Þjóðviljinn - 19.12.1980, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. desember 1980
Kærleiksheimilið
Mér finnst gaman þegar amma og afi eru hér. Þá höfum viö einn
fullorðinn á mann.
Tilraunir kínversks læknis: y
HYGGST BUA
TIL MANNAPA
[ — sem ætti að gegna ýmsum dæðri störfum
V Klnverskur Ueknir, Ji Yongxiang,
\ hefur greint frá þvl. aö hann hafi um
/ miöjan sjöunda áratuginn gert ul-
\ raunir til aö búa til mannapa. I þfim
f tilgangi kveðst hann hafa sxtt apa art
\ simpansategund og hafi hann veríð
■ kominn ..þrjá mánuöi á leiö" er
J tilraunastofan var eyöilögö i
\ menningarbyltingunni 1967 og apinn
Tilgangurinn var sá aö skapa eins'
konar mannapa eöa millistig á milli
apa og manns, og þessa nýju tegund
átti siðan aö nota i þjónustu manna.
Hinn kinverski Ueknir greindi frá
þessu I blaöaviðtali nýverið og kvcðst
hafa i hyggju aö hefja þessar tilraunir
á njrjan leik. Læknirinn segist vera
viss um að str heföi tekizt aö koma
visindamönnum á sviði Ueknisfræöi
mjög á óvart ef menningarbyitingin
heföi ekki komiö I veg fyrir þessar til-
raunir hans.
Hann segist telja aö þessi nýja
skepna heföi veriö fær um aö vinna
ýmis verk fyrir mennina, svo sem
gæia fjár og kúa. og einnig segir
hann aö þessar skepnur hefði mátt
nýla við ýmiss konar tilraunastarf-
semi.
viðtalið
Rætt við unglinga-
meistarann í skák,
Svein Gylfason
Ég vil
gjarnan
verða
atvinnu-
maður
Ef ég verð nógu sterkur, þá
vildi ég gjarnan verða atvinnu-
maður i skák, sagði Sveinn
Gylfason hinn nýbakaði
íslandsmeistariunglinga i skák,
þegar Þjóðviljinn rabbaði við
hann. Sveinn hlaut 6 vinninga af
7 mögulegum i mótinu, sem er
aldeilis frábær árangur. Hann
tapaði fyrstu skákinni, en vann
svo þær sem eftir voru.
Sveinn Gylfason.
Er þetta fyrsti titillinn, sem
þú vinnur i skák?
— Nei, ég varð unglinga-
meistari Kaupmannahafnar
þegar ég var 12 ára. Við áttum
þá heima i Kaupmannahöfn og
ég skellti mér i þetta unglinga-
mót, en sigurvegarinn fékk að
taka þátt i danska unglinga-
meistaramótinu.
Og gerðir þú það?
— Já, en það gekk nú ekki
eins vel, ég lenti þar i 7. sæti.
betta voru strákar 14 ára og
yngri, og það munar um 2 ár.
Hvað ertu gamall núna?
— Ég er 14 ára.
Ferðu á eitthvert mót á
næstunni?
—■ Já, ég fer núna þann 27.
des. á alþjóðlegt mót unglinga i
Hallsberg i Sviþjóð, það fylgir
unglingameistaratitlinum hér
heima að taka þátt i þessu móti.
Ferðu einn eða hefurðu
aðstoðarmann?
— Nei, ég fer aleinn.
Og kviðir ekkert fyrir?
— Nei, nei, alls ekkert.
Liggurðu mikið yfir skák?
— Já, nokkuð mikið, einkum
byrjunum, ég á svo mikið ólært i
þeim. Nú sem stendur stúdera
ég af kappi fyrir mótið i Halls-
berg.
Rekst þetta ekki á við námið I
skólanum?
— Nei, ekki svo að umtalsvert
sé.
Hefurðu einhvern til að hjálpa
þér við skákstúdiu?
— Nei, ég er alveg einn að
þessu. (Þess má geta að Sveinn
á heima i Keflavik, þannig að
hann er ekki i snertingu við það
mikla skáklif, sem fram fer i
Reykjavik).
Og þú ert ákveðinn i að hella
þér út i skákina af fullri alvöru á
næstu árum?
— Alveg harðákveðinn, sagði
þessi ungi og stórefnilegi
skákmaður að lokum.
— S.dór.
Raunveruleikinn
er lygilegri en
skáldskapurinn!
1 leikriti Valgarðs Egilssonar,
„Dagshriðarspor,” sem sýnt er
i Þjóðieikhúsinu um þessar
mundir, býr visindamaður til
mannapa, millistig manns og
apa, og nefnir hann mapa. Þessi
úrklippa hér sannar það sem oft
hefur veriö haldið fram, að
raunveruleikinn er skáldskapn-
um lygilegri...
Þekkirdu þau?
Nýrri mynd á 19. siöu.
Eða eins og Jónas Kristjánsson
sagöi forðum: Fyrir sjötiu árum
var stofnaöur Visir að dagblaði
— nú er Dagblaðið komið.
Hvað
er
það?
Hvað er það sem er rautt og
hvitt og f jtílublátt og hoppar og
lætur öllum illum látum?
Svarið er: Auövitað Tóti
trúður.
Svo segir í litilli bók um Tóta
trúö sem nýlega er komin út og
er prýdd mörgum myndum af
umsvifum trúðsins. Höfundur
Tóta er Ketill Larsen og bókar-
innar lfka. Þessi mynd er af
Tóta trúð úti i garöi.
í (breskum) rósagarði
Heima er best að vera
Scotland Yard skýröi frá þvi
að fang^ I Brixton skiptist á um
að strjúka úr klefum sinum og
koma siöan aftur eftir „næt-
urrölt á pöbbum”. Grunsemdir
lögreglunnar staðfestust þegar
einn af hundraö föngum i C-
flokki var handtekinn snemma
morguns þegar hann var að
reyna aö brölta yfir fangelsis-
múrinn til að komast inn aftur.
Daily Telegraph.
Við freistingum gæt þin
Mr. Foot (hinum nýja for-
manni Verkamannaflokksins)
var fagnað með hyllingu i lok
fundarins og allur salurinn reis
á fætur til aö syngja Rauða
fánann af slikum eldmóð, að
jafnvel fréttaritari the Times
gat ekki stillt sig um aö syngja
meö.
TheTimes.
I rósagardi
Dánarfregnir
og jarðarfarir
tff Fylkis er óðum að f jara út.
Fyrirsögn
á iþróttasfðu
Tómans
Framsóknarmönnum
fjölgar
,,! pólitik tala menn gjarnar
um vinstri og hægri stefnur eins
og þau hugtök hafi ákveðna
merkingu.’tLeiðari Vfsis)
<
Q
d
Þ-l
Sjáðu, ég er með lausa ' \
tönn. Ég legg hana undir
koddann minn og þá
koma rotturnar og gefa
mér pening.