Þjóðviljinn - 08.05.1981, Síða 3
Föstudagur 8. maí 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
G j aldskrárnef nd:
Kurteisar viðhorfsyfirlýsingar á hvalveiðifundinum
Agreiningur hefur ekki
komið upp á yfirborðið
Enn sem komið er hafa engar
ákveðnar tillögur um breytingar
á alþjöðahvalvciðisáttmálunum
komið frá á fundinum scm Al-
þjóðahvalveiðiráðið heldur á
Hótel Loftleiðum þessa dagana.
Að sögn Þórðar Asgeirssonar
formanns Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins hafa umræðurnar hingað til
verið almenns eðlis þar sem hver
fulltrúi lýsir viðhorfum rikis-
stjórnar sinnar.
Enginn ágreiningur hefur enn
komið upp á yfirborðið, þó auðvit-
að sé hann mikill. Þvi sjónarmið
þeirra landa sem eiga „beinna
hagsmuna” að gæta þ.e.a.s. þau
lönd sem stunda hvalveiðar, og
hinna sem eiga meira en helm-
ings aðild að ráðinu og sem ekki
stunda veiðar sjálf eru alveg
gjörólik.
Er búist við að aðalágreinings-
efnið standi um það hver eigi að
ráða þvi hve mikið hvert land
veiði Alþjóðahvalveiðiráðið en
meirihlutinn þar vill friða hvali
eða þa þau lönd sem stunda hval-
veiðar, en þau vilja fá að ráða
sjálf um framkvæmdimar á hval-
veiðum bæði innan lögsögu sins
i gær var undirritaður samningur I Reykjavík á milli Islands og
Spánar. um gæslumcnn á hvalveiðistöðum. Samninginn undirrituðu
Stcingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra og Juan Prat Coll,
varafiskimálastjóri Spánar.
lands og utan. í gær var undirrit-
aður samningur i Reykjavik á
milli tslands og Spánar um
gæslumenn á hvalveiðistöðum.
Samninginn undirrituðu Stein-
grimur Hermannsson sjávarút-
vegsráðherra og Juan Prat Coll,
varafiskimálastjóri Spánar.
JÉ& Auglýsing frá
Síi sjávarútvegsráðuneytmu
Á þessu ári mun sjávarútvegsráðuneytið
veita 10 stýrki, hvem að fjárhæð kr.
15.000.- til þess að standa undir kostnaði
við sérstök verkefni i rekstrarráðgjöf i
fiskvinnsluf y rir tæk jum. Styrkurinn
verður þó aldrei hærri en sem nemur
þrem fjórðu af heildarkostnaði.
Ofangreind rekstrarráðgjöf miði að þvi að
kanna rekstur fyrirtækja, leggja fram
tillögur til úrbóta þar sem þess er þörf, óg
fylgja eftir að úrbætur séu framkvæmdar.
Styrkurinn greiðist út þegar fyrir liggur
skýrsla um að ráðgjöfin hafi verið látin i
té og reikningur frá ráðgjafarfyrirtæki.
Umsóknir um styrki þessa sendist til
sjávarútvegsráðuneytisins fyrir 1. júni
n.k. 1 umsókn skal tilgreint til hvers konar
ráðgjaf'ar er óskað styrks og hvaða
ráðgjafarfyrirtæki mun annast ráðgjöf-
ina, eða hafi annast hana, ef henni er
lokið, en sækja má um styrk tii allra slikra
verkefna, sem framkvæmd eru á þessu
ári.
Sjávarútvegsráðuneytið, 8. mai 1981.
Aðalfundiir
Þingað um hækkana-
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
verður haldinn laugardaginn 16. mai n.k.
kl. 14.00 að Háaieitisbraut 11—13.
Dagskrá:
beiðnir ríkisfyrirtækja
GjaIdskrárnefnd kemur
saman i dag og fundar um
ýmsar hækkanabeiönir frá
opinberum fyrirtækjum.
Mun þar vera um aö ræða
beiðni frá Skipaútgerö
ríkisins um 30—40%
hækkun til áramótæ frá
Hafnasambandi sveitar-
félaga um hækkanir á
Fræðsla um
skógrækt
Fræðsla um skógrækt fer fram
i Skógræktarstöðinni i Fossvógi á
morgun á vegum Skógræktar-
félags Islands. Verður sýnd
gróðursetning, grisjun, klipping
ofl. og plöntusalan verður opin.
hafnargjöldum um 20%,
frá Ra f mgansveitum
ríkisins og rafmagns-
veitum sveitarfélaganna
um 15—20%.
Beiðni áburðarverksmiðjunnar
um 80% hækkun mun ekki koma
til umfjöllunar nefndarinnar i
dag, eftir því sem Þjóðviljinn
kemst næst. Þar er um lang-
stærstu beiðnina að ræða en þess
má geta að á siðasta ári fékk
áburðarverksmiðjan hækkun upp
á 46% á framleiðslu sinni en hafði
farið fram á 53%. Pálmi Jónsson
landbúnaðarráðherra sagði i
samtali við Þjóðviljann i gær að
þessi 7% lækkun frá beiðninni i
fyrra hefði haft i för með sér
rekstrartap upp á 600 milljónir
gamalla króna I fyrra. Verðlags-
hækkanir innanlands og orku-
skcrturinn i vetur hefðu einnig
komið mjög hart niður á rekstri
verksmiðjunnar.
Aburðarverksmiðjan vill 80%
hækkun.
Þora ekki að
mæta
herstöðva-
andstæðingum?
Herstöðvaandstæðingar á tsa-
firði minnast 30 ára hersetu á ts-
landi með almennum fundi i Sjó-
mannastofunni kl. 16 á laugar-
dag. Fundurinn er opinn og gert
ráð fyrir almcnnum umræðum að
framsöguerindum lokum.
Ekki reyndist erfitt að fá fram-
sögumenn frá herstöðvaandstæð-
ingum, þá Ara Trausta Guð-
mundssonog HallPál Jónsson.en
hernámssinnar virðast ekki vilja
stunda fyrir sinu máli. Leitað var
til Varðbergs, félags áhuga-
manna um vestræna samvinnu
var erindinu vel tekið, en fyrir
nokkrum dögum kipptu Varð-
bergsmenn að sér höndum og
gefa þá skýringu að þeir ræði ekki
slik alvörumál sem utanrikismál
eru við hernámsandstæðinga.
Stendurnúyfir leit á Vestfjörðum
að málsvara hernámsins og ver-
unnar í Nató og er ekki útséð um
ennþá hvort hún ber árangur.
— AI
ÚTBOÐ
Stjórn verkamannbústaða I Reykjavik
óskar eftir tilboðum i gólfdúkalögn i 60
ibúðir i raðhúsum i Hólahverfi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu VB,
Suðurlandsbraut 30, frá og með föstudeg-
inum 8. mai gegn 300 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað
föstudaginn 15. mai kl. 16.00.
Stjórn verkamannabústaða
i Reykjavik
1. Skýrsla stjórnar og reikningar fyrir
árið 1980.
2. Akvörðun um félagsgjöld.
3. Kosning fulltrúa i Framkvæmdaráð.
4. Kosning fulltrúa og varafulltrúa á þing
öryrkjabandalags íslands.
5. Tillaga til lagabreytinga á 3. gr. laga
SLF. skv. samþykkt Framkvæmda-
ráðsfundar 26. mai s.l.
6. önnur mál.
8. mai 1981
Stjórn Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra.
Digranesprestakall
Aðalsafnaðarfundur verður haldinn i
Safnaðarheimilinu v/Bjarnhólastig
mánudaginn 18. mai n.k. og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefndin.
Stjóm verkamamiabústaða
í Kópavogi hefur til sölu
nokkrar eldri íbúðir
Þeim sem vilja koma til greina við úthlutun
ibúðanna er bent á að leggja inn umsóknir
sinar fyrir 20. mai n.k.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
bæjarskrifstofu Kópavogs.
Stjórn VBK.
V orhappdrættið
Dregiö eftir tvo daga
Hafíð samband vid skrifstofuna Alþýðubandalagið
á Grettisgötu 3 * Reykjavik