Þjóðviljinn - 12.02.1981, Side 16
ÞJOÐVIUINN
Fimmtudagur 12. febrúar 1981
Aöalsfmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
blaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot afgreiðslu 81663
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Ferðirstrætis-
vagna
úr skorðum
Það mæðir mjög á Strætisvögn-
um Reykjavikur þegar veður-
guðirnir taka sig til og hrella
borgarbúa með líkum hætti og i
gær. t gærmorgun gekk óvenju
illa að koma ferðum vagnanna i
eðlilegt horf og var þar um að
kenna mikilli ófærð og litlum
bilum sem ails staðar sátu fastir.
Þaö var ekki fyrr en um tiu leytið
i gærmorgun sem vagnarnir fóru
að ganga svo gagn væri að.
Það var óvenjulegt og
ævintýralegt að fylgjast með
umferðinni i borginni i gærmorg-
un. Ekki sást fyrir enda bila-
lestanna sem siluðust áfram.
Fólk stóð timunum saman og beið
eftir strætó, sem var svo troð-
fullur þegar hann loksins kom. Á
Grensásstöðinni sást vagn nr.
6—7 ekki fyrr en kl. hálf tiu og
aðrir birtust með löngu millibili.
Að sögn verkstjóra hjá SVR
tókst ekki að koma lagi á ferðir
fyrr en upp Ur hádeginu, þegar
aukavögnum var bætt við. Hann
sagði færðina vera slæma alls
staðar i borginni, en það væri ekki
annað að gera en að taka þvi með
jafnaðargerði, eins og farþegar
SVR hefðu yfirleitt gert.
— ká.
Kindakjö tsfram-
leiðslan 1980:
Útflutn-
ingur 646
tonnum
minni
Nokkur samdráttur varð i sölu
á kindakjöti innanlands á sl. ári
miðað við árið 1979. Það ár nam
heildarsalan 10.423 tonnum og þar
af voru 8.760 tonn dilkakjöt. Á sl.
ári voru seld innanlands 9.918
tonn af kindakjöti, þar af 8.226
tonn af dilkakjöti, eða 6,1 %
minna en árið áður.
Útflutningur kindakjöts varð
einnig minni á sl. ári en 1979. Þá
var heildarútflutningurinn 5.052
tonn, þar af 5.046 tonn af dilka-
kjöti Á sl. ári nam útflutningurinn
4.406 tonnum og af þvi var dilka-
kjötið 4.262 tonn. Nemur minnkun
útflutningsins þannig 646 tonnum.
Árið 1980 var alls slátrað 831.307
dilkum og 60.478 kindum
fullorðnum. Diíkakjötið reyndist
vera 12.177 tonn eða 2.9% minna
en árið áður, enda talsvert færri
dilkum slátrað eða 132.131.
Meðalfallþungi var 14,65 kg. en
var árið áður 13,02 kg. Kjöt af
fullorðnu fé var nú 1.364 tonn en
árið áður 2.616 tonn og nemur
samdrátturinn rúmlega 48%.
Hinn 1. jan sl. voru birgðir af
dilkakjöti 8.061 tonn. Var það 470
tonnum minna en 1. jan. árið
áður. Kjötbirgðir af fullorðnu fé
voru um sl. áramót 1.756 tonn eða
527 tonnum minni en á sama tima
i fyrra.
Ekki vantaði það, að mikið væri
skrifað og skrafað um kjötskort i
landinu um mánaðamótin
ág.- sept. i sumar og ekki alltaf
afmiklum kunnugleika eða sann-
girni. Þvi var haldið fram að
alltof mikið af kjöti hefði verið
flutt út og ekkert eftir handa
okkur „mörlöndum”. En hver
var svo sannleikurinn á bak við
allt moldviðrið? Samkvæmt
skýrslum sláturleyfishafa voru til
i landinu um þessi mánaðamót
460 tonn af dilkakjöti, en þá hefði
um nokkurt skeið, verið óvenju-
mikil sala á dilkakjöti. Þessar
birgðir dugðu auðvitað vel fram á
haustið og enganveginn uppurðar
er nýtt kjöt kom á markaðinn.
— mhg
Fidelio ópera Beethovens
verður flutt á tónleikum Sin-
fóniuhljómsveitar Isiands I
kvöld kl. 20.30 og endurtekin á
laugardag kl. 14. Það eru ein-
söngvararnir Astrid Schirmer,
Elin Sigurvinsdóttir, Ludovico
Spiess, Bent Norup, Manfred
Schenk, Kristinn Hailsson og
Sigurður Björnsson sem flytja
ásamt S ö n g s v e i t i n n i
Filharmóniu, Karlakór Reykja-
vikur og Sinfónfuhljómsveitinni
undir styrkri stjórn Jean Pierre
Jacquillat.
Af þessari upptalningu má sjá
að hér er ekkert smá verk á
ferðinni, alls munu vera um 230
manns sem taka þátt i flutn-
ingnum. Sinfóniuhljómsveitin
hefur fengið erlendu söngvar-
ana til liðs við sig með aðstoð
vestur-þýska sendiráðsins, en
þeir eru starfandi i óperum i
Vestur-Þýskalandi utan einn
sem syngur við óperuna i
Bukarest i Rúmeniu. Oll hafa
þau margsinnis sungið saman
og öll spreytt sig á Fidelió.
Öperan Fidelió var frumflutt
árið 1805 i Vinarborg. Hún segir
frá þvi er Leonora dulbýr sig i
karlmannsklæði til að reyna að
komast inn i virkið þar sem
eiginmaður hennar Florestan
situr inni og er að verða hungur
morða. Leonoru tekst að vinna
hylli fangavarðarins Rocco og
dóttur hans Marcelline og
kemst inn I virkið sem stjórnað I
er af hinum illræmda Don I
Pizarro. Það á að drepa «
Florestan,. mikil átök verða, en *
allt endar vel að lokum.
Operan Fidelio hefur aldrei I
verið flutt hér áður i heild, og I
aldrei sést á sviði, en fyrir *
nokkrum árum var hún sýnd i I
sjónvarpinu. Hér er um að ræða I
konsertflutning, þar sem aðeins I
stuttum kafla er sleppt.
Á blaðamannafundi i gær I
voru söngvararnir kynntir fyrir |
fréttamönnum,- þau sögðu flutn- *
inginn hér leggjast vel i sig, *
Fidelio félli sérlega vel að I
konsertflutningi, eins og I
reyndar öll tónlist Beethovens. •
Frá undirritun samninganna. Frá vinstri úr viðræðunefnd BSRB: Þórir Maronsson, Fanney Jónasdótt-
ir, Agúst Geirsson, Haraldur Steinþórsson og Kristján Thorlacius. Handan borðsins eru þeir Ragnar
Arnalds og Þorsteinn Geirsson. Á myndina vantar þá Guðmund Árnason og Einar ólafsson frá BSRB og
Þröst ólafsson úr samninganefnd rikisins. Ljósm. - eik.
Vidaukasamningur viö BSRB undirritadur
2-3% launahækkun
• Sanngjörn og óhjákvæmi-
leg niðurstaða,
segir fjármálaráðherra
t gær var undirritaður samn-
ingur milli fjármálaráðherra og
BSRB um viðauka við áðalkjara-
samning frá 20. ágúst 1980.
Sá viðauki sem gerður er við
aðalkjarasamning með þessum
samningi felur i sér 2—3% grunn-
kaupshækkun frá 1. janúar sl. og
samræmingu við launastiga BHM
i nokkrum áföngum fram til 1.
september nk.
Þetta jafngildir um 2,6% hækkun
til handa félagsmönnum I BSRB.
Jafnframt framlengist aðal-
kjarasamningur aðila til ársloka
1981.
Þjóðviljinn spurði Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra hvað
einkenndi þetta samkomulag.
„Þetta er fyrst og fremst við-
aukasamningur sem felur í sér
samræmingu með hliðsjón af þvi
sem gerst hefur i launamálum
siðan samningarnir við BSRB
voru gerðir á sl. sumri. Úr þvi að
ekki varð af þvi að hnekkja kjara-
dómi BHM með lögum var óhjá:
kvæmilegt að koma i veg fyrir að
• Lýsi ánægju med vid-
brögd fjármálaráðherra,
segir formaður BSRB
Thorlacius, formaður bandalags-
ins, hafði þetta um samningana
að segja:
„Þetta samkomulag er til sam-
ræmingar við þá kauphækkun
sem dæmd var af kjaradómi i
byrjun janúar sl. til handa félags-
manna BHM.
Allur þorri okkar félagsmanna
eða 85% eru i 1.—15. launaflokki
og um 65% af okkar félagsmönn-
um vinna sömu eða svipuð störf
og BHM. Það segir sig sjálft að
það gengur ekki til lengdar að
starfsmenn sem vinna sömu störf
fái misjafnlega há laun.
Þetta samkomulag leiðréttir
þennan mismun, og jafnframt
fengum við fram 2% hækkun
launa til starfsmanna i 1,—10.
launaflokki.
Þetta eru ekki miklar kjara-
bætur, en þó lagfæring. Við áttum
ekki rétt á endurskoðun samn-
inga og ég vil lýsa ánægju minni
yfir þvi að fjármálaráðherra
skyldi ganga inná að ræða og
semja við okkur”. Bó.
verulegur munur væri á launum
starfsmanna rikisins, sem vinna
sömu störf á sama stað, eftir þvi
hvort menn eru i BSRB eða BHM.
Samningurinn felur i sér
hækkun um 2—3% frá 1. janúar
sl„ og siðan samræmingu við
launatoflu BHM i nokkrum áföng-
um fram til 1. september.
Þetta er óhjákvæmileg og sann-
gjörn niðurstaða, enda fylgir það
með að samningurinn við BSRB
sem átti að renna út i ágúst er
framlengdur til 1. janúar”.
— Hefur þetta áhrif á almennan
vinnumarkað?
„Það er útilokað með öllu. Auð-
vitað geta menn ekki lokað aug-
unum fyrir þvi, að BSRB-menn
fengu miklu lægri prósentur i
grunnkaupshækkun út úr sinum
samningum en aðrir launamenn.
Meðaltalshækkun nú uppá 2,6%
getur þvi ekki orðið tilefni til
nýrrar kröfugerðar af hálfu ann-
arra”.
En hvernig litur forysta BSRB
á þessa samninga? Kristján
Söngvararnir erlendu sem syngja I Fidelio: f.v. Ludovico Spiess, Manfred Schenk, Astrid Schirmer o{
Bent Norup. Ljósm: eik.
Óperutónleikar Sinfóniunnar:
Fidelío í Háskólabíói
Ólafsvikingar
óhressir
yfir samgöngum
Snjó-
flód í
Ólafsvikur-
enni
„Hér i ólafsvik kyngdi niður
snjó i fyrrinótt”, sagði Kristján
Helgason hafnarvörð'ir i samtali
við Þjóðviljann i gær.
Ólafsvikingar fóru ekki var-
hluta af óveðrinu sem gekk yfir
landið i fyrrinótt, en þeir eiga þó
við meiri erfiðleika að etja en
margir aðrir, þvi vegurinn um
ólafsvikurenni er stórhættulegur
og spillist fljótt þegar slfk veður
ganga yfir.
Kristján sagði að i gærmorgun
hefðu fallið snjóskriður á veginn
og væri hann lokaður. ólafsvik-
ingar og nágrannar þeirra eru
orðnir afar þreyttir á ástandi
vegamála, þvi bæði geta orðið
stórslys á veginum og eins er
hann mjög mikilvæg samgöngu-
æð. Hvort tveggja er að fiskur er
fluttur um veginn til Hellissands
og Rifs þaðan sem hann er fluttur
út og eins sækja Sandarar og óls-
arar hvor aðra heim þegar eitt-
hvað er um að vera. Sameiginleg
heilsu- og sálargæsla er fyrir
báða staðina og þvi einkar baga-
legt þegar vegurinn lokast. Þá
gildir hið sama um veginn um
Búlandshöfða^ hann verður oft á
tiðum illfær, en eftir honum er
flutt mjólk frá Búðardal.
Kristján sagði að venjulega
tæki 15—20 minútur að fara til
Hellissands, en þegar þyrfti að
leggja lykkju á leið og fara yfir
heiðar og fyrir jökulinn tæki það
um tvo og hálfan tima.
„Við erum óhressir yfir þvi hér
að geta ekki fengið þessar sam-
gönguæðar i almennilegt lag”
sagði Kristján. „Min skoðun er sú
að það eigi að steypa yfir veginn á
verstu köflunum, likt og gert er i
Alpafjöllunum. Það tel ég vera
mun ódýrari lausn en þá að leggja
veg með sjónum; sjórinn hér
getur verið óhemju þungur, en
það verður að finna lausn á vega-
málum okkar”.
— ká
Húsvikingar fengu
sinn skammt
Skólum
lokað
Húsvikingar fengu heldur betur
að finna fyrir óveðrinu sem gekk
yfir landið I gær. Þar var hávaða-
rok og skafrenningur og var ill-
fært um bæinn um hádegið i gær.
Lögreglumaður sem Þjóð-
viljinn ræddi við sagði að veðrið
hefði verið það skaplegt um
morguninn að flestir komust til
vinnu sinnar á eigin bilum. Þegar
leið á morguninn rauk veðrið upp.
Lögreglan hafði nóg að gera við
að hjálpa fólki til og frá sjúkra-
húsinu, en lögreglan á stóran og
kraftmikinn bil. Eina tjónið sem
lögreglumaðurinn vissi um var
það að þakrenna fauk, lenti á húsi
og skemmdi þar plastklæðningu.
Skólum var lokað og fólk hélt
sig inni við meðan óveðrið
geisaði. Um miðjan dag i gær var
allt að færast i eðlilegt horf,.
búið að ryðja bæinn að mestu, en
utan Húsavikurkaupstaðar voru
vegir greiðfærir.
— ká