Þjóðviljinn - 08.01.1981, Side 5
Fimmtudagur 8. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Þegar fráfarandi forseti
Bandarfkjanna, Jimmy
Carter, letraöi mannrétt-
indamál á skjöld sinn við
embættistöku, þá var kom-
inn upp vandi sem átti eftir
að reynast honum erfiður.
Það þótti að vísu sjálfsagt
að setja mannréttinda-
kröfur ofarlega í sam-
skiptum við Sovétríkin. En
vandinn var sá, að það var
illmögulegt að fylgja
kröfugerð um mannrétt-
indamál eftir, ef henni var
aðeins stefnt í eina átt.
Eins og svo oft áöur kom upp
spurningin: hvaö eigum viö aö
gera viö okkar tíkarsyni? Þar
meö var átt viö einræöisherra og
Blóðbað i E1 Salvador: hinn nýi sendimaður hjá Sameinuðu þjóðunum er ekki i vafa um hvað gera skuli
Reaganstj órnin ætlar
ad vera mild vid
„okkar tíkarsyni
Haig hcrshöföingi og utanrikis-
ráðherra. það hefði nú ekki
þurft að slátra Somoza...
herforingjaklíkur sem voru vin-
samleg Bandarikjunum i utan-
rikismálum og höfðu um leiö á sér
hiö versta orð fyrir grimmdar-
lega framgöngu gegn pólitiskum
andstæðingum.
Ca rter
skammaður
Þeir aðilar sem nálægt standa
nýjum forseta, Ronald Reagan,
hafa margir hverjir sakaö Carter
beinlinis fyrir að hann hafi með
mannréttindabrölti sinu látið
flækjast fyrir sér að móta skyn-
samlega afstöðu til „vinsam-
legra” einræðisrikja og þar með
hafi hann undirbúið valdatöku
andbandarikskra afla bæði i Iran
og Nicargua, þar sem áður sátu
að völdum hjartkærir vinir
Bandarikjanna, Reza Pahlavi
keisari og Anastasias Somoza. Og
ummæli þeirra og gjörðir bera
þvi vitni, að þeir sem berjast fyrir
lýðréttindum til dæmis i hinni
py ntingaglöðu Rómönsku
Ameriku megi ekki eiga von á
neinu góðu af hálfu nýrra herra i
Washington.
Nýr fulltrúi
hjá S. Þ.
Prófessor Jeane
Kirkpatrick
heitir kona, sem i nóvember leið
skrifaði grein i timaritið
Commentary um þessi mál.
Ronald Reagan þóttu viðhorf
hennar svo aðlaðandi, að hann
hefur þegar boðið Jeane Kirkpat-
rick að verða sendiherra stjórnar
sinnar hjá Sameinuðu þjóðunum.
Frúin segir, að menn Carters
hafi framið margar alvarlegar
yfirsjónir <og i Iran og Nicaragua
hafi þeir beinlinis ýtt undir öfl
sem steyptu „hófsömum ein-
ræðisstjórnum” sem voru vin-
samlegar bandariskum hags-
munum. Kirkpatrick telur, að nú
standi Bandarikin frammi fyrir
svipuðum vanda i E1 Salvador,
Guatemala, Marokko og Zaire.
Að þvi er varðar E1 Salvador er
hún ekki i vafa um að styrkja eigi
núverandi valdhafa með vopna-
sendingum — hvaðsem hún kynni
að segja nú um stjórn sem styðst
við óaldarflokka sem nú siðast
hafa m.a. myrt fjórar nunnur
bandariskar með herfilegum
hætti.
Forsendur
lýöræöis?
Jeane Kirkpatrik segir, að
menn Carters hafi gert þau mis-
tök þegar vissar stjórnir komust i
úlfakreppu, að telja að hægt væri
að finna lýðræðislega lausn og að
ekki væri hægt að viðhalda
óbreyttu ástandi. Hún visar þessu
á bug með þvi að staðhæfa, að
forsendur fyrir lýðræði séu ekki
til i þriðja heiminum. Fólkið hafi
ekki verið alið upp i þeim anda,
og skipulagslegar forsendur vanti
og þvi brotni allt niður ef æðsti
Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Guðrún Þorsteinsdóttir,
ölduslóð 17, Ilafnarfirði,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni i Hafnarfirði föstu-
daginn 9. jan. kl. 14.00.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélag tslands.
Hinrik Albertsson
Margrct Ilinriksdóttir Sigurjón Ingi Haraldsson
Ilalldóra Hinriksdóttir
Guðrún Sigurjónsdóttir
Mun treysta
á svonefndar
hefðbundnar
harðstjórnir til
að tryggja
bandariska
hagsmuni i þriðja
heiminum
maðurinn i einræðislegu valda-
kerfi sé fjarlægður.
Prófessorinn litur næsta mild-
um augum „hefðbundin einræðis-
þjóöfélög” á þeirri forsendu, að
þau geti þróast i lýðræðisátt og
séu þvi skárri en marxisk stjórn-
kerfi sem geti ekki farið þá leið.
„Neyðin er
þolanleg"
Málsvörnin fyrir „hefðbundna
harðstjórn” er næsta fróðleg. Þar
er viðurkennt, að slikt stjórnarfar
viðhaldi þeirri eigna- og valda-
skiptingu sem kemur hinum fáu
riku til góða en heldur f jöldanum i
fátækt. En, segir Jeane Kirkpat-
rick, slikar stjórnir „tilbiðja
hefðbundna guði og virða hefð-
bundin boð og böhn. Þær trufla
ekki háttbundna skiptingu milli
starfs og fristunda, búsetu, fjöl-
skyldumynstur og persónuleg
tengsli. Neyðin er þolanleg fyrir
venjulegt fólk vegna þess að það
er henni vant og fólk lærir i upp-
vexti að bjarga sér, rétt eins og
börn hinna óhreinu á Indlandi,
sem verða sér úti um störf og af-
stöðu sem eru nauðsynleg til að
lifa af I hinu ógæfusamlega hlut-
verki sem þau eru forákvörðuð til
að gegna”.
Það er þess háttar málsvörn
fyrir óbreytt ástand i ýmsum fá-
tækum löndum heims sem Rea-
gan telur sérstaka ástæðu til að
verðlauna: sagan, örlögin, trúar-
brögöin — allt er kvatt til að rétt-
læta það, að hver sá sem nefnir
heimsvaldastefnu og nýlendu-
stefnu og annaö þessháttar á nafn
sé barinn niður — með banda-
riskri aðstoð ef þurfa þykir.
„Hópar sem skilgreina sjálfa sig
sem andstæðinga ber að fara með
sem andstæðinga”, segir Jeane
Kirkpatrick.
Viöhorf nýs
utanrfkis-
ráðherra
Frá hennar skoðunum er svo
itarlega sagt vegna þess aö pró-
fessorinn er mælskari en ýmsir
aðrir áhrifamenn i hinu nýja
gengi Reagans. En viðhorf
hennar sýnast um margt ósköp
svipuð og viðhorf Alexanders
Haigs hershöfðingja og fyrrum
herstjóra NATO, sem nú hefur
verið skipaður utanrikisráðherra.
I nýlegu Time er birt yfirlit um
afstöðu hans til ýmissa mála. Um
mannréttindi segir hann á
þessa leið: „Það er hvorki i hag
félagslegu réttlæti né lifshags-
munum Bandarikjanna að fylgja
undir yfirskrift mannréttinda
þeirri stefnu sem mun hafa i
reynd þær atleiðingar að reka
harðstjórnir.sem hafa hefðbundin
vináttutengsl við Vesturiönd, inn i
alræðiskerfi þar sem þær munu
festast i stöðugum f jandskap viö
bandarisku þjóðina og hagsmuni
hennar”. Um Rómönsku
Ameriku segir hann m.a., að
hann hefði vonast til að hægt hefði
verið að m'eðhöndla einræðis-
herra Nicaragua, Somoza, með
einhverjum þeim „viðsýnum”
hætti að ekki hefði þurft að slátra
honum!
A það hefur verið minnt, að það
var einmitt Alexander Haig sem
gegndi næsta skuggalegu hlut-
verki við undirbúning valdaráns
gegn rétt kjörnum forseta Chile,
Allende, — og fól sá undirbún-
ingur m.a. i sér morð á Rene
Schneider, yfirmanni Chilehers,
sem vildi reynast hollur stjórnar-
skránni og var þvi í vegi fyrir
Pinochet og hyski hans. Að öllu
samanlögðu virðist þaö ljóst, að
nú munu þeir sitja við stjórnvöl i
Washington, sem heföu I hitteö-
fyrra stutt i borgarastriði ein-
hvern illræmdasta böðul Mið-
Ameriku, Somoza i Nicaragua,og
munu hvenær sem þeir telja
nauðsynlegt steypa þvi lýðræði,
sem er orðiö of róttækt fyrir
þeirra smekk, eins og raun varð á
i Chile.
AB
ÚTBOÐ
Til sölu
Tilboð óskast i búsið Suðurlandsbraut 93, timburhús ca 80
ferm að grunnfleti, hæð og lágt ris.
llúsið selst til niðurrifs og brottflutnings og skal þvi lokið
fyrir l. mars n.k.. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
að Frikirkjuvegi 3 og verða tilboð opnuð á sama stað
þriðjudaginn 20. jan. n.k. kl. 11 f. hádegi.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Dansnámskeið
Þjóðdansafélags
Reykjavikur
hefjastá mánudaginn 12.
janúar 1981 , i Fáksheim-
ilinu við Bústaöaveg.
Barnadansar frá kl. 5-8.
Gömlu dansarnir: fullorðnir kl. 8-11.
Þjóödansar kl. 8-10 á fimmtudögum í leik-
fimissal Vörðuskóla.
Innritun og upplýsingar í síma 75770.
Þjóðdansafélagið.