Þjóðviljinn - 30.05.1981, Page 27
Helgin 30. — 31. mai 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 27
Fátækrahverfi i Lagos: úr öskunni I eldinn. Fjallahverfiog háhýsi iSaoPaulo: helmingur mannkyns mun búa íborgum um næstu aldamót.
Mestu þjóðflutningar sögunnar
Stórborgarskrýmslin stækka og gerast æ ömuríegri
Borgir þriðja heimsins
eru einhverjir ömurlegustu
dvalarstaðir á jörðinni. En
þær halda áfram að vaxa
og vaxa: í Mexíkóborg eru
nú um það.bil 15 miljónir
ibúa, en árið 2000 er búist
viðað þeir verði 30 miljónir
— með úthverfum. Og það
þykir fyrirsjáanlegt að
borgarskr imslin verði enn
skelfilegri í náinni fram-
tið.
Mexíkóborg — dæmigerð
höfuðborg i hinum svonefnda
þriðja heimi. Fullkomið um-
ferðaröngþveiti kvölds og
morgna. Borgarstjórinn játar, að
fólk verði einatt að sitja eða
standa um það bil sex stundir á
dag i troðfullum stætisvögnum á
leið i vinnu eða úr (ef það hefur
vinnu). Og um það bil helmingur
ibiianna snýr heim á kvöldin i
auma fjalakofa, ljóslausa og
vatnslausa — þar sem menn
ganga örna sinna i gegnum gat á
gólfinu.
ömurleiki
t Kairó, höfuðborg Egypta-
lands, fer þvi fjarri að tilséu nóg-
ar fjalir utan um átta miljónir
ibúa. ótaldar þúsundir, sem hafa
séð hús sin hrynja eða vera rifin
til að rýma fyrir öðrum mann-
virkjum, búa i tjöldum eða á risa-
vöxnum ruslabingjum austur af
borginni. Um það bil þrjú hundr-
uð þúsund Egyptar hafa leyst
sinn húsnæðisvanda á nokkuð svo
hrollvekjandi hátt: þeir hafa sest
að innan um grafir og daúðra
manna bein i svonefndri dauða-
borg fyrir utan Kairó.
I KalkUtta á Indlandi höfðu
Englendingar eiú sinn komið sér
upp li'fsháttum svipuðum þeim og
þeir höfðu i' London — nema hvað
þjónustuliðið var enn ódýrara i
rekstri. Borgin hefur vaxið firna-
lega ört og versnað eftir þvi. Hol-
ræsi eru aðeins i miðborginni og
hafa ekki verið endurnýjuð i 90
ár. Aðeins tiu prósent af um það
bil tiu miljónum ibúa hafa not af
vatnsleiðslum borgarinnar. Ekki
nóg með það: aðeins hluta hús-
anna fylgir sorpgryfja einhvers-
konar; flestir verða að gera þarfir
sinar i einhverju skoti og bera
saurinn þaðan.
Hrun
Sérfróðir menn eru fullir böl-
sýni þegar þeir eru spurðir um
þróun stórborganna. Þeir segja
þær fyrir löngu óstarfhæf
skr i m sli og muni þeirra ekki biða
neitt annað en vaxandi eymd,
glæpamennska og allsherjar upp-
lausn. Einhverjir mundu stinga
upp á byltingu — en aðrir þá mót-
mæla með tilvisun til þess, að þeir
allra snauðustueru venjulega svo
báglega komnir eftir að hafa setið
lengi i vitahring neyðarinnar, að
það eru ekki þeir sem gera upp-
reisn. Alltént eru það ekki þeir
sem hafa frumkvæði um slikt
uppgjör.
Flóttinn mikli
Mexikóborg, Sao Paulo, Lagos
og aðrar stórborgir þriðja heims-
ins mega, sem fyrr segir, búast
við áframhaldandi aðstreymi.
fólks. A undanförnum þrjátiu ár-
um hafa um 500 miljónir Asiu-
manna, Afrikumanna og Suður-
amerikumanna flúið sveitimar.
Um aldamót bjó aðeins einn af
hverjum hundrað jarðarbúum i
borg; nú anda fjórir af hverjum
tíu að sér forpestuðu borgaríofti.
Og um næstu aldamót veþður
helmingur jarðarbúa kominn til
borganna. Þá verður dreift um
heiminn um það bil sextiu risa-
borgum, sem með úthverfum
munu telja fimm miljónir ibúa
hvéreða fleiri. Og þrjár stórborg-
ir af hverjum fjórum munu ekki
verða i þeim þróaða hluta heims,
þar sem peningar, skólaðir em-
bættismenn, tæknikunnátta og
temprað loftslag hjálpast að við
að gera vandamál stórborganna
leysanleg (hvort sem þau eru nú
leyst eða ekki). Flestar verða
borgimar i þeim fátæku löndum,
þar sem fátækt i nútimanum,
versnandi viðskiptakjör við rika
heiminn og afleitt stjórnarfar,
sameinast um að gera likur á
raunverulegum framförum harla
litlar.
Sumar borgir minnka
Mexikóborg mun gera gjör-
samlega misheppnaðar tilraunir
tilaðhýsa 30miljónir manna. Sao
Paulo hefur nú 13 miljónir ibúa,
en þar verða 26 miljónir um alda-
mót. Það eru aðeins Toklo, New
York og Los Angeles af stórborg-
um ríkra þjóða, sem munu halda
velli meðal fimmtán stærstu stór-
borga heims. Sumar hinna elstu
stórborga munu skreppa saman
og er sú þróun reyndar byrjuð nú
þegar. Umaldamótin var London
borg borga, þar bjuggu 5 miljónir
manna. NU eru i Stór-London
röskar 10 miljónir manna, en
flóttinn er hafinn og um 300 þús-
undirmunu flýja borgina fram að
aldamótum. Svipuð þróun er
byrjuð i þéttbýlasta borgarkerfi
Þýskalands, Ruhrhéraðinu.
Röng uppbygging
Ástæðurnar fyrir ofvexti borga
i fátækum rikjum heims eru
margar. Nýfrjáls riki hafa reynt
að lfkja eftir iðnrikjum með veru-
legum og oft misráðnum fjárfest-
ingum i iðnaði, sem átti að skapa
atvinnutækifæri og auka þjóðar-
tekjur. Á meðan var landbúnað-
urinn, sem framfleytti miklum
meirihluta flestra þessara þjóða,
vanræktur. Þangað fóru aðeins
20—30% fáanlegs fjármagns. Og
sérhæfður plantekrubúskapur
með vaxandi tækninotkun gerði
og sitt til að flæma fátæka bændur
af landinu.
Niðurstaðan er mikil eymd i
sveitum, sem rekur fólk til borg-
anna i stórum stil — enda þótt þar
sé einatt farið úr öskunni i eldinn.
Fólkið á ekki i önnur hús að
venda. Strjálbýlar heimsálfur
taka ekki við fólki eins og gerðist
á fyrri öld. Um leið hefur fjár-
svelti og önnur vanræksla sem
landbúnaði hefur verið sýnd leitt
til þess, að i sextiu þrónunarlönd-
um hefur matvælaframleiðslan
beinlinis minnkað i hlutfalli við
fólksfjölda. Um það bil hundrað
riki heims eru nú háð innf lutniogi
á korni.
Vonin og grimmdin
Þessi þróun gerir svo ástandið i
borgunum enn óbærilegra. Þar
verða menn að greiða hærra verð
fyrir mat en i sveitum (tveir
þriðju af tekjum flestra ind-
verskra borgarfjölskyldna fara
til að borga matvæli), og
skammturinn er 300—400 hitaein-
ingum rýrari en i sveitum. En á
hinn bóginn getur alltaf einhver
sveitamaður i stórborg örðið svo
heppinn að fá fasta vinnu i nýjum
iðngreinum (reyndar aðeins
5—10% vinnufúsra) og fólkið von-
ar auk þess, að börnin, eða þó
ekki væri nema eitt þeirra, kom-
ist i' einhvern skóla og eigi þvi
fleiri kosta völ en foreldrarnir.
En það eru fáir sem geta fengið
það starf sem lyfti þeim upp i ein-
hverskonar lægri millistétt. Þrir
af hverjum fjórum fyrirvinnum i
slömmunum ganga atvinnulausir
eða svo gott sem. Rán og grip-
deildir, vændi, eiturlyfjasala og
fleira þesslegt verður mörgum
eina leiðin til að halda lifi. Og hin
algjöra örbirgð fjalaborganna er
ekki þess eðlis að boðskapur um
samstöðu og baráttu hinna
snauðu falli i sæmilegan jarðveg.
Favelan, slömmbyggjan, blikk-
borgirnar eru fyrst og fremst
vettvangur grimmdar, þar sem
harðsnúnir bófar taka siðasta
eyrinn af þeim ráðvillta og varn-
arlausa.
áb tok saman.
Opnum í dag í nýju húsnæði
að Sigtúni 3 Reykjavik
Kennsla hefst að nýju í næstu viku
Innritun í síma 26088
OPIÐ
mánudaga kl. 13.00-18.00 og 20.00-22.00
þriðjudaga kl. 13.00-18.00 og 20.00-22.00
miðvikudaga kl. 13.00-18.00
fimmtudaga kl. 13.00-18.00 og 20.00-22.00
föstudaga kl. 13.00-17.00
laugardaga kl. 13.00-15.30
V