott, mikil stytting á vinnutíma.
þvottavél
A:
Sérstakur sparnaðar-
rofi (tvær vatnshæðir
fyrir3eða5kiló).
E: Sérstakt kerfi fyrir
— ullarfatnað.
B:
C:
Vindurá milli skolana.
Er með þrem sápu-
hólfum (þvottaefni
má setja i öll hólfin í
upphafi þvottar ásamt
mýkingarefni).
G: Þvottakerfi eru 15 og
vinduhraói 600 snún-
ingar á mínútu.
F:
Ljósmerki kemur
meðan vélin er ( gangi
og annaö Ijós þegar
hún hitar vatnið.
H:
Barnalæsing er á
hurð og valrofi er líka
með öryggisbúnaði
gagnvart börnum.
Stöðva má vélina
þótt hún sé i miðju
þvottakerfi með þvi
að ýta á valrofann,
hægt er aö láta hana
byrja aftur á sama
stað án þess að rugla
kerfið.
Umsjón: Helgi Ólafsson
Svart: V.Kortsnoj (Sovétrlkin)
Sikileyjarvörn.
1. e4-c5
2. Rf3-e6
3. d4-cxd4
4. Rxd4-a6
5. Bd3-Bc5
6. Rb3-Ba7
7. c4-Rc6
8. 0-0-DÖ4
9. Rld2-Rge7
10. c5-Re5
11. Be2-b6
12. f4-R5c6
13. Rc4!-bxc5
14. g3-Dh6
RAFIÐJAN H.F.
Kirkjustræti 8 Sími: 19294
Verzlið við fagmenn
Viðgerðar- og varahluta-
þjónusta Smiðjuvegi 10
Kópavogi Sími: 76611