Þjóðviljinn - 11.12.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 11.12.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 11. desember 1980. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Frá svinabúi Kristins Sveinssonar aö Hamri I Mosfellssveit. Mynd: —gel— Svína-, eggja- og alifuglabændur um fóðurbætisskattinn: Forsendur brostnar Heildar- útgáfa á ljóðum Sigfúsar Út eru komin hjá IÐUNNI Ljóö eftir Sigfús Daðason. Myndir gerði Sverrir Haraldsson. — Þetta er heildarsafn áður útgef- inna ljóða skáldsins, en þau eru ortá þrjátfu ára skeiði, 1947-1977. Ljóðin birtust áður f söfnum Sig- fúsar þrem. Þau eru: Ljóð 1947- 1951, Hendur og orðog Fá ein ljóð. Sigfús Daðason var eitt hinna helstu atómskálda, en svo voru sem kunnugt er nefnd þau ljóð- skáld ungrar kynslóðar sem fram komu um miðbik aldarinnar og kváðu á þann hátt sem braut i bága við ljóðagerð eldri kynslóða, jafnt að hugmyndalegu inntaki sem ytra búnaði. Atómskáldin hlutu misjafnar viðtökur sem vonlegt var, en hafa nú löngu hlotið viðurkenningu fyrir að hafa veitt ferskum straum inn i is- lenskan . skáldskap. Þessi skáld eru að sjálfsögðu hvert með sin- um svip. Um Sigfús kemst Eysteinn Þorvaldsson svo að orði i nýju riti sinu um atómskáldin: „Ljóð Sigfúsar eru hvergi veru- lega torræð i máli eða myndum. 1 þeim ráða jafnan yfirveguð hugs- un og vitsmunir fremur en ástrið- ur.” Myndir Sverris Haraldssonar i Ljóðum Sigfúsar eru niu talsins, þar á meðal mynd af skáldinu gegnt titilblaði. Sverrir gerði einnigkápumyndog bókarskraut. Við blasir nú að svinakjöt er á þrotum á markaðnum og útlit er fyrir að ekki takist að fullnægja eftirspurn fyrir jólahátiðana. Þá er og yfirvofandi skortur á eggjum og hefur verð þeirra stór- hækkað.m.a. vegna fóðurbætis- skattsins. Þetta er meginkjarni þess boð- skapar, sem fréttamönnum var fluttur i gær af framkvæmda- stjóra Verslunarráðs Islands og nokkrum forsvarsmönnum svina- eggja- og alifuglabænda. I tenglsum við fundinn var frétta- mönnum boðið að skoða svinabú Kristins Sveinssonar að Hamri i Mosfellssveit, alifuglasláturhús Isfugls að Reykjavegi 36 i Mos- fellssveit og hænsnabú Geirs Gunnars Geirssonar að Valfá á Kjalarnesi. Fundarboðendur voru ákaflega argir út i fóðurbætisskattinn og töldu jafnvel vafasamt að hann 60 ár eru f dag liðin frá þvi að Stúdentaráð Háskóla islands tók til starfa, en þ. 11. desember árið 1920 fóru fyrstu stúdentaráðs- væri löglegur. Auk þess ranglátur þar sem hann væri lagður á viss- ar búgreinar til þess að bjarga öðrum. Skattinum væri ætlað að hamla gegn verksmiðjubúskap en afleiðingar hans á hinn bóginn m.a. orðið þær, að einmitt smærri framleiðendur hefðu helst úr lest- inni. Siðan lögin um kjarnfóðurs- skatt voru sett hefðu aðstæður gjörbreyst á ýmsa lund. Var m.a.bent á eftirfarandi: Verð á korni og kjarnfóðri á heimsmarkaði hefur hækkað og fer hækkandi vegna uppskeru- brests. 1 kjölfar þessara hækkana stefnir EBE að þvi að afnema niðurgreiðslur á korni, þar sem heimsmarkaðsverð á korni nálgast nú óðfluga viðmiðunar- verð til framleiðenda innan bandalagsins. I siðasta mánuði hafa niðurgreiðslur t.d. lækkað úr 520 dkr. i 170 dkr. pr. tonn. kosningarnar fram. Verkefni Stúdentaráðs og hlutverk þess hafa i aöalatriðum verið hin sömu frá upphafi, þ.e. að gæta hags- Þegar er farið að bera á svæðis- bundnum mjólkurskorti, sem gæti orðið tilfinnanlegur ef færð milli landshluta spillist verulega. Sauðfjárbændur hafa sett á fyrir veturinn þannig að kjarn- fóðurgjald hefur ekki áhrif á framleiðslu dilkakjöts næsta sumar. Að auki er fóðurnotkun litilvæg i framleiðslu sauðfjáraf- urða. Framleiðendur svina- og ali- fuglaafurða eiga við mikil vanda- mála að striða af völdum nýlegra verðhækkana erlendis á fóðri, gengissigs, til viðbótar þvi, að þeir þurfa nú að greiða 33,3% skatt á 60—70% aðfanga sinna. Forsendur kjarnfóðurskattsins, sem ávallt hefðu verið vafa- samar, væru nú með öllu brostnar, sögðu fundarboðendur, og bæri þvi að afnema skattinn. —mhg j muna stúdenta og vera fulltrúi þeirra innan skóla sem utan. Verkefnin hafa þó farið vaxandi eins og að likum lætur, og er nú Myntbreytingin um áramót: Hvað kost- ar hún? 1 svari Tómasar Árnasonar viðskiptaráðherra á Alþingi á þriðjudag við fyrirspurn frá Matthiasi Á. Mathiesen kom fram að taliö er að gjaldmiðilsskiptin urn næstu áramót muni kosta Seðlabankann 1041 miljón króna. Viðskiptaráðherra tók fram að á móti kæmi sala á gamalli mynt til bræðslu, sem áætluð er um 200 miljónir króna, auk afskrifta á seðlum og mynt, sem ekki kemur til innlausnar, en þar getur orðið um verulegar fjárhæðir að ræða. Kostnaður Seðlabankans sundurliðast þannig að fram- leiðsla og dreifing á hinum nýju seðlum og mynt er talin kosta 882 miljónir króna, kynning og aug- lýsingar 129 miljónir og annar kostnaður 30 miljónir. Viðskiptaráðherra tók fram, að enda þótt verðgildisbreyting hefði ekki komið til, hefði verið óum- flýjanlegt aö endurskoða gjald- miðilinn frá grunni með útgáfu nýrra seðla og myntar, sem full- yrða má að hefði kostað svipað og framleiðsla þeirra nýju seðla og myntar sem koma i gagnið um áramót. Um kostnað annarra aðila en Seðlabankans hafði Tómas Arna- son ekki svör á reiðum höndum. Opid hús 1 kvöld kl. 20.30 verður opið hús að Grettisgötu 3, hjá Alþýðu- bandalaginu i Reykjavik. Þórhallur Sigurðsson leikari les úr nýútkominni bók Einars 01- geirssonar, „Island i skugga heimsvaldastefnunnar”. Bókin verður til sölu á staönum og mun Einar árita hana fyrir þá sem þess óska. Ennfremur mun hann rabba við fólk um efni bókarinnr. Tónlist og fjöldasöngur er einn- ig á dagskrá, og mun Baldur Oskarsson þenja nikkuna af sinni alkunnu snilld. Loks verða veit- ingar: Kaffi, kökur og jólaglögg. -ih. skrifstofa ráösins opin samfellt allt árið um kring. Að þvi er fram kemur i frétt frá Stúdentaráði um afmælið.snerta þau mál sem ráðið starfar nú að fyrst og fremst kennslu og stjórn- un i Háskóla Islands og kjör stú- denta. Einnig lætur SHl almenn þjóðfélagsmál til sin taka og reynir að hafa samstarf við aðra námsmannahópa og hópa innan verkalýðshreyfingar, Kennslu i Háskóla Islands er Framhald á bls. 13 Stúdentaráð sextíu ára: Nám er full vinna Framfærsla námsmanna álíka og ellilífeyrisþega HERERBOKIN! Einar Benediktsson: SÖGUR SKUGGSJA Aldarafmælisútgáfan á kvæðum Einars er senn á þrotum. Við eigum aðeins fá eintök óseld af þessari veglegu minningarútgáfu, fagurlega bundin í skinnband. IBÓKABÚÐ OL/VERS STEINS SE Hér er að finna allar sögur Einars Benediktssonar úr Sögum og kvæðum, Dagskrá og fleiri blöðum og skáldsöguna Undan krossinum. Þótt Einar tæki fljótlega að leggja meiri stund á Ijóð en sögur eru sumar smásagna hans meðal allra beztu smásagna, sem ritaðar hafa verið á íslenzka tungu. LJÓÐASAFN I - IV Heildarútgáfa Ijóða Einars Benediktssonar, sem út kom á forlagi okkar í fyrra, er vandaðasta heildarútgáfa á Ijóðum skáldsins. Þeirri útgáfu fylgja -hinar gagnmerku ritgerðir Guðmundar Finnbogasonar, Sigurðar Nordal og Kristjáns Karlssonar um skáldið og Ijóðagerð hans. KVÆÐASAFN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.