Þjóðviljinn - 12.02.1981, Side 5
Fimmtudagur 12. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
I
Stríöiö um bílamarkaöinn:
Einn af þrem helstu bíla-
framleiöendum Banda-
rikjanna/ Crysler, er í
mikilli kreppu. Svo mik-
illi, að það eru ekki ýkjur
að segja að fyrirtækið
berjist fyrir lifi sínu.
Meðal þeirra sem fylgj-
ast með þessu dauðastríði
með áhyggjum þungum
eru tveir erlendir bíla-
framleiðendur, sem hafa
fyrr á árum flækt sér í
samstarf við Chrysler —
Mitsubishi í Japan og
Peugot-CitroÖn i Frakk-
landi, en Chrysler á fyrir
sem verðbólga, eldsneytishækk-
anir og vaxtaverkir gera miklu
grimmara en dæmi eru til um
langan tima.
Frakkar tapa
Peugot á i ærnum erfiðleikum
vegna þess að sala á framleiðslu
fyrirtækisins minnkaði um 20%
á siðasta ári og tapið nam sem
svarar 2.8 miljörðum nýkróna.
Tapið var ekki sist tengt hluta
Peugot i Chrysler, sem franska
fyrirtækið keypti 1978, m.a. til
að reyna að auka sölu sina i
Bandarikjunum með þvi að fá
aðgang að sölukerfi Chrysler
þar. Þær vonir hafa brugðist:
samdráttur i bilasölum i Banda-
rikjunum bitnaði ekki siður á
Peugot en öðrum i fyrra.
Hver vill
Iacocca forseti Chrysler og Tomio Kubo frá Mitsubishi — að ofan
japanskir bilar i Jokohamahöfn.
ganga að eigaChrysler?
•s
bragðið 15% hlutabréfa í
hvoru fyrirtæki.
Bæði þessi fyrirtæki hafa orð-
ið fyrir nokkrum skakkaföllum
vegna samstarfsins við Chrysl-
er, og reynt er að fá báða til aö
bjarga hinum sjúka bandariska
risa með þvi að sameinast hon-
um. Hvorki Japönum né Frökk-
um list á þær blikur. Mitsubishi
mundi reyndar gráta þurrum
tárum ef að Chrysler hyrfi með
öllu út úr bilastriðinu mikla.
Skammgóður vermir
Tengsli Chrysler við Mitsu-
bishi eiga sér lengri aldur. Þau
hófust árið 1971, þegar Chrysler
varótviræður risi,en Mitsubishi
litið fyrirtæki. Chrysier keypti
þá fyrir 23 miljónir dollara 15%
hlut i Mitsubishi og um leið
einkaréttá sölu Mitsubishibila i
Bandarikjunum — um alla
framtið. Siðan þá hefur sala á
Mitsubishibilum i Bandaríkjun-
um aukist úr 4000 árið 1970 og
upp i 180 þúsund i fyrra, og er
sjötti hver bill sem selst i gegn-
um sölukerfi Chryslers nú af
þessum tegundum.
Tengslin við Chrysler hjálp-
uðu Mitsubishi til að komast inn
á bandariska markaðinn, en
samt hafa þau reynst skamm-
góður vermir vegna þess, að
aðrir japanskir bilafram-
leiðendur hafa gert enn betur.
Nissan og Toyota komust i fyrra
upp i 20% af öllum bilasölum i
Bandarikjunum og Kanada, en
sölutregðan hjá Chrysler hefur
haldið hluti Mitsubishi niður i
6% markaðsins. Enda er það
haft eftir ábyrgðarmanni þess
fyrirtækis að öfundsverðir séu
aðrir japanskir bila-
framleiðendur sem geti spilað
fritt.
Brjótast um
Mitsubishi hefur reynt að
komast út úr þessu samstarfi og
sannast nú sem fyrr, aö enginn
er annars bróðir i sölumennsku.
Stríðið um
evrópska
tölvu-
markaðinn:
Auðhringasérfræðingar Efna-
hagsbandalagsins hafa um skeið
fylgst grannt með þvi hvernig
hinn bandarlski fjölþjóðarisi IBM
hefur lagt undir sig meira en
helming evrópsks tölvubúnaðar-
markaðar. Fyrir nokkru lögðu
sérfræðingar EBE I baráttu við
hringamyndun fram þúsund blað-
siðna skýrslu sem inniheldur
ýmsar ákærur gegn risafyrirtæki
þessu. Likur benda til þess að til
málaferla dragi, sem gætu ef til
vill kostað IBM rúma tvo
miijarða dollara I sektir.
IBM hefur, að sögn bandariska
vikublaðsins Newsweek, nokkrar
áhyggjur af þessu máli, einkum
þvi að málaferli gætu farið illa
með orðstir fyrirtækisins. Nú eru
þeir starfsmenn fyrirtækisins
sem annast fjölmiðlatengsli önn-
um kafnir viðað minna á, að IBM
veiti hundrað þúsund Evrópu-
mönnum vinnu og borgi miljarð
dollara á ári i skatta i Evrópu-
löndum, auk þess reyni það að
vera „evrópskt” meðal annars
með þvi að láta Evrópumenn
sjálfa stjorna Utibúunum án veru-
legrar ihlutunar frá aðalstöðvum
i New York. (Allt minnir þetta á
dæmi héðan að heiman: ISAL
veitir svo og svo mörgum tslend-
ingum vinnu, ISAL borgar skatta
og þar fram eftir götunum.)
Sterk staða
IBM hefur I reynd náð gifurlega
sterkri stööu i Evrópu. Það selur
um 60% af öllum tölvum i álfunni
og fer nálægt þvi að einoka sölu á
sumum tegundum tölvubúnaðar,
þvi að á einstöku sviðum (m.a.
smátölvumarkaði) er hlutur IBM
miklu minni, en Japanir eftir þvi
umsvifamiklir. Árið 1979 seldi
IBM í Evrópu fyrir sjö sinnum
hærri upphæð en næststærsti
keppinauturinn, franska fyr-
IBM-dtbúnaður I Englandi: ef við seljum ykkur tölvu, þá skuluð þið kaupa einnig af okkur...
Akærum safnað á
söluaðferðir IBM
irtækið CII-Honeywell Bull. Aðrir
evrópskir tölvuframleiðendur
eins og Siemens i Vestur-Þýska-
landi og ICL i Bretlandi eru langt
á eftir. IBM hefur grætt mjög
mikið á Evrópumarkaði, en
þaðan kemur nú þriðjungur af
tekjum þess.
Aðferðir
Lögfræðingar Efnahagsbanda-
lagsins munu ekki stefna að þvi
að sundurlima IBM, en þeir hafa
safnað gögnum sem lúta að sölu-
aðferðum IBM. Helsta ákæran
mun lúta að þvi, hvernig IBM
tengir sölu á tölvum saman við
það, að skylda viðskiptavini til að
kaupa einnig af sér ýmislegt sem
við á að éta, forritunarkerfi og
fleira þesslegt. IBM hefur nú sett
af stað, að sögn Newsweek, lög-
fræðingaflokka sem eiga að
hrinda þessum ákærum og tengir
vonir við að hliðstæðum ákærum
á IBM hafi verið hrundið i
Banda rikjunum.
Reyndar mun það svo, að
dómstólar hafa reynst afar linir
við afgreiðslu mála sem til er
stofnað gegn yfirgangi
auðhringa. Nýlegt dæmi er að
finna i Efnahagsbandalaginu
sjálfu, þar sem vel grundaöar
ákærur gegn söluaöferðum sviss-
neska lyfjahringsins LaRoche
fengu hina ömurlegustu handar-
bakameðferö — bitnaði það mál
ekki hart á neinum öðrum en
þeim starfsmanni lyfjahringsins
sem kom málinu af stað.
Sundraðir
keppinautar
í Newsweekfrásögn þeirri sem
að ofan var vitnað til segir, að það
hafi einkum staðið evrópskum
tölvuframleiöendum fyrir þrifum
að þeir hafi ekki sameinað krafta
sina til aö ná þeirri stærö, að ein-
hver þeirra gæti staðið uppi i
hárinu á IBM. Einna helst eigi þó
möguleika það samstarf sem er
að komast á milli franska fyr-
irtækisins CII og italska fyr-
irtækisins Olivetti. (Endursagt).
--------------------------|
Japanirnir hafa reynt að kaupa [f
aftur fyrir 100 miljónir dollara |
hlutabréf Chrysler i Mitsubishi ■
— með þeim skilmálum að þeir I
fái siðan að reka sin sölumál i ,
Bandarikjunum sjálfir. Chrysl- ■
er hefur vitaskuld hafnað þessu B
tilboði. Japanirnir hafa ekki J
viljað leggja út I lagakrókastrtð I
við Chysler út af þessu máli, og ■
er það rakið tii þess að þeir vilji I
ekki auka á þá spennu sem nú ■
rikir i viðskiptamálum Banda- ■
rikjanna og Japan, en i Banda- ■
rikjunum hafa gerst háværar J
kröfur um aö settur verði inn- I
flutningskvóti á japanska bila. ■
Liklegt er talið, að bæði |
Peugot og Mitsubishi vilji helst ■
aö Chrysler hrynji til grunna, I
vegna þess að þá gætu fyrirtæk- [
in losnaö við þann óþægilega ■
millilið um sölumál þeirra i I
Bandarikjunum.
í makaleit
Ennúer frá þvi að segja, að |
Chryslerer kominn á rlkisjötuna ■
aö nokkru leyti. Fyrirtækið fékk I
verulega fyrirgreiöslu með I
rikisábyrgð i fyrra og fær núna
400 miljón dollara fyrirgreiðslu
til viðbótar. En sú rikisábyrgð
fæst ekki án skilmála frekar en
fyrirgreiðsla við Flugleiðir.Eitt
helsta skilyrðið er að Chrysler
leiti sér að bilafyrirtæki sem
væri reiðubúið til að sameinast
sér. Þá er ekki nema eðlilegt að
Peugot og Mitsubishi hafi verið
til nefnd, einnig Wolkswagen og
Fiat.
En lifsþreyttir samstarfs-
aðilar Chryslers i Japan og
Frakklandi eru lltið hrifnir af
þvi að ganga inn i slikan hjú-
skap við stórskuldugan maka.
Þau munu heldur kjósa að af-
skrifa það sem þeir eiga nú inni
hjá Chrysler og leyfa kom-
paniinu siðan að fara á höfuöiö.
Þeir mundu þá koma til að láta
slá sér fyrir slikk samsetn-
ingarverksmiðjur og fleira nýti-
legt úr þrotabúinu.
(endursagt — áb).
VERUMÁ
VERÐI
Aiyktun Verkáiýðsfélagins
„Vöku” á Sigiufiröi, vegna
bráðabirgðalaga rikisstjórnar-
innar frá 31/12 1980:
Almennur félagsfundur Verka-
lýðsfélagsins „Vöku” á Siglufirði
haldinn 1. febr. 1981 leggur
áhersiu á það viðhorf félagsins,
að verkalýðshreyfingunni beri að
vera þátttakandi i viðleitni
stjórnvalda til að hemja þá óða-
veröbólgu sem rikjandi hefur
verið hér á landi um langt árabil.
Fundurinn undirstrikar sér-
staklega i þessu sambandi, að
stjórnvöldum beri siðferöileg
skylda til að hafa fullt samráð við
verkalýðshreyfinguna áður en til
aögerða er gripið og að skeröing
kaupmáttar lægri launa meö lög-
gjöf sé óhæfa sem verkalýðs-
hreyfingin geti eðli sinu sam-
kvæmt aldrei liðið, hvaða stjórn-
völd sem i hlut eiga.
Fundurinn mótmælir þvi harð-
lega nýsettum bráðalxirgöalögum
núverandi rikisstjórnar þar sem
einhliða er ákveðin 7% skeröing
verðbóta á laun 1. mars nk. og
alveg sérstaklega þvi ákvæði lag-
anna að þessi skerðing skuli ná til
lægstu nauðþurftarlauna.
Fundurinn telur einsýnt að þó i
viðkomandi lögum sé gert ráð
fyrir gagnráðstöfunum, sem
draga muni úr þeirri skerðingu
kaupmáttar sem af þessu leiðir,
miðað við allt yfirstandandi ár,
þá verði óhjákvæmilega um að
ræða verulega kjararýrnun alls
launafólks á veröbótatimabilinu
frá 1. mars — til 1. júni.
Fundurinn vill treysta þeim
yfirlýsingum stjórnvalda að sú
kjararýrnum verði bætt á siðari
hluta ársins, en telur að I lögun-
um sjálfum felist engin örugg
trygging þess að svo verði.
Fundurinn hvetur öll verka-
lýðsfélög á landinu til að vera vel
á verði um þann kaupmátt lægri
launa sem siðustu kjarasamning-
ar tryggðu og verði á þann kaup-
mátt gengið þegar til alls ársins
1981 er li tið, veröi samtakamætti
verkalýðshreyfingarinnar beitt
til að ná fram eölilegum leiðrétt-
ingum.