Þjóðviljinn - 22.08.1981, Page 28
nafn
vikunnar
formaður um-
hverfismálaráðs
1 byrjun Reykjavikurvik-
unnar lauk framkvæmdum
við útitaflið fræga á Torf-
unni. Er skemmst frá þvi að
segja, að almenningsálitið
virðist hafa snúist á sveif
með taflinu. (Jtivistarsvæöið
á Bernhöftstorfu var ákveðið
af umhverfismálaráði en
formaður þess er Álfheiður
Ingadóttir.
— Nú er gerð hins um-
deilda útitafls lokiö. Hvaða
lærdóma dregur þú af and-
mælum margra borgarbúa
gegn þvi merka tafli?
Þann helstan að þessi
framkvæmd var á engan
hátt nægilega vel kynnt fyrir
borgarbúum. Þaö er skyssa,
sem skrifast veröur á
reikning okkar sem aö þessu
höfum unnið undanfarin tvö
ár. Þaö hefur verið gert allt
of litið af þvi að kynna slikar
framkvæmdir — og ég vona
að við munum standa okkur
betur i þvi hér eftir en hingað
til.
— Nú viröast viðbrögðin i
vikunni benda til jákvæðra
viöhorfa borgarbúa. Kom
það þér á óvart?
Ekki beinlinis, en ég er
mjög ánægð með þær við-
tökur sem þetta nýja úti-
vistarsvæði hefur fengið. Ég
held að það hafi sýnt sig I
góða veörinu undanfarna
daga að svæöið býður upp á
ýmsa aðra möguleika en
taflmennskuna eina. Þegar
búið er að ganga endanlega
frá svæðinu með gróðri og
bekkjum, trúi ég þvi að það
veröi til prýði og gleöi.
— ibúar við Skólavöröu-
stig hafa mótmælt þvi harð-
lega að stöðumælum sé
plantað niður i miðja gang-
stétt. Fellur þetta ekki undir
umhverfismál?
Jú, svo sannarlega. En
eins og verkaskiptingu er
háttað i borgarstjórn fellur
þetta undir umferðarnefnd
en ekki umhverfismálaráð.
Umferöarnefnd sem sam-
þykkti að stöðumælum yrði
komið þarna upp hafði hins
vegar ekki hugmynd um að
ekki væri hægt aö gera þaö
með eðlilegum hætti, úti við
gangstéttarbrún. Ég efast
um að þessi framkvæmd
hefði verið samþykkt i
umferðarnefnd og borgar-
ráði ef það hefði legið fyrir.
Annars á það sama við um
umferðarmálin og taflið.
Það vantar alla kynningu og
samráð við ibúa.
— Af hverju á aö setja
niöur bryggju við Tjörnina?
Tilgangurinn með þeirri
framkvæmd er að bæta
aöstöðu fólks til útivistar við
Tjörnina. Stækka svæðið þar
sem fólk getur setiö og nofiö
þess sem Tjörnin hefur upp á
að bjóða, jafnt um sumar
sem vetur.
— Teflír þú, Alfl?
Já, en tapa oftast. • —óg/m
Álfheiður
Ingadóttir
Fann afgamlan
farmiða í
fólgnum skáp
Her sést miöinn dálitið stækkaður, á bakhlið er augiýsing frá Rydens
kaffi.
Það var dálitið sérkenni-
legt atvik, svo ekki sé
meira sagt, sem skeði á
heimilí stjórnarformanns
Strætisvagna Reykjavíkur,
Guðrúnar Ágústsdóttur, er
hún var, ásamt fjölskyldu
sinni að vinna að við-
gerðum i ibúð sinni einn
góðan veðurdag í sumar.
— Það var núna i júni að viö
vorum við lagfæringar uppi á
annarri hæð i húsi okkar, og þeg-
ar víð höfðum rifið hvert lagið á
fætur ööru af veggfóðri af veggn-
um undir súðinni, þá kom 1 ljós
skápur, byggöur inn undir súðina,
sem ekkert okkar hafði vitað aö
væri til.
Þetta var auðvitaö afar spenn-
andi, ekki sist vegna þess að
skápurinn var læstur og meðan
verið var að finna verkfæri til að
brjóta hann upp var hægt að
reyna að geta sér þess til hvaða
fornminjar og dýrgripi væri
þarna að finna. Það var stór
stund þegar huröin var brotin upp
og börnin stóðu á öndinni af
spenningil
Það kom I ljós að það var ekk-
ert inni i skápnum, ekki svo mikið
sem einn spýtukubbur, — nema
litill gulur og velktur miöi. Viö
tókum miðann til handargagns og
þá kom i ljós aö þetta var farmiöi
meö Strætisvögnum Reykjavikur
h/f, að verögildi 30 aurar og hafði
verið notaður á leiöinni Lækjar-
torg — Kleppur. Og hinumegin á
miðanum er auglýsing sem hljóð-
ar svo: „Rydens kaffi bragöast
best”.
Við höfum reynt að komast að
þvi slðan hvenær miðinn er, en
ekki fengið það á hreint, en miðí
af þessari gerð er ekki til hjá
SVR. Hann virðist vera frá ein-
hverju af upphafsárum strætis-
vagnanna og gæti raunar verið
jafngamall fyrirtækinu.
Þessi fundur vakti mikla kátinu
hjá okkur og þaö hafa margir haft
viö orð, hve furðuleg tilviljun þaö
séað á afmælisári SVR skuli finn-
ast þessi eini gamli miði i fólgn-
um skáp heima hjá stjórnarfor-
manninum.
Guðrún Agústsdóttir með miöann góða. Með henni er Gunnhildur dóttir
hennar. — Myndir Ketiil.
Smiðshöfða 23. Sími: 81299
Aöalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tlma er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfsmenn blaösinsiþessum slmum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Helgin 22.-23. ágúst 1981 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiðslu blaðsins I slma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348