Þjóðviljinn - 04.03.1981, Qupperneq 11
Miðvikudagur 4. mars, 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir í/j íþróttir
L / ■ Umsjón: Ingólfur Hannesson.
íþróttir
Islandsmót
fatlaðra
tslandsmót fatlaðra var
sett i gær i Vestmannaeyjum
en þvi verður haldið áfram i
dag og lýkur á morgun.
Keppt er i bogfimi, sundi,
borðtennis, og körfuknatt-
leik. íþróttafélag fatlaðra
hefur verið mjög vaxandi
undanfarið eins og hinn frá-
bæri árangur á ólympíumót-
inu á liðnu sumri sýnir ótví-
rætt. Má búast við mörgum
góðum afrekum og vist er að
þátttaka er afar góð, enda
árið 1981 ár fatlaðra.
■
/
Islandsmet
í langstökki
Jón Oddsson knattspyrnu-
kappi og langstökkvari gerði
scr litið fyrir og setti nýtt
íslandsmet i langstökki inn-
anhúss um helgina. Jón
stökk 7.22 metra og bætti met
Friðriks Þórs Óskarssonar
um 7 sentimetra, en það var
7.15 mctrar.
■
Bikarmót Fim-
leikasambands-
ins haldið um
síðustu helgi
Bikarmót Fimleikasam-
bands Islands fór fram um
siðustu lielgi i íþróttaskóla
Kennaraháskólans. Hér var
um l'lokkakcppni að ræða og
var keppt i A-flokki pilta og
A-, B- og C-flokki stúlkna. í
A-I'lokki sigruðu Armenn-
ingar, hlutu 185.20 stig. Sveit
þeirra var skipuð eftirtöld-
um einstaklingum:
Heimir Gunnarsson,
Ingólfur Stefánsson,
Þór Thorarensen,
Kristjan Arsælsson,
Arnar Diego.
t A-flokki stúlkna sigraði
lið Fimleikafélagsins Bjark-
ar með 92.78 stigum:
Brynhildur Skarphéðinsdótt-
ir,
Rannveig Guðmundsdóttir,
Svava Mathiesen,
Guðrún B. Kristinsdóttir,
Hulda ólafsdóttir.
1 B-flokki stúlkna sigraði
lið f þróttafélagsins Gerplu
Kópavogi með 86.58 stigum:
Vilborg Viðisdóttir,
Hlif Þorgeirsdóttir,
Jónina Sigurðardóttir,
Bryndis ólafsdóttir,
Katrin Guðmundsdóttir.
í C-flokki stúlkna sigraði
einnig lið Gerplu með 50.48
stigum:
Þórey Heiðarsdóttir,
Þorbjörg Kristjánsdóttir,
Jónina Arnardóttir,
Guðrún Kristjánsdóttir,
Snæfriður Þorsteinsdóttir.
Þessar glaðlegu stúlkur urðu tslandsmeistarar kvenna I innanhússknattspyrnu, en þaö mót fór fram i Laugardalshöllinni um helgina. Þær
sigruðu liö Skagamanna með tveimur mörkum gegn einu i æsispennandi úrslitaleik.
Bikarúrslitin annað kvöld: Toppliðin mætast
Hefna Valsmenn ófaranna
í íslandsmótlnu?
Annað kvöld kl. 20 verður
körfuknattleiksvertiðin kvödd
með pompi og pragt. Þá verður
háður úrslitaleikur bikarkeppni
KKt og liðin verða íslands-
meistarar UMFN og meistarar
siðasta árs, Valur. Má segja að
vel hafi valist til þessa leiks, þvi
að það þarf engum blöðum um
það að fletta, að hér eru á ferðinni
tvö sterkustu liðin i islenskum
körfuknattleik.
Valsmenn mæta að sjálfsögðu
með sitt sterkasta lið með Pétur
Guðmundsson i fararbroddi, en
siðan hann bættist i hóp Vals-
manna hafa þeir leikið hvern
ieikinn öðrum betri. Njarðvik-
ingar skarta einnig sinu fegusta
og ekki nóg með það, heldur
fylgja þeim stór hluti allra Njarð-
vikinga. Heiðursgestur verður
Gisli Halldórsson fyrrum forseti
tSt og núverandi heiðursforseti.
Þess má geta, að keppt verður
um nýjan bikar sem Henson gefur
til keppninnar, en sá gamli
verður tekinn úr umferö og aö
margra dómi ekki seinna vænna,
þvi að hann mun vera hinn ámát-
legasti útlits.
Þó hér se um lok körfuknatt-
leiksvertiðarinnar að ræöa þá
heldur landsliðið sinu striki og
verða i lok mánaðarins háðir þrir
landsleikir • við Finna. Um
mánaðarmótin næstu heldur
landsliðið til Sviss til þátttöku i
undankeppni Evrópumeistaram.
Pétur Guömundsson
Kristin Magnúsdóttir. Karlaveldið riölaöist af hennar völdum um
helgina.
lainréttismótið i badminton:
Kristín tók
karlmennina í
kennslustund!
•
bar sigur úr býtum, vann alla
andstæðinga sina. Og i tviliðaleik
sigraði hún lika. Kristín vann
Gunnar Björnsson, TBR i úrslita-
leik en hafði áður sigrað Ara
Edwald TBR, Hjalta Sigurðsson,
Selfossi og Ólaf Ingþórsson TBR.
I tviliðaleiknum sigraði Kristin
ásamt stöllu sinni þá Bjarna Lúð-
viksson Gróttu og Gunnar Björns-
son TBR, 15:9 og 15:9. Er vist
óhætt að segja að heldur betur
hafi hrikt i stoðum karlaveldisins
á þessu móti. I meistaraflokki
sigraði Broddi Kristjánsson TBR
Jóhann Kjartansson. I Tviliða-
leiknum unnu þeir Viðir Braga-
son tA og Sigfús Ægir Arnason
TBR.
Um siðustu helgi fór fram á
vegum Tennis- og badminton-
félags Reykjavikur hið svonefnda
„jafnréttismót i badminton”.
Keppt var i einliðaleik og tviliða-
leik i Meistara — A og B — flokki
og voru koruir og karlar i sama
flokki.
Slikt hefur ekki tiðkast áður,
þvi að reglur i badminton eru ekki
allskostar þær sömu hjá kynj-
unum. Þannig er t.d. einungis
leikið upp aö ellefu hj^ konum en
fimmtán hjá körlum. Bestu
badminton konur okkar kepptu þó
ekki i efsta flokki heldur i A —
flokki og þar gerðist þaö mark-
verðast að Kristin Magnúsdóttir