Þjóðviljinn - 25.07.1981, Side 6

Þjóðviljinn - 25.07.1981, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 25. — 26. júll 1981 UOÐVIUINN Málgagn sósfalisma, verkalýds- hreyfingar og þjódfrelsis titgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraidsson, Kjartan Ólafsson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Þórunn Siguröardóttir Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöðversson Blaöamenn: Álfheiöur Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Ástgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son.Jón Guöni Kristjánsson. tþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson. Útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Björn Br. Björnsson . Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson. liandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Unnur Kristjánsdóttir Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Siguröardóttir. Sfmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: SigrUn Báröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns dóttir. Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siðumúla 6, Reykjavik, simi 8 13 33. Prentun: Blaðaprent hf.. ritstjornargrei n úr aimanakinu Eftir flokksþingiö pólska 0 Það er ekki nema rétt sem ítrekað er í fréttaskýring- um víða um lönd: þing pólskra kommúnista var mjög merkilegt. Þar fór fram mikil endurnýjun á forystuliði, og það er þó Ijóst, að vilji til að laga sig að breyttum að- stæðum og halda áfram ýmsum umbótum ræður ferð- inni. Að því er f ordæmi varðar skiptir það kannski mestu aðnú var með leynilegum og lýðræðislegum hætti kosið í miðstjórn og framkvæmdanefnd — slíkt hefði verið óhugsandi hvar sem væri í Austur-Evrópu fyrir nokkr- um mánuðum. • Hitt er svo annað mál, að þótt þingið væri í sjálfu sér upphaf á nýjum starfsháttum hins ríkjandi f lokks í Pól- landi, þá sagði það fátt af því, hvernig leysa á hin gíf ur- legu efnahagsvandamál sem Pólverjar glima við. Það gaf heldur ekki svör við því hver gætu orðið næstu skrefiná umbótabrautinni. Bæði stjórnvöld og talsmenn verkamannasamtakanna nýju, Samstöðu, hafa lýst áhuga á þróun til dreif ingar valds, minni miðstýringar í áætlanagerð, aukins sjálfstæðis fyrirtækja og sjálf- stjórnar verkamanna. En menn hafa ekki gert það upp, hvernig þeirri sjálfstjórn verður háttað þótt ýmiskonar tilraunir séu komnar á fæturna. Til dæmis að taka hafa stjórnvöld og starfsfólk fyrirtækja eins og f lugfélagsins Lot, tekist á um það, hver hefði vald til að skipa for- stjóra. Það er Ijóst að þann rétt vill starfsfólk og verka- menn á hverjum stað hafa. Það er ekki jaf nljóst, hvernig verkamenn vilja deila völdum við forstjóra og tækni- krata. • Forystumenn Samstöðu vildu framan af ekki flækja sig í spurningum af þessu tagi: í fyrsta áfanga skipti þá r-estu að koma skipulagi á hin nýju samtök, útrýma mjög augljósum órétti og þar fram eftir götum. En þeir vita og viðurkenna að það komi að þvi, að þeir þurfa að gera það upp við sig, hver sé ábyrgð verkamannasam- taka, semætlarsér mikinn hlut íþví hvernig fyrirtæki séu rekin. Pólverjar hafa verið að skoða hinar hægfara Ml- raunir með stýringu framleiðslunnar sem Ungverjar hafa gert sem og verkamannaráðin júgóslavnesku. Sem vonlegt er hafa menn illar bifur á ýmsum neikvæðum hliðum t.d. hins júgóslavneska fyrirkomulags, sem leiðir, vegna samkeppni milli fyrirtækja m.a. til mis- munandi kjara eftir því hvernig hver framleiðslueining er á vegi stödd. Ekki síst vegna þess, að það getur orðið erfitt að átta sig á því, hvað af þeim mismun stafar af forskoti eða hagstæðum ytri aðstæðum og hvað af eigin framlagi starfsfólks í afköstum og skipulagsgáfu. En það er samt Ijóst, að inn á þessar brautir verða pólskir verkamenn að sækja þótt þær tilraunir kosti ýmisleg vonbrigði. Það er skammgóður vermir að halda nú áfram skyndiverkföllum til að knýja fram kaup- hækkanir en ýmsir helstu foringjar Samstöðu hafa ein- mitt varað við því að undanförnu að haldið yrði áf ram á þeirri braut: við pólskt ástand í dag þýða slíkar kaup- hækkanir varla annað en aukna verðbólgu og svarta- markaðsbrask, • Ef að Pólverjum tekst að finna þær lausnir sem sam- ræma aukið mál — og félagafrelsi dreifingu valds og sjálfstjórn verkamanna, þá mundi það þegar fram í sækir hafa mjög víðtæk áhrif. Fyrst í álfunni austanverðri, þar sem valdaeinokun ríkjandi flokka verður æ þyngri baggi á sjálfri efnahagsþróuninni. En einnig i Vestur-Evrópu, þar sem einmitt hin neikvæðu áhrif algjörs flokksræðis í ríkjum sem kenna sig við sósíalisma haf a haft kæf andi áhrif á áhuga verkafólks á meiriháttar breytingum í samfélaginu, á sjálfstraust sósíalískra hreyfinga. • tn svo eru það stórveldin.' Að sönnu hefur líkum fækkað á því að Sovétríkin reyni að snúa þróun við í Póllandi með hernaðaríhlutun. En því miður er ekki hægt að afskrifa þann möguleika. Og gleymum heldur ekki þeirri dapurlegu þverstæðu, að þótt bandarísk stjórnvöld hafi hátt um kærleika sinn til Pólverja, þá væri það þeim í raun að nokkru leyti í hag, ef Sovétmenn færu með her inn í Pólland. Vegna þess að þar með væri úr sögunni um langa hríð ,,hollenska veikin" sem svo er nefnd, andúðin á vígbúnaðarkapphlaupinu, friðarhreyf- ingin nýja — stórveldablakkirnar væru geirnegldar saman á nýjan leik. Sú þróun sem til þessa hefur orðið í Póllandi hlýtur að vera fyrst og fremst hagstæð þeirri evrópskri pólitískri hugsun, sem hefur verið að mótast allt frá vinstri og inn á miðju stjórnmálanna, er leitast við að finna leiðir út úr þeim ógöngum, þeim vítahring, sem óbreytt forræði stórveldanna hefur skapað. áb Þessi fleygu orð lét Hamlet prins falla þegar hann ráfaði um virkisveggina i Krónborgar- kastala og velti þvi fyrir sér hvort hann ætti að taka þátt i valdabratinu og gerast kongur, eða hvort hann ætti áfram að vera sérsinnaður prins sem lifði eftir eigin höfði. Ég ætla mér ekki að leggjaUtaf Shakespeare hér, heldur að tengja þessi orð umræðu sem geisar Ut I þeim stóru löndum. A ferðinni er hvorki meira né minna en spurningin um framtið mann- kynsins. Þeir sem láta sig þjóðfélags- mál einhverju varöa og lita þau frá vinstri, sjá einkum tvenns konar vanda framundan. Ann- ars vegar er það hættan sem stafar af vopnakapphlaupinu og gjöreyðingarhættunni, hins veg- ar spillt náttUra og mann- skemmandi lif, sem er það eina sem íbUum vesturlanda býðst nú um stundir. Friðarhreyfing- ar eflast með degi hverjum og umhverfisverndarmenn láta frá sér heyra, en það dugar auðvit- að ekki til. Framleiðsluöflin eru langt komin með að gera jörð- ina að einum forarpytt; verði ekki gripið í taumana og það strax, stefnum við beint að ragnarökum. Málið er bara að það er ekkert gert. í Bandarikj- unum t.d. er umhverfismála- ráðherrann þeirrar trúar að dómsdagur og endurkoma lausnaranssé framundan og þvi muni Kristursjá um mannfólkið þegar þar að kemur, algjör óþarfi að vinna gegn mengun. Sem betur fer eru aðrir sem benda á leiðir, hafa skilgreint vandann og gengiö enn lengra; rannsakað hugarfariö sem ligg- ur aö baki þeirri óheftu neyslu- hyggju sem einkennir öll iðn- vædd þjóðfélög, og nú siöast hélt innreiö sina i' Kína. Einn þeirra sem bent hefur á Iausn er þyski sál- og félags- fræðingurinn Erich Fromm, sem lést i fyrra. Hann skrifaöi fyrir nokkrum árum bdk sem hann kallaði To have or to be Þar gerir hann grein fyrir þeim tvenns konar viöhorfum sem um er að velja: að eiga (hafa) eða vera Siðan mér áskotnaðist þessi bók hef ég ekki látið neitt tækifæri ónotað til að Utbreiða fagnaðarerindið. Mér finnst við- horf hans tilannars konar sam- félags, þar sem önnur gildi ríkja vera einmitt það sem við þurf- um á að haldá, ekki sist þegar upp eru komnar hugmyndir um kvennaframboð sem hefur á stefnuskrá sinni (væntanlega), aö berjast gegn karlveldinu og viöhorfum þess fyrir betra mannlifi sem tekur tillit til karla.kvenna og barna. En ekki mára um það aö sinni. Erich Fromm segir sem svo: Ef við horfum aftur i aldirnar til einfaldari samfélaga má sjá að þar ríkja önnur viöhorf til lifs- ins. Fólkið liföi I jafnvægi við náttUruna, það lögmál sem gilti var að ganga aldrei of langt á náttUruleg gæði, enda kostaði slíkt hungur og dauða. Fyrir- bæri eins og hvildardagurinn meðal Gyöinga var til þess aö náttúran fengi að jafna sig, allt líf fékk friö einn dag. I aldanna rás sköpuöust önnur viöhorf. Með einkaeignaréttin- um kom græðgin, eignagleöin, eigingirnin, hagsmunabaráttan, kUgunin. að ekki sé minnst á hin eilffu striö (karla) um eignirn- ar. Viðhorfin til náttUrunnar breyttust, nU átti að sigra hana, sveigja hana undir vilja manns- ins, maöurinn var almáttugur. Að vem eða vem ekki Kristín r Astgeirsdótti skrifar J ^6 JC*/t' j f Framleiösluöflin töku völdin, lffshamingjan hlaut að felast i þvi að eiga, neyta og njóta hluta, eignirnar voru lika kon- an, börnin og þrælarnir meðan þeir tfökuðust, auk alls hins. Eigna- og neysluviöhorfin án- kenna kapitalísk þjóðfélög og eru reyndar undirstaöa þeirra, en hiö sama gildir um hin svo- köliuðu sósi'alfsku rfki. Fromm segir: Viðþekkjum í dag þrenns konar rfki á vesturlöndum. t fyrsta lagi hin hörðu kapitalfsku riki (t.d. Bandarfkin og Bret- land), sósíaldemókratíiö (á Noröurlöndum) og „sósíalísku” rikin. Alls staðar er stefnt aö æ mári neyslu. I staö þess að taka mið af orðum Marx um það aö framleiðslan miðist viö grund- vallarþarfir, varð neyslustán- an ofaná í „sósialismanum”, það áttiað gera alla að borgur- um i lifnaðarháttum. Við höfn- um þessum stefnum segir Fromm, enda fylgir þeim glöt- unin ein. Við eigum að stefna að annars konar samfélagi. Erich Fromm gerir ýtarlega grein fyrir muninum á þeim viöhorfum sem hér um ræðir: það að eiga og vera. Gamalt dæmi Ur bibliunni: Guð gaf Móses þau fyrirmæli að leiða ís- raelsmenn yfir eyðimörkina til fyrirheitna landsins.Þeir hlýddu og héldu af stað, yfirgáfu eignir sinar og fóru Ut i eyðimörkina þar sem engar eignir var að finna. Þar lifðu þeir lengi f sátt og samlyndi, samstöðu og trú. En — þegar Móses brá sér frá kom eignagleðin upp í þeim. Þeir söfnuðu saman guili sinu, fólu Aroni aö gera gullkálfinn og dönsuðu siðan i kringum hann. Tvenns konar lff, tvenns konar viðhorf. Auðvitað þarf lág- marks framleiðslu, og einhverj- ar eignir, en fyrr má nU gagn gera en gullkálfar nútimans. Fromm tekur inn I dæmiö við- horf til samfélagsins, til mann- anna, hann segir að eignavið- horfið hafi fætt af sér óvirkni, ólýöræðislegt fyrirkomulag, og stöðugt vélrænni vinnubrögð. Þaö sem mestu skiptir er þó að neyslusamfélagiö hefur alls ekki fært okkur þá hamingju sem eftir var sóst. I staðinn eru kominupp stórkostleg mannleg vandamál eins og ofbeldi og sjálfseyðingarhvöt ásamt ómældri óhamingju; það vantar allt hið mannlega. Austurrfkismaðurinn André Gcrz hefur fjallað um þetta sama og hans álit er aö stefnt sé beint inn f tækniveldi (tekno- krati) sem gerir mannfólkið að minni og minni tannhjólum I samfélagsvélinni miklu. Viljum viö það? Hvaö er til ráða? Fromm set- ur fram pólitiskt prógramm, sem gengur Ut á það að breyta viöhorfum frá þvi að eiga til þess aö vera. í þvf felst breyting á samfélaginu, sem verður að berjast fyrir með öllum ráöum. Það er ekki eftir neinu aö biða, það er hægt að byrja á því ganga á undan með góð'' lor' dæmi, sýna i verki neyslan skipti okkur fja^?118 en®V máli, við getum Komist af með miklu minn'Og það verður við aö gera aetlum við okkur ein- hven^ framtið I heimi hér. Við hnum ábyrgð gagnvart kom- andi kynslóðum og viö getum ógnaö kapitalismanum með þvi að draga verulega úr neysl- unni! Hvaö skerðir gróöann meira? Hér er ekki pláss til aö fara nánar Ut i' kenningar Erich Fromm; þessi frásögn dugar auðvitaðhvergitil, en hann býö- ur svo sannarlega upp á valkost og bendir á leiöir. Hann spyr margs og knýr lesandann til að h'ta yfir farinn veg og svara loiýjandi spurningum um eigin afstööu, þvi': Aö vera eða vera ekki það er spurningin. — ká

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.