Þjóðviljinn - 18.02.1981, Side 7

Þjóðviljinn - 18.02.1981, Side 7
Miðvikudagur 18. febrúar 1981. ÞJóDVILJINN — SIÐA 7 Fundaröð um starf og stefnu flokksins Markmidin og árangurinn Undirbúningur að tillögugerð um starf Alþýðubandalagsins i Alþýðubandalagið i Reykja- vik er nú að hrinda af stokkun- um sex funda röð um starf og stefnu flokksins. Ætlunin er að tengja saman fræðslu og um- ræðu um hugmyndagrundvöll flokksins og starf hans i rfkis- stjörn og bæjarstjórnum. Margre't Björnsdóttir formaöur Alþýðubandalagsins i Reykja- vík sagði f viðtali við blaðið að he'r væri á ferðinni tilraun til þess að ræða hina daglegu baráttu, starfið og árangur þess með tiiliti til þeirra markmiða sem sett eru i stefnuskrá flokks- ins. „Á siðasta fundinum sem haldinn verður 1. april verður reynt aö taka saman hvaö hafi tekist vel og hvað illa i starfi flokksins. Ætlunin er að nota þær niðurstöður við tillögugerð um starf félagsins i Reykjavik og flokksins. t ráði er að gera itarlegar fundargerðir á öllum fundunum og vinna upp úr þeim efni til Utgáfu og dreifingar til annarra Alþýðubandalags- félaga. En samskipti milli Reykjavík flokksfélaga er eitt af mörgu, sem auka þarf innan Alþýðubandalagsins”, sagði Margrét Bjömsdóttir. Fyrstu tveir fundirnir i funda- röðinni verða haldnir i Sóknar- salnum við Freyjugötu. A þeim fyrri, sem verður á morgun, flytur Svanur Kristjánsson erindi um hugmyndir Marx um sósialisma og lýðræði. A þeim siðari, 26. þessa mánaðar, ræða þeir Hjalti Kristgeirsson og Loftur Guttormsson um hug- myndagrundvöll sósialiskrar hreyfingar á tslandi frá stofnun Alþýðubandalagsins sem flokks 1968. Á fundi 3. mars verður rætt um meirihlutasamstarfið i borgarstjórn Reykjavikur með tilliti til þeirra markmiða sem sett eru i stefnuskrá flokksins, og eru málshefjendur Gunnar H. Gunnarsson og Sigurjón Pét- ursson. 12. mars fjalla þeir Svavar Gestsson og Þröstur Ólafsson um rikisstjórnarþátt- töku flokksins ’71—’74, ’78—’79 og i núverandi rikisstjórn. A Margrét Björnsdóttir formaður Aiþýðubandalagsins i Reykja- vik. næstsiðasta fundi, 17. mars, verður rætt um verkalýðs- baráttu á Islandi siðastliöinn áratug. Margrét Björnsdóttir sagði að annað sem á starfsáætlun væri hjá félaginu væri að halda áfram þvi vinsæla nýmæli i starfinu, að hafa opið hús á Grettisgötunni einu sinni i mán- uði og verða þau næstu þriðjudaginn 24. febrúar og fimmtudaginn 19. mars. Vegna fjölda tilmæla hefur verið ákveðið aö halda námskeið i fundarsköpum og ræðumennsku seinni partinn i april og verður Baldur Óskarsson leiðbeinandi. Þá er og stefnt að þvi að ljúka aðalfundum deilda félagsins fyrir aprillok. —ekh Nýtt Sundamál í uppsiglingu: Landssmiðju- húsi mótmælt Gerir varðveislu útsýnis að engu, segja Sundasamtökin Ekki er óliklegt að nýtt deilu- mái vegna skerts útsýnis við Sundin blá sé i uppsiglingu en Sundasamtökin, sem börðust hvað mest gegn þvi að StS reisti háa skrifstofubyggingu við Hoita- garða hafa mótmælt fyrirhugaðri byggingu Landsmiðjunnar við Skútuvog og telja hana gera að engu fyrri ákvarðanir um að varðveita nokkurt útsýni á þessu svæði. Magnús óskarsson, formaður Sundasamtakanna sagði i samtali við Þjóðviljann á föstudag að sér kæmi það undarlega fyrir sjónir ef leyfa ætti á þessum stað bygg- ingu húss sem risi 6 metrum hærra en hús ofan við sömu götu en mjög strangar kvaðir hafa verið settar á húsahæðir þar. Hér er um að ræða svæðið milli Skútuvogs og Elliðavogs og sagði Magnús að Sigurjón Pétursson hefði á sinum tima lagst gegn þvi að lengjan þar yrði hækkuð i 3 metra. Nú væri hins vegar verið að samþykkja fyrsta húsið neðan við sömu götu og gert ráð fyrir að leyfa miklu hærri byggingu þar. Þá sagði Magnús að fyrirhugað væri að reisa skipaverkstöð á þessu svæði og er búist við að hún geti orðið allt að 40 metra há. Auðvitað veröa að vera hús og byggingar á þessu svæði, sagði Magnús, en ég sé ekki skyn- semina i þvi að byggja hæstu húsin næst voginum og hafa lág hús fyrir ofan. Það ætti að vera öfugt. I gærkvöld barst Þjóðviljanum afrit af bréfi Sundasamtakanna til borgarstjórnar þar sem skoraö er á borgaryfirvöld að taka þess- ar byggingartillögur til endur- skoðunar og gefa sér tima til að vinna það verk sem best. Telja samtökin að i þeim ráðagerðum sem lýst er hér að framan felist svo mikil röskun á fyrri ákvörð- unum um Sundasvæðið að ekki verði við unað. Jafnframt er bent á að vanrækt hafi verið að kynna þetta mál opinberlega svo og að umhverfismálaráð borgarinnar mætti láta mál sem þetta til sin taka af fyrra bragði. —AI Lóðinni úthlutaö i tengslum viö skipaverkstöð Iðnaður af þessu tagi þarf háhýsi Hús Landsmiðjunnar verður verulega langt frá Elliðavoginum og ætti þvi að skyggja minna á út- sýni en þau hús sem nær eru, sagði Sigurjón Pétursson, þegar Þjóðviljinn spurði hann um þetta mái. Þarna mun Landsmiðjan hafa viðgerðaraðstöðu, m.a. i tengslum við skipasmiðastöð sem einnig mun risa á þessu svæði. Iðnaður af þessu tagi þarf á Háu húsrými að halda og það er> útilokað að úthluta lóðum undir tiltekinn iðnað án þess að heimila mönnum að byggja hús sem geta rúmað starfsemina, sagði hann. — Nú lagðist þú sjálfur á móti hækkun á húsunum ofan við Skútuvog. Er ekki mótsögn i þvi að samþykkja siðan hærri hús neðan við götuna? Ég er algerlega á móti hárri byggð milli Elliðavogs og Skútu- vogs, m.a. vegna reynslunnar af- Klettagörðum en lengjan þar virkar eins og veggur og byrgir allt útsýni. Þvi miöur var húsahæð ofan við Skútuvog ákveöin þaö há aö útsýni verður verulega tak- markað af Elliðavogi og þvi var ég andsnúinn. Hins vegar geri ég mikinn greinarmun á samfelld- um byggingavegg sem lokar svo til öllum möguleikum til útsýnis og aftur þvi hvort einstaka bygg- ingar risa hærra i landinu þannig að sjóndeildarhringurinn sé rof- inn á einhverjum stöðum. — Nú kom upp inikiö deilumál við ibúa vegna skrifstofu- byggingar SÍS við Sundin. Er hægt aö láta Landsmiðjuna fá aðra lóð ef mikil mótmæli verða gcgn þessum byggingar- áformum? Nei, — skipaverkstöð verður af augljósum ástæðum að vera við sjó og það er ákaflega erfitt og óhagkvæmt að flytja starfsemi tengda henni langt inn i land. I skipulagi borgarinnar hefur lengi verið ætlað land undir þessa starfsemi á þessu svæði, þó teikn- ingar hafi ekki verið gerðar fyrr. Það hefur lengi verið baráttumál Alþýðubandalagsins að reist yrði skipaverkstöð hér, enda er það gifurlega þýðingarmikið fyrir allt atvinnulif i borginni. Það er von min að svo verði sem fyrst. —AI Tollaívilnanir jyrir 500 bifreiðar öryrkja: Eftirgj öfin getur orðið 24-48 þús. Upphœð eftirgjafar nú bundin þróun framfærsluvisitölu Samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem Ragnar Arnalds fjármála- ráðherra mælti fyrir á mánudag geta öryrkjar nú sótt um eftirgjöf aðflutningsgjalda á 500 bifreiðum árlega og er það fjölgun um 100 bifreiðir miðað við núverandi ákvæði. Þá felur frumvarpið einnig I sér að eftirgjöf á opinber- um gjöldum verði hækkuð og get- ur svonefnd lægri eftirgjöf numið allt að 24 þús. kr. (2.4 miljónir gamalla króna) og svonefnd hærri eftirgjöf sem veitt er 25 aðilum sem mestir eru öryrkjar getur numið allt að 48 þús. krón- ur. Er hér um að ræða 60% hækk- un á eftirgjöf. Frumvarpiö gerir jafnframt ráð fyrir að fjármálaráðherra verði heimilt að breyta ofan- greindum fjárhæðum til sam- ræmis við þróun framfærsluvisi- tölu svo og vegna breytinga sem kunna að verða gerðar á álagningu og innheimtu að- flutningsgjalda vegna innflutn- ings á bifreiðum. Þetta þýöir að ekki þarf framvegis laga- breytingar til að leiðrétta ofan- greindar tölur i samræmi víð verðlagsþróun. I frumvarpinu er einnig að finna nýmæli þarsem kveðið er á um lágmarkstima þann sem liöa verður frá fyrri eftirgjöf þar til öryrki getur sótt um eftirgjöf að nýju. öryrki sem fengið hefur lægri eftirgjöf getur nú sótt um eftirgjöf að nýju að f jórum árum liðnum frá tollafgreiðsludegi bif- reiðar vegna eldri eftirgjafar, en öryrki sem fengið hefur hærri eftirgjöf getur sóttum eftirgjöf að nýju að þremur árum liðnum. Bifreiðastjórar sem stunda akstur leigubifreiða til fólksflutn- inga, akstur sendibifreiða eða kennslu i bifreiðaakstri og eru jafnframt öryrkjar hafa fengið ákveðna tollalækkun á bifreiðum sinum til þessara starfa, en sam- kvæmt frumvarpinu fá þeir auk þess hálfa eftirgjöf samkvæmt hinni lægri eftirgjöf. Frumvarpið heimilar einnig fjármálaráðuneytinu að lækka eða fella niður gjöld af gervilim- um og hjálpartækjum. Jóhanna Sigurðardóttir og Alexander Stefánsson lýstu ánægju sinni meö aö þetta frum- varp skyldi vera komið fram og sögðust bæöi telja brýnt að það yrði afgreitt i þessum mánuði þvi brátt á að hef jast úthlutun á ofan- greindum eftirgjöfum. Albert Guðmundsson taldi frumvarpið ekki fullnægjandi einkum hvaö varöaði að binda eftirgjöf við ákveðna tölu. Taldi hann að veita ætti öllum eftirgjöf sem sannan- lega hefðu þörf fyrir þaö. —Þ Heilbrigöisráöherra boöar frumvarp um heilbrigöis- og vistunarþjónustu fyrir aldraöa 19800 manns eru 67 ára og eldri Heilbrigðisráðherra, Svavar Gestsson, skýrðifrá þvi á Alþingi á mánudag að hann muni á næst- unni leggja fram frumvarp um heilbrigðis- og vistunarþjónustu fyrir aldraða. Skýrði ráðherrann frá þessu i umræðu um frumvarp Péturs Sigurðssonar o.fl. um sér- hannað húsnæði fyrir aldraða og öryrkja. t frumvarpi Péturs Sig- urðssonar er gert ráð fyrir að ibúðir og heimili, sem sérhönnuð eru fyrir aldrað fólk og öryrkja, skuli njóta sérstakra styrkja, framlaga og lánafyrirgreiöslu ú By ggingarsjóði rikisins og öðrum sjóðum sem slikar heimildir hafa. Svavar Gestsson þakkaöi flutn- ingsmanni fyrir frumvarpið og sagði að hér væri um aö ræða mál er nauösynlegt væri að ræöa itar- lega enda snerti það stóran og vaxandi hóp. Gat ráðherra þess að þann 1. des. s.l. hefðu verið hér á landi 19800 einstaklingar 67 ára og eldri og gert væri ráð fyrir að fjöldi þeirra yrði um 27000 um næstu aldamót. Ljóst væri þvi að þörf væri á risavöxnu átaki á þessu sviði. 1 máli Svavars kom fram að nú eru alls 1918 rúm á elli- og dvalar- heimilum auk endurhæfingar- og sjúkradeilda sjúkrahúsa. Tala þessi hefur aukist um 500 siðustu lOár.Þáer i byggingu húsnæði á þremur stöðum fyrir aldraöa og er þar um að ræða samtals 291 rúm. Þá væri um aö ræða pláss fyrir 400 manns er þyrftu veru- lega eða takmarkaða hjúkrun. —Þ Nýlög: Sumir vélstjórar verða vélfræðingar Tvcnn lög voru samþykkt á Al- þingi í gær. 1 fyrsta lagi er um að ræða breytingu á lögum um nám vélstjóra og samkvæmt breyting- unni skulu þeir nefnast vél- fræðingar er lokið hafa sveins- prófi í iðngrein auk fyllsta náms við Vélskóla tslands. Þeir sem ekki hafa próf, aðeins sveinspróf, skulu kallast vélstjórar. I öðru lagi voru samþykkt lög um söngmálastjóra og Tónskóla þjóökirkjunnar. Helsta nýmæli iaganna er að stofnaður er Tórt- skóli þjóðkirkjunnar i tengslum við embætti söngmálastjóra. Lög þessi byggjast I meginatriðum á frumvarpi sem samþykkt var á Kirkjuþingi. —Þ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.