Þjóðviljinn - 08.05.1981, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. maí 1981
Iðnaðarráðherra mœlirfyrir frumvarpi um stálbrœöslu
Arðbært og stöðugt fyrirtæki
Verður staðsett á Stór-Reykjavíkursvœðinu
„Niöurstaða verkefnisstjórnar,
sem iðnaðarráðherra skipaði
sumarið 1980 til að kanna mögu-
leika á framleiðslu steypu-
stvrktarstáls úr brotajárni hér á
Iandi var sú að stálverksmiðja
geti skilað viðunandi arði og
reynst nokkuð stöðugt fyrirtæki.”
Þannig fórust Hjörleifi Gutt-
ormssyni orð er hann mælti fyrir
stjórnarfrumvarpi til laga um
heimild fyrir rikisstjórnina að
leggja fram 40% af hlutafé i
Stálfélaginu h.f. sem hyggst reisa
hér stálbræðslu. Hér á eftir fara
nokkrir kafiar úr ræðu Hjörieifs.
Skiptar skoðanir
um magn
Skoðanir manna á þvi hve
mikið væri fáanlegt af nýtanlegu
brotajárni á Islandi hafa verið
nokkuð mismunandi. Þvi ákvað
iðnaðarráðuneytið i september
1979 að fá Almennu verkfræði-
stofuna h.f. til gera ýtarlega
könnun á innlendum brotajárns-
markaði.
Söfnun brotajárns hérlendis
hófst 1949 að forgöngu fyrirtækis-
ins Sindra-Stáls h.f. i Reykjavik.
Á timabili voru fleiri aðilar
viðriðnir söfnun brotajárns, en i
dag mun Sindra-Stál vera eini
aðilinn, sem safnar brotajárni á
kerfisbundinn hátt.
Ef tekið er meðaltal á útflutn-
ingi brotajárns frá árinu 1950 til
1980, þá hafa að meðaltali verið
fluttút um 3.500 tonn á ári. 1 áliti
Almennu verkfræðiskrifstof-
unnar frá 28. febrúar 1980 kemur
m.a. fram, að „brotajárnssöfnun
á íslandi hefur undanfarin ár
verið um 4.000 t. á ári. Ætla má,
að með samstilltu átaki og auknu
fjármagni megi auka söfnun og
vinnslu upp i 9—10.000 tonn á
nokkru árabili, þótt ekki skuli
fullyrt um hagkvæmni þess að
svo komnu máli. Verksmiðja sem
framleiðir 15.000 tonn af járni og
notar 17.500—18.000 tonn af
hráefni virðist munu verða háð
erlendum aðföngum að nokkru
leyti fram undir aldamót. Hvort
hægt er að tryggja þau aðföng og
hvort verksmiðjan er arðbær við
þau skilyrði yrði væntanlega
meginviðfangsefni næsta áfanga
þessa máls.
Framleiðir
15 þús. tonn
Stærð þeirrar verksmiðju sem
hér um ræðir er 15.000 tonn sem
ársframleiðsla, en til þeirrar
framleiðslu þarf um 17.500 af
brotajárni. Mikill fjöldi
verksmiðja af svipaðri stærð
munu starfræktar viða um heim
og eru tæki og vélar auðfáanleg.
Núverandi innanlands-
markaður fyrir steypustyrktar-
stál er um 13.000 tonn/ári. Gert er
ráð fyrir 2.1% árlegri aukningu
hérlendis i notkun steypu-
styrktarstáls næsta áratug (var
5% á árunum 170—1980) og að
markaðshlutdeild innlendrar
verksmiðju verði um 90% af þeim
markaði. Yrði framleiðslu-
magnið 12.700 tonn fyrsta
þingsjá
framleiðsluárið, ef framleiðsla
hæfist 1983. Ekki er reiknað með
útflutningi.
Reiknað er með að verksmiðjan
kaupi allt að 40% af nauðsynlegu
brotajárni erlendis fyrstu árin,
meðan islensk brotajárnsvinnsla
er að þróast. Mun hlutfallið af
innfluttu brotajárni lækka jafnt
og þétt á rekstrartimabilinu.
Aætlað er að milli áranna
1988—2000 falli hérlendis til að
meðaltali 15.000 tonn af nýtilegu
brotajárni á ári.
Kostir/Gallar
Kostir steypustyrktarstáls-
framleiðslu, sem ekki hafa verið
metnir i íjármunum i þessari
áætlun, eru m.a.:
1. Umhverfisbætandi áhrif. (Nýt-
ir brotajárn, sem annars
safnast fyrir).
2. Aukin atvinna i landinu.
3. Eykur öryggi hvað varðar
aðdrætti grundvallarbygg-
ingarefnis.
4. Gjaldeyrissparandi áhrif.
5. Eykur fjölbreytni atvinnulifs-
ins og inn flyst þekking um
grundvallar iðnaðarstarfsemi.
Ókostur innlendrar framleiðslu
yrði fyrst og fremst, að þegar
erlendis eru erfiðleikar i stál-
iðnaðinum, gæti timabundið orðið
hærra verðlag á innanlands-
markaði miðað við það sem yrði,
ef um verðfellingu erlendu
framleiðendanna væri að ræða.
Ef gripið yrði til verndunarað-
gerða af hálfu stjórnvalda myndi
verð þannig hækka eða haldast
hátt en þó að likindum aðeins um
takmarkaðan tima.
Stofnkostnaður
100 m.kr.
Stofnkostnaður verksmiðjunn-
ar er áætlaður um 100 milij. kr.
miöað við verðlag i april 1981 og
er áformað að hlutafé nemi um
30% af stofnkostnaði eða um 30
Hjörleifur Guttormsson
millj. kr. Við stálbræðsluna er
reiknað með að starfi 63 menn.
Aflþörf verksmiðjunnar er um 10
MW, en til að framleiða 1 tonn af
steypustyrktarstáli þarf 900
KWst. þannig að við 15.00 tonna
framleiðslu notar verksmiðjan
13,5 KWst.
Staðsetning verksmiðjunnar er
áformuð innan Stór-Reykjavikur-
svæðisins, bæði vegna nálægðar
við stærsta hluta markaðarins og
þess að um 60% brotajárn-
magnsins fellur til á höfuðborgar-
svæðinu.
— Þig.
Stjórnarfrumvarp um endurskipulagningu lyjjadreijingar
Ætti að vera eingöngu í
höndum ríkisins
sagði Svavar Gestsson, heilbrigðisráðherra
Fyrirhugað er að cndurskipu -
leggja lyfjadreifinguna i landinu,
þar sem meðai annars verður
komið á föstu skipulagi um
staðarval og stofnun lyfjabúða,
um lyfjaþjónustu á sjúkrahúsum,
stofnun sérstakrar samstarfs-
nefndar þeirra scm með þjónustu
við sjúkrahús og lyfj adreifingu
hafa að gera og að færa
Lyfjaverslun rikisins stjórnunar-
lega undir heilbrigðisráðuneytið,
en hún hcfur heyrt undir fjár-
málara'ðunevtið. Svavar Gests-
son heilbrigðisráðherra mælti i
fyrradag fyrir frumvarpi um
lyf jadreifingu sem m.a. felur
þessar skipulagsbreytingar i sér.
Hér á eftir fara kaflar úr ræðu
ráðherrans.
Einkagróöasjónarmiðiö á
ekki að ráða
Það er min skoðun að það sé
eðlilegt að lyf jadreifing sé I raun
og veru á vegum heilbrigðismála-
þjónustunnar, hinnar opinberu
heilbrigðisþjónustu. Astæðurnar
til þess eru margar, sem ég ætla
ekki að tlunda hér, en ein ástæðan
er að mínu mati sú að það er
óeðlilegt að það séu persónuleg
einkagróðasjónarmið sem geta
ráðið því hversu er farið með
lyf javerslun hér i landinu, þennan
mikilvæga þátt heilbrigðisþjón-
ustunnar.
Ég er þess vegna þeirrar skoð-
unarog minn flokkur að það væri
eðlilegast aö standa þannig að
málum að lyfjaverslunin öll væri
á vegum opinberra aðila, þeirra
sömu og fara með heilbrigðis-
málastjórnina i landinu. Um
þetta sjónarmið mitt og Alþýðu-
bandalagsins er hins vegar ekk-
ert samkomulag hér á Alþingi og i
núverandi rikisstjórn er þvi ekki
að heilsa heldur. Eg tel hins
vegar að það sé verulegur ávinn-
ingur að þvi að ná fram engu að
siður ýmsum þeim atriðum sem
eru I þvi frumvarpi, sem hér
liggur fyrir og hefur nú verið flutt
af mér og rikisstjórninni.
m
UTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í
lagningu dreifikerfis í 1. áfanga Miðnes-
hrepps og Vatnsleysustrandarhrepps. I verk-
inu felst að leggja einfalt hitaveitukerfi
i dreifbýl i. Pípur eru 0 20—0 100 mm víðar og
lengd kerfis er um 7,7 km.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja, Brekkustíg 36 Njarðvík/Og á
verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álftamýri 9
Reykjavík gegn 500.- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja fimmtudaginn 21. maí Í981 kl.
14.00.
Lyfsala fari úr höndum
lækna
í frumvarpinu er kveðið á um
staðarval og stofnun lyfjabúða og
lyfjaútibúa og að þar um skuli
setja reglugerð sem taki mið af
skiptingu landsins i héröð. A
þennan hátt skapast meira svig-
rúm hvað varðar t.d. stofnun eða
flutning lyf jabúða eða undirstofn-
unar lyfjabúða i heilsugæslustöð
á annan vettvang.
Það skal sérstaklega undir-
strikað hér að með þessu er stefnt
að þvi að lyfsala fari úr höndum
lækna, en eins og kunnugt er hafa
læknar að verulegu leyti annast
lyfjasölu á vissum stöðum i
strjálbýli þ.e. þar sem lyfjasala
eða lyfjaútibú hefur ekki verið
til staðar.
1 fýrrs frumvarpi var hins
vegar gert ráð fyrir þvi að lyfja-
sala færi alfarið úr höndum
lækna, en ekki eins og hér er gert
ráð fyrir að stefnt skuli að þvi.
Það er augljóst að slik lyfjasala
hefur verið neyðarúrræði viðast
hvar, enþó munu finnast mjög fá-
menn héröð þar sem tekjur af lyf-
sölu hafa hugsanlega haft mikil-
væg áhrif á það að læknar fáist
þar til starfa. Slikt verður þó að
teljast mjög óæskilegt á alla lund,
enda hreinasta neyðarúrræði og
ekkert annað. 1 heilbrigðisþjón-
ustulögum eru ákvæði þess efnis
að lyfjaútibú og lyfjaútsölur eða
lyfjaforðar séu i heilsugæslu-
stöðvum ef ekki er lyfjabúð á
staðnum. Jafnframt eru ákvæði
þess efnis að ráðherra geti
ákveðið að lyfjabúð verði i heilsu-
gæslustöð.
Lyfjaþjónusta sjúkrahúsa
og stofnun samstarfs-
nefndar
í frumvarpi þessu hafa verið
sett mjög ákveðin fyrirmæli um
störf lyfjafræðinga við deildar-
skiptu sjúkrahúsin. Gert er ráð
fyrir að við þau starfi sérstök
sjúkrahúsaapótek sem gætu öðl-
Svavar Gestsson
ast heimild til að afhenda sjúkl-
ingum er ekki liggja á sjúkrahús-
unum lyf, sem einungis má nota á
þeim. Þá er qmaður sá möguleiki
að Lyfjaverslun rikisins geti af-
greitt öll algengustu lyf beint til
deilda sjúkrahúss ef henta þykir.
Þá er enn fremur lagt til að
lögfest verði stofnun sérstakrar
samstarfsnefndar þeirra aðila,
sem hafa með þjónustu sjúkra-
húsa og lyfjadreifingu á þeim að
gera. Er þessari nefnd ætlað að
leita samræmingar i innkaupum
á lyfjum, lyfjagögnum, hjúkr-
unar- og sjúkrahúsgögnum I hag-
kvæmnisskyni. Hér er um mikil-
vægt stefnuákvæði að ræða sem
stefnir vonandi að viðtækara inn-
kaupasamstarfi sjúkrahúsa hér I
landinu en verið hefur.
Rfkið stærsti kaupandi
lyHa
Ég itreka það sjónarmið mitt,
það persónulega sjónarmið mitt,
að ég er þeirrar skoðunar að
lyfjadreifing eigi að vera á hönd-
um opinberra aðila, og að lýfja-
dreifing eigi að tengjast hinni
opinberu almennu heilbrigðis-
þjónustu. Annað er i rauninni
óeðlilegt miðað við allar að-
stæður. Meðal annars vegna þess
að rikið sjálft og Tryggingastofn-
un rikisins er i rauninni einn
stærsti kaupandi lyfja I landinu.
Það eru fleiri milljarðar g.kr. á
ári hverju sem rikið ver til lyf ja-
kaupa, og það er þvi ekki óeðlilegt
að þetta sé á höndum rikisins og
hinna opinberu aðila. Um það er
ekkert pólitiskt samkomulag. Ég
tel að þrátt fyrir allt, þá sé þó
með þessu frv. stigið mjög mikil-
vægt skref fram á við I þessum
málum i þá átt að fella lyfjadreif-
inguna i landinu að hinni almennu
heilbrigðisþjónustu.
— Þig
KRAKKAR!
Blaðberabió i
yRegn-
boganum. J
A
Blaðberabíó!
Ekki núna félagi/ er myndin sem blaðberum
Þjóðviljans gefst kostur á að sjá á laugardag-
inn kl. 1 e.h. Þetta er mynd um rússneskan
ballettdansara sem gerir tilraun til að flýja
sæluna...
AAætið í Regnbogann, Sal A — góða
skemmtun!
Góða skemmtun!
DJOBVlUm