Þjóðviljinn - 18.08.1981, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 18. ágúst 1981
¥
¥
-¥
¥-
-¥
-¥
-¥
¥-
-¥
¥
-¥
¥•
¥-
¥-
¥-
¥•
¥-
¥■
¥-
¥-
¥•
¥-
¥■
¥-
¥-
¥■
¥■
¥■
¥-
¥■
¥■
¥■
¥■
¥■
¥-
Islenzka óperan
Prófsöngur
Islenzka óperan mun frumsýna gaman-
óperuna Sigaunabaróninn eftir Jóhann
Strauss um jól 1981, og verður óperan flutt
á islenzku. Æfingar munu hefjast i
október. í einsöngshlutverk verður valið
með prófsöng sem haldinn verður á tima-
bilinu frá lOda til20sta september 1981.
Þeir einsöngvarar sem áhuga hafa á hlut-
verkum i óperunni þurfa að tilkynna þátt-
töku sina i prófsöngnum fyrir 5ta septem-
ber 1981. Þátttökutilkynningar sendist til
íslenzku óperunnar, Hverfisgötu 44, 101
Reykjavik.
Ennf'remur verður haldinn prófsöngur
fyrir kór íslenzku óperunnar i september.
Söngfólk, sem hug hefur á að syngja i
kórnum,tilkynniþátttöku sina i prófsöngn-
um til íslenzku óperunnar fyrir 15da
september 1981.
Stjórn íslenzku óperunnar.
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
***************¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥
Orkustofnun
óskar að ráða starfsmenn i eftirtaldar
stöður:
1. Staða forstjóra Stjórnsýsludeildar.
Háskólamenntun áskilin. Menntun á
sviði stjórnunarfræða og reynsla i
stjórnunæskileg.
2. Staða fjármálastjóra. Viðeigandi
háskólamenntun æskileg, svo og
reynsla i fjármálastjórn.
3. Staða skrifstofustjóra. Reynsla i skrif-
stofurekstri og -þjónustu áskilin.
4. Starfsmannastjóri. Lögfræðimenntun
æskileg, og reynsla i starfsmanna-
stjórn.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri
störf sendist fyrir 10. sept. n.k. til orku-
málastjóra, Orkustofnun, Grensásvegi 9,
108 Reykjavik. Hann veitir nánari upplýs-
ingar.
Orkustofnun
Öskjuhlíðarskóli
óskar eftir að ráða frá 1. september n.k.
yfirsjúkraþjálfara og uppeldisfulltrúa til
starfa með hreyfihömluð börn. Nánari
upplýsingar veittar i sima 23040 næstu
daga.
Umsóknareyðublöð á staðnum.
Skólastjóri
Laus staða
Staða bókara við embættið er laus til
umsóknar. Upplýsingar um launakjör eru
veittar á skrifstofu minni.
Starfsumsóknir skulu hafa borist mér fyr-
ir 15. september n.k.
Lögreglustjórinn
á Keflavikurflugvelli,
11. ágúst 1981
Þorgeir Þorsteinsson
Úr kennslustund I Bjarkarási.
Kennsla vangefinna
Fyrir nokkrum áratugum var
kennsla vangefinna alls ekki talin
með þegar rætt var um skólamál
eða skólaskyldu. Þeir erfiðleikar
sem fylgdu þvi að eignast vangef-
ið barn voru nánast einkamál for-
eldranna og samfélagið taldi sig
ekki þurfa að veita neina hjálp til
þess aö barnið hlyti kennslu eða
aðra umönnun svo að það gæti
þroskast eðlilega, miðað við hæfi-
leika þess og þarfir. Það fór nán-
ast eftir þroska og næmi foreldr-
anna og annarrra aöstandenda
hvernig til tókst. Vangefið fólk
var oftast nær einangrað heima
hjá sér svo mikib sem kostur var.
Foreldrarnir höfðu minnimáttar-
kennd af þvi að þeir höföu eignast
svona barn, og aörir litu þá oft
meðaumkunaraugum ef þeir sá-
ust með vangefna barnið sitt, eða
reyndu að horfa fram hjá barninu
eins og þaö væri ekki til. Vangefni
var mikið feimnismál sem erfitt
hefur reynst að viðurkenna, jafn-
vel enn i dag.
Meö tilkomu sérkennslulag-
anna frá árinu 1977 hafa fræöslu-
mál vangefinna tekið miklum
breytingum til hins betra. Margt
nýtt hefur komið fram i þessum
efnum og er nú viðurkennd nauð-
syn þess að vangefnir hljóti
kennslu við sitt hæfi.
Kennslufyrirkomulag
Núna eru þjálfunarskólar rikis-
ins 5 talsins og eru starfshættir
þeirra ekki samræmdir að neinu
marki. Þekking og reynsla kenn-
aranna við skólana ákvarðar
hvernig kennslan fer fram. Tima-
fjöldi á nemanda er þó lögbund-
inn.
a. Vangefinn einstaklingur á rétt
á 5 vikustundum (vikustund er
miðuö við einstaklingskennslu,
en kennslustundir á viku veröa
fleiri ef um hóp er að ræða.)
b. Fjölfatlaður einstaklingur á
rétt á 10 vikustundum.
c. Einstakiingur með geðræn
vandkvæði á rétt á 15 viku-
stundum.
Við þjálfunarskóla eru nem-
endur meö greindarvisitölu 0 - 50,
en sumir þeirra eru auk þess lik-
amlega fatlaðir eða með geðræn
vandkvæði. Þjálfunarskólanem-
endur eru þvi mjög ólikir einstak-
lingar og varla hægt að tala um
þá sem eina heild.
Hluti nemendanna er gæddur
þeim félagslega þroska, einbeit-
ingarhæfileika og úthaldi, sem
þarf til að geta nýtt sér hóp-
kennslu, en þá er yfirleitt miöað
við 6 nemendur i hóp. Aðrir nem-
endur þurfa að vera f enn minni
hópum, t.d. þeir sem eiga erfitt
meö að einbeita sér, eöa þurfa
rnikla aöstoð sökum fötlunar.
Einstaklingskennsla er notuö
þegar nemandinn virðist ekki
geta nýtt sér hópkennslu að neinu
marki. Oft er tilgangurinn ein-
mitt að þjálfa nemandann I ein-
beitni, og byggja upp sjálfstraust
til aö hann geti veriö I hóp. Nem-
endur með geðræn vandkvæði
þurfa oft mikla einstaklings-
kennslu.
Lengd kennslustunda er 20 - 60
min. og fer tlmalengd eftir náms-
grein og úthaldi nemendanna.
Námsefni
Eins og nefnt var, er ekki til
nein námsskrá fyrir þjálfunar-
skólana.
Það er kennurum mikið um-
hugsunarefni hvað skuli kenna og
að hvaða marki skuli stefna. Við
reynum aö þreifa okkur áfram,
en tökum námsefnið sífellt til
endurskoðunar.
Viö miðum aö þvi að gera hvern
einstakling færari um að taka
þátt i hinu daglega lifi eftir þvi
sem hæfileikar hans frekast
leyfa.
Dæmi um námsgreinar: sam-
félagsfræði, skynþjálfun (heyrn-
arskyn, form- og litaskyn, sam-
hæfing sjónar og handar, þreifi-
skyn), talkennsla, íþrótta-
kennsla, matreiðsla, talnagildi,
leikþjálfun.
1 samfélagsfræðinni er þeim
meðal annars kennt að þekkja
vörutegundir eftir umbúðunum,
svo sem mjólk og súrmjólk, siðan
er fariö i verslanir og þeim leið-
beint við aö kaupa. Einnig er far-
ið i pósthús, banka og vinnustaði.
Innsýn I umferöarreglur fá þau
lika.
Við iþróttakennslu kemur
þekking á likamanum, ásamt
hreinlæti. I matreiöslu er kennt
um fæðu, mál og vog, almenna
umgengni i eldhúsi.
Akveöinn hópur nemandanna á
af ýmsum orsökum erfitt með
að læra i hóp og verður að veita
honum einstaklingskennslu.
Þar er helst um að ræöa börn með
einhverskonar geðræn vandkvæöi
og nem. á lægra þroskastigi.
Kennsla þeirra barna sem styst
eru komin á þroskabrautinni er
ýmsum erfiðleikum háö. Þau
hafa ekki úthald né skilning,
nema að takmörkuöu leyti og
engin hefö hefur skapast i kennslu
þeirra. Námsefni þessara nem-
enda er mikiö til það sama, en
einfaldaö, eftir þörfum þeirra.
Auk þessa hefur verið skipulögö
þjálfun i athöfnum hins daglega
lifs (ADL þjálfun). I þvi felst að
gera börnin að virkum þátttak-
endum I þvi aö klæðast, matast og
að taka þátt I hreinlætisathöfnum
s.s. þvo sér og greiða sér.
ADL-þjálfun á vegum skólans
er nú aðeins á reynslustigi og ekki
er enn vitað hver stefnan verður i
þessu máli. Eðlilega vakna
spurningar um það hvort þetta sé
verksvið skólans. Við sem vinn-
um verkið teljum svo vera. Skól-
inn á að koma til móts við þarfir
nemandans, hverjar sem þær
eru.
Lokaorö
Engin stofnun hér á landi full-
menntar fólk til þess að sjá um
kennslu i þjálfunarskólunum. Það
er vafamál hvort rétt sé að kenn-
arar einir sinni þessari kennslu.
Við álitum aö þar sem námsefni
er mjög fjölbreytt og ekki siður
vegna þess að nemendur eru á
mismunandi þroskastigi sé æski-
legra að fleiri stéttir starfi við
slika skóla svo sem þroskaþjálfar
og fóstrur.
Nemendur við þjálfunarskóla
eiga rétt á kennslu til 18 ára ald-
urs. Skóli sem þessi er þó svo nýr
af nálinni að nemendur sem nú
eru um og yfir 18 ára aldur hafa
varla fengiö kennslu sem nokkru
nemur og þykir okkur þvi súrt i
broti að sjá á eftir þeim úr skól-
anum. Sumir eru rétt að byrja að
taka við sér. en aðrir komnir
nokkuð áleiöis og myndu geta
nýtt sér áframhaldandi kennslu.
Þessir nemendur þurfa stöðugt
áreiti til þess að halda við þvi sem
þeir hafa lært. Einnig þurfa þeir
eins og aörir einstaklingar að til-
einka sér breytingar og þróun i
samfélaginu. Simenntun er þvi
þessum einstaklingum nauðsyn-
leg.
Viö sem að þessum málum
vinnum, vonum að þess verði ekki
langt að biöa að vangefnum nem-
endum verði bobib upp á fram-
haldsnám, sem þau vissulega
hafa kröfu til eins og aðrir þjóöfé-
lagsþegnar, sem þetta land
byggja.
Hópur kennara við
þjálfunarskólann aö Sólborg.
Bílbeltin
hafa bjargað yxFEROAR
Ritari
Ráðuneytið óskar eftir að ráða ritara.
Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 25.
þ.m.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
13. ágúst 1981.