Þjóðviljinn - 18.07.1981, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 18.—19. júlí 1981
DJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
Ótgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir
úmsjónarmaöur sunnudagsblaös: Þórunn Siguröardóttir
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlöðversson
Blaöamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir,
Kristin Ástgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs-
son.Jón Guðni Kristjansson.
Iþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson.
Útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Björn Br. Björnsson .
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Auglýsingar: Unnur Kristjánsdóttir
Skrifstofa: GuðrUn Guövarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir.
Sfmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Bilstjóri: SigrUn Bárðardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns
dóttir.
Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: SlðumUla 6,
Keykjavik, simi 8 13 33.
Prentun: Blaðaprent hf..
r i tst jor nargr ei n
úr aimanakínu
Útúrsnúningar
Alusuisse
# Rikisstjórnin hefur f jallað um súrálsmáliðog gert
það álit sitt opinbert, að Alusuisse haf i gerst brotlegt
við samninga um kaup á súráli til álversins í
Straumsvik. Hef ur ríkisstjórnin áskilið sér allan rétt í
málinu, og áréttað fyrri samþykktir sínar um endur-
skoðun samninga um álverið í Straumsvik. Að loknum
ríkisstjórnarf undinum er Ijóst að ætlunin er að taka á
málinu af fullri einurð og gerðar verða mjög veru-
legar kröf ur á hendur ALUSUISSE, Þær kröf ur hljóða
upp á að staðin verði skil á vangoldnum sköttum, að
breytingar verði gerðar á framleiðs'ugjalui af áli, að
raforkuverð verði hækkað mjög verulega og að
íslendingar fái eignaraðild að álverinu, og þá með
meirihlutaeign síðar í huga. Þjóðviljinn fagnar því,að
samstaða hef ur náðst um það í ríkisstjórn að gera svo
hraustlegar kröfur á hendur hinum svissneska
auðhring. Jafnframt skal áréttað að nauðsynlegt er
að á málinu sé haldið af einurð, því Alusuisse gef ur að
sjálfsögðu ekki tommu eftir nema það telji sér það
nauðsynlegt.
# Þetta sýna f yrstu opinberu viðbrögð auðhringsins
eftir að opinber voru gerð gögn og niðurstöður breska
endurskoðunarfyrirtækisins Coopers & Lybrand, og
álit sérfræðinga í áliðnaði. Alusuisse reynir m.a. að
snúa sig út úr klemmunni með því að halda því fram
að þeir hafi greitt Isal 26 miljónir dollara i styrki og
með því að greiða þeim yfirverð á ál frá álverinu í
Straumsvík.
# Þessar röksemdir lagði Alusuisse fram þegar í
desember á síðastliðnu ári og síðan aftur skriflega í
febrúar. Þessi rök voru m.a. lögð fyrir hið óháða
endurskoðunarf irma, Coopers & Lybrand, sem komst
að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að taka
þessi rök til greina.
# En í hverju eru þá þessar 26 miljónir dollara
fólgnar? Tveir langstærstu liðirnir þar eru 14 miljónir
dollara, sem Alusuisse telur sig hafa greitt ísal fyrir
tilbúið ál, umfram eðlilegt markaðsverð, og 10.5
miljónir dollara sem Alusuisse telur sig hafa greitt
l'sal sem styrk árið 1976.
# Þeir sérfræðingar sem unnið hafa að rannsókn
málsins hafa kannað fullyrðingar Alusuisse um að
þeir haf i greitt fsal umf ramverð fyrir álið, og komist
að þeirri niðurstöðu að verð á áli frá Isal sé i fullu
samræmi við heimsmarkaðsverð á áli af þeim gæða-
flokki sem álið frá Straumsvik er. Verð á áli frá
Straumsvík er um 3% hærra en skrásett Alcan verð á
þessu tímabili; sá verðmunur helgast einfaldlega af
hreinleika og lögun álsins frá Straumsvík og er i f ullu
samræmi við markaðsverð. Auk þess má nefna tvö
veigamikil gagnrök við þessari f ullyrðingu Alusuisse:
I fyrsta lagi greiðir Isal Alusuisse 1.5% af heildsölu-
verði fyrir að ná hærri verðum fyrir afurðir ísal en
nemur meðalverði. Og í öðru lagi þá er það tekið f ram
í aðalsamningi um álverið í Straumsvík að líta beri á
hvern þátt aðfanga fyrir sig.
# Hin megin fullyrðing Alusuisse er að þeir hafi
greit, Isal styrk upp á 10,5 miljónir dollara. Þjóð-
viljinn gefur einfaldlega stjórnarformanni Alusuisse
orðið til að hrekja þessa f ullyrðingu. Á aðalf undi Alu-
suisse 1977 sagði Emanuel R. Meyer m.a. í ávarpi
sínu: „Sérstaklega í Englandi vorum við tilneyddir til
að selja undir kostnaðarverði um alllangt skeið.
Áttum við að halda áfram að taka á okkur töp í
milljónatugatali eða áttum við að gefa breska mark-
aðinn upp á bátinn? Við ákváðum að þrauka. Kostn-
aðurinn var borinn af dótturfyrirtækjum okkar á
íslandi og Noregi, en að lokum Alusuisse í formi
beinna f járframlaga". Þetta er útlegging stjórnar-
formanns Alusuisse á því sem nú heitir styrkur til
(sal, Þarna er semsé einfaldlega um það að ræða að
Alusuisse notaði ísal til að selja á undirverði í
Bretlandi til þess að viðhalda markaðsaðstöðu Alu-
suisseþar.
# Ljóst er að málefnaleg staða íslendinga er mjög
sterk í þessu máli. Það sýna máttleysislegar
skýringar Alusuisse. En þær sýna einnig að auðhring-
urinn hreyfir sig ekki þumlung til samninga nema
hann telji sig nauðbeygðan. —eng.
Það er ekki að undra að um-
rótið á Torfunni hafi komið illa
við margan manninn og ekki
sist þá sem annt er um svipmót
gamla bæjarins. Eða hverjir
aðrir en verkfræðingar og verk-
takar gera sér grein fyrir þvi að
til þess að endurnýja 60—80
sentimetra breiðar tröppur upp
að Landlæknishúsinu þurfi að
skera nær þriggja metra breiða
gjá i brekkuna? Ekki mér i það
minnsta og þvi er það rétt sem
eftir mér hefur verið haft að
jarðraskið, umfang þess og útlit
svæðisins meðan á fram-
kvæmdum stendur kom mér á
óvart. Ég er hins vegar i þeirri
aðstöðu sem formaður um-
hverfismálaráðs, eftir að hafa
fjallað um málið i þrjú ár, að
vita hvað verið er að gera og
hver endirinn verður. En það er
svo langt frá þvi að ég og við i
umhverfismálaráði séum ein
um þá vitneskju. Framkvæmd-
irnar hafa verið vandlega
undirbúnar i' samráði við fjölda
manna innan og utan borgar-
stjórnar og um þær varð i um-
hverfismálaráði, bygginga-
nefnd, borgarráði og borgar-
stjórn full samstaða. Þá hafa
fjölmiðlar, aðrir en Morgun-
blaðið, oftsinnis skýrt frá þess-
um áformum, bæði um smiði
taflmannanna, staðarval fyrir
taflið, fyrirhuguðum áhorfenda-
pöllum í brekkunni og torginu á
flötinni neðan við hana. Birst
hafa myndir i blöðum og sjón-
varpþog nU siðast i mai skýrði
ég fyrirhugaðar framkvæmdir
formanni sinum og fram-
kvæmdastjóra bera hita og
þunga af .Húsin fengu að grotna
niður i áraraðir og það fékk
nánasta umhverfi þeirra,
Torfan sjálf, lika aö gera.
Ekkert viðnald var á lóðinni,
að var jú slegið og siðan ekki
öguna meir. Lóðin var i um-
hirðu borgarinnar og sam-
kvæmt yfirlýsingum Hafliða
Jónssonar garðyrkjustjðra
hafði hann oftlega gert tillögur
um endurbætur á henni en þeim
var ýtt til hliðar meðan
„óvissa” rikti um framtið hús-
anna. Allar samþykktir um frið-
lýs'n'iu húsanna á Bernhöfts-
toi unni hafa tekið mið af nán-
as a umhverfi þeirra, Stjórnar-
rá \nu og Menntaskólanum, eöa
hver kannast ekki við þessa
setningu: ...að húsaröðinni við
Lækjargötu milli Hverfisgötu og
Bökhlöðustigs verði ekki
raskað...? Lóðirnar framan við
Stjórnarráðið og Menntaskólann
voru vel hirtar. Þar var gert við
skemmdir og slit, þar hafði
verið plantað trjám og forhlið
þeirra við Lækjargötu hafði
verið afmörkuð með steingarði.
Lóðin framan við Bernhöftstorf-
una fékk hins vegar að drabbast
niður i' rólegheitum rétt eins og
húsin.
Það var þvi meðal fyrstu
verkefna okkar sem nú sitja i
umhverfismálaráði að gera til-
lögu um endurbætur á svæðinu.
Ljóst var að byggja þurfti gras-
brekkuna upp á nýtt, þvi hún
var farin að skriða fram og i
19
foii /
r
myndar þar á nýjan leik séu
mótfallnir þeim ráðstöfunum
sem að framan eru raktar, en
þær eru stór hluti þess kostn-
aðar sem um ræðir. Og er þá
komið að torginu á flötinni,
áhorfendapöllunum i brekkunni
og útitaflinu sem þar hefur
verið valinn staður.
Með vaxandi athafnasemi i
miðbænum, —lifii borg, eins og
sumir hafa kallað það — hafa
vinsældir Torfunnar sýnt
sig. Nú siðast þ. 17. júni var
brekkan notuð fyrir útileikhús.
og þótti vel takast til. Þegar
farið var að vinna að gerð úti-
tafls i miðbænum, sem ég trúi
heldur ekki að menn séu al-
mennt á móti i prinsippinu, var
einkum rætt um Lækjartorg
og Austurstræti. Mörgum þótti
ekki á það svæði bætandi; þar er
jú turninn, eina göngugatan
okkar og torgið, útimarkaður-
inn, útifundarstaður, klukkan,
pylsuvagninn og allt sem þvi
fylgir. Það var þó ekki þaö sem
gerði útslagið. heldur sú stað-
reynd aö taflið myndi trufla
eðlilegar gönguleiöir á flestum
stöðum og aðstaða fyrir áhorf-
endur til að fylgjást með, ef t.d.
um mót væri að ræða, er af-
skaplega bágborin nema þá
taflborðið yrði grafið niður um
Það sem er verið
að gera á Torfunni
rækilega i fréttatima útvarps
þegar um það var beðið. Það er
hins vegar ljóst af umræðu
undanfarinna daga að kynning
af þessu tagi dugir skammt.
Það sem menn hafa fyrir aug-
unum skiptir meira máli/Og það
sem þeirsjá er eitt flag, sundur-
rist brekkan, djúpir skurðir og
stórvirk vinnutæki.
t þessu greinarkorni ætla ég
að reyna að skýra enn á ný hvað
það er sem til stendur og hver
tilgangurinn er með þessum
framkvæmdum. Ég segi reyna,
þvi ekkert er erfiðara en að leið-
rétta misskilning, snúa ofan af
ranghugmyndum sem hamr-
aðarhafa verið innivitund fólks
bæði af misvitrum fjölmiðlum
og hinum mætustu mönnum. En
svo hafa menn miklað þetta
fyrir sér að jafnvel taflmenn-
irnir eru tveggja metra háir og
50 kfló að þyngd i vitund
margra.
Skömmu eftir að núverandi
borgarstjórnarmeirihluti varö
til sumarið 1978, var i um-
hverfismálaráði samþykkt til-
laga um friölýsingu húsanna á
Bernhöftstorfu, og skömmu
siðar samþykkti borgarstjórn
viljayfirlýsingu sama efnis.
Allir vita að það er rtiennta-
málaráðuneytisins að friðlýsa
hús, en menn skulu ekki gleyma
þvi, að vilji borgaryfirvalda,
sem hirða fasteignagjöld og
ákveða nýtingu á lóðum i
Reykjavik, skiptir i þvi efni
höfuðmáli. Þann vilja hafði
borgarstjórnarihaldiö skort, og
gerir enn. Það þarf ekki að
rekja þá raunasögu, sem var
undanfari glæsilegrar uppbygg-
ingar sem Torfusamtökin með
hana komnar holur vegna ára-
langs átroðnings. Tröppurnar
framan við Gimli þurfti lika að
endurbæta og koma i veg fyrir
að bleyta stæði i flötinni.
ÞETTA ER MEÐAL ANNARS
ÞAÐ SEM VERIÐ ER AÐ
GERA NÚ. En það er meira.
Með vaxandi athafnasemi sem
leiðir m.a. af endurreisn hús-
anna eykst umferð um svæðið
og menn voru sammála um að
bæta þyrfti við tröppum ská-
hallt niður brekkuna i krikanum
við Bankastræti. Einnig voru
Álfheiður
Ingadóttir
skrifar
menn sammála um að litil prýöi
væri að flaginu og timburgrind-
unum sem happdrættisbilunum
fylgja, hvað þá gryf junni sem er
næst „Núllinu”. Þvi var ákveðið
að slétta það og rækta og
gróðursetja þar tré sem veita
myndu betra skjól á flötinni.
Einnig var ákveðið að setja
steinkant framan viö lóöina eins
og er við Stjornarráðið og
Menntaskólann, bæta við hana
hluta af stæði SVR og hækka
hana lítillega. ÞETTA ER
MEÐAL ANNARS ÞAÐ SEM
VERIÐ ER AÐ GERA NÚ. Ég
trúi því ekki að þeir 7108 Reyk-
vikingar, sem skrifað hafa
undir mótmælin gegn fram-
kvæmdunum á Torfunni og
krafist hafa „upphaflegrar”
eitt eða tvö þrep. Það er aftur
afskaplega dýrt fyrirtæki vegna
hitalagnanna sem eru undir
torginu.
U m sama leyti og þessi staöa
kom upp í útitaflsmálinu fékk
umhverfismálaráð fyrstu til-
lögur Borgarskipulags að
endurbótum á Torfunni. Þar var
m.a. gert ráö fyrir smátorgi
sem nýta mætti fyrir uppá-
komur og útileikhús enda
brekkan tilvalið áhorfenda-
svæði. Það kom þvi nokkuð af
sjálfu sér að þessar hugmyndir
runnu saman i eina og útitaflinu
var valinn staður neðan við
brekkubrúnina. Við nánari út-
færslu var ákveðið að setja tré-
bekki í hluta brekkunnar og út-
búa e.k. áhorfendapalla þar og
að inn i brekkuna væri grafin
geymsla fyrir taflmennina.
Umhverfis taflborðið sjálft er
svo hellulögn sem mörgum
finnst óþarflega umfangsmikil,
en hún verður með þeim hætti
að á skiptast smáar steinhellur
og gras. Á svæðinu er gert ráð
fyrir bekkjum og gróðri, og
simaklefi og strætisvagnaskýli
verða sameinuð i eitt.
Markmiðið með þessum
framkvæmdum er að bæta að-
stöðu til fjölbreyttari útivistar
og skemmtana i miðbæ Reykja-
vikur. Umhverfis taflborðið
verða fjögur venjuleg taflborð
sem menn geta setið við með sin
eigin töf 1 og hver og einn getur
svo auðvitað teflt á útitaflinu
sjálfu. Ég vil biðja menn að
hafa biðlund meöan svæðið er
að fá á sig endanlega mynd,þvi
ég er sannfærö um að þegar svo
er komið geta þeir varpaö önd-
inni léttar.
Alfheiður Ingadóttir