Þjóðviljinn - 18.02.1981, Page 9
Mi&vikudagur 18. febrúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Hvorki Þrymskviða né
Blindisleikur til á filmu
Jafnréttisráð:
Málin enn
í athugun
Jafnréttisráð hélt annan fund
sinn i gærdag vegna stöðuveit-
ingar i læknadeild og lyfsölu-
leyfisveitingar á Dalvik og komst
ekki að niðurstöðu. Að sögn Berg-
þóru Sigmundsdóttur, fram-
kvæmdastjóra ráðsins eru mál
þessi enn i athugun og ekki
ákveðið hvenær næsti fundur
verður haldinn.
Bergþóra varðist allra frétta
um fundinn i gær og sagði aðeins
að menn væru að velta fyrir sér
túlkun á Jafnréttislögunum. Fyr-
ir fundinn lá greinargerð frá heil-
brigðisráðherra, en menntamála-
ráðherra hefur ekki enn skilað
greinargerð sinni. Sagðist Berg-
þóra ekki vilja afhenda fjölmiðl-
um greinargerðina meðan málið
væri i umfjöllun, — hún liti á hana
sem túnaðarmál.
—AI
Frá setningu Búnaðarþings igær. Formaður Búnaðarfélags tslands, Ásgeir Bjarnason, flytur þingsetn-
ingarræðu. Mynd: —eik—
Búnaðarþing hafið:
Byggjum landið allt
á myndarlegan hátt
sagði formaður Búnaðarfélags Islands, Ásgeir
Bjarnason, i setningarræðu
Búnaðarþing, hið 63. i röðinni,
var sett að Hótel Sögu kl. 10 i gær-
morgun. Fjöldi gesta • ar við-
staddur þingsetninguna þar á
meðal forseti islands, Vigdis
Finnbogadóttir.
Formaður Búnaða rfélags
tslands, Asgeir Bjarnason, bóndi
i Ásgarði, setti þingið með ræðu,
bauð fulltrúa og gesti velkomna
og minntist siðan þeirra
Búnaðarþingsfulltrúa og annarra
forvigismanna landbúnaðarins er
látist hafa frá þvi að siðasta
Búnaðarþing sat að störfum. Eru
þeir þessir: Gunnar Þórðarson
frá Grænumýrartungu, Benedikt
Grimson, bóndi á Kirkjubóli i
Strandasýslu, Arni Eylands,
Georg Arnþórsson, bókavörður
Búnaðarfélagsins, Ingólfur
Þorsteinsson, starfsmaður
Búnaðarfélagsins, Snæþór Sigur-
björnsson, bóndi Gilsárteigi i
Múlaþingi, Ólafur Jónsson ráðu-
nautur og framkvæmdastjóri
Ræktunarfélags Norðurlands á
Akureyri og Sigurgrimur Jóns-
son, bóndi að Holti i Stokkseyrar-
hreppi. Viðstaddir risu úr sætum i
virðingarskyni við hina látnu.
Asgeir Bjarnason hóf mál sitt
að öðru leyti með þvi að minna á
hversu bændur væru enn, þrátt
fyrir alla tækni, háðir veður-
farinu. Svo væri raunar um alla
landsmenn og benti i þvi sam-
bandi á þau áhrif, sem veðurfarið
hefði á raforkuframleiðsluna.
Asgeir sagði, að sl. ár hefði að
ýmsu leyti markað timamót i
landbúnaðinum vegna þeirra
breytinga á framleiðsluráðs-
lögunum, sem þá komu fyrst til
framkvæmda, enda þótt bændur
hefðu oftsinnis á undanförnum
árum óskað eftir heimildum til að
breyta lögunum. En nú hefðu loks
fengist „nægar heimildir til þess
að skipuleggja framleiðslu
búvara á þann hátt, sem nauðsyn
krefur”.
Búnaðarþing 1979 markaði
heildarstefnu i málefnum land-
búnaðarins og var þar byggt á
þremur höfuðatriðum:
1. Byggð verði viðhaldið i öllum
meginatriðum.
2. Búvöruframleiðslan fullnægi
jafnan innanlandsþörf, leggi til
iðnaðarhráefni og beinist að út-
flutningi þegar viðunandi verðlag
næst erlendis.
3. Tekjur og félagsleg aðstaða
sveitafólks sé sambærileg við
það, sem aðrir landsmenn njóta.
1 samræmi við þessi markmið
er nú unnið en Róm var ekki og
verður ekki enn byggð á einum
degi.
Otflutningsverðmæti búvara
nam sem næst 7% af heildarút-
flutningi 1980, eða 30.334
miljörðum kr. Á sama tima voru
útflutningsuppbætur 0,6% af
Þjóðarframleiðslunni.
Asgeir vék þvi næst að Lifeyris-
sjóði bænda. Samtals veitti hann
1770 lifeyrisþegum kr.
1.490.200.000 i elli- og örorkulif-
eyri 1980. Jafnframt lánaði
sjóðurinn Stofnlánadeild land-
búnaðarins til endurlána 1,5
miljarða kr. auk 500 milj.. sem
ganga til Stofnlánadeildar á móti
eftirlaunagreiðslum, sem henni
ber að inna af hendi. Þá lánaði
sjóðurinn Framkvæmdastofnun
rikisins 650 milj. kr. á sl. ári.
Rýmkað hefur verið um tekju-
öflun Bjargráðasjóðs með þvi að
hækka búvörugjald bænda úr
0,35% i 0,60% og almenna gjaldið
Framhald á bls. 17.
Áhugaleysi
sjóvarpsins
viö Þjóöviljann í gær,
þegar hann var inntur eftir
því hvernig væri háttað
varöveislu þess efnis, sem
Þjóöleikhúsiö flytur.
1 sjónvarpinu sl. sunnudags-
kvöld kom fram i viðtali við Jón
Ásgeirsson tónskáld að hvorki
Þrymskviða né Blindisleikur
væru til á filmu, annars vegar
fyrsta islenska óperan og hins
vegar eitt stærsta verkefni
islenska ballettflokksins. Bæði
þessi verk voru frumflutt i Þjóð-
leikhúsinu, en einhverra hluta
vegna hefur sjónvarpið ekki séð
ástæðu til að eyða nema sem
svarar litlum fréttafilmubútum á
slika menningarviðburði.
Sveinn Einarsson sagði að hann
hefði oft lagt fram tillögur um
samstarf þessarra tveggja stofn-
ana, leikhússins og sjónvarpsins,
en það virtist ekki vera mikill
vilji fyrir þvi að hálfu sjónvarps-
ins, enda væri þeim þröngur
stakkur skorinn i f jármálum. Það
væri hins vegar alltaf spurning
hvað ætti að velja við gerð dag-
skrár, þvi ekki slika stórmenn-
ingarviðburði og hér um ræðir?
Sveinn nefndi að það hefði t.d.
verið gaman að eiga kvikmynd af
Helga Tómassyni þegar hann
dansaði hér i Hnotubrjótnum, en
sliku er ekki fyrir að fara.
Leikhúsið sjálft stendur vel að
þvi að varðveita á myndum og i
tónum það sem þar er gert. Leik-
myndir eru ljósmyndaðar og i tvö
ár hafa allar sýningar verið
teknar upp á myndsegulband svo
sem áður segir, en þær myndir
eru aðeins teknar frá einu sjónar-
horni og ekkert unnar til sýn-
ingar-, þær eru fyrst og fremst
heimildir. Þvi er svo við að bæta
að júgóslavneska sjónvarpið tók
eina frægustu sýningu Þjóðleik-
hússins, ,,Stundarfrið”,upp þegar
leikhópurinn var þar á ferð. Ef-
laust þætti mörgum gaman ef
önnurfrægðarsýning „Inúk” væri
til á filmu, en þvi er ekki að
heilsa.
— ká
„Þjóðleikhúsið tekur
allar sýningar upp á mynd-
segulbandog í 20 ár hafa
allar sýningar verið teknar
upp á segulband", sagði
Sveinn Einarsson í samtali
Kvikmynda-
hátíðinni 1981
lokið:
18000
manns
sóttu
sýningar
Um 19000 manns sóttu
kvikmyndahátíðina 1981
sem lauk í Regnboganum
nú um helgina. Að sögn
Viðars Víkingssonar sem
sæti átti í hátíðarnef nd-
inni eru aðstandendur
mjög ánægðir með
aðsóknina.
í fyrra sóttu öllu fleiri há-
tiðina, eða rúmlega 22 þús.
manns, en þá var hátiðin fram-
lengd um nokkra daga.
Eins og alltaf vill verða um
slikar hátiðir gengur á ýmsu,
myndir detta út á siðustu stundu
eða koma ekki i tæka tið og
gerðist slikt einnig að þessu
sinni. Það sem einkenndi þessa
hátið öðru fremur, var að þar
voru bæði gamlar myndir og
nýjar, sem gaf mjög góða raun,
þvi mikil aðsókn var að mynd-
um Buster Keatons. Hátiðin
þjónaði þvi öllum þeim sem biða
nýjunga með óþreyju, krökkun-
um sem vilja sjá eitthvað
skemmtilegt og þeim sem dýrka
gamla meistara eins og Keaton
og Hitchcock. Regnboginn mun
halda áfram kynningum á Bust-
er Keaton og má þvi segja, að
maðurinn með dapurlega and-
litið hafi svo sannarlega haft er-
indi sem erfiði á kvikmynda-
hátiðina 1981.
—ká