Þjóðviljinn - 08.01.1981, Síða 13
Nýkrónan og tékkamir
Fimmtudagur 8. janúar 1981 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 13
Lítíð um of
háar ávísanir
Margir hafa velt því
fyrir sér hvort menn hafi
brennt síg á því að skrifa
ávísanir upp á gamla mát-
ann þe. upp á tugi eða
hundruð þúsunda eftir að
nýkrónan varð hinn löglegi
gjaldmiðill. Þjóðviljanum
bárust fregnir af leigubíl-
stjórum sem björguðu
mörgum sem í gleði nýárs-
næturinnar voru til i að
henda frá sér næstum öllu
mánaðarkaupinu fyrir
einn leigubíl.
Hjá Landsbankanum fengust
þær upplýsingar aö mjög litiö
heföi veriö um grunsamlega háar
ávisanir, en samkvæmt reglum
um gjaldmiöilsbreytinguna eru
allar ávisanir sem gefnar eru út
frá og meö 1. jan. skráöar á ný-
krónur. Þegar háar ávisanir hafa
borist hefur veriö haft samband
viö viökomandi aöila og máliö
kannaö. Megniö af öllum ávis-
unum koma frá fyrirtækjum og
þau eru ábyrg fyrir þeim upp-
hæöum sem þau skipta. Ef fólk
veröur vart við óeölilega rýrnun
innistæöna, þá er bara aö hafa
samband viö bankana og kvarta,
þeir athuga þá hvaö rétt er.
—ká
Samband íslenskra rafveitna:
10% hækkun
lækkun í raun
Formaður og framkvæmda-
stjóri Sambands Islenskra raf-
veitna hafa ritaö fjölmiðlum bréf
þar scm sagt er að fréttir um
hækkun á rafmagnsveröi hafi
valdið misskilningi meðal al-
mennings og i raun hafi leyfi
rikisstjórnarinnar um áramótin
um 10% hækkun verið „jafnvel
lækkun á orkusölutekjum til
hinna ýmsu rafveitna”.
1 bréfinu segir:
Afskipti stjórnvalda af verð-
lagningu á raforku hafa löngum
verið gagnrýnd af ýmsum raf-
orkufyrirtækjum í landinu, svo og
af samtökum þeirra, Sambandi
islenskra rafveitna. Þróun þess-
ara mála hefur verið sérstaklega
neikvæð siðastliðinn áratug.
Á undanförnum 12—14
mánuðum hefur þó algerlega
keyrt um þverbak i þessum
efnum, og er ákvörðun rikis-
stjórnarinnar nú i lok þessa tima-
bils um „hækkun opinberrar
þjónustu”, eins og iðnaðarráðu-
neytið túlkar hana, mjög alvar-
legt áfall fyrir rafveiturnar og
þar með raforkunotendur i
landinu. Leyföar hækkanir á
smásöluveröi rafveitnanna á
þessu timabili hafa ekkí einu
sinni nægt til að mæta útgjöldum
vegna hækkaðs heildsöluverðs
Landsvirkjunar, Rafmagns-
veitna rikisins og annarra raf-
orkuframleiðenda. Siðasta
ákvörðunin, þ.e. um 10% hækkun
á smásöluveröi, en 16% hækkun á
heildsöluverði, þýðir i raun jafn-
vel lækkun á orkusölutekjum til
hinna ýmsu rafveitna. Þvi verður
vart trúað, að slikt hafi verið
ætlun rikisstjórnarinnar. Raf-
veiturnar telja þvi óhjákvæmilegt
að fara fram á endurskoðun á
þessari ákvörðun, og hefur Sam-
band islenzkra rafveitna óskað
eftir viðræðum við iðnaðarráðu-
neytiö um máliö.
Éftir aðgerðir þessar blasir við
mikill fjárhagsvandi dreifiveitna,
sem siðastliðna 12—14 mánuði
hafa ekki einu sinni fengið að
hækka gjaldskrár til að mæta að
fullu auknum útgjöldum vegna
aðkeyptrar orku hvað þá heldur
öðrum útgjöldum i 50—60% verð-
bólgu. Ákvörðun rikisstjórnar-
innar nú um svo til enga hækkun
vegna eigin dreifingarkostnaðar,
jafnvel fyrirmæli um lækkun hjá
ýmsum rafveitum, er tekin um
það leyti, sem rafveiturnar eru að
ganga frá íjárhagsáætlun fyrir
árið 1981 og beiðnum um gjald-
skrárhækkanir. Munu þær beiðnir
nema um 20—30% miðaö við 1.
febrúar 1981, að viðbættri
hækkunarþörf vegna orkukaupa,
en hún er nú hjá flestum dreifi-
veitum um 50—65% af heildsölu-
verðshækkun.
Samband islenskra rafveitna
lýsir eftir stuðningi iðnaðarráðu-
neytisins til þess að forða raf-
orkufyrirtækjum landsins frá
alvarlegum rekstrarerfiðleikum,
þannig að ekki þurfi að koma til
skuldasöfnunar eða alvarlegrar
skeröingar á þjónustu við
almenning og atvinnufyrirtæki i
landinu.
—ekh
( UÓSASKOÐUN
SKAMMDEGIÐ
FER í HÖND.
Viö aukum öryggi í umferöinni meó
því aö nota ökuljósin allan
sólarhringinn. rétt stillt og í góöu lagi.
Ljós geta aflagast á skömmum tíma. og
Ijósaperur fara aö dofna eftir u.þ.b. 100
klst. notkun. þannig aö Ijósmagn þeirra
getur rýrnaö um allt aö því helming.
31 OKTÓBER á Ijósaskoöun aö vera
lokiö um allt land.
ALÞVÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalag Selfoss og ná-
grennis
Garðar Sigurðsson verður með viðtalstima að
Kirkjuvegi 7 Selfossi laugardaginn lO.jan. kl. 2. '
e.h.
Garðar
Námskeið í
„art-þerapíu”
Sigriöur Björnsdóttir mynd-
listarmaöur
Slökun, myndræn tjáning og
umræöur eru viöfangsefnin á
sérnámskeiöum, sem Sigriöur
Björnsdóttir myndlistarmaöur
gengst fyrir aö Freyjugötu 16
frá 19. janúar til 26. febrúar n.k.
Þar sem nú er gengiö i garö
Alþjóölegt ár fatlaöra segist
Sigriöur fyrst og fremst ætla
þessi námskeiö sérmenntuöum
starfsmönnum á stofnunum fyr-
ir fatlaöa. Telur hún, aö „art-
þerapia” (þvi miöur þekkjum
viö ekkert íslenskt orö yfir
fyrirbæriö) geti veriö mikilvæg-
ur þáttur i þjálfun fatlaöra,
enda njóti sú meöferö vaxandi
álits, sem sjá má á. aukinni
notkun „art-þerapiu” i fangels-
um, sjúkrahúsum, vistheimil-
um og skólum.
Hvert námskeiö stendur yfir i
mánuö, einn dag i viku.
Hámarksfjöldi þátttakenda á
hverju námskeiði er 7 manns,
og er æskilegast aö hver hópur
komi frá sömu stofnun. Eitt
námskeiöanna veröur sérstak-
lega ætlaö starfandi fóstrum.
Þeir sem áhuga hafa á þátttöku
eru beðnir aö snúa sér til Sigriö-
ar isima 17114, og veitir hún all-
ar nánari upplýsingar.
Sigriöur Björnsdóttir hefur
viðtæka reynslu af „art-
þerapiu” og hefur starfaö sem
art-þerapisti viö Maudesley
geösjúkrahúsiö i London,
barnasjúkrahús og bæklunar-
deildir i Bretlandi og Dan-
mörku. Hún hefur haldiö nám-
skeiö i „art-þerapiu” á alþjóð-
legum og norrænum þingum
fyrir barnalækna, leikþerapista
og myndmenntakennara. Þess
má geta, að fyrir 2 árum var
haldin norræn ráöstefna i Finn-
landi, þar sem fjallaö var um
menningarframlag samfélags-
ins til fatlaðra. Sigriöur stjórn-
aöi þar „art-þerapiu"-nám-
skejöi undir einkunnaroröinu
„Samfélag fyrir alla”, og voru
þátttakendur bæöi fatlaöir og
ófatlaöir.
—ih
j$>
Guðmundur
Framhald af bls. 1
bætur og kaupmátt hjá almennu
verkafólki þá er þaö ekki sann-
færandi gagnvart almenningi, aö
þingmenn taki viö sérstakri
kjarabót úr hendi kjaradóms.
Sjálfsagt er hægt aö benda á ein- ■
hverja hópa sem hafa betri kjör
en þingmenn og eiga ekki meiri
rétt til þeirra miöaö viö starfs-
ábyrgö og vinnuálag en þing-
menn, en ætli Alþingi aö ganga á
móti veröbólgustraumnum verða
þingmenn aö leggja eitthvaö á
sig. Aö setja lög um ákveöna
launastefnu sem þrengir um tima
aö almennu launafólki en taka
siöan ábyrgðarlausir viö stór-
felldum afturvirkum kauphækk-
unum sem brjóta hana
niður — þaö kalla ég skinhelgi”,
sagöi Guömundur J. Guðmunds-
son aö lokum.
— ekh
Röðull
Framhald af bls. 6
,,karla”-vinnu”. Sagðar eru frétt-
iraf borgfirskum kvenfélögum og
Sambandi borgfirskra kvenna.
Birtar eru niðurstöður könnunar,
sem námsmeyjar i Bændaskól-
anum á Hvanneyri 1976—1977
gerðu á „stöðu kvenna i sveit”.
Rætt er við þá Konráð Andrésson
ogEirik Ingólfsson um nýbyrjaða
framleiðslu þeirra á steyptúm
einingahúsum (Loftorka sf. og
Byggingarfélagiö Borg hf). Hall-
dór Brynjúlfsson ræðir um fjár-
hagsáætlun Borgarness 1980.
Sveinn Jóhannsson fræðir okkur
um Stafholtstungur. Þá er frétta-
þátturinn „Hefurðu heyrt það?”
og tþróttaþáttur i umsjá Ingva
Árnasonar.
—mhg
BNOC
Framhald af bls. 1
gamlársdag 298 dollarar hvert
tonn, en BNOC olian kostar 330
dollara tonnið. Ástæðan fyrir þvi
að Rotterdamverðið hefur haldist
nokkuð stöðugt og lægra en
main-stream verð er almennur
oliusparnaður, aukið birgöahald i
iönrikjunum og minni áhrif
striðsins við Persaflóa á framboð
en gert var ráö fyrir. Um fram-
tiðarþróun oliumarkaða er talið
afar erfitt að spá.
— ekh
Enska
knatt-
spyrnan
United
áfram í
bikamum
Úrslit i ensku bikarkeppn-
inni i gærkvöid urðu þessi:
Brighton—Man.Utd. 0:2
BristolC—Derby 2:0
Sunderl,— Birmingh. 1:2
Tottenham—QPR 3:1
Garry Birtles var i miklu
stuði þegar United tryggði
sér áframhaldandi þátttöku-
rétt i bikarnum og skoraði
annað markið. United leikur
næst gegn Nottingham
• Forest. —IngH
. Er
sjonvarpió
^bilaó?
IQJ
Skjárinn
S)ónvarpsverhsk5i
Bergsíaáasírcati 38
simi
2-19-40
Verum
viðbúin