Þjóðviljinn - 25.07.1981, Page 23

Þjóðviljinn - 25.07.1981, Page 23
Helgin 25. — 26. júll 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 23 um helgína Minnst 1000 ára kristni- boðs Skálholtshátiöin er i dag og hefst sneð messu þar sem dr. Henrik Freben biskup prédikar, en biskup tslands herra Sigur- björn Einarsson og séra Guðmundur Óli Ólafsson þjóna fyrir altari, meðhjálpari er Björn Erlendsson. Skálholtskórinn syngur, forsöngvari er Bragi Erlendsson. Jón Sigurðsson og Lárus Sveinsson leika á tromp- eta, en organleikari er Haukur Guðlaugsson og söngstjóri Glúmur Gylfason. Róbert A. Ottósson hefur raddsett eða hljómsett alla messuna, sem hefst kl. 11, en kl. 13,30 er klukknahringing, kl. 13,40 organ- leikur og kl. 14. lúðraþytur, úr Þorlákstiðum. Kl. 16.30 verður siðan samkoma i kirkjunni þar sem kórar og organistar úr Arness- og vestur- hluta Skaftafellsprófastdæmis flytja sálmalög i tilefni þúsund ára afmælis upphafs kristniboða á Islandi, séra Eirikur J. Eiriks- son flytur ræðu og séra Heimir Steinsson staöarprestur les úr ritningunni, en samkomunni lýkur meö almennum söng. Jónlna Björg Gisladóttir og Ólafur Th. Ólafsson Systkini sýna á Selfossi Systkinin Jónina Björg Gisla- dóttir úr Kópavogi og ólafur Th Ólafsson frá Selfossi halda mál- verkasýningu i Safnahúsinu á Selfossi, 25, júli til 3. ágúst n.k. Jónina Björg sýnir 20 vatnslita- myndir og Ólafur sýnir 25 oliu- málverk. Jónina Björg hefur stundað nám i málaradeild Myndlista- skólans i Reykjavik undanfarin ár og Ólafur útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og hand- iöaskólans vorið 1979. Ólafur hélt einkasýningu á Sel- fossi 1979 og tók þátt I samsýn- ingu á Selfossi haustiö 1980. Jónina Björg sýnir nú i fyrsta sinn. Sýningin er opin daglega kl. 14—22. . Sýning fyrir alla Tveirdanir munu ídag, laugar- dag, setja upp sýningu að áhorf- endum viöstöddum i Nýlistasafn- inu, Vatnsstig 3B og stendur sýn- ingin aöeins meðan uppsetning varir. Listamennirnir eru Mette Arre og Jens Jörgen Thorsen, sem einkum er kunnur fyrir til- raunir sinar aö kvikmynda kynllf Krists. Ætlast er til að áhorfendur aðstoði við sýningargerninginn, sem i fréttatilkynningu tií blaðsins er kölluð „Island from scratch”. Fréttatilkynningin er á ensku, og mættu Islenskir og danskir nýlistamenn muna að „islensk tunga á viö I islenskum kaupstaö, hvað allir athugi”! Nýlistasafniö: Sýnir í Rauða húsinu Laugardaginn 25. júli nk. kl. 3 opnar Tumi Magnússon mynd- listarsýningu i Rauða Húsinu á Akureyri. Sýningin saman- stendur af teikningum, hlutum og kvikmynd. Tumi stundaði nám i Myndlista og handiðaskóla tslands og i Hollandi og hefur tekið þátt i nokkrum samsýn- ingum. Þessi sýning Tuma er fyrsta einkasýning hans og stendur hún til 2. ágúst og er opin daglega frá 3-9. Guðmundur Björgvinsson meöal verka sinna Guðmundur í Djúpinu Laugardag 25. júli opnar Guömundur Björgvinsson fjórðu einkasýningu sina i Djúpinu, og stendur hún til 12. ágúst. A sýn- ingunni er hálft hundrað mynda af hinum ýmsustu stærðum, þær minnstu einsog frimerki. Guömundur vinnur meö oliu, prentlitum, tússi, svartkrit, og segir viðfangsefni sitt „óhlut- bundin stef við mannslikamann og umhverfi hans”. Sýningin er opin daglega frá 11—23.30. Núbjóðumvíð HREINAN EPLAS frá FIORIDANA næríngarríkan, ljúffenganog svalandí. ómíssandí í ferðalagíð. nmS” Mjólkursamsalan

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.