Þjóðviljinn - 22.08.1981, Blaðsíða 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 22.-23. ágúst 1981
dægurtónlist
Third Worla: Michael Ibo Copper/ nl|omborð/ Irvin Carrot Jarret, ásláttar-
hljóófæri/ William Rugs Clark, söngur, gitar, Stephen Cat Coore, gitar, bassi,
söngur, Richie Daley, bassi, gitar, Willie Stewart, trommur.
Third World
— Rock
The World
Lagið Dancing On The Floor
(Hooked On Love) sem nú er
víða ofarlega á vinsældalistum
er eitt tiu laga á nýjustu breið-
skifu Third World, Rock The
World.
Third World var stofnuð á
Jamaica 1973 og var i upphafi
skipuð fjórum mönnum. Siðan
var tveim bætt við og eftir það
fluttu þeir búferlum frá heima-
landi sinu til Englands og hafa
gefiö út eitthvað rétt innan við
tug breiðskifna i þvisa landi.
Þeir sexmenningar spila „Jah’s
music ” að eigin sögn, eða tónlist
til dýrðar Jah, guði þeirra
Rastafaria, og sköpunarverki
hans. Þeir eru sem sagt trú-
bræður Bobs heitins Marley,
Peters Tosh og fleiri reggae-
listamanna. Þeir eru að visu
öllu bliðari i sinum boðskap en
Marley og þótti þeim hann of
herskár.
Rastafari-trúin verður æ út-
breiddari á Jamaica, einkum
meðal þeirra sem minna mega
sin þar, en þeir munu æði
margir. Trú þessi er sam-
tvinnuð leit þeldökkra
Jamaica-búa að uppruna
sinum, en þeir eru afkomendur
afrikanskra þræla sem Bretar
fluttu til eyjarinnar til að vinna
á plantekrum þar. Heim hvita
mannsins kalia þeir Babýlon, en
Afrika er fyrirheitna landið og
þar er framtiðin. Þeirra mess-
ias var Heile Selassie Eþiópiu-
keisari, „Ljónið af Júda”, sem
lést árið 1975. Mér leiðist
reyndar óttalega þetta guðsbull
i þeim (og reyndar fleirum), en
hinu er ekki að neita, að hreyf-
ing þessi er þörf og verður æ
áhrifarikari i þessu guösvolaða
landi, þótt áhrifarikasti postuli
hennar, Bob Marley, sé fallinn
frá. Og hún er þáttur i aö byggja
upp sjálfsviröingu hinna kúguðu
á Jamaica.
En músik var það heillin, og
hana hefur Third World á sinu
vaidi. Third World mun lika
vega sú reggae-hljómsveit sem
hefur náð hvaö viötækustum
vinsældum fyrir utan Jamaica,
að Bob Marley fráteknum.
Sumir landar þeirra hafa
reyndar sakaö þá um að leika
útvatnaða reggae-tónlist. Þeir
félagar haröneita þvi, segjast
að visu breyta henni og vilja ná
til sem flestra eyrna. Third
World sé glaðvær hljómsveit og
hlutverk hennar aö gera hinum
kúguðu i heimi hér lifið léttara.
Ekki litið verkefni það og
margir þeirrar skoðunar að að-
ferð Third World sé seinvirk
nokkuð og marga þrýtur þegar
þolinmæði til aö biöa eftir
árangrinum. A meðan ruggar
„Þriðji heimur” okkur með
góðu reggae blönduðu mismik-
illi „sólmúsik” (soul), sem
jaðrar jafnvel við diskó á
stundum.
Black Uhuru
— Red
Reggae-hljómsveitin Black
Uhuru er álitin liklegust lista-
manna i þessari grein til að fylla
upp i það skarð scm Bob Marley
skildi eftir sig er hann lést.
Engu skal spáð um það hér en
hins vegar er óhætt að mæla
eindregiö með nýjustu plötu
þeirra, Red.
Hér er á ferðinni ekta reggae,
miklu nær rótunum en Third
World, og jafnframt eru lög
Michaels Rose mjög gripandi,
t.d. Youth of Eglington, sem
ætti svo sannarlega vinsældir
skildar. Aðalhljóöfærin eru auð-
vitað bassi og trommur og hér
eru þau i höndum Roberts
Shakespeare og Slys Dunbar,
sem mun forustusauður i
trommuleik á Jamaica. Þeir
félagar stjórnuöu einnig
upptökum á Red og hljóðblönd-
uðu við þriðja mann, en þeir
(Sly og Robert) stofnuðu saman
útgáfufyrirtækiö Taxi á
Jamaica.
Það er Island fyrirtækið sem
gefur út plötur Black Uhuru, en
það fyrirtæki hefur haft forystu
um að kynna reggae tónlist
Jamaica-búa fyrir utan heima-
land þeirra. Stofnandi Island er
Chris Blackwell sem er fæddur
á Jamaica af hvitu fólki kom-
inn. Hann stjórnaði upptöku á
fyrstu ska-plötunni, My Boy
Lollipopp meö Millie Small, og
það leiddi til aö hann stofnaði
Island 1964. 1970 tók hann svo
Bob Marley og Wailers undir
sinn verndarvæng og hefur
haldið tryggð viö reggae allar
götur.
Textarnir hjá Black Uhuru
eru á jamaica-ensku og ef ein-
hverjum finnst Marley hafa
verið illskiljanlegur á stundum
ætti hann að kikja á þessa texta.
Þeir eru náttúrlega i anda
Rastafaria, en efnislega nær
Bob Marley en Third World. Við
skulum svona i lokin lita á eitt
dæmi, Puff She Puff :
Puff she puff no bother puff
pon Rasta
Though she tough no bother
puff pon Rasta
Puff she puff
No bother puff pon Rasta
Making love on hungry belly
I couldn’t cope to long
With my bare long hands
I am embarassed most the time
But it’s not no crime
Children crying day and night
can’t find mummy
A puff she puff no bother
puff pon Rasta she puff she puff
She just a puff pon Rasta
She say rude
Tough she tough hard she hard
A no soft she soft
Puff she puff
She just a puff pon Rasta
Anough she nough you
kinna nough pon Rasta
Money I can hardly find
And white scawl a bite
Simpie things are so serious
In these time
The things that you do and
upset some day and regret
Though tough tough she tough
A puff she puff
No bother puff pon Rasta
(M. Rose)
Umsjón:
Andrea
Jónsdóttir
Þursar í upp-
hafi hringsins
Þursarnir hófu hringferð sina
hinn 18. þessa mánaðar í Sel-
fossbiói og prufukeyrðu pró-
grammið fyrir fullsetnu húsi.
Þetta var þrælskemmtileg
hlélaus kvöldstund og fólk sat
sem fastast og klappaði eftir að
þeir höfðu flutt aukalagið um
Jón kræfa og vildi meira, enda
þótt enginn sé ofsæll af aö gista
sætin f Selfossbiói of lengi. Það
stendur þó greinilega til bóta
samkvæmt þeim fjörkippi sem
hefur hlaupið i smiði nýja sam-
komuhússins þar, enda kosn-
ingar aö nálgast...
Hljómsveitin flutti lög úr
Gretti og annað góð- og nýmeti
og sýndi enn á ný að þar fara
engir aukvisar sem Þursar eru.
Gaman verður að heyra f þeim
þegar þeir loka hringnum og
hafa hrist(st) enn betur saman
á hringveginum.
Vert er að geta þess, að
hljómburður var með ein-
dæmum góður i Selfossbiói
þetta kvöld. Ekki veit ég hvað
sá heitir sem stjórnaði þvi, en
hann á hrós skilið, t.d. fyrir
trommu„effekta”.
Þursarnir verða á Akureyri á
sunnudags- (á morgun) og
mánudagskvöld, eins og fram
kemur i annarri frétthér á sið-
unni.
„Græjurnar” hrelldu
Utangarðsmenn
Tæknileg vandamál léku
lausum hala á hljómleikum
Utangarösmanna um siðustu
helgi. Aöeins helmingur af há-
talaraboxunum virkaði og i
töluverðan tima heyrðist ekkert
i Bubba. Bilunar i tækjunum
varð ekki vart fyrr en átti að
fara aö hleypa inn og dróst þaö
þvi um hálftima.
BARA-flokkurinn byrjaði
hljómleikana og er þar efnileg
sveit á feröinni og stendur fylli-
lega undir þvi sem þeir gera á
hinni nýútkomnu 6-laga plötu
sinni.
Siöan byrjuðu Utangarðs-
menn keyrsluna á sinu pró-
grammi. Aðallega gamalkunn
- lög, en nokkur ný, og það var
einmitt i þeim sem kerfið sveik
áheyrendur um söng Bubba.
Það er gifurlegur kraftur i
flutningi Utangarðsmanna á
rokklögum sínum og þeir voru
samstilltari i sviðsframkomu
nú en áður, þrátt fyrir allar
sögusagnir um upplausn.
Utangarðsmenn luku konsert-
inum með þvi að hefna sin á
græjunum og notuðu til þess
gamalt bragð frá The Who. Af-
leiðingin varð sú aö þeir hafa
þurft að fá sér einhveria vara-
hluti.
Háskólabió virtist fullsetið og
hljómleikagestir ánægðir þrátt
fyrir allar bilanir. Hlerast hefur
að Utangarðsmenn ætli að bæta
fólki upp gallana með þvi halda
frian konsert á næstunni. (Sel
ekki dýrara en ég keypti).
BARA flokkurinn leikur á heimavelli ásamt utanbæjarmönnum —
Þey og Þursum.
Til Akureyringa
Dúllað i Skemmunni: Þann
23. þessa mánaðar mun meiri
háttar tónlistarviðburður eiga
sér stað i tþróttaskemmunni á
Akureyri. Þar munu koma fram
þrjár af okkar bestu hljóm-
sveitum, Þursarnir, BARA-
flokkurinn og Þeyr. Full ástæða
er til að hvetja norðanmenn til
að fjölmenna, þvi að óvist er að
samkoma sem þessi verði
endurtekin á næstu árum.
Dúllað i Skemmunni er til-
einkað þeim mæta manni
Gvendi Dúllara sem frægur var
fyrir dúll á öldinni sem leið.
Hljómleikarnir hefjast kl. 21 og
verð aögöngumiða er 90 kr.
Góöa skemmtun Akureyringar.
—JVS
Takið
eftir
Haldið ykkur fast, spennið
beltin, þvi að nú veröur sagt frá
merkum tfðindum. SATT og
Jazzvakning hafa leigt Félags-
stofnun Stúdenta öll föstudags-
og laugardagskvöld fram aö
jólum til hljómleikahalds.
Fyrirhugað er að tvær hljóm-
sveitir komi fram á hverju
kvöldi, ein „þekkt” hljómsveit
og önnur sem er að stiga sin
fyrstu spor á sviði.
Tónleikarnir munu standa
yfir frá klukkan 21 til mið-
nættis. Þannig að ballsjúk -
lingarnir geti fengiö skammtinn
sinn að hljómleikum loknum.
Guðni Rúnar Agnarsson
Dagskrá mun liggja frammi i
upphafi hvers mánaðar þannig
að umhugsunartimi ætti að vera
nægur fyrir alla.
Guðni Rúnar Agnarssonhefur
veriö ráðinn framkvæmdastjóri
til að sjá um þessi kvöld. Ekki
er að efa aö hann mun standa
sig. Þá er komið að okkar hlut
að hann er sá að láta sjá sig og
það sem oftast. —JVS