Þjóðviljinn - 08.01.1981, Síða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. janúar 1981
UOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
Otgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ó’.ífsson.
AugiýsingastjOri: Þorgeir Ólafsson.
Umsjónarmaöur sunnudagsblaOs: GuBjón FriBrikssoii.
AfgreiBslustjóri: Valþór HlöBversson.
BlaBamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, Ingi-
hjörg Haraldsdóttir, Kristln Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason,
Sigurdór Sigurdórsson.
tþróttafréttamaOur: Ingólfur Hannesson.
Otlit og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson, Ssvar GuBbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
SafnvörBur: Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Svanhildur Bjar/iadóttir.
Skrifstofa: GuBrún Guövaröardóttir, Jóhannes HarBarson.p
Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir,
Bára SigurBardóttir.
S'mavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, SigrlBur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún BárBardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir,
Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: SIBumúla 6,
Reykjavik, slmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Dómsorð
tunglkonunga
# Þaö skeður sitthvaó f urðulegt hér í skammdeginu. Nú
síðast fær þjóðin þær fréttir að Kjaradómur hafi úr-
skurðað að þingfararkaup alþingismanna skuli hækka
um 23,4% og meirihlutinn af þeirri launahækkun virka 8
mánuði aftur í tímann í þokkabót!
#Og þeir háu herrar sem Kjaradóm skipa virðast ekki
einu sinni telja sig skulda þjóðinni neinar skýringar á svo
fáránlegri ákvörðun.
• Dómendur Kjaradóms telja sig greinilega upp yf ir það
hafna að láta sér koma nokkurn skapaðan hlut við þann
þjóðfélagsveruleika, sem hér blasir við annarra augum.
— Þeir tala frá tunglinu.
•AAeð úrskurði sínum um hækkun þingfararkaups
alþingismanna ganga þeir gjörsamlega þvert á markaða
launastefnu ríkisstjórnarinnar. Sú stefna kom fram í
verki í kjarasamningum fjármálaráðuneytisins við
opinbera starfsmenn á s.l. sumri.
•Niðurstaða þeirra samninga var sú, að þeir sem hefðu
í mánaðarlaun, sem nú samsvarar svo sem 6.600,- nýkr.
eða þaðan af meira,skyldu alls enga launahækkun fá, en
hinir sem hefðu lægri laun mesta hækkun þeir lægstu en
síðan minnkandi upp að þessum mörkum.
#í kjarasamningum A.S.Í. var einnig fylgt þeirri launa-
jöfnunarstefnu sem verkalýðshreyfingin hafði markað
og ríkisstjórnin gert að sinni, — þannig að almenna
launahækkunin var ákveðin sem föst krónutala og samið
um hlutfallslega mestar hækkanir til hinna lakast settu.
• Dómendur i Kjaradómi láta eins og þeir hafi aldrei um
þetta heyrt, eins og þeir haf i haldið til á tunglinu, a.m.k.
allt þetta ár og engar fréttir haft héðan úr neðra. — Og
þá er vist ekki við því að búast, að þeir láti sig nokkru
varða þótt ríkisstjórn landsins haf i tveim dögum áður en
þeir felldu úrskurð sinn sett bráðabirgðalög, sem m.a.
skerða verðbótagreiðslur á laun þann 1. mars.
•AAáske hafa þeir háu tunglkonungar í Kjaradómi ekki
neitt um þetta heyrt, eða þá að þeir haf i talið slíka laga-
setningu gefa sérstakttilefni til að hækka þingfararkaup
alþingismanna um 23.4% einmitt nú?
• Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra segir í dagblað-
inu Vísi í gær að úrskurður Kjaradóms sé í engu sam-
ræmi við launastefnu ríkisstjórnarinnar. Ragnar
Arnalds f jármálaráðherra tekur í sama streng hér í
Þjóðviljanum í gær, og bætir við að slíkar niðurstöður
gangi gjörsamlega fram af bæði sér og öðrum. Svavar
Gestsson félagsmálaráðherra segir hér í blaðinu að
niðurstöður Kjaradóms sæti furðu og kemst svo að orði
að hér taki nú steininn úr.
• Ekki fer milli mála, að ráðherrar í ríkisstjórn landsins
skilja síst betur en almennir þegnar hin duldu rök fyrir
úrskurði tunglkónganna í Kjaradómi, enda virðist dóms-
orð þetta til þess eins ætlað að brjóta niður þá launajöfn-
unarstef nu sem ríkisstjórnin hef ur boðað í orði og verki.
• En þá er þess að minnast að tunglkóngar þessir hata
sitt vald frá sjálfu Alþingi.
• Væri ekki ráð að svipta þá því valdi?
• Vonandi eru þeir þingmenn ekki margir, sem taka
undir með formanni þingflokks Sjálfstæðisf lokksins, en
hann segir í dagblaðinu Visi í gær, að niðurstöður Kjara-
dóms færi þingmönnum „heldur ómerkilega kjarabót"!!
• Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusambands
islands segir i viðtali við Þjóðviljann í gær, að hann trúi
því ekki fyrr en hann taki á því, að þingmenn láti þessa
kauphækkun verða að veruleika. Því skal trúað meðan
annað kemur ekki í Ijós, að flestir alþingismenn geri sér
skýrari grein f yrir veruleikanum í kringum sig heldur en
títtnefndir tunglkóngar í Kjaradómi. — AAáske finnast
þar þó e\nhvef\ir sem ekki telja sig hafa neitt við
Alþýðusamband fslands eða „lágstéttir" þjóðfélagsins
að tala.
• Að lokum skal svo hér vitnað til ummæla Guðmundar
J. Guðmundssonar, alþingismanns og formanns Verka-
mannasambands íslands,í viðtali við Þjóðviljann í dag,
en Guðmundur segir:
• „Lagakrókar um þingfararkaup og hlunnindi alþingis-
manna eru ekki mitt svið, en ég er reiðubúinn til þess að
gerast meðflutningsmaður eða stuðningsmaður tillögu
um að hindra þessa kauphækkun."
k.
1
í sjátfstæðisflokknum
þarf að halda öllum
möguleikum opnum
Klfppt
j 2 milljónamenn
„Þetta eru allt menn sem llta
ekki viö minna en 2 miljónum
kröna i mánaðarlaun” sagöi
einn af forkólfum Dagsbrúnar i
samtali viö klippara I gær, og
átti þar viö þá kjaradómsmenn
■ Benedikt Blöndal, lögmann, Jón
IFinnsson, lögmann, Ólaf Nils-
son, endurskoöanda, Jón G.
Tómasson borgarlögmann og
■ Jón Rögnvaldsson byggingar-
Iverkfræöing. „Þaö er þvi eöli-
legt aö þeir hugsi i slikum tölum
þegar þeir eru aö dæma þing-
■ mönnum laun”.
IHeföi niöurstaða kjaradóms
oröiö sú sama ef I dómnum
heföu setiö fulltrúar sjómanna,
■ verkafólks og bænda? Þaö er
Ispurning sem menn mættu
gjarnan velta fyrir sér vegna
þess aö úrskuröur sliks kjara-
, dóms hefur lagagildi og veröur
Iekki hnekkt nema meö lögum
frá Atþingi.
j Klojinn flokkur
Forystumál Sjálfstæöis-
, flokksins eru sigilt viöfangsefni.
IEftir vetur kemur vor, og þá
fara Sjálfstæöismenn aö hugsa
til þess aö kjósa formann á
, landsfundi. Skjálfti er tekinn aö
Ifærast i liöiö og hafa tveir Sjálf-
stæöismenn afyngri kynslóðinni
kveöiö sér hljóös um máliö i
, fjölmiölum. Annar er úr Gunn-
Iarsarminum og hinn úr Geirs-
arminum.
Jón Ormur Halldórsson
, aöstoöarmaöur forsætisráö-
Iherra segir i yfirheyrslu
Helgarpóstsins aö Sjálfstæöis-
flokkurinn sé klofinn um fory stu
, og málefni.
1,,Ég sá þaö einhvers staöar á
prenti, að Sjálfstæöisflokkurinn
stæöi frammi fyrir þeirri
sem hugsanlegra formanns-
efna.
,,Ef einhverjir menn eru
nefndir sem hugsanlegir keppi-
nautar núverandi formanns
flokksins, þá myndi áróöurs-
maskfna MorgunblaBsins —
enda er núverandi formaOur
Sjálfstæðisf lokksins þar
stjórnarformaöur — þegja sllka
menn i hel. Þvf vil ég ekki gera
neinum manni slikan grikk.”
Anders nefnir
nöfn
Anders Hansen er ninsvegar
ekki banginn viöaö nefna nöfn I
grein I desemberhefti Stefnis
um aö halda þurfi öllum mögu-
leikum opnum fram að lands-
fundi. Meira aö segja þeim aö
Geir lýsi yfir aö honum sé
forystan ekki föst í hendi. And-
ers er ekki hræddur við áróöurs-
maskinu Morgunblaösins enda
hluti af henni, og veröur því aö
teljast aö upptaldir menn séu
Morgunblaöinu og stjómarfor-
manni þess þóknanlegir og þar
með settir á biölista fram aö
landsfundi þar til séö veröur
þess, aöslíkt myndi leysa vanda
fiokksins, Geir Hallgrlmsson er
þvi enn sá maöur, sem llklegast
er aö kjörinn veröi formaöur I
vor til næstu tveggja ára, þó
vitanlega beri aö hafa i huga, aö
margt kann aö breytast á næstu
mánuöum.”
Skyldu þettahafa veriö nöfnin
sem Jón Ormur Halldórsson
haföi I huga I Helgarpóstinum?
Um þab fáum viö ekkert aö vita
vegna óttans viö áróöurs-
maskinu Morgunblaðsins.
Klippara er þó næst aö halda aö
svo sé ekki.
Æskilegt aö
reka þá
En dæmi um þaö ágætt hvem-
ig menn eru aö slúðra sín á milli
I Sjálfstæðisflokknum þessa
dagana em vangaveltur Anders
Hansen um hugsanlegar leiöir
til sameiningar eöa frekari
sundrungar i flokknum. Þar er
m.a. þetta:
„önnur leiB kann aö vera sú,
aö nýr formaöur gefi stjórnar-
sinnum ákveöinn frest til aö
ganga úr rlkisstjórninni á
grundvelli landsf unda rsam-
I' ákvöröun hvort hann vildi höföa
til 40% kjósenda eöa 14% þeirra.
Undir núverandi forystu held ég
aö seinni talan sé rétt, en meö
I' algerum umskiptum á forystu-
sveit flokksins f vlötækri merk-
ingu þá getur og veröur vonandi
fyrri talan nær lagi’/
| Áróðursmaskím
Mogga
Jón Ormur leggur áherslu á
aö hin nýja forysta veröi ekki
fulltrúi fyrir ákveöna arma I
flokknum heldur sameiningar-
• afl. Hann telur öruggt aö gerö
Íveröi tilraun til þess aö skipta
um forystu á landsfundi, en
varla sé heppilegt aö þeir sem
• standa aö núverandi stjórnar-
Isamstarfi hafi forystu þar um.
En Jón Ormur Halldórsson
vill engum gera þann bjamar-
* greiöa aö hann nefni nöfn þeirra
hvemig úr málum spilast, og
hvort Geir veröur sætt eöa ekki.
Geir þó
líklegastur
...innan Sjálfstæöisflokksins
eru fjölmargir menn, sem
nægan styrk hafa til aö bera, til
aö gegna formennsku I hinum
stóra flokki. Nægir aö nefna
nöfn nokkurra manna i þvi sam-
bandi, sem rætt hefur veriö um
manna i miilum undanfarnar
vikur og mánuöi, svo sem Þor-
stein Pálsson, Ellert B. Schram,
Styrmi Gunnarsson og Friörik
Sophusson. Allir gætu þeir án
vafa axlaö þær byröar er
flokksformennskunni fylgja ef
til kæmi. En einsog nú er ástatt
er bara ekkert sem bendir til
þykktar um stefnu Sjálfstæöis-
flokksins, en óliklegt veröur aö
telja aö sllkt bæri árangur,
varla yröi þaö til sátta aö
minnsta kosti. — Slikt gæti á
hinn bóginn oröiö til þess aö
stjórnarsinnar gengju úr eöa
yröu reknir úr flokknum, en þaö
mun raunar mörgum þykja
æskilegast.
Hafa veröur þó hugfast í því
sambandi, aö veröi stjórnar-
sinnar reknir úr flokknum, þá
munu koma fram tvö framboö
Sjálfstæöismanna I mörgum
kjördæmum og Sjálfstæöis-
flokkurinn I sinni núverandi
mynd veröur ekki lengur til,
ekki um stundarsakir aö
minnsta kosti.”
Brottrekstur stjórnarsinna,
tveir flokkar ihaldsmanna —
allt er semsagt til umræöu og
margir leikir eftir I valdataflinu
i Valhöll fram til vors.
—ekh
—oa skorið