Þjóðviljinn - 25.08.1981, Side 1
UuÐVIUINN
Þriðjudagur 25. ágúst 1981 — 186. tbl. 46. árg.
2% hækkun
á mánuði
__7----á fasteigna-
Ókeypis í strætó:
Helmingi
fleiri
farþegar
Þrátt fyrir leiðindaveður á
sunnudag voru þeir fjölmargir
sem tóku afmælisboði SVR og
fóru ókeypis i strætó þann dag.
Töldu vagnstjórar að farþegar
hefðu verið um helmingi fleiri en
venja er til og siðdegis var
áberandi að heilu fjölskyldurnar
tóku sér ferð borgarendanna á
mdli, fram og til baka. I
vögnunum var skilti, — verið vel-
komin, ókeypis í strætó i dag og
voru menn i hátiðaskapi eins og
vera ber þegar strætó er
fimmtugur. A laugardeginum,
sýndu vagnstjórar nákvæmnis-
akstur á Kirkjusandi og þrátt
fyrirhifandi rok og rigningu voru
margir sem fylgdust með úr
strætisvögnunum.
Nákvæmnisakstur á Kirkjusandi. Ljósm. —gel.
Öðruvísi mér
áður brá:
Gervasoni
í stjórn-
skipaða
nefnd!
Eftir að franski liðhlaup-
inn Patrick Gervasoni var
leystur úr haldi og mál gegn
honum látin niður falla var
hann kosinn ritari einna af
nokkrum samtökum and-
stæðinga herskyldu, GARM.
Þau samtök hafa nú tilnefnt
þennan ritara sinn i stjórn-
skipaða nefnd, sem á að
endurskoða lögin um her-
þjónustu i Frakklandi. Auk
Gervasonis eiga sæti i nefnd-
inni þingmenn og herfor-
ingjar.
Skv. heimildum blaðsins
er Patrick Gervasoni af
þessu tilefni væntanlegur á
fund hermálaráðherrans
Hernu 15. september nk, og
má með sanni segja að skjótt
hafi veður skipast i frönsku
lofti þegar liðhlaupinn hund-
elti er farinn að funda með
herráðamönnum um fram-
tiöarskipan herþjónustu.
— m
Skipulagsnefnd:
Grjótaþorpið var
samþykkt í gær
1 gær samþykkti skipulags-
nefnd deiliskipulag aö Grjóta-
þorpi og er það fyrsta varðveislu-
skipulagið sem gert hefur verið
hér á landi. Þrir fulltrúar meiri-
hlutans samþykktu deiliskipu-
lagið en tveir fulltrúar Sjálf-
stæöisflokksins voru á móti.
Borgarráð og borgarstjórn fá
málið nú til umfjöllunar.
Sigurður Harðarson, formaður
skipulagsnefndar, sagði i gær að
með deiliskipulaginu væri búið að
leysa erfiðasta skipulagshnút
borgarinnar frá upphafi. Þegar
skipulagið hefur verið samþykkt i
borgarstjórn geta fasteignaeig-
endur i Grjótaþorpi i fyrsta sinn i
sögunni fengið að vita hvaða rétt
þeir hafa til uppbyggingar á lóð-
um sinum og um leið hvaða verð-
mæti þeir eru með i höndunum,
sagði Sigurður. Það eitt er mikil
framför.
Sigurður sagði að með sam-
þykktinni væri i fyrsta sinn
stuðlað að varðveislu heils svæðis
með skipulagsaðgerðum og þvi
markaði deiliskipulagið timamót.
Reynslan af framkvæmd þess
mun væntanlega verða fordæmis-
skapandi og til viðmiðunar við
mótun skipulagslöggjafar okkar,
n
sagði Sigurður, en hún er ákaf-
lega vanþróuð með tilliti til varð-
veilsu enda er það hugtak ekki að
finna i lögunum.
— Hvað viltu segja um við-
brögðin við þessu skipulagi og af-
stöðu Sjálfstæðisflokksins?
Deiliskipulagið hefur hlotið
góðar undirtektir, sagði Sigurður.
Hvað afstöðu Sjálfstæðisflokksins
varðar, þá er greinilegt af bókun
þeirra að þeir eru tilbúnir til þess
að halda þessu i hnút áfram
vegna ýmissa aukaatriða, sem
þeir setja fyrir sig. Annars er
þessi bókun i svo miklu ósam-
ræmi við allan framgang málsins
og afstöðu þeirra á fyrri stigum
að hún er naumast marktæk. Tvi-
skinnungurinn er einnig áber-
andi. Þeir segja annars vegar að
ekki sé með skipulaginu nóg aö
gert i friðunarmálum og of fá hús
friðuð en hins vegar leggja þeir til
að allt norðan Bröttugötu að
Vesturgötu verði^ rifið og bygg-
ingamagn þar stóraukið. A þessu
svæði eru einmitt þau hús sem
Húsafriðunarnefnd rikisins
leggur mesta áherslu á að verði
vernduð. Sjálfstæðismenn hafa
ekki komið fram með neinar til-
lögur i þessu sambandi nema
bilastæðahús og svo niðurrif og
meira byggingamagn en þá til-
lögu komu þeir með á siðustu
stigum umfjöllunarinnar i skipu-
lagsnefnd. Þessi málflutningur
þeirra er gjörsamlega óábyrgur
og i algeru ósamræmi við þá
stefnumörkun um varðveislu
þorpsins sem þeir höfðu sjálfir
samþykkt áður, sagði Sigurður.
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt
og Pétur Ottósson þjóðháttafræð-
ingur unnu skipulagiö að Grjóta-
þorpinu.
— AI
Konurtaka kvikmynd'l
II Ánur Ki’acIm'q wmll i.iX L„i'Jll. i.
Hópur breskra kvikmynda-
gerðarkvcnna kom hingað til
lands í storminn og regnið á
laugardaginn og undirbúa nú
kvikmyndatöku upp á Lang-
jökli. Kvikmyndatakan mun
standá fram yfir mánaðamót og
er fjármögnuð með styrk frá
British Film Institute.
Annað aðalhlutverk myndar-
innar leikur breska kvikmynda-
leikkonan Julie Christie og er
rætt við hana og stöllur hennar
og sagt frá kvikmyndatökunni á
bls. 7 hér i' blaðinu.
„öll vinna við myndina er
unnin af konum, nema hvað
nokjcrir karlmenn eru i litlum
hlutverkum. En alla vinnu t.d.
við leikmynd, leikmuni og
tónlist sjá konur um”, sagði
Sally Potter ein af höfundum
kvikmyndahandritsins i viðtali
viö Þjóöviljann i gær.
tn j
li
markaðnum
A öðrum ársfjórðungi þessa árs
hefur hækkun á fasteignaverði
orðið nokkru lægri en hækkun
byggingarkostnaðar á sama
timabili. Fyrstu tölur Fasteigna-
mats ríkisins benda til þess aö
fasteignir hafi hækkað um 2% á
mánuðieða 6% á öðrum ársfjórð-
ungi, sem er mun minni hækkun
en á hinum fyrsta.
Mestu hækkanir á milli mánaða
á þessu ári voru frá janúar til
febrúar en minnstar frá mars til
april. í lok fyrsta ársfjórðungs
hækkuðu fasteignir um 3—4% á
manuði. Fasteignaverð i júni var
nálægt 45% hærra en gildandi
fasteignamat.
I fréttabréfi Fasteignamats
rikisins kemur fram að hinir svo-
kölluðu „visitölusamningar”
gera það að verkum að heildar-
verð fasteigna lækkar um 10% og
útborgunarhlutfaller nálægt 60%,
eða mun lægra en viðgengist
hefur. Enn hefur Fasteignamat-
inu ekki borist svo mikið magn af
slikum samningum að áhrifa
þeirra gæti beint i heildartölum
um fasteignaverð en könnun á
litlu úrtaki slikra samninga
bendirtil ofangreinds. Þegar tiilit
er tekið til lægra heildarverðs
lækkar útborgunarupphæðin um
25—30%. Þó að heildarverð lækki
bætir verðtryggingin það upp
þannig að raungildi verðtryggðra
samninga er ekki lægra en óverð-
tryggðra.
1 fréttabréfinu kemur einnig
fram að áberandi sé að áhvilandi
visitölulán séu „reiknuð upp”.
Eftir að lifeyrissjóðslán urðu visi-
tölutryggð og farið var að reikna
þau lán upp, hafa menn i auknum
mæli gert sér grein fyrir þvi' hvað
raunverulegar eftirstöðvar eru
hærrien eftirstöðvar afnafnvirði.
Sem dæmi má nefna að elstu lán-
in, frá 1. júli 1974 hækka allt að
fjórfalt.
Þau hafa liklega veriö nokkuö
snögg viöbrigöin frá sólinni i
Nigeriu og i gjóstinn á Laugar-
dalsvellinum á sunnudags-
kvöldið. Þaö er Mc. Onwudiwe
þjálfari nigersku knattspyrnu-
mannanna, sem hér vappar, en
umsögn um leikinn er á fþrótta-
siðum i dag. — Ljósm. —gel—
Sjá 10. siðu