Þjóðviljinn - 08.01.1981, Side 15
Fimmtudagur 8. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
tfrá
Hringiö i sima 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
lesendum
Snjóinn af gangstéttunum!
Siguröu Eiiasson hringdi:
— Ég vil mótmæla harölega
vinnubrögöum þeim sem viö-
höfö eru við snjómokstur i
Reykjavik. Þaö er öllu ýtt upp á
gangstéttirnar.
i Reykjavik er mikiö af
Bogga hringdi:
— Mig langar til að þakka út-
varpinu fyrir að leyfa okkur að
heyra viðtölin hans Björns Th.
Björnssonar við konurnar þrjár
sem sögðu frá Einari Ben. Þetta
voru frábær viðtöl, skemmtileg
og mjög fróðleg.
É)g veitum marga sem misstu
öldruðu fólki sem þarf að kom-
ast leiðar sinnar fótgangandi.
Þannig er það t.d. hér i Lang-
holtinu, þar sem ég bý. Það er
ekki nema fyrir hraust fólk á
besta aldri að klöngrast yfir
þessi snjófjöll sem hlaöin eru á
gangstéttunum.
af þessum viðtölum, og sjálf
heyrði ég ekki nema tvö þeirra.
Mig langar til að skjóta þvi að
þeim útvarpsmönnum að
endurflytja viðtölin við tæki-
færi. Þeir endurflytja marga
þætti sem minni tiðindum sæta
en þessi viðtöl.
Gegnum
bernsku-
múrinn
Einn af lesendum blaðsins
hefur beðið okkur fyrir nokkrar
linur úm nýiega bók, Gegnum
bernskumúrinn eftir aðeins
nítján ára gamlan höfund, Eð-
varð Ingólfsson. Þar segir:
„Gegnum bernskumúrinn
segir frá skólapiltinum Birgi,
sem er að ljúka grunnskóla-
námi. Hann er nýfluttur úr litlu
þorpi úti á landsbyggðinni og til
höfuðborgarinnar. Faðirinn er
sjómaður á millilandaskipi og
er því sjaldan heima, en móðir-
in er drykkfelld. Bókin fjallar
um samskipti móður og sonar
svo og samskipti nemendanna i
Holtsskóla. Hún er lipurlega rit-
uð og þægileg aflestrar. Samtöl
og viðhorf nemenda til skólans
og heimila sinna eru að mörgu
leyti svipuð og gengur og gerist i
dag. Kannski er aðalsögu-
persónan ofurlitið þroskaðri en
almennt gerist meöal grunn-
skólanemenda, en ekki svo að
það verði neitt áberandi. Bókin
flytur boðskap um bindindi, án
þess þó að sá boðskapur sé
uppáþrengjandi. Sem fyrsta
bók er hún höfundium til sóma
og lofar góðu. Ég vil hvetja
hann til þess að halda áfram að
skrifa. ,
Handaþvottur
I tilefni af brottvisun Patricks
Gervasoni frá Islandi:
Þar sem menntog
mannúð dvinar
má það löngum heyra og sjá
að hundingi þvær hendur sinar
hér — sem fyrrum austur frá.
H.J.
Frábær viðtöl
Barnahornid
Umsjón: Magnús og Stefán
Grímur og
sálfræð-
ingurinn
Þaö barst eins og eldur
i sinu um allt þorpið, að
hertoginn hefði setið
lengi dags inni í tjaldi við
tsát ásamt Grími
Jónssyni og öðrum ámóta
peyjum, og samtalið
hefði snúist um ræningja,
rauðskinna og margs
konar svaðilfarir til sjós
og lands.
Enn fremur átti tignin
að haf a beðið þá að f ylgja
sér á stöðina og litið í
leiðinni inn til Mósa. Þar
fékk hertoginn sér kókos-
bollu, sem hann sagði að
væri afbragð, bað um að
sér yrði send ein tylft á
mánuði og gaf strákunum
tværhverjum. Þorpsbúar
stóðu á öndinni af undr-
un. Mósi varð eins konar
,,hirðsali", og allir keppt-
ust um að kaupa hjá hon-
um, en að mánuði liðnum
neyddist ,,Malla" til að
loka og bakarinn tók
búðina á leigu.
Rauðhærða afgreiðslu-
stúlkan sagðist vera
guðslifandifegin, því að
hún hefði aldrei á sinni
lífsfæddriævi kynnst öðru
eins leiðindaplássi.
Ungfrú Spenser varð
fyrst til að koma orðum
að því áliti, sem menn
höfðu á Grími. Það var
ekki vegna þess, að hún
væri hrifin af piltinum.
Nei, síður en svo.
Grímur var vanur að
erta köttinn hennar og
hænsnin, trufla hvfldar-
tíma hennar með sker-
andi blístri og óhljóðum,
brjóta rúður með boltan-
um sínum og kasta grjóti
yfir limgerðið ofan í
garðtjörnina hennar.
Dag nokkurn horf ði hún
á Grím ösla eftir skurðin-
um — hann gekk aldrei á
veginum, ef hann gat
komist hjá því — hann
öslaði í forinni með hend-
ur í vösum, örlítið álútur
og brúnaþungur með
kergjusvip. Nú setti hann
totu á munninn og mynd-
aði þetta ógurlega hljóð,
en strákaskarinn fylgdi í
fótspor hans eins og
venjulega. Þá var það að
ungfrú Spenser mælti
þessi orð: ,,Það er eitt-
hvað við þennan dreng
—Endir.
Götumynd frá Vln um aldamótin. Sinfóníuhljómsveitin hverfur
til Vinar i kvöld og færir okkur þaðan tóna frá liönum tímum.
Vínarkvöld í stereó
Nú geta menn ekki lengur
kvartaö undan „sinfóniu-
gargi” á þeim forsendum að
það sé ekki i stereó. Tónleik-
unum I kvöld verður nefnilega
útvarpað í stereó.
Vinarkvöld heita þessir tón-
leikar, en fyrri hluti þeirra er
á dagskrá i kvöld, i beinni
stereóútsendingu úr Háskóla-
biói. Flutt verða atriði úr
óperettum eftir Strauss,
Útvarp
kl. 20.30
Lehár og Stolz. Einsöngvari
með hljómsveitinni er austur-
riska söngkonan Birgit Pitsch-
Sarata.
—ih
V erslunarstj órinn
Fimmtudagsleikritið að
þessu sinni er norkst og heitir
„Verslunarstjórinn”. Höfund-
ur þess er Odd Selmer. Þýð-
ingu gerði Torfey Steinsd.,
en leikstjóri er Klemenz Jóns-
son. Með aðalhlutverk fara
Þorsteinn Gunnarsson, og
Guðrún Ásm undsdóttir.
Fiutningstimi er 58 minútur.
Tæknimenn: Friðrik Stefáns-
son og Jón örn Ásbjörnsson.
Einar og Elna eru miðaldra
hjón, sem vinna hjá sama
fyrirtæki. Dag nokkurn er
staða verslunarstjóra auglýst
laus til umsóknar, og þau
hjónin sækja bæði um hana.
Konan hefur betri menntun,
en mann hennar hefur alltaf
dreymt um stöðuhækkun og
Útvarp
Hp? kl. 21.15
þetta kann að verða hans sið-
asta tækifæri. Hjónabandið er
i hættu, svo miklu skiptir
hvernig tekið er á málunum.
Odd Selmer er norskur rit-
höfundur og blaðamaður, sem
hlaut verðlaun Norðurlanda-
ráðs fyrir fyrsta útvarpsleik-
rit sitt, „Heim frá Ameriku”,
árið 1972. Hann hefur einnig
skrifað allmargar skáldsögur.
„Verslunarstjórinn” er fyrsta
leikrit hans, sem flutt er i
islenska útvarpinu.
Kvöld-
stund
með
Sveini
Þorsteinn og Guðrún fara með hlutverk hjónanna sem sækja
bæöi um sama starfið.
Útvarp
kl. 23.00
Sveinn Einarsson þjóðleik-
hússtjóri verður i útvarpinu I
kvöid með sinn vinsæla tón-
listar- og rabbþátt.
Sveinn er landsþekktur
smekkmaður á tónlist og kvöld-
stundirnar hans hafa hingaðtil
einkennst af fjölbreytni i laga-
vali og þægilegu rabbi inn á
milli.
Sveinn Einarsson
þjóðleikhússtjóri