Þjóðviljinn - 08.01.1981, Qupperneq 3
Fimmtudagur 8. janúar 1981 - ÞJÖÐVILJINN StÐA 3
VINNUEFTIRLIT RIKISINS TEKIÐ TIL STARFA
Þorvaröur Brynjólfsson stjórnarformaöur Vinnueftirlitsins.
Eyjólfur Sæmundsson framkvæmdastjóri Vinnueftirlits rikisins.
Stóraukin verkefni|
í samræmi við nýju lögin um aðbúnað og öryggi á vinnustöðum
Sem kunnugt er tóku ný
lög um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnu-
stöðum gildi 1. janúar s.l.
en þau gera m.a. ráð
fyrir því að sérstök stofn-
un,Vinnueftirlit ríkissins,
taki við öllu eftirliti með
vinnustöðum i landinu, en
það verkefni hefur hing-
að til verið í höndum
hei Ibrigðisnef nda og
öryggiseftirlits ríkisins
sem nú hefur verið lagt
niður.
I samræmi viö lögin hefur
félagsmálaráöherra nú skipaö
stjórn Vinnueftirlits rikisins og
er formaöur hennar Þorvaröur
Brynjólfsson, læknir og vara-
maöur hans Atli Arnason
læknir. Aörir i stjórn Vinnu-
eftirlitsins eru tilnefndir af
samtökum svo sem hér segir:
Alþýöusamband lslands:
Guöjón Jónsson, járnsmiöur,
Karl Steinar Guönason, form.
Verkalýös- og sjómannafél.
Keflavikur, Guömundur J.
Guömundsson, form. Verka-
mannasambands tslands.
Vinnuveitendasamband ísr
íands: Guömundur Karlsson,
alþingismaöur, Viglundur
Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri.
Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna: Július Kr.’
Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri.
Bandalag starfsmanna rikis
og bæja: ólafur Jóhannesson,
starfsmaöur á Veöurstofu
Islands.
Samband islenskra sveitar-
félaga: Albert K. Sanders,
bæjarstjóri.
Jafnframt hefur Eyjólfur
Sæmundsson veriö skipaöur
forstjóri Vinnueftirlits rikisins,
en hann gegndi áöur embætti
Oryggismálastjóra. Eyjólfur
sagði i samtali við Þjóöviljann i
gær að starfsmenn Vinnueftir-
litsins væru nú i óöa önn að
undirbúa nauðsynlegar breyt-
ingar og útvikkun á starfinu i
samræmi við nýju lögin, en
Vinnueftirlitiö erföi skipulag,
verkefni og starfsmenn
öryggiseftirlitsins. Verkefni
þess er þó viöameira og sagöi
Eyjólfur aö Vinnueftirlitið
myndi fá fimm nýja starfsmenn
til viöbótar við þá sem öryggis-
eftirlitiö haföi áöur og bera
ábyrgö á öllum þáttum vinnu-
eftirlits i landinu.
En þaö eru ekki aöeins hinar I
opinberu stofnanir sem taka I
breytingum i kjölfar nýju I
laganna. Enn meiri breytingar "
veröa á vinnustöðunum sjálf- !
um. Eyjólfur sagöi aö i tengsl- I
um viö þaö þyrfti aö fara fram I
viötæk kynningarstarfsemi, '
sem hvila myndi á Vinnueftirlit- !
inu,en samkvæmt lögunum skai I
kjósa öryggistrúnaöarmann I
starfsfólks á hverjum vinnustað 1
þar sem 10 eöa fleiri starfa og !
skipa öryggisnefndir, með þátt- I
töku starfsmanna og atvinnu- I
rekenda á vinnustöðum þar sem J
starfa 50 manns eöa fleiri. .
Vænta menn sér góðs af þessari I
nýskipan og þing Alþýöu-
sambands tslands i haust itrek- J
aði tilmæli til aöildarfélaganna .
um að skipa sem fyrst i þessar I
nýju trúnaðarstöður.
AI !
Leikfélag Vestmannaeyja:
Sýnir ,Aumingja
Hönnu' í Kópavogi
um næstu helgi
Um helgina verður Leikfélag
Vestmannaeyja I leikför á megin-
landinu og sýnir leikritið „Aum-
ingja Hanna” eftir Kenneth
Itorne i þýðingu Sverris Thorodd-
scn í Kópavogsleikhúsinu föstu-
dags- og laugardagskvöld kl. 21.
Leikstjóri er Unnur Guðjóns-
dóttir og er þetta fjórða leikritiö,
sem hún setur á svið fyrir félagið
auk þess að hafa leikið ótal hlut-
verk og verið i fararbroddi
Nýir prófessorar
Forseti tslands hefur sam-
kvæmt tillögu menntamálaráð-
herra skipað Helga Valdimarsson
prófessor i ónæmisfræði i lækna-
deild Háskóla íslands frá 1. júli
1981 aö telja og dr. Þórólf
Þórlindsson prófessor i félags-
fræði i félagsvisindadeild
Háskóla tslands frá 1. janúar 1981
að telja.
félagsins undanfarin 30 ár. Leik-
mynd er eftir Arnar Ingólfsson.
Leikfélag Vestmannaeyja varð
70áraá árinu I980og er „Hanna”
þriðja verkefni félagsins á
afmælisárinu en frumsýning var
4. des..Hin verkefnin voru „Sjó-
leiðin til Bagdad” eftir Jökul
Jakobsson undir leikstjórn Andr-
ésar Sigurvinssonar og barna-
leikritið „Nornin Baba Jaga”
eftir Jewgeni Schwarts, leikstjóri
Unnur Guöjónsdóttir.
Aumingja Hanna er 131. verk-
efni félagsins á 70 ára starfsaldri
og lætur nærri þvi að félagið hafi
sýnt tvö leikrit á ári frá stofnun
þess. Sum leikritin hafa verið
tekin upp og sýnd oftar en einu
sinni á þessu 70 ára timabili
þannig að frumflutningur er 103
verkefni.
Núverandi formaður Leik-
félags Vestmannaeyja er
Auöberg Öli Valtýsson.
Úr sýningu Leikfélags Vestmannaeyja á Aumingja Hönnu
Póstur og sími
Gjaldskrá
hækkar
um 10%
Póst- og simamálastofnunin
hefur fengið heimild til 10%
hækkunar gjaldskrár fyrir sima-
þjónustu frá 5. janúar 1981 og
póstburðargjalda frá 1. febrúar
1981, í samræmi við ákvörðun
rikisstjórnarinnar á gamlársdag
um slika hækkun til opinberra
stofnana. Helstu breytingar á
simagjöldum verða sem hér
segir:
Stofngjald fyrir sima hækkar úr
kr. 850.00 i kr. 935. Ofr og
simnotandi greiöir fyrir talfæri
og uppsetningu tækja. Gjald fyrir
umframskref hækkar úr kr. 0.32 i
kr. 0.35, afnotagjald af heimilis-
sima á ársf jórðungi hækkar úr kr.
144.00 i kr. 158.40, venjulegt
flutningsgjald milli húsa á sama
gjaldsvæði hækkar úr kr. 425.00 i
kr. 467.50 Við gjöld þessi bætist
söluskattur.
Helstur breytingar á póst-
burðargjöldum verða þær, að
burðargjald fyrir almennt bréf 20
gr. innanlands og til Norðurlanda
verður 180 aurar, til Evrópu 220
aurar og fyrir bréf i flugpósti til
landa utan Evrópu 380 aurar,
gjald fyrir póstávisanir innan-
lands og til Norðurlanda verður
420 aurar.
Öldungadeildin
í Hveragerði
Lokainnritun
á laugardag
Kynning á námsefni öldunga-
deiidarinnar i Hveragerði og
lokainnritun á næstu námsönn fer
fram laugardaginn 10 jan. í hús-
næði gagnfræðaskólans kl. 14.
stundvislega. Skólagjald er nkr.
550.
Onnin sem nú er að hefjast er
hin þriöja sem skólinn starfrækir.
A fyrstu önninni voru 82 nem-
endur við nám, á annarri 54.
Nemendurnir þreyttu sömu próf
og öldungar við Menntaskólann
við Hamrahlið og varð árangur
góöur. Segir i fréttatilkynningu
frá skólanum að hin góða aðsókn
sýni aö mikil þörf er fyrir fuil-
orðinsfræð^lu á Suðurlandi sem
og annars staðar og nú þegar hafa
50 manns frá 7 sveitarfélögum
skráð sig til náms á vorönn.
Tómas og
Guðmundur
ræða efna-
hagsmálin
Félag ungra Framsóknar-
manna efnir til almenns fundar
um efnahagsáætlun rikis-
stjórnarinnar að Hótel Heklu, og
hefst fundurinn kl. 20,30 i kvöld.
Frummælendur verða Tómas
Arnason viðskiptaráðherra og
Guðmundur G. Þórarinsson al-
þingismaður.
Skákþing
hefst á
sunnudaginn
Skákþing Reykjavikur 1981
hefst á sunnudaginn, 11. janúar,
og verður teflt i húsakynnum
Taflfélags Reykjavikur að
Grensásvegi 46. Tefldar verða
ellefu umferðir i öllum flokkum.
Lokaskráning i keppnina verö-
ur á laugardaginn kl. 14—18.
—ih