Þjóðviljinn - 08.01.1981, Blaðsíða 6
6.S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. janúar 1981
Hjörleifur Guttormsson, iðnaöar-
ráðherra
Alþingi
tífaldaði
fjáryeit-
ingu
til
þeirra
Tíu
iönaöarverkefni
Við afgreiðslu fjárlaga nú fyrir
áramótin var samþykkt að veita á
þessu ári 200 miljónir gkr. til sér-
stakra athugana vegna orkunýt-
ingar og vegna undirbúnings orku-
freks nýiðnaðar.
Þessi fjárveiting tifaldaöist i meöförum Al-
þingis og hækkaði úr 20 i 200 miljónir gkr..Við
snerum okkur til iðnaðarráöuneytisins og
óskuðum eftir upplýsingum um helstu verkefni á
þessum vettvangi sem nú er unnið að.
Hér fer á eftir yfirlit frá ráðuneytinu um
nokkur verkefni og það fjármagn, sem ráðu-
neytið haföi áætlaö til þessara verkefna. Þrátt
fyrir 200 miljóna fjárveitingu i gömlum krónum
verður iðnaöarráðuneytið að skera þær upp-
hæðir niður um rúman þriðjung.
Verkefnin eru:
1. Framleiðsla á magnesium
Iðntæknistofnun íslands vinnur nú að forat-
hugun á þessu máli fyrir iðnaðarráðuneytið. A
næsta ári er gert ráð fyrir framhaldsrann-
sóknum sem áætlað er að kosti 40 m.kr..
2. Framleiðsla á natriumklórati
Frumathuganir sýna að hér geti verið um
áhugaverðan iðnaðarkost að ræða, ef tekst að
leysa ákveðin vandamál i sambandi við flutn-
inga á þessari vöru á markað. Fáist jákvæð
niðurstaða úr flutnings- og markaðskönnun, er
gert ráð fyrir aö ráðist verði i' írumhönnun verk-
smiðju á næsta ári og er áætlaður kostnaður um
30 m.kr..
3. Framleiðsla á kisilmálmi
Forathuganir hafa verið gerðar á kisilmálm-
framleiðslu hér á landi sem benda til þess að hér
geti veriðum áhugaverðan iðnaðarkost fyrir ts-
lendinga að ræða. Nauðsynlegt er að þessum at-
hugunum verði haldið áfram m.a. með gerð
frumáætlunar um verksmiðju af ákveðinni
stærö, athugunum á' hráefnisöflun svo og
markaösmálum. Kostnaður við þessar athug-
anir á árinu 1981 er áætlaður 25. m.kr.
4. Framleiðsla á innlendu
eldsneyti
Eldsneytisnefnd ráðuneytisins hefurskilað til-
lögum til iðnaðarráðuneytisins varðandi þetta
mál. Gert er ráð fyrir að samiö verði við rann-
sóknaraöila i Bandarikjunum, en tilboð hefur
borist frá þessum aöila i rannsóknir á fram-
leiðslu eldsneytis úr innfluttum kolum og inn-
lendu vetni. Jafnframt mun ráðuneytið beita sér
fyrir sérstökum rannsóknum varðandi hugsan-
lega eldsneytisframleiðslu i tengslum við lokaða
kisiljárns- og kisiimálmofna. Aætlaöur kostn-
aður er um 40 m.kr..
5. Léttar eldsneytistegundir
úr svartoliu
Orkustofnun hefur verið falið að annast frum-
athugun á þessu máli og hefur stofnuninni borist
tilboð frá ráðgjafafyrirtæki i Englandi i athugun
á sérstakri gerð oliuhreinsunarstöðvar hér á
landi. Kostnaður er áætlaður 30 m.kr. og yrði
greiddur af ráðuneytinu.
6. Álframleidsla og úrvinnsla
úr áli
Nauðsynlegt er að afla upplýsinga varðandi
ýmsa þætti álvinnsluog i þvisamhengi að kanna
sérstaklega möguleika á iðnaði er byggði á úr-
vinnslu úr áli. Nokkrir aðilar hafa nýlega sýnt
áhuga á þessu sviði. Aætlaður kostnaður er um
10 m.kr..
7. Framleidsla á þungu vatni
Engar athuganir hafa i seinni tið verið gerðar
á mögulegri þungavatnsframleiðslu hér á landi.
Ráðuneytið hefur hins vegar vitneskju um, að
viss lönd hugleiði nú að byggja i auknum mæli
kjarnorkuver sem nota þungt vatn i sinni fram-
leiðslu. Ráðuneytinu þykir þvi rétt að endur-
skoða eldri áætlanir um framleiðslu þungs vatns
hér á landi og gera m.a. sérstaka markaðsat-
hugun i þessu sambandi. Aætlaður kostnaður er
um 10 m.kr.
8. Framleiðsla á pappir
Finnskt ráðgjafarfyrirtæki hefur skilað skýrslu
til Húsavikurkaupstaðar um þátt orkunotkunar i
framleiðslu á dagblaðspappir, og á vegum ráðu-
neytisins hafa átt sér stað viðræður við stjórn-
völd i Kanada um hugsanleg kaup á hráefni
þaðan. Þótt hér sé um byrjunarathuganir að
ræða sýna þær þó, aö hér gæti verið athyglis-
verður iðnaðarkostur á íerðinni. Ráöuneytið
telur þvi rétt að verja á næsta ária.m.k. 20. mkr.
til frekari athugana á þessu máli, auk þess sem
tillaga er gerð um rannsókn á jarðhitasvæðinu
við Þeystareyki.
9. Annað
Ýmsir fleiri þættir eru tii athugunar og fleiri
munu bætast við á næstunni. Er þvi gert ráð
fyrir 10. m.kr. til að mæta slikum kostnaði, auk
fyrirliggjandi framlags skv. fjárlagafrumvarpi.
10. Athuganir á staðarvali
fyrir meiriháttar iðnrekstur
Þann 3. október s.l. skipaði ráðuneytið nefnd
til aðkanna, hvar helstkomi til álita að staðsetja
meiriháttar iðnað i tengslum við nýtingu á orku-
og hráefnislindum landsins. Er nefndinni ætlað
að beita sér fyrir athugunum á slikum stöðum og
taka tillit til liklegra áhrifa, sem slik fyrirtæki
hefðu á atvinnulega og efnahagslega þróun,
samfélag, náttúru og umhverfi. — Nefndin
hefur ráöið sér verkefnisstjóra og gert áætlun
um kostnað vegna útgjalda á árinu 1981. Nemur
áætlaður kostnaður vegna starfa að þessu verk-
efni á árinu 1981 samtals 115 m.kr..
Eidfaxi
Nú um jólín barst okkur i
hendur 12. tbl. Eiðfaxa árið 1980,
fallegt að frágangi og fjölbreytt
að efni eins og jafnan áður.
Meðal efnis i blaðinu er forystu-
greinin „Eru þáttaskil fram-
undan?”, eftir Gisla B. Björns-
son. „Viti til varnaðar”, nefnist
viðtal Karl Yenser, þekktan
tamningamann og dómara, þýtt
úr ameriska timaritinu Equus.
Fjallar viötalið um ýmis miöur
geðsleg hjálpartæki sem notuð
eru við reiðhestakeppni i Banda-
rikjunum. Birt er skýrsla um
hrossaeign Islendinga árin 1977,
1978 og 1979. Kemur I ljós, að á
þessu timabili hefur hrossum
litillega fjölgað á landinu i heild,
eða um 539, fækkaö i sýslum en
fjölgað að sama skapi i kaup-
stööum. A Norðurlandi vestra er
fækkunin mest um 900 hross og
einkum áberandi i Skagafjarðar-
sýslu, 499,og á Sauöárkróki, 178.
Þá er siðari hluti viötals við
Þorkel Bjarnason, hrossaræktar-
ráðunaut: „Er ræktunarstarfiö á
réttri leið?”. Magnús Sigsteins-
son, ráðunautur, skrifar um loft-
ræstingu i hesthúsum. Eyjólfur
Isólfsson greinir frá ferð sinni til
Noregs á sl. hausti, en þar stóð
hann fyrir námskeiðum á vegum
norska Islandshestafélagsins.
Birtur er kappreiöaannáll ársins
1980 en á sumrinu voru sett 3
íslandsmet.
Hér er aðeins stiklað á þvi
stærsta en auk þessa er svo i rit-
inu fjöldi smærri fréttapisla og
fróöleiksþátta og myndir fleiri en
tölu verði á komið i fljótu bragði.
—mhg
Röðull
Þriðja tbl. Röðuls, — en hann er
gefinn út af Alþýðubandalaginu i
Borgarnesi og nærsveitum, — er
að verulegu leyti hælgaður
réttindabaráttu kvenna.
Riður Þórunn Eiriksdóttir á
Kaöalsstöðum á vaðið með grein
er hún nefnir: „Þaö þokast i
áttina”. Þá er hringborðsspjall
um jafnréttismál. 1 þvi taka þátt
þær Dóra L. Hjartardóttir,
Vestari-Leirárgörðum, Magda-
lena Ingimundardóttir, Akranesi,
Úsk Axelsdóttir, Borgarnesi, og
Sigrún D. Eliasdóttir, Andakils-
árvirkjun. Jenni R. Ólason i
Borgarnesi stjórnaði umræöum.
Viðtal er við Þórunni Árnadóttur,
verkakonu: „I karlavinnu”, en
Þórunn „...hefur mörgum konum
meira unnið i störfum, sem al-
mennt ílokkast undir
Framhald á bls. 13
105. árgangur
Andvara kominn
Aöalgrein timaritsins Andvara
1980 er að þessu sinni ævisögu-
þáttur Arna Friðrikssonar fiski-
fræðings (1898-1966) eftir Jón
Jónsson en annað efni ritsins
eftirfarandi: Vilhjálur Hjálmars-
son: A sumardaginn fyrsta 1980;
Ludvig Holm-Olsen: Snorri
Sturluson og Norömenn (Tryggvi
Gislason þýddi); Hannes Péturs-
son: Til góðs vinar (kvæði); Arni
Kristjánsson: Franz Schubert;
Gils Guðmundsson: Svinaskála-
bóndi segir tiöindi; Eugenia
Olhina: Frá Vilhjálmi Stefáns-
syni (Hallveig Thorlacius þýddi);
Sveinn Skorri Höskuldsson: 1
minningu Guttorms; Guttormur
J. Guttormsson: Tveir minninga-
þættir; Helgi Sæmundsson:
Þorsteinn Erlingsson (kvæði);
Magnús Fjalldal: Kenning Lords
og Parrys um tilurð og varðveislu
munnlegs kveðskapar; Finnbogi
Guömundsson: Skalat maðr rúnir
rista, nema ráða vel kunni — .
Loks flytur ritið safn bréfa frá sr.
Jóni Þorsteinssyni, forföður
Reykjahliöarættarinnar, til
tengdasonar hans, Jóns alþingis-
manns Sigurðssonar á Gaut-
löndum (Finnbogi Guömundsson
bjó til prentunar), og nokkrar
gamansamlegar visur (eftir Kor-
mák, Sighvat Þórðarson, Jón
Arason, Staðarhóls-Pál, Sigurð
Breiðfjörð og Bólu Hjálmar) eru
rifjaðar upp til fyllingar i heftis-
lok.
Þetta er hundraðasti og fimmti
árgangur Andvara. Ritsjóri hans
er dr. Finnbogi Guðmundsson.
Ritið er 143 blaðsíður að stærö.