Þjóðviljinn - 15.11.1980, Page 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 15. — 16. nóvember 1980
Husqvarna
sparar orku.
Verð frá 252.200.- (nýkr. 2.522.)
til 631.000 (nýkr. 6.310-)
Husqvarna
/
\mnaiLf. suðurlandsbraut 16 - sími 35200
Orlof
húsmæðra
A morgun, sunnudag, heldur
Landsncfnd húsmæöraorlofs ráö-
stefnu aö Hótel Esju um skipulag
orlofs húsmæöra og rekstur
orlofsheimila.. Káöstefnan hefst
kl. 9.30.
Ræöumenn á ráðstefnunni
veröa: Steinunn Finnbogadóttir,
formaður landsnefndarinnar,
Elin Aradóttir, formaður Sam-
bands norðlenskra kvenna,
Guðrún L. Asgeirsdóttir frá Mæli-
felli I Skagafirði, Einar
Kristjánsson fyrrverandi skóla-
stjóri og Ragna Bermann, vara-
formaður Verkakvennafélagsins
Framsóknar. Fulltrúar mæta
hvaðanæva af landinu.
Opiö hús í dag:
Lúðrasveitin
Svanur 50 ára
1 dag 16. nóvember eru 50
ár liðin frá stofnun Lúðrasveit-
arinnar Svans. Helsti hvata-
maður að stofnun hennar óg fyrsti
formaður var Agúst Ólafsson
skósmiður en Hallgrimur Þor-
steinsson söngkennari varð
fyrsti kennari og stjórnandi
sveitarinnar. Núverandi stjórn-
andi er Sæbjörn Jónsson.
Á fimmtiu ára ferli sinum hefur
Lúðrasveitin Svanur jafnan
notið hinna hæfustu stjórnenda,
en lengst allra stjórnaði Karl 0.
Runólfsson sveitinni, eða i 21 ár.
Karl O. Runólfsson varð annar i
röð heiðursfélaga Lúðrasveitar-
innar Svans, næstur á eftir braut-
Ráðstefna um áfengisfræöslu:
Vissir þú að HUSQVARNA
framieiðir alftað 100 gerðir eidavéia!
Allt frá 3ja hellna eldavélum einum ofni með grilli og geymsluhólfi
að fullkomnustu vélinni, með tveim ofnum, sjálfhreinsandi efri ofn,
glerhellu, rafeindastýrðu klukkuboiði. Breiddir 50, 55, 60 og 70 cm.
Hraðsuðuhellur, ofninn hitnar á aðeins 5 mínútum. HUSQVARIMA
ofnarnir eru þekktir fyrir að vera sérlega sparneytnir á rafmagn.
Æskan, við
og vímuefni
Samstarfsnefnd um áfengis-
málafræöslu gengst fyrir ráö-
stefnu i veitingahúsinu I Glæsibæ
I dag og er heiti ráöstefnunnar
„Æskan, viö og vimuefni.”
Ungmenni hefja nú áfengis-
neyslu fyrr en áður og hlutur ungs
fólks i heildarneyslu áfengis fer
stöðugt vaxandi. Sérstök hætta
fylgir notkun áfengis og annarra
vimuefna á unglingsárum, segir i
frétt frá samstarfsnefndinni, og
er tilgangur ráðstefnunnar að
ræða hugmyndir um leiðir til úr-
bóta — einkum aukið hlutverk og
samstarf skóla og heimila.
Ráðstefnan er opin en til
hennar er m.a. boðið sérstaklega
stjórnum foreldrafélaga, skóla-
stjórum og kennurum. Hún hefst
kl. 10 árdegis með framsögu Jó-
hannesar Bergsveinssonar yfir-
læknis, Eiriks Ragnarssonar
félagsfræðing, og Kristjáns J.
Gunnarssonar fræðslustjóra.
Siðdegis verða pallborðs-
umræður um hugmyndir um úr-
bætur og hlutverk og samvinnu
ýmissa aðila, þá starf umræðu-
nopa, sem að lokum skila niður-
stöðum sinum.
Lúðrasveitin Svanur á fyrstu árunum. Stjórnandinn, Hallgrfmur Þorsteinsson, fyrir miöju.
ryðjandanum Hallgrimi Þor-
steinssyni. Aðrir heiðursfélagar
Lúðrasveitarinnar Svans hafa
orðið Hreiðar Olafsson, sem nú er
látinn,og eini núlifandi heiöurs-
félaginn, Sveinn Sigurðsson, sem
var túbuleikari sveitarinnar 43
fyrstu ár hennar.
Siðustu árin hefur auk hins
venjulega starfs lúðrasveitar-
innar verið starfrækt unglinga-
deild,og i tengslum við hana var
gerð tilraun með fasta tónfræði-
kennslu. Þá hefur og verið starf-
andi innan Lúðrasveitarinnar
Svans 18—20 manna djasshljóm-
sveit, sem viða hefur komið fram
á liðnum misserum.
Lúörasveitin Svanur minntist
þessara tfmamóta með afmælis-
hljómleikum sl. vor, en á
afmælisdaginn verður opið hús i
Templarahöllinni við Eiriksgötu
k. 15—18 fyrir eldri sem yngri
félaga og aðra velunnara sveit-
arinnar.
Annaö kvöld hefst á vegum
Reykingavarnanefndar og
Islenska bindindisfélagsins nám-
skeiö fyrir þá, sem hætta vilja aö
reykja. Námskeiöiö veröur haldiö
í stofu 101 i Lögbergi húsi Laga-
deildar á lóö Háskóla tslands og
stendur i fimm kvöld frá kl. 20
hvert kvöld.
Leiðbeinendurog fyrirlesarar á
námskeiðinu verða Jón H.
Jónsson frá Islenska bindindisfé-
Núverandi stjórnandi Lúðra-
sveitarinnar Svans er Sæbjörn
Jónsson.
laginu og læknarnir Auðólfur
Gunnarsson, Hjalti Þórarinsson,
Kjartan Jóhannsson, Sigurður
Björnsson og Sigurgeir Kjart-
ansson.
Þeir, sem áhuga hefðu á að
taka þátt i þessu námskeiði, geta
látiðskrá sig i sima 82531 og 13899
milli kl. 13—17 i dag og sunnudag,
en athygli er vakin á þvi, að nám-
skeiðið er þátttakendum að
kostnaðarlausu.
Af hálfu Reykingavarna-
nefndar og islenska bindindis-
félagsins er reykingafólk ein-
dregiö hvatt til þess að nota þetta
tækifæri til að losna úr viðjum
vanans og stuðla að bættu heilsu-
fari.
Fimm kvölda námskeið:
Viltu hætta að reykja?
/ ÓDÝR FALLEG STERK HÚSGÖGN %
sem þið rryílið, bæsið eða lakkið sjálf ...
■ ■ ■
fáið
full-
frá-
gengin
Svefnbekkir Verð frá kr. 46.000.-
Veggeiningar Verð frá kr. 81.000.-
Ko|ur og koju-
samstæður Verð frá kr. 97.000.
Skápasamstæður Kr. 149.000.
Skrifborð Verð frá kr. 59.000.
Opið kl. 13-18
laugardaga
kl. 9—12
SKÁLI s.f.
Verslun
Sfdumúla 32 sími 32380