Þjóðviljinn - 12.02.1981, Síða 3
Fimmtudagur 12. febrúar 1981 ÞJóÐVILJINN — StÐA 3
Svavar Gestsson: Félagar i ÆS
bauna á hann i kvöld.
Æskulýðsfélag
sósíalista:
Svavar
situr
fyrir
svörum
Svavar Gestsson félagsmála-
ráöherra og formaður Alþýðu-
bandalagsins situr i kvöld fyrir
svörum hjá Æskulýðsfélagi
sósialista að Grettisgötu 3, uppi.
Vænta má fjörugra umræðna
um rikisstjórnina og annað sem
mönnum kann að liggja á hjarta,
þvi Svavar svarar öllum spurn-
ingum sem félagar bauna á hann,
lofa fundarboðendur. Fundurinn
hefst kl. 20.30.
Nýjung í innan
landsflugi Flugleiða:
Aldraðir
fliúga fyrir
hálfvirði
Frá og með 1. febrúar tóku
Flugleiðir upp ný sérfargjöld
fyrir aldraða á innanlandsleiðum
félagsins. Sérfargjöldin eru 50%
ódýrari en venjuleg fargjöld og
giidir þessi afsláttur hvort heldur
tekinn er tvimiði eða aðeins miði
aðra leiðina.
Þessi fargjöld gilda aðeins á
miðvikudögum og laugardögum
fyrirþá sem orðnir eru 67 ára eða
eldri. farmiðinn- gildir i sex
mánuði. Sé ófært til flugs mið-
vikudag eða laugardag gildir
miðinn næsta dag sem fært er.
Aður var afsláttur fyrir þennan
aldurshóp 15%, en að sögn Sveins
Sæmundssonar blaðafulltrúa FL
vill félagið með þessu koma enn
frekar til móts við fólk á þessum
aldri, sem hefur að verulegu leyti
hætt þátttöku i atvinnulifinu og
hefur rúman tima, og auðvelda
þvi ferðalög, þám. heimsóknir til
vina og ættingja i öðrum lands-
hlutum. — vh
Búnaðarþíng
hefst 16.
febrúar n.k.
Mánudaginn 16. febrúar kl.
10.00 verður Búnaðarþing sett i
Bændahöllinni. Venja hefur verið,
að landbúnaðarráðherra ávarpi
þingið á fyrsta fundi þess og mun
svo eflaust verða nú sem endra-
nær. Búnaðarþingsfulltrúar eru
25. Auk þess sitja fundi þess
stjórn og ráðunautar Búnaðar-
félags tslands, með málfrelsi og
tillögurétti.
Fyrir Búnaðarþingi liggja
jafnan mörg mál, sem miklu
varða bændastéttina og raunar
þjóðfélagið allt. Að þvi er Jónas
Jónsson búnaðarmálastjóri
sagði okkur þá mun stjórn Bún-
aðarfélagsins m.a. leggja fyrir
þingið til umræðu og afgreiðslu
mál, er snerta loðdýraræktina,
endurskoðun á búreikningahaldi
og bókhaldsþjónustu fyrir
bændur. Ennfremur mál er varða
mjólkurframleiðsluna og hvað
gera megi til þess að hún jafnist
betur á áriö allt en nú er. — mhg
Gestir kvikmyndahátiðar teknir tali
Ekki pönkarar, en
aðdáendur Nínu Hagen
Eins og fram hefur kom-
ið í Þjóðviljanum hefur
verið mikil aðsókn að
kvikmyndahátíðinni í
Regnboganum enn sem
komið er. Þjóðviljamenn
tóku nokkra sýningar-
gesti tali sem voru á leið
að sjá kvikmyndina Cha
cha með Ninu Hagen o.f |.
Unnið af
nemendum
Héraðsskólans
á Laugarvatni
í starfskynningu
hjá Þjóðviljanum:
Helgu Hilmarsdóttur,
Sigrúnu óskarsdóttur
og Sigurði Kristinssyni.
— Ljósm. —eik—
Dyravörðurinn Ingvar Vilhjálmsson hafði ekki séð myndina. Hann sagði aö það væri geysimikil að-
sókn að hátiðinni og meira af eldra fólki en venjulega.
Jón Snorrason t.h. og Finnbogi Þórarinsson kváðust vera aðdá-
endur Ninu Hagen er ég stöðvaöi þá og fékk aö spyrja nokkurra
spurninga. Þeir kváðust ekki vera pönkarar, en þeim þykir gaman
að þungu rokki. Jón kvaðst eiga eina plötu með Ninu Hagen. Að-
spurðir sögðust þeir vita um marga sem ætla i Cha Cha.
Þær Guömunda Þórisdóttir t.h. og Björg Stefánsdóttir voru aö sjá
mvndina i fyrsta skipti. Þær kváðust báðar hafa gaman af Ninu
Hagen. Guðmunda sagðist eiga eina plötu meö henni. Aðspurðar
sögðust þær hafa valið að sjá þessa mynd vegna þess að hún vakti
mestan áhuga þeirra.
Eyjólfur Guðmundsson sagð-
ist ekki gera sér háar hug-
myndir um myndina Cha Cha en
kvaðst engu að siður vera aðdá-
andi Ninu Hagen. Engar plötur
sagðist hann samt eiga með
henni. Þegar blm. spurði hvort
hann væri pönkari svaraöi hann
með ákveðnu ncii. Segist ekki
ætia að láta lita á sér hárið.
Ég hitti unga stúlku á leiö inn i
A sal i Regnboganum og fékk að
spyrja hana nokkurra spurn-
inga.
— llvað heitiröu? — Margrét
Pétursdóttir.
— Ertu aðdáandi Ninu
Hagen? — Já, frekar.
— Attu plötur með Ninu
Hagen? —Nei engar.
— Veistu um einhverja sem
ætla á Cha Cha og eru það
frekar pönkarar sem ætla?
— Ég veit um fullt af fólki
sem ætlar og það eru ekkert
frekar pönkarar.
— Hvernig heldurðu að
myndin sé? — Ég held að hún sé
mjög góö.
Við sjoppuna stóðu þau Stefania Ægisdóttir, Lilja Ægisdóttir og
Eyjólfur Eyjólfsson og blm. tók þau tali.
Eruð þiö pönkarar? Margraddað nei kvað við. En þau sögðust
samt vera aðdáendur Ninu Hagen og eiga eina plötu með henni.
Blm. spurði þau hvers vegna þau færu að sjá Cha Cha og þau svör-
uðu að þau langaði að sjá hana á sviði. Aðspurð kváðust þau Ifka
vera aðdáendur þungs rokks.
h.h.
Inga Rún Pálmadóttir von-
aðist til að myndin yrði góð.
Þegar ég spurði Ingu hvort hún
væri pönkari sagðist hún fyrst
og fremst vera hún sjálf. Hún
kvaðst mótfallin þvi að láta
annarra hugsjónir hafa áhrif á
sig; sem sagt: fyrst og fremst
hún sjálf.