Þjóðviljinn - 04.06.1981, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. júni 1981
Fimmtudagur 4. júni 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Ljósmyndarinn var lengi dags i sólbaði i Skerjafiröi. Þegar þetta mótif bar fyrir augu tók hann mynd.
Undir
yfirskini
Við Sunnlendingar og flatlend-
ingar erum hættir við að fara til
Spánar. Ekki af ótta við lungna-
kvef og bráðapestir heldur ein-
faldlega af þvi að sá sem stjórnar
veðri og vindum á þvi kalda isa
landi er i frii. Það er nefnilega
ekkert veður, bara logn og hit...
Þetta hleypur alla vega i okkur
flatlendinga. Við förum út að
hjóla eða bara að ganga, eyðum
ekki bensini, og umfram allt för-
um ekki til Florida. í útlöndum er
ekkert skjól, eilifur stormbelj-
andi. Það er munur eða hér. Mað-
ur er nefndur Gunnar Elisson,
hann er ljósmyndari. Veðriö
hleypurþannig i hann að hann fer
i Nauthólsvik, niður að Tjörn og i
kirkjugarðinn. Þar dólar hann i
besta skapi og tekur myndir. Allt
er þetta undir þvi yfirskini að
hann sé i vinnunni. Þess vegna
birtast þessar myndir nú. —gfr.
Ljósm.: gel
Ekkert er unaðslegra en að dóla á báti i svona veðri.
Skrýtin sjór. I miðbænum.
Allt eins og blómstrið eina...
Maöur vill nú ekki láta mynda sig þó að maöur sé fallegur. Þrjár garðyrkjustelpur f
kaffi.
á dagskrá
En ekki er nóg að veðurfræðingar
sitji og hugsi um bættar veðurspár.
Þeir þurfa að hafa í höndunum
tæki til að vinna með. Eins og
flestir munu geta sér til, þá er það
tölvan sem hér skiptir mestu máli...
en sú sem Háskólinn hefur nú til
umráða.
Menn spyrja nú kannski: Eru
raunhæfar likur til þess aö hægt
sé að gera islenskar veðurspár
öruggari og betri? Þessu held ég
sé óhætt aö svara játandi. Það er
að vlsu rétt, aö yfirlitsspár um
allt yfirborð jarðar og til margra
daga er tvimælalaust rétt aö gera
á aöeins fáum stöðum I heimin-
um, þar sem allur búnaður er sá
fullkomnasti og afkastamesti.
Meira aö segja þykir stórþjóöum
Vestur-Evrópu borga sig að slá
sér saman um eina slfka veöur-
stofu, en hún er i Reading i Eng-
landi. Slikar yfirlitsspár eru
gerðar einu sinni eða tvisvar á
sólarhring. En jafnframt gera
menn sér ljóst, að i hverju landi
Tölvureiknaðar veðurspár
1 öllum hamaganginum undir
þinglokin um daginn var sam-
þykkt samhljóða þingsályktun
um veðurfregnir. Um hana hefur
veriö heldur hljótt, en þó tel ég að
meö þessari ályktun hafi Alþingi
markað sér athyglisveröa stefnu.
Samgönguráðherra, sem fer með
málefni Veðurstofu tslands, var
falið að láta kanna hvernig unnt
væri aö bæta tæknibúnað Veður-
stofunnar og aðstöðu til öflunar og
úrvinnslu veðurathugana, svo og
hvernig útvarpi veðurfregna og
sérstakra aðvarana yrði best
hagað til öryggis og hags fyrir
iandsmenn alla. Flytjendur til-
lögunnar voru tiu þingmenn úr
öllum flokkum, en i meöförum
allsherjarnefndar varð ályktunin
ýtarlegri. Nefndin kallaði til sam-
ráös við sig veöurstofustjóra Hlyn
Sigtryggsson. Góöur hugur I garð
Veöurstofunnar kom skýrt fram
hjá þeim þingmönnum, sem tóku
til máls um ályktunina.
Vist væri eðlilegt að byrja
framkvæmd þessarar ályktunar
meö þvi að gera það sem kostar
minnst fé og fyrirhöfn: hagræða
útvarpi veðurfregna svo að veð-
urfræðingar þurfi aldrei aö senda
frá sér úreltar spár vegna of litils
undirbúningstima. Hér verður þó
vikið að ööru og miklu meira
verkefni. Frá sjónarmiði þess er
þetta ritar er varla vafi á þvi að
mikilvægt er að auka — eða öllu
heldur hefja — rannsóknir á þvi
hvernig bæta megi veðurspár, og
afla tækja i þvi skyni. I fyrsta
sinn um langan tima eru nú fleiri
veðurfræöingar tiltækir i landinu
en duga til þess að gegna nauö-
synlegustu spáþjónustu og öörum
óhjákvæmilegum daglegum
skyldum. Meðal þessara veður-
fræðinga eru ungir menn og kon-
ur með ágæta menntun og hæfi-
leika, en auk þess ættu gömlu
jálkarnir eitthvaö gott að geta
lagt til rannsókna, þó ekki sé
nema vegna langrar reynslu af
veðurspám fyrir landið og miðin.
Nú er þvi hægt að stofna sérstak-
ar rannsóknastöður veðurfræð-
inga til að fást við að bæta veður-
spárnar. Um þetta hefur Veður-
stofan sótt hjá fjárveitingavaldi
oftar en einu sinni, en fengiö synj-
un. Nú ætti aö verða bætt úr þessu
eftir stefnumörkun Alþingis.
En ekki er nóg aö veöurfræð-
ingar sitji og hugsi um bættar
veðurspár. Þeir þurfa að hafa i
höndunum tæki til að vinna með.
Eins og flestir munu geta sér til,
þá er það tölvan sem hér skiptir
mestu máli, ásamt ýmsum
þeim tækjum, sem henni tilheyra.
Sennilega dygði ekki minni tölva
Siðan í desember hefur undirritaður varið dálitlum hluta af vinnutima
á Veöurstofunni til þess aö gera veðurathuganir tölvutækar fyrir spár.
Þetta kort var unnið I tölvu Skýrsluvéla og sýnir þrýstillnur (á mörkum
skyggðra og óskyggðra belta) á hádegi þ. 15. jan. 1979, en tölvan var
einungis mötuð á loftþrýstingi og vindi á einstökum veðurstöövum og
skipum, óreglulega drcifðum um kortið.
er ástæða til þess að leggja
áherslu á nákvæmari tölvuspár
fyrir takmörkuð svæði og til
skamms tima, taka tillit til sér-
stakra aðstæðna i hverju landi
og gefa spárnar helst út á þriggja
tima fresti, svo að alltaf sé byggt
á nýjustu upplýsingum. Þessi
varð niðurstaða min, þegar ég
átti þess kost að dveljast I Read-
ing um hálfs árs skeiö i fyrra.
Eftir þá reynslu sýnast mér likur
til, aö viö getum i framtiöinni not-
að okkur með nokkrum árangri
tölvuaöferðir viö spárnar, sér-
staklega vegna aðvarana um
næstu stundir og allt að þvi sólar-
hring fram i timann. 1 riti, sem
Evrópuveðurstofan i Reading gaf
út eftir mig á siðasta hausti er
skýrt frá ýmsum tilraunum i
þessu skyni. Þær tilraunir voru
fáar, og þvi er best að draga ekki
af þeim miklar ályktanir, en
dæmi um eina slika tölvuspá er á
meðfylgjandi mynd. En þessi
árangur nægir þó til þess aö hér
sé hægt aö byrja af fullum krafti á
tilraunum, ef til þess fæst nauð-
synleg aðstaða.
Margt annað mætti gera til aö
bæta þjónustu Veðurstofunnar, ef
fylgt verður þeim bendingum,
sem felast i þingsályktuninni um
veðurfregnir, en hér skal nú látið
staðar numið að sinni.
Páll Bergþórsson.
Siðdegis þ. 15. jan. 1979 gerði NV stórviðri við austanvert Noröurland, en hvorki erlendar tölvuspár né
hefðbundnar aðferðir dugðu til að spá því. Hér er sýnd tölvureiknuö og tölvuteiknuð tilraunaspá fy rir kl.
18 byggð á veðurskeytum frá kl. 6 um morguninn. Kortið er of mikiö smækkað, en samkvæmt spánni er
10 stiga veöurhæð af norövestri út af Axarfirði. Miklu fleiri tilraunir þarf þó til aö ganga úr skugga um
gagnsemi þessarar aðferðar.
erlendar
baekur
Alan Davidson:
North Atlantic Seafood.
Penguin Books 1980.
Höfundurinn skrifaði fyrir
nokkrum árum bók um fisk og
fiskrétti frá Laos og aöra um
skorpióna og snáka. 1 þessari bók
segir af hinum margvislegu lag-
ardýrum Norður-Atlantshafsins
og þeim réttum sem úr þeim má
búa til, en þeir eru fleiri en fisk-
tegundirnar. Hér kennir margra
grasa m.a. rifrildisins um þorsk-
hausana hér á landi. Eins ‘Dg
kunnugt er, er einhver besta fæða
úr sjó hertir þorskhausar, enda
kunnu fyrri tiðar menn hér á
landi að meta þann mat eins og
svo margar aðrar sérstæðar
fæðutegundir. Höfundurinn segir
söguna af reikningskúnst
Tryggva Gunnarssonar varöandi
þorskhausa og skriíum hans um
kostnaðinn við flutning þorsk-
hausa út um breiðar byggðir.
Hann taldi að það væri alls ekki
þjóðhagslega hagkvæmt að borða
þorskhausa, þvi að ætur hluti
haussins væri harla litill. Þessi
afstaða bankamannsins var eðli-
leg það borgar sig ekki aö boröa
dýran og góðan mat. Auk þess tók
hann vitaskuld ekkert tillit til
matarhefðar landsmanna,siða og
venja. Þetta var afstaöa hinnar
menningarsnauðu lágkúru nyt-
semdarpostulanna. Guðmundur
Finnbogason skrifaði nokkru sið-
ar svar við þessu nytsemdarrugli
peningamannsins og fór á kostum
i skrifum sinum og tætti i sig lág-
kúrusjónarmiðið og eru þau skrif
með þvi snjallasta sem þessi
snjalli greinahöfundur setti sam-
an.
Hér er þessi saga rakin og má
af henni sjá hverskonar smekkur
ræður skrifum Davidson og
hversu vönduglega hann hefur
unnið bókina. Hann kemur með
fleiri slikar anektdótur varðandi
önnur svæöi. Þetta er um flest hin
prýöilegasta bók, ágætar upp-
skriftir kryddaðar skemmtileg-
um frásögnum og góðar lýsingar
á ýmsum lagardýrum og þeirri
tækni sem notuð var og er við
veiðar þeirra.