Þjóðviljinn - 31.03.1981, Síða 7
Þriöjudagur 31. mars, 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Þorbjöm
Broddason:
Bókasöfn eru hljóðlátir staðir
og eiga að vera það. Þeir sem
veljast til starfa á bókasöfnum
eru oftar en ekki hljóðlátt og
hjálpfúst fólk, sem fær á þessum
starfsvettvangi betri tækifæri en
viðast annars staðar til að rækta
þessa eðliskosti enn frekar. Ef til
vill er i ofangreindum atriðum að
leita skýringa á þvi að starfslið
Borgarbókasafns Reykjavikur
hefur lengstum verið hljóðlátt, og
ætið þolinmótt, við stjórnendur
borgarinnar, þrátt fyrir vinnu-
skilyrði, sem ekkieru öll til fyrir-
myndar.
Nú eru i eigu borgarbókasafns
rúm 3 húndruð þúsund eintök
bóka. Til jafnaðar er hvert eintak
lánað út oftar en þrisvar á ári, en
það svarar aftur til þess að hvert
mannsbarn i Reykjav. fái lánaðar
meira én tiu bækur á ári. Þessi
miklu umsvif — milli þrjú og
fjögur þúsund bókaútlán á dag —
fara fram á fjórum vinnustöðum.
Aðeins einn þeirra var upphaf-
lega ætlaður til þeirrar starfsemi.
Ekki segja útlán heldur alla sögu
um starf safnsins, þvi að lestrar-
salir eru mikið notaðir, auk þess
sem leitaðer til starfsfólks imjög
vaxandi mæli um alls kyns ráð og
leiðbeiningar. Ótalið er einnig
hljóðbókasafnið sem sinnir
áhugamálum blindra og sjón-
skertra i samvinnu við Blindra-
félagið.
Óhætt er að segja að Borgar-
bókasafn Reykjavikur hafi verið
á hrakhólum hvað húsnæði
snertir svo áratugum skipti. Um
tima gekk raunar svo langt að
starfsemi safnsins féll niður með
öllu. A siðustu árum hefur hins
vegar mátt sjá nokkur merki þess
að betri timar séu i vændum. Við
Þorbjörn Brodda-
son ræöir í þessari
grein um þróun
Borgarbókasafns-
ins og framtíöar-
hlutverk þess
Alinenniiigsbókasöfn framtíðarinnar veröa ótrúlega fjölbreyttar meiiiiingarniiðstöðvar ntcð viðtækar skyldur við almenning, bæði til
upplýsingar og afþreyingar.
'
Borgarbókasafnið og framtíðin
Gerðuberg i Breiðholti er nú i
byggingu félagsmiðstöð, sem
m.a. mun hýsa stórt og glæsilegt
útibú borgarbókasafns. A þessu
ári verður hafist handa við veru-
lega stækkun Sólheimaútibús.
Þegar þessi hús eru komin i
notkun eftir fáein ár, verður
merkum áföngum náð, en eigi að
siður verður þá enn óunnið það
stórvirki sem lengst hefur verið
beðið eftir, sem er nýtt húsnæði
fyrir aðalsafn. Nú er liðið töluvert
á annan áratug frá þvi borgar-
stjórn ákvað að byggja nýtt aðal-
safnshús i Kringlumýri, og i
sumar eru sjö ár liðin frá þvi að
fullgerðar teikningar hússins
voru samþykktar i byggingar-
nefnd. Siðan hafa þessar teikn-
ingar, sem geysimikil og góð
vinna hafði verið lögð i, safnað
ryki. Mér er um megn að skilja þá
stjórnvisku sem felst i þvi að láta
teikna stórhýsi með ærnum til-
kostnaði til þess eins að láta
teikningarnar liggja og úreidast
ár eftir ár. Hins vegar blasir nú
við núverandi borgarstjórn og
stjórn borgarbókasaíns sú bitra
staðreynd að endurskoða verður
þessar miklu og glæsilegu teikn-
ingar frá grunni. Stjórn borgar-
bókasafns hefur að undanförnu
unnið að mörkun nýrrar stefnu i
byggingarmálum aöalsafnsins og
eru meginlinur hennar nú ljósar
orðnar. Stjórnin er sammála um
að komast megi af með töluvert
minna hús en gert er ráð fyrir á
núgildandi teikningum og einnig
leggur stjórnin áherslu á að
hönnun þurfi að vera svo háttað
að byggja megi i hæfilega stórum
áföngum. Stjórn borgarbókasafns
hyggst nú vinda bráðan bug að
þessu endurskoðunarstarfi.
Erfitt er að gera sér fullkom-
lega i hugarlund hvernig almenn-
ingsbókasöfn framtiðarinnar
munu lita út. Fullvist má þó telja
að þau verði töluvert frábrugðin
þvi sem við höfum átt að venjast
hingað til. Á undanförnum árum
og áratugum hefur upplýsinga-
byltingin gengið yfir heiminn.
Prentlistin sjálf hefur gjörbreyst,
en fjöldaframleiðsla til fróðleiks
og afþreyingar af öðru tagi er
orðin fjölbreyttari en svo að upp
verði talið i stuttri blaðagrein. Og
bókasöfnin hljóta að sjálfsögðu að
taka mið af tækniþróuninni.
Nefna má hljómplötur og hljóm-
bönd, ýmist tilhlustunar á safninu
eða til heimlana. Fjöldafram-
leiðsla tónlistar hefur vaxiö mjög
og útbreiðsla hljómflutnings-
tækja i heimahúsum hefur marg-
faldast á undanförnum árum.
Myndsegulbönd eru enn sem
komið er fremur láséðir gripir á
heimilum, en það á eftir að breyt-
ast mjög á næstu árum, og fyrr
eða siðar mun borgarbókasafnið
koma sér upp myndsegulböndum
til útlána, auk þess sem stefna
ber að þvi að unnt verði að njóta
þeirra i húsakynnum safnsins.
Loks er þess að geta að áður en
mjög langt um liður munu bóka-
söfn verða tölvuvædd. Starfsemi
þeirra mun breytast i veigamikl-
um atriðum við það og jafnframt
munu smám saman opnast nýir
möguleikar til upplýsingamiðl-
unar. Bæði verður hægt aö leita
efnis simleiðis i tölvubönkum
innan lands og utan, en einnig
verða upplýsingar varðveittar i
söfnunum með hjálp örtölva. Al-
menningsbókasöfn framtiðar-
innar verða ótrúlega fjölbreyttar
menningarmiðstöðvar með við-
tækar skyldur við almenning,
bæði til upplýsingar og afþrey-
ingar.
Þeim sem leggja leið sina i
Esjuberg eða útibúið i kirkju-
kjallaranum kann að þykja hér
talað digurbarkalega og af litlu
raunsæi. Ekki vil ég þó fallast á
aðsvo sé. Orðin eru til alls fyrst, i
þessu efni sem öðru, og auk þess
er meiri hreyfing á byggingarmál-
um borgarbókasafns um þessar
mundir en verið hefur um langt
skeið. Að visuer margra ára verk
að koma upp nýju aðalsafni, jafn-
vel þótt tekin verði upp önnur
vinnubrögð en hingað til hafa
tiðkast. Vel má hugsa sér aö
hönnun verði lokið á næsta ári,
þannig að útboð geti farið fram og
framkvæmdir hafist á árinu 1983.
Ekki færi illa á þvi: Á þvi ári
standa vonir til að taka megi
Breiðholtsútibúiðnýja i notkun og
einnig heldur Borgarbókasafn
Reykjavikur upp á sextugsafmæli
sitt á þvi ári. Lúkning fyrsta
áfanga, sem þyrfti að rúma hið
minnsta nauðsynlegar skrif-
stofur, útlánasal og lestrarsal,
auk afdreps fyrir bókabila, ætti
ekki að vera meira en tveggja ára
verk þaðan i frá.
Ef fyrsti áfangi nýrrar aðal-
safnbyggingar er kominn i fulla
notkun upp úr miðjum þessum
áratug tel ég að allir sem hlut
eiga að máli megi sæmilega við
una. Slikt krefst ekki óhæfilegs
verkhraða, né heldur svimandi
fjárupphæða. En það krefst vilja.
Esjuberg við Þingholtsstræti. Hér er aöalsafniö til húsa.
Menningarmiðstöö við Gerðuberg: Hér veröur Breiðholtsútibú borgarbókasafns.