Þjóðviljinn - 12.02.1981, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. febrúar 1981
Skák-
keppni
stofnana og
fyrirtækja
1981
Skákkeppni stofnana og fyrir-
tækja 1981 hefst i A-riðli
mánudag 16. febrúar kl. 20 og I B-
riðli miðvikudag 18. febrúar kl.
20. Teflt verður I félagsheimili
Taflfélags Reykjavikur að
Grensásvegi 44—46. Keppnin
verður með svipuðu sniði og áöur,
sjö umferðir eftir Monrad-kerfi i
hvorum riðli um sig. Um-
hugsunartimi ein klukkustund á
skák og hver sveit skipuð fjórum
mönnum auk 1—4 til vara.
Fjöldi sveita frá hverju fyrir-
tæki eða stofnun er ekki takmark-
aður. Sendi stofnun eða fyrirtæki
fleiri en eina sveit, skal sterkasta
sveitin nefnd A-sveit, næsta B-
sveit o.s.frv..Þátttökugjald er kr.
320,00 fyrir hverja sveit. Nýjar
keppnissvetir hefja þátttöku i B-
riðli.
Keppni i A-riöli fer fram á
mánudagskvöldum, en i B-riðli á
miðvikudagskvöldum. Fyrsta
kvöldið verður tefld ein um-
ferð.en tvær umferðir þrjú seinni
kvöldin. Mótinu lýkur með hrað-
skákkeppni, en nánar verður til-
kynnt um það siðar.
Þátttöku i keppnina má til-
kynna i sima Taflfélagsins á
kvöldin kl. 20—22. Lokaskráning i
A-riðli verður sunnudag, 15.
febrUar kl. 14—17, en i B-riðli
þriðjudag, 17. febrúar kl. 20—22.
Sjö Mutu
rannsóknar-
styrki
Nýlega var úthlutað i áttunda
sinn styrkjum úr Rannsóknar-
sjóði IBM vegna Reiknistofnunar
Háskólans. Alls bárust 10
umsókniroghlutu 7 umsækjendur
styrk úr sjóðnum, samtals kr.
45.000.
Styrkina hlutu:
Ágúst Kvaran, Ingvar Arnason
og Sigurjón N. Ólafsson, kr. 5
þús., Raunvisindastofnun
Háskólans, til tölvuvinnslu á
litrófsmæligögnum vegna
rannsókna i ólifrænni efnafræði.
Asbjörn Jóhannesson, kr. 5
þús., Rannsóknarstofnun bygg-
ingariðnaðarins, til að aðlaga
reiknilikan fyrir ákvarðanir um
hagkvæmasta viðhald vega á
tslandi.
Jóhann Axelsson og Sigfús
Björnsson, kr. 10 þús.,
Rannsóknarstofa H.t. i lifeölis-
fræði, til lifeðlisfræðislegs
samanburöar á tslendingum og
islenska þjóðarbrotinu i Kanada.
Jón Ottar Ragnarsson og Erla
Stefánsdóttir, kr. 10 þús., Efna-
fræðiskor Háskóla tslands, til
úrvinnslu gagna um mataræði Is-
lendinga úr búreikningakönnun
Hagstofunnar.
Kristján Kristjánsson,
Sigmundur Guðbjarnason og
Sigurjón N. Ólafsson, kr. 5 þús.,
Raunvisindastofnun Háskólans,
til kaupa á svonefndu SIMCA-for-
ritasafni fyrir munsturgreiningu
á niðurstöðum efnagreininga.
Magnús B. Jónsson, kr. 5 þús.,
Bændaskólinn á Hvanneyri, til
útreikninga á kynbótum á
islenska nautgripastofninum
m.t.t. bæöi mjólkur- og kjötfram-
leiðslu.
Sigrún Klara Hannesdóttir, kr.
5 þús., Félagsvisindadeild
Háskólans, til að setja upp forrit
fyrir tölvuleit I gagnabanka,
vegna kennslu,svo og tölvusetn-
ingu íslenskra heimilda.
Dreifing ríkisstarfsmanna
innan BHM í launaflokka
í nóvember 1980
i byrjun árs var BHM/
Bandalag háskólamanna
mjög til umræðu/ ekki síst
vegna þess umdeilda
kjaradóms sem ákvað 6%
kauphækkun til handa
þeim félagsmönnum, sem
vinna hjá ríkinu.
I þessari fréttaskýringu
er ætlunin að varpa nokkru
Ijósi á þessi samtök, hverj-
ir skipa þau og hvernig þau
eru byggð upp og starf-
rækt, þar sem hér er um að
ræða mjög flókið félags-
legt fyrirbrigði, blöndu af
akademiskum klúbbi og
stéttarsamtökum.
Ung samtök
BHM eru ung samtök. Það er
stofnað 23. október 1958 meö aðild
ellefu félaga háskólamanna og
tæplega 1200 félagsmönnum. í
grein sem Ármann Snævarr
skrifar i málgagn BHM i tilefni af
15 ára afmæli samtakanna kem-
ur fram að frumkvæði að þessu
átti Lögfræðingafélag tslands og
einkum þeir Armann og Guð-
Dreifing rikisstarfsmanna innan BHM i launaflokka í nóvember 1980. Launaflokkarnir eru merktir með
tölunum 101—122, en fjöldi starfsmanna i hverjum launaflokki i sviga fyrir ofan. Heildarfjöldinn er
2.265. Skv.. upplýsingum skrifstofu BHM höfðu 70% rlkisstarfsmanna I BHM laun undir 800.000 Gkr. i
desember sl.
Hvernig félagsskapur
er BHM?
mundur Ingvi Sigurðsson.
Armann var enda kosinn fyrsti
formaður samtakanna. 1 grein
Armanns kemur fram að starf-
semin fyrstu árin beindist að þvi
að kynna bandalagið og vinna þvi
viðurkenningu sem samningsað-
ila við rikisvaldiö um kaup og
kjör.
Háskólamönnum
fannst þeir bera
skarðan hlut
Við stofnun bandalagsins og
fyrstu 15 árin er þvi ekki um að
ræða stéttarfélag i hinum hefð-
bundna skilningi. Hér er um að
ræða þjóðfélagshóp sem stofnar
samtök að erlendri fyrirmynd.
Menn verða félagsmenn vegna
sömu menntunar eöa sömu
starfa. Fundir og ráðstefnur voru
haldnar og samkomur af þvi tagi
sem bændaklúbburinn i Eyjafirði
heldur þegar bændur þar koma
saman i kaffi á Hótel KEA.
En fljótlega fór að bera á þvi aö
háskólamönnum þótti forysta
BSRB ekki berjast nógu hörku-
lega fyrir hagsmunum þeirra,
heldur legðu megin áherslu á hin
fjölmennari félög innan BSRB, og
sögöu þá sumir til að tryggja at-
kvæöi og stuöning við forystuna.
Samningsréttur
viðurkenndur
1973
En þaö er með lögum nr.
46/1973 og viðurkenningu fjár-
málaráðherra á BHM sem samn-
ingsaðila það ár að BHM fær
samningsrétt viö rikið. Um leiö
breytist eöli bandalagsins. En þá
blasti við sá vandi að aðeins hluti
félagsmanna starfaði hjá rikinu,
hinir störfuðu sjálfstætt eöa voru i
þjónustu hjá einkaaðilum eða
sveitarfélögum. Til þess að mæta
þessu var brugðið á það ráð aö
setja á fót sérstakt launamála-
ráð, sem fer með samningsrétt-
inn viö rikið og gerir aðalkjara-
samning, en stjórnir hinna ein-
stöku aöildarfélaga gera sér-
kjarasamninga, og þá einkum
skipan starfsheita og manna i
launaflokka, sérákvæöi um
vinnutima, og atriði sem aðal-
kjarasamningur tekur ekki til.
Launamálaráð
I lögum BHM segir svo um
launamálaráö:
Launamálaráð skulu vera
samninganefndir Bandalags
háskólamanna og fara meö allt
umboð þess til samningagerðar. I
launamálaráði rikisstarfsmanna
skal eiga sæti 1 fulltrúi frá hverju
þvi aöildarfélagi bandalagsins,
sem hefur rikisstarfsmenn innan
sinna vébanda. Rikisstarfsmenn
innan hvers félags skulu velja
einn fulltrua og 1 varafulltrúa úr
sinum hópi i ráðið. Varamenn
eiga rétt til setu á fundum ráðs-
ins. Auk þess skal stjórn BHM til-
nefna tvo rikisstarfsmenn i ráðið
úr sinum hópi, ef kostur er.
Fulltrúar i launamálaráði
kjósa formann og varaformann
úr sinum hópi, svo og aðra starfs-
menn eftir þörfum.
Við atkvæðagreiðslu i launa-
málaráði rikisstarfsmanna fer
hver fulltrúi með eitt atkvæöi fyr-
ir hvert byrjað hálft hundrað
rikisstarfsmanna sem hann er
fulltrúi fyrir. Fulltrúar stjórnar
BHM i ráðinu hafa ekki atkvæöis-
rétt.
Launamálaráð rlkisstarfs-
manna tekur ákvarðanir um mál,
sem varða eingönga rikisstarfs-
menn.
Taki BHM upp samninga við
aðra aðila en rikið, skal mynda
launamálaráð, er skipuð sé full-
trúum úr hópi þeirra launþega
sem hlut eiga að máli. Stjórn
BHM er heimilt að tilnefna einn
eða tvomenn úr sinum hópi I slik
ráð.
Launamálaráð setja sér sjálf
starfsreglur.
Þaö er þetta launamálaráð sem
Ármann Snævarr,
maður BHM.
fyrsti for-
er hið raunverulega stéttarfélag
háskólamanna. Það þarf ekki að
bera ákvarðanir sinar undir
félagsmenn og fer meö allt samn-
ingavald. Atkvæðalegt vægi inn-
Jón Hannesson, formaður
Launamálaráðs BHM.
an launamálaráðshópsins er
einnig mjög misjafnt. Þaö er þvi
rétt að skoöa nánar hverjir eru i
BHM og frá hvaöa aðildarfélög-
um. (Sjá töflu.).
Fjöldi Þar af ríkis-
Aðildarfélög BHM félagsm. júnl 1980 starfsmenn nóv. 1980.
Útgarður (áður einstakiingsaðild ... ... 34 28
Arkitektafélag Islands .. 133 21
Dýraiæknafélag tslands .. 33 31
Félag háskólakennara . . 304 249
Félagháskólam. hjúkrunarfr . . 37 23
Félag islenskra fræöa 24
Félag Isl. náttúrufræðinga ... 225 217
Hiðislenska kennarafélag ... 739 772
Félag viöskiptafr. og hagfr 108
Lyfjafræðingafélag tslands ... 100 2
Læknaféiag tslands 125
Lögfræðingafélag tslands 188
Prestafélag tsiands 111
Sálfræðingafélag tslands .. 53 14
Verkfræöingafélag tsiands .. 722 176
Félag tækniskólakennara . . 24 20
Kennarafélag Kennarahásk. tslands .. 37 36
Félag bókasafnsfræðinga .. 52 20
Tæknifræðingafélag tslands .. 443 106
Félag islenskra sjúkraþjálfara . . 60 17
4.641 2.288
Þess bera að geta að þessar töl- ur eru ekki'alveg sambærilegar,
þarsem fyrri dálkurinn er frá þvi i júni 1980 en sá siöari frá nóv.
1980.
— mhg