Þjóðviljinn - 22.08.1981, Blaðsíða 16
IfiSÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 22.-23. ágúst 1981
„Reykjavíkurdagur”
i Grasagarðinum i Laugardal, ásamt forstöðumanni hans Sigurði A. Jónssyni.
Grasagarðurinn
f Grasagarðinum tók Sigurður Albert
Jónsson forstöðumaður hans á móti okk-
ur og fylgdi okkur um svæðið. Hann
nefndi plöntur og gat um nýjungar í
starfseminni og rakti einnig sögu grasa-
garðsins í stuttu máli. Garðurinn er 20
ára á þessu ári og er þess minnst með því
aðsetja upp sérstakt steinabeð, eingöngu
með íslenskum plöntum. Fyrsti vísirinn
að garðinum var lagður á árunum milli
1930 og 1940 af þáverandi eiganda, Eiríki
Hjartarsyni. Árið 1955 keypti Reykjavík-
urborg landið af Eiríki og árið 1961 var
Grasagarðurinn formlega opnaður og
var uppistaða hans þá íslenskar plöntur
sem hjónin Katrín Viðar og Jón Sigurðs-
son skólastjóri gáfu.
Steinabeð með islenskum plöntum sem gert var I tilefni 20 ára afmælis Grasagarðsins
Framhald af 15. síðu
Margt gleður augað I Grasagarðinum
islensk blómarós í réttu umhverfi.
Torfan
Liðið var á kvöld þegar við kvöddum Sigurð og garðinn
og mál til komið að halda niður í Miðbæ á veitingahúsið
Torfuna, þar sem vinningshafanna og gesta þeirra beið
Ijúffeng máltíð. Þar kvöddum við Gunnar Ijósmyndari
þetta sómafólk eftir velheppnaðan dag og er vonandi að
þau hafi haft ánægju af þessum „Reykjavíkurdegi" í
boði Þjóðviljans. —áþj
I