Þjóðviljinn - 22.08.1981, Side 11
Helgin 22.-23. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA U
kvikmyiMlir
F j ölbrau taskólinn
á Akranesi
Akranes
• •
Oldungadeild
Innritun i öldungadeild fer fram dagana
27. ágúst til 3. september kl. 8—16 daglega.
Fimmtudaginn 3. september verður skrif-
stofa skólans opin vegna innritunar til kl.
19.
Simi skólans er 2544. Kennsla i öldunga-
deild hefst mánudaginn 7. september.
Elisabeth Taylor
Stjörnur á
stjörnur ofan
Rock Hudson
Nú er Margaret gamla horfin á
vit feðra sinna fyrir allmörgum
árum og þvi þurfti að finna ein-
hverja aðra til að leika ungfrú
Marple. Fyrir valinu varð Angela
Lansbury, ensk leikkona sem
varö fræg i Hollywood á striðsár-
unum fyrir að leika „vondar
konur” og gerðist siðan söng-
stjarna á Broadway. Hún er allt
öðruvisi Marple en Margaret
gamla, en hefur þö ýmislegt til
sins ágætis. Vitaskuld stelur hún
senunni af öllum stjörnunum, en
það á hún lika að gera, annars
væri hún engin ungfrú Marple.
Stjörnurnar Beta og Kim, Tony
og Rock eru alveg einsog þær eiga
að vera, og sennilega eru þær
sv<jna i raun og veru: dálitið af-
dankaðar, en búa þó enn yfir þó-
nokkrum sjarma. Geraldine
Chaplin tekst það sem ég helt hún
myndi aldrei geta: að vera frá-
hrindandi og andstyggileg. Og
Edward Fox fer mjög vel meö
hlutverk spæjarans, frænda ung-
frú Marple.
Myndin er dæmigerð afurð
afþreyingaiðnaðarins, tæknilega
fullkomin, ágætlega leikin,
skemmtileg.... Aðeins eitt atriði
finnst mér umhugsunarvert i
sambandi við þessa mynd.
Fyndnin i henni gengur eiginlega
öll út á að gera grin að svona
leynilögregluafþreyingarmynd-
um. Hvað eftir annað er beitt
ráðum sem duga vel til að skapa
gamaldags krimma-stemmn-
ingu, en þegar spennan nær
hámarki reynist hún alltaf vera
byggð á alröngum forsendum. Og
þetta vekur hlátur i áhorfenda-
salnum, einsog til var ætlast.
Upphafsatriði myndarinnar, sem
gerist I kvikmyndahúsi þorpsins,
er einnig gott dæmi um þennan
húmor. Þar er verið að sýna
gamaldags krimma, sem óspart
er gert grin að.
Þetta er mjög langt frá þvi að
vera nokkurt einsdæmi. Húmor
af þessu tagi er áberandi algeng-
ur i afþreyingariðnaði nútimans,
og mér finnst hann bera þvi vitni
við að viö lifum á heldur ófrum-
legum og leiðinlegum timum.
Spegilbrot er i raun ekki annað
en samsafn af gömlum klisjum,
sem framreiddar eru með fyndni
af þvi tagi sem tíðarandinn
krefst. Þessi fyndni er einsog ný
sósa sem hellt er yfir gömlu klisj-
Agatha Christie
urnar sem hafa gengið sér til
húðar. Það er einsog engum detti
neitt nýtt i hug.
Samt sem áður held ég að
engum þurfi að leiðast i Regn-
boganum meðan þessi mynd
verður sýnd þar.
Listinn yfir aðstand-
endur myndarinnar
Spegilbrotsem nú er sýnd í
Regnboganum, er skraut-
legur í besta lagi: sögu-
þráðurinn er spunninn af
Agöthu Christie, leikstjóri
er Guy Hamilton og í helstu
hlutverkum eru Elizabeth
Taylor, Kim Novak, Tony
Curtis, Rock Hudson,
Geraldine Chaplin og
Angela Lansbury. Hvað
viljið þið hafa það betra?
Otkoman er i samræmi við þær
væntingarsem nafnalistinn vekur
óhjákvæmilega, hvorki betri né
verri. Þaö er margt hægt að gera
vitlausara en að skreppa i Regn-
bogann og eyða þar kvöldstund i
þessum forframaða félagsskap.
Þvi einsog kerlingin sagði:
afþreying er lika nauðsyn.
Spegilbrot (The Mirror
Crack’d) segir frá dularfullum
atburðum sem gerast i litlu ensku
þorpi þegar þangað kemur hópur
Hollywoodstjarna að gera kvik-
mynd um Mariu Skotadrottningu.
1 þorpinu býr roskin kona, ungfrú
Marple, sem á frænda i Scotland
Yard. Þetta reynist koma sér af-
skaplega vel þegar farið er að
rannsaka málin.
Agatha heitin Christie var afar
dugleg við að búa til flókin og
dularfull mál, en hún var enn
duglegriaðskapa eftirminnilegar
persónur. Hver kannast ekki við
Hercule Poirot, eða Miss Marple?
Þessi ágætu skötuhjú eru ómiss-
andi hluti af okkar vestrænu
menningu. Ég minnist þess að
hafa séð Miss Marple leikna af
stórkostlegri leikkonu, sem hét
Margaret Rutherford. Hún hafði
allt það til að bera sem hlutverkið
krafðist, var sérviskan holdi
klædd, og óborganlega fyndin.
Ingibjörg
Haraldsdóttir
10% staðgreiðsluafsláttur
eöa góð greiðslukjör
Landsins mesta úrval af reiðhjólum
Reiðhjól fyrir alla
krakka, konur og kalla
Lítið sýnishorn: » *
vm
frá Frakklandi
frá Englandi
frá Italíu
Kim Novak
skrifar
10 gíra hjól
24", 26" og 28'
Gamaldagshjól
Án gira og 3ja gira
Torfæruhjól
16" dekk
Vantar þig öðruvísi hjól?
Hringdu og spurðu eða komdu og skoðaðu,
Við eigum áreiðanlega það sem þig vantar
Mikið úrva/ af
reiðhjó/a varah/utum
Reiðhjólatöskur,
hraðamælar, lásar MjfSlimHI
og margt fleira
Varahluta- og
viðgerðarþjónusta
— Árs ábyrgð
Suðurlandsbraut 30 — Sími 33320
Frá Fjölbrautaskólanum
/
við Armúla
Stundakennara vantar i eftirtaldar
greinar:
Leikfimi pilta, 14 timar.
Leikmennt og fundasköp, 6 timar.
Tónmennt (kórstjórn), 6 timar.
Nánari upplýsingar i skólanum simi 31200.
Skólastjóri.
Aðalfundur
Sjómannafélags Reykjavikur verður
haldinn mánudaginn 31. ágúst n.k. i
Lindarbæ, Lindargötu 9, og hefst kl. 20.
Fundarefni:
1. Venjulegaðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta vel og
stundvislega.
Stjórnin.
Bílbeltin
hafa bjargað ||se™