Þjóðviljinn - 04.06.1981, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 04.06.1981, Blaðsíða 15
X Fiitihitirdagur 4. júíni 1^81’ ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Hringið í síma 81333 kl. 9—5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðvi/janum lesendum Eitthvaö fyrir stúlkurnar segir Timinn, brjóst-um-kennanlegar seg- ir Þjóöviljinn „Frjálslegar myndbirtingar Kaupandi Þjóöviijans kom meö þetta bréf til okkar: Góöa veöriö undanfariö hefur gefiö ljósmyndurum dagblaö- anna mörg góö myndaefni. Eins og eölilegt er i sliku veöri fækk- ar fólk fötum og eru myndir af þvi hálfberu orönar algengari en áöur var i dagblööunum okk- ar. Ég fagna þessari þróun, þvi aö ég vona aö hún veröi til þess aö almenningur læknist af sinni kjánalegu feimni gagnvart þvi m.a., aö konur skuli hafa ööru- visi brjóst en karlmenn. Ég verö þó aö viöurkenna aö þessi von min viröist eiga spottakorn i aö rætast sam- kvæmt þeim myndatextum sem oft eru samfara þessum „frjáls- legu” myndbirtingum, og eruö þiö á Þjóöviljanum ekki meö tandurhreinan skjöld i þeim efnum. En þaö eru ekki bara mynda- textasmiöir sem seinka þróun i jafnréttisátt. t Visi i fyrradag segist „Fagurkeri” nokkur karlkyns hafa oröiö hrifinn (ég dreg kynferöiö af endingu lýs- ingarorösins i VIsi) af myndum blaösins af „topplausum” steip- um. Siöan segir hann: „Ég veit ekki hvaö rauösokkur eru aö fjargviörast út I svona lagaö”. Ég er aö visu ekki rauðsokka, en ég get ekki imyndaö mér aö þær séu á móti þvi aö konur komi til dyranna eins og þær eru af náttúrunnar hendi. Hins veg- ar er þaö þessi misskilningur á jafnréttisbaráttunni, eins og hann kemur fram hjá „Fagur- kera”, og svo hinir gamaldags og hallærislegu, tviræöu myndatextar sem fara i taug- arnar á mér — og vonandi slfellt fleirum. En haldiöi endilega áfram aö birta brjóstamyndir.viö hljótum aö venjast þessari opinberun smám saman — saman. U4 12.*.15 \ 16 ) I * ^ _ . *i7 • V ( 10* v • 1 CD • ^•20 7* .•21 Ef þið dragið línu frá 1 til 34 birtist á blaðinu mynd sem þið ættuð að kannast við. Barnahornið Aiexandra Kollontaj — skoö- anir hennar á fjölskyldumál- um þykja róttækar enn i dag. Fimmtudagsleikritið Herdis Þorvaldsdóttir leik- stýrir I kvöld. Þrír ættliðir, þrennskonar ást t kvöld kl. 21.25 verður flutt leikritiö „Þrir ættliöir, þrenns konar ást” eftir Alexöndru Kollontaj. Þýöingu geröi As- laug Arnadóttir, en leikstjóri er Herdis Þorvaldsdóttir. Meö hlutverkin fara Kristbjörg Kjeld, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Bryndis Pétursdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigmundur örn Arngrimsson og Þorsteinn Gunnarsson. Leikritiö er um 50 minútur i flutningi. Miöaldra kona, Olga Veselovskaja, kemur til Alex- öndru félagsráðgjafa og ber upp viö hana vandamál sin. Hún hefur ekki hagað sér i samræmi viö „Kerfiö” I einkalifi sinu. Móöir hennar er ánægö meö þaö, enda ekki fylgjandi hinu nýja skipulagi. Og þegar Olga kynnist ungum marxista, Konstantin, kemur óhjákvæmilega til árekstra. Alexandra Mikhailovna Kollontaj fæddist I Pétursborg 1872, dóttir hershöföingja. Útvarp kl. 21.25 Móöir hennar var af finnskum ættum. Framan af fylgdi Alexandra sósialdemókrötum aö málum, en gekk til liös viö byltinguna 1917. Hún var þó mjög gagnrýnin á stefnu bolsévika og lenti i deilum viö Lenin vegna afstööu hans til fjölsky ldumála. Arið 1922 gekk Alexandra i utanrikis- þjónustuna, var fyrst sendi- herra i Noregi, en siðan i Svi- þjóö frá 1930 til 1945. Hún gegndi mikilvægu hlutverki i friðarsamningum Rússa og Finna 1944. 1 starfi sinu þótti hún koma fram af miklum skörungsskap og festu. Hún skrifaöi töluvert, þ.á. m. frá- sagnir þar sem hún fjallar um stööu konunnar I þjóöfélagi kommúnismans. Alexandra lést i Moskvu 1952. Litli barnatíminn: PABBAR 1 dag stjórnar Heiðdis Norö- fjörö Litla barnatimanum frá Akureyri. Heiödis er sjúkra- liöi aö atvinnu og starfar á Skaldarvik, sem er dvalar- heimili fyrir aldraða. 1 þessum þætti fær Heiödis aöstoö barna úr 4 5. og 6. bekk Stórutjarnarskóla i Ljósa- vatnsskarði viö gerö þáttarins sem er aö þessu sinni um pabba, og flytja þau efniö sjálf. Börnin munu syngja kvæöi Jóhannesar úr Kötlum „Karl faðir minn” viö lag og undir- leik kennara sins Helga Einarssonar. Helgi var um tima einn af Þrem á palli, en er nú bóndi, kennari og tónlist- arkennari fyrir noröan. Flutt veröur saga meö leikhljóöum um manninn sem aldrei sofn- aði meö dagblaöiö. Þetta er frönsk saga úr bókinni Berin á lynginu. Siöan er leikþáttur, Mæliker eftir Indriöa tJlfsson. Útvarp kl. 17.20 Loks veröur lesiö úr bókinni Veröldin er alltaf ný eftir Jóhönnu Alfheiði Steingrims- dóttur og segir þar frá fjölskyldu i sveit, þar sem Gaukur og pabbi hans baka meöan mamma fer i gegning- arnar. Aöur hefur Heiðdis Norö- fjörö tekiö saman þætti um börn og mömmur fyrir Litla barnatimann, og þegar pabbarnir hafa veriö af- greiddir kemur aö ömmum og öfum. Heiödis sagöi aö börn heföu mjög gaman af aö taka þátt i svona dagskrárgerö og væru afskaplega áhugasamir og góöir samstarfsmenn. — A

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.