Þjóðviljinn - 31.03.1981, Page 15
Þriöjudagur 31. mars, 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Hringið i sima 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
tfra
lesendum
Léttúð
Af hreinni tilviljun hlustaði ég
á miðvikudagssyrpu Svavars
Gests, sem var honum til sóma
og hlustendum til ánægjuauka
og á hann skilið þakkir fyrir það
og ýmsa aðra ágæta útvarps-
þætti.
I þætti þessum var hann meö
kveðskap Daviðs Stefánssonar á
milli varanna á ýmsu ágætu
söngfólki sem svo sannarlega
hefur skemmt okkur lands-
mönnum og glatt allt frá þvi lag
var fyrst borið að texta þessa
mikilvirka skálds. Siðasta lagið
i Daviðssyrpu vakti furðu mina
ÍAndlegheit
(Þingeyinga
)lifa undir
snjónum
Sagði Jóhanna
Aðalsteinsdóttir
H.J. hringdi og fór meö visu
sem honum kom i hug þegar
hann sá fyrirsögn á frétt á bak-
siöu blaösins á þriöjudag.
Visan er svona:
Um Þingeyinga það ég veit,
þetta blasir sjónum:
Alltaf lifa andlegheit
undir vetrarsnjónum.
lagasmiðsins
og er hvatinn aö þessum oröum.
Ekki var það þó íyrir fegurö né
góöan flutning, fremur hiö
gagnstæða.
Kvæðið heitir „Léttúðin'' og
fyrsta erindið er þannig:
Hún vafði mig örmum
um vordaginn langan
og kyssti mig hiæjandi
á kafrjóðan vangann.
Söngvarinn flytur þetta með
miklum tilburðum, en æpir sið-
an i sifellu: „Leggstu hjá mér,
leggstu hjá mér! ég þrái þig.''
Þetta gerir Pálmi frændi minn
með þvilikum írygðarópum að
mann á minum aldri sker i
hlustirnarog flettiég i snarkasti
upp á kvæðinu i Kvæðasafni,
l.bindi (Svartar fjaðrir) frá 1930
til að ganga úr skugga um að
ekki sé búið að fordjarfa kveð-
skapinn i manns eigin bókum,
Nei, á blaðsiðu 20 og 21 var það,
stilhreint, sex erindi, fjórar lin-
ur hvert, frá einu orði upp i
fimm hver lína, rétt einsog
skáldið gekk frá þvi.
Mér létti, en hugleiddi þaö
siðan að gæti einhver lesið það á
milli linanna að einhver ætti að
leggjast hjá höiundi, söngvara
eða yfir höfuð einhverjum, þá
færi miklu betur á að þegja um
það, a.m.k. ekki öskra þaö af
öllum kröftum framan i blá-
saklausa hlustendur. Svavar
hefði nú af sinni alkunnu prúð-
mennsku átt að vara hlustendur
við þessum erótiska viöauka.
Svona i lokin vil ég geta þess
að þetta er ekkert stórmál fyrir
mig og ég er fyllilega búinn aö
ná mér. Afturámóti væri fróð-
legt ef almúgamaður einsog ég
fengi upplýsingar um það hvern
hátt lagasmiðir hala á þegar
þeir semja lög viö texta þjóð-
skáldanna. Slita þeir viöauka úr
eigin brjóstum, eöa fá þeir vini,
kunningja eða einhvern til þess?
Nú er mér ekki kunnugt nafn
lagasmiös iumræddu tilfelli Þaö
væri óneitanlega vel til fundiö
ef hann fræddi fávisan um
hvaöa fyrirkomulag hann hefur
á þessum málum og kæmi svar-
inu á framfæri á sama staö og
þetta kann aö birtast.
Meðkveðjum,
Kuuólfur Jónsson,
Gerði, Mosfellssveit.
Frímerkjaskipti
Austur-þýskur maöur á Hervig Labahn
fertugsaldri óskar eftir sam- 3573 Oebinsfelde
bandi viö islenska frimerkja- Stendalerstrasse 84
safnara meö skipti fyrir augum. DDR
Nafn hans og heimilisfang:
Laufey, 6 ára stelpa i Reykjavik, teiknaði þessa finu mynd. En vitið þið af
hverju hún kallar myndina ,,Sjómenn”? Það er af þvi að sjómennirnir eru
að veiða fiskana, en þeir sjást ekki á myndinni, þeir eru nefnilega á skipun-
um langt fyrir ofan fiskana.
Með pening á enninu
Hér kemur leikur sem
er bæði skemmtilegur og
f yrirhaf narlítill- Allt sem
þið þurfið er klútur til að
binda fyrir augun og pen-
ingur — t.d. króna eða
f immkall. Peningurinn
þarf að vera kaldur.
Nú bindið þið fyrir
augun á einum þátttak-
enda og skipið honum að
leggjast á gólfið. Svo
takið þið peninginn og
þrýstið honum á enni þess
sem liggur á gólfinu.
Látið hann vera þar
nokkra stund, en takið
svo peninginn burt. Sá
sem liggur á gólfinu
tekur ekki eftir því að
peningurinn er farinn,
vegna þess að hann
finnur ennþá kuldann á
enninu en verður ekki var
við að peningurinn fer.
Að lokum segið þið hon-
um að risa á fætur afar
varlega til þess að pen-
ingurinn detti ekki.
Sannið þið til, það verða
fyndnir tilburðir!
Barnahomið
Atvinnumál fatlaðra
.v( )/. Sjónvarp
TF kl. 21.50
i sjónvarpinu i kvöld verður
umræðuþáttur um atvinnumál
fatlaðra, i umsjá Þórðar
Ingva Guðmundssonar.
A alþjóðlegu ári íatlaöra eru
málefni fatlaðra aö sjálfsögðu
ofarlega á baugi og skoðuö lrá
ýmsum sjónarhornum. Eitt af
þvi sem margir t'atlaðir hala
einna stærstar áhyggjur af er
atvinnumálin. Þaö getur ráðið
úrslitum um liðan fólks hvort
það hefur atvinnu viö sitt hæli
og fær að taka þátt i atvinnu-
lifinu.
Sögur úr sirkus — tékkneskur teiknimyndaflokkur sem hefur
göngu sina i kvöld.
Sögur úr sirkus
Tékkar framleiða sem
kunnugt er heilmikiö af kvik-
mymlurn fyrir börn. Þekktast-
ir eru þeir fyrir leikbrúðu-
myndir sinar, en þeir gera
einnig mikiðaf teiknimyndum
og leiknum myndum fyrir
börn.
Nýlegt dæmi um þessa
framleiðslu var teiknimynda-
flokkurinn elskulegi Sonni og
Sparði. Og i kvöld hefst nýr
tékkneskur teiknimyndaflokk-
ur I þrettán þáttum: Sögur úr
sirkus. Guðni Kolbeinsson
þýddi en Július Brjánsson er
sögumaður.
Það er mikið fagnaðarefni
að vera laus - a.m.k. i bili - við
forheimskandi ofbeldismyndir
á borð við Tomma og Jenna,
og fá i staðinn ljúfar og
skemmtilegar barnamyndir
með manneskjulegu innihaldi.
dJj* Sjónvarp
TT kl. 20.35
Hinsvegar mætti enn hamra á
þvi við sjónvarpsmenn, hvort
ekki sé mögulegt aö færa sýn-
ingartimann fram fyrir frétt-
ir, þannig að barnaefniö komi
á eftir fréttum á táknmáli en á
undan hinum fréttunum.
Hvorttveggja er, að yngstu á-
horfendurnir eru orönir syfj-
aðir og þreyttir á þessum
tima sólarhrings, og svo er
hreint ekkert fallega gert að
skikka blessuð börnin til að
horfa á auglýsingarnar meö
þessu móti. Þær eru sjón-
varpsefni sem hala vægast
sagt neikvætt uppeldisgildi.
— ih
Árferði fyrir
hundrað árum
Meöal efnis á kvöldvöku
hljóövarpsins i kvöld er erindi
Hauks Ragnarssonar skógar-
varöar um árferöi fyrir
hundraö árum. Haukur les úr
árferöislýsingum Jónasar frá
Hrafnagiliog flytur eigin hug-
leiöingar um efniö.
Glöggir menn hafa veitt þvi
athygli aö slöasti áratugur
aldarinnar hefur jafnan veriö
mannskepnunni erfiöur - ekki
aöeins á þessari öld, heldur
einnig á siöustu öld og þar áö-
ur. Fyrir hundraö árum var
árferöi slæmt á tslandi, og
veröur fróölegt aö heyra lýs-
ingar Hauks og Jónasar á þvi.
A kvöldvökunni mun karla-
|||| Útvarp
WÞ kl 20.1F
kórinn Heimir syngja undir
stjórn Árna Ingimundarsonar
og Gunnar Stefánsson les
ljóö Sigurjóns Friöjónssonar
„Sól yfir landi ljómar.” Einn-
ig les Inga Lára Baldvinsdótt-
ir frásögu úr minningasam-
keppni aldraöra. Höfundur er
Stefania Agústsdóttir frá Kjós
á Ströndum. Loks er svo „tJti-
legan mikla” - frásögn Vigfús-
ar ólafssonar kennara af úti-
legu fiskibáta frá Vestmanna-
eyjum fyrir rúmri öld. — >h