Þjóðviljinn - 12.02.1981, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. febrúar 1981
Arshátíð
Alþýðubandalagsins
á Akureyri
verður haldin i Alþýðuhúsinu laugardag-
inn 14. febrúar. Húsið opnað kl. 19.
Borðhald hefst kl. 20. Miðasala við
innganginn.
Gestur kvöldsins er Auður Haralds rit-
höfundur. Gunnar Jónsson leikur á gitar.
Auk þess munu félagar ABA fremja ýmis-
konar uppákomur. Hljómsveitin Jamaica
leikur fyrir dansi. Miðapantanir teknar i
simum:
23871 (Katrin) 25363 (Ingibjörg)
21740 (Hildigunnur)
jrjrjrjrjrjrjrjrjfjrjrjrjr
23. leikvika —leikir 7. febr. 1981.
Vinningsröð: 1X2 — 1X1 — ÍXX — 111
1. vinningur: 12 réttir — kr. 26.075.-
3767 36344(4/11)+ 36565(4/11)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 588,-
1127 5677 15458+ 27092 33579 37843 42994
1941 6311 16806 27637 34406 38682+ 43750
2099+ 7696 18384+ 30696 34550 41259(2/11)
2566 10306 18738+ 31354 35581 41831 43847
2599 10310 21978 31765 35584 41893 44719
2714 14706 25522 33387 35615 42101 45576
3495+ 15203 26789(2/11) 36784 42365 59182
Kærufrestur er til 2. mars kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum
og á aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef
kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvisa
stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR — Iþróttamiðstöðinni — REYKJAVIK
Blaðberar - blaðberar!
Okkur vantar strax blaðbera i Hávalla-
götu-Sólvallagötu og nágrenni.
Stjórnarfrumvarp um tollfría bíla til fatlaðra
500 bílar á ári
Rlkisstjórnin hefur látið
útbýta stjórnarfrumvarpi
á Alþingi frá fjármála-
ráðherra sem felur í sér
rýmkaða heimild til að
fella niður tolla af bif-
reiðum fyrir fatlaða/
þannig að á hverju ári er
leyfilegt að flytja inn 500
bifreiðar á þeim kjörum.
Samkvæmt gildandi lögum um
tollskrá sem siðast var breytt i
fyrravor er heimilt að fella niður
aðflutningsgjöld af bifreiðum til
fatlaðs fólks, þ.e. hreyfilamaðra
svo og fólks með lungnasjúk-
dóma, hjartasjúkdóma, og aðra
hliðstæða sjúkdóma. I frumvarp-
inu sem nú er lagt fram um breyt-
ingu á tollskrá er gert ráð fyrir að
fjöldi þeirra bifreiða sem aðflutn-
ingsgjöld verða felld niður af
hækki um 100 bifreiðar á ári
þannig að heildarfjöldinn verði
500.
Lækkun gjaldanna af hverri
bifreið má nú nema 12000
nýkrónum (1.2 milljónir gkr.) og
heildarlækkun að meðaltali má
nema allt að 24000 nýkrónum. 1
frumvarpinu er þó gert ráð fyrir
að heimilt sé að lækka gjöld af allt
að 25 bifreiðum árlega um allt að
24000 nýkrónum fyrir þá sem
mest eru fatlaðir, sem hefur það i
för með sér að heildarlækkunin
getur numið allt að 48000 nýkr.
Til að meta og úrskurða
umsóknar um þessa eftirgjöf af
aðflutningsgjöldunum mun verða
skipuð sérstök nefnd fimm
manna, fjórir læknar tilnefndir af
öryrkjabandalagi íslands og einn
án tilnefmngar.
Frumvarpið gerir ráð fyrir þvi
að einstaklingur sem fengið hefur
eftirgjöf af aðflutningsgjöldum
bifreiðar samkvæmt ákvæðum
laganna geti sótt um eftirgjöf að
nýju að fjórum árum liðnum.
1 írumvarpi þessu er jafnframt
gert ráð fyrir þvi að fjármála-
ráðuneytinu sé heimilt að lækka
eða fella alveg niður gjöld af
gervilimum fyrir fatlað fólk.
Með þessu frumvarpi er komið
til móts við kröfur samtaka
fatlaðra um rýmkun gildandi
ákvæða og má það teljast mikils-
vert framlag fjármálaráðuneyt-
isins á ári fatlaðra.
Einsöngvararnir „eru i sjöunda himni” yfir að njóta leiðsagnar Giigeroff frá Covent Garden. Mynd:
— eik
íslenska óperan
Hátídartónleikar
í Háskólabíói
DIOÐVIUINN
Siðumúla 6
s. 81333.
Áskrift
kynning
vió bjódum nýjum lesendum okkar
ÓKEYPIS ÁSKRIFT til næstu mánaóamóta.
Kynnist blaóinu af eigin raun, látió ekki
aóra segja ykkur hvaö stendur f
Þjóóviljanum.
DJOBVIUINN
íslenska óperan hugsar
sér heldur betur til hreyf-
ings nú á næstunni. Hún
hefur akveðið að halda
hátíðatónleika í Háskóla-
bíói fimmtudaginn 19.
febrúar. Eru þessir
tónleikar haldnir til
minningar um hjónin
Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánsson, en
þau gáfu, sem kunnugt er,
fjórðung eigna sinna til
þess að byggja eða kaupa
óperuhús í Reykjavík.
Aðgöngumiðar að tónleik-
unum eru jafnframt stofn-
félagsskírteini í Styrktar-
félagi fslensku óperunnar.
Stvrktarfélagið var stofnað 3.
okt. 1980. A allur þorri islenskra
atvinnusöngvara aðild að þvi. svo
og áhugafólk um óperutónlist.
Markmið islensku óperunnar er
að halda reglulega sýningar á
óperum og óperettum i Reykja-
vik. Er i ráði að hefja þær sýn-
ingar þegar á næsta vetri. Til
þessaðsvo megi verða þurfa sem
allra flestir áhugamenn um söng-
list að ganga til liös við óperuna
og gefst mönnum nú koslur á að
gerast stofnfélagar og styrktar-
félagar hennar með þvi að taka
þátt i hátiðahaldinu 19. febrúar.
Stofnfélagareru þegar orönir yfir
500 talsins.
Hátiðatónleikar þessir verða
einhverjir hinir veglegustu, sem
sögur fara af á Islar.di. Koma þar
fram einir 20 islenskir
einsöngvarar, kór Islensku
óperunnar og sinfóniuhljómsveit
Islands. Hljómsveitarstjóri
verður Robin Stapleton, einn af
hljómsveitarstjórum Covent
Garden óperunnar i London.
Æfingum hefur Tom Gligeroff
stjórnað en hann kemur einnig
frá Covent Garden. Æfir hann
bæði einsöngvara og kór ,,og við
erum alveg i sjöunda himni yfir
honum” sagði söngfólkið.
A tónleikunum verða flutt
fjölmörg atriði úr óperum eftir
flest helstu tónskáld óperusög-
unnar, þar á meðal úr Cosi fan
tutte, Ur Töfraflautunni, óperum
Mozarts, Hollendingnum
fljúgandi og Meistarasöngvurun-
um i Nurnberg eftir Wagner og úr
fjórum óperum Verdis. Tónleik-
arnir hefjast á forleiknum úr
Meistarasöngvurunum og þeim
lýkur á sigurkór úr Aidu eftir
Verdi.
Það mun svo enn auka hátiða-
braginn að i hléi mun Hótel Saga
annast útdeilingu á kampavini i
anddyri Háskólabiós, efna til sér-
staks kvöldverðar i Grillinu og
hafa siðan opinn fyrir operugesti
einn sal hótelsins. Ætlast er til að
gestir verði samkvæmisklæddir.
Þessir einsöngvarar koma
fram á tónleikunum:
Anna Júliana Sveinsdóttir, Elin
Sigurvinsdóttir, Elisabet Erlings-
dóttir, Friðbjörn G. Jónsson,
Garðar Cortes, Guðmundur Jóns-
son, Guðrún Tómasdóttir, Hall-
dór Vilhelmsson, Hákon
Oddgeirsson, Ingveldur Hjalte-
sted, John Speight, Kristinn
Hallsson, Kristinn Sigmundsson,
Magnús Jónsson, Már Magnús-
son, ölöf Kolbrún Harðardóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir, Rut
L. Magnússon, Sólveig Björling
og Þuriður Pálsdóttir.
Og nú er bara að hafa hraðar
hendur með að ná sér i aðgöngu-
miða þvi ekki missir sá, sem
fyrstur fær, en aðgöngumiðar að
hátiðatónleikunum eru seldir i
húsi Söngskólans að Hverfisgötu
45 frá kl. 5—7 daglega.
— mhg
FEF styður
fóstrurnar
Almennur fundur i Félagi
einstæðra foreldra um skóla-
dagheimilismál, haldinn að
Hótel Heklu laugardaginn 7.
febr. 1981, lýsti yfir eindregn-
um stuðningi sinum við fóstr-
ur i kjarabaráttu þeirra.
Fundurinn lagði áherslu á, að
undirbúningstimum verði
fjölgað og að innra starf dag-
vistarstofnana yfirleitt verði
bætt. Hann benti á, að
vanræksla á að bæta kjör
fóstra kemur fyrst og fremst
niður á þeim börnum sem
dagvistarstofnanir sækja.