Þjóðviljinn - 25.08.1981, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 25.08.1981, Blaðsíða 10
10'SiÐA — ÞJÓÐVILJINft Þriöjudagur 25. ágúst’1981 Fyrsti leik- ur Asgeirs i „Bundes- ligunni” A laugardaginn lék Asgeir Sigurvinsson fyrsta leik sinn meö Bayern Munchen i þýsku úrvals- deildinni. Bayern sigraöi þá Werden Bremen 3-1 i Munchen aö viöstöddum 45 þúsund áhorfend- um. Aö visu iék Asgeir ekki allan leikinn, en engu aö siöur þótti hann standa sig nokkuö vel, og áreiöanlega líöur ekki langur timi þar til Asgeir tryggir sér fasta stööu i þessu heimsfræga liöi. t>essir vösku drengir úr KR uröu á dögunum islandsmeistarar I 5. flokki eftir aö hafa sigraö Þrótt 7-1 i úrslitaleik. Annar frá vinstri I efri röö er þjálfari liösins, Atli Helgason, sem hefur unniö ómetanleg störf viö unglingaþjálfun fyrir KR undanfarin ár. / V iþróttir [/m iþróttir U/ íþróttir Úr einu í annað Urslit í 2. deUd IBt-Völsungur 2-0 Þróttur R-Skallagrimur 1-1 Selfoss-Haukar 1-4 Reynir-Fylkir — leiknum aflýst vegna veðurs. IBK og 1B1 eru 99% örugg um sæti i 1. deild næsta ár, eftir þessa leiki. r r IA Islands- meistari i 3. flokki Skagamenn tryggðu sér Is- landsmeistaratitilinn i 3. flokki, er þeir sigruöu Valsmenn 1-0 á Akureyri um helgina. Bjarki með tvö V-Húnvetningurinn Bjarki Har- aldsson var hetja okkar á Andrésar Andarleikunum, sem haldnir voru i Hróarskeldu i Dan- mörku um helgina. Þcssi 12 ára piltur nældi sér i tvo gullpeninga. Hann sigraöi i 800 m hlaupi (á nýju strákameti 2:16,2) og kúlu- varpi (11,17). Arnar Kristinsson frá Akureyri varð þriöji, i áöurnefndu 800 m hlaupi, og fjóröi i 100 m hlaupi. Lily Viöarsdóttir, 12 ára, varð önnur i 800 m hlaupi, og Gyöa Steinsdóttir, 11 ára, varð önnur i 800 m hlaupi. Ragnhelður fimmta á EM i frjásum Ragnheiöur ólafsdóttir úr FH slóö sig einstaklega vel á Gvrópu- mótinu i frjálsum iþróttum, sem haldiö var i Utreckt um helgina. Hún náöi 5. sæti i 1500 m hlaupi í keppni viö snjöllustu hlaupakonur Evrópu i þessari grein. Egill Eiðsson varö i 12. sæti i undanúrslitum 400 m hlaupsins. Iris Gröndfeldt varð 11. i spjót- kasti, og Heiga Halidórsdóttir 12. i 100 m grindahlaupi. Kristján Harðarson komst ekki i úrslit i stangarstökki. / Danmörk-Island á morgun Nú ætla Danir að viima okkur stórt llann liður okkur áreiöanlega seint úr minni 14-2 landsleikur- inn gegn Dönum i Danmörku 1967. Sem betur fór tókst okkur islendingum aö rétta úr kútnum eftir þá meöferö, og á siöustu árum hefur árangur landsliös- ins oft verið með ágætum. Sárin eru gróin. Siðan 1967 höfum viö leikið 4 landsleiki gegn Dönum, og yfirleitt ekki þurft aö skammast okkar fyrir þá. 1970 var leikið i Reykjavik, og þeim leik lauk meö jafntefli 0-0. Tveimur árum siðar cr aftur leikiö hér heima, en þá sigra Danir 5-2. í þeim leik vakti mikia athygii mjög smávaxinn danskur leikmaöur, sem oft lék okkar menn grátt. Nafn hans er Alan Simonsen. 1974 er leikiö i Alaborg og enn sigra Danir, en nú naumlega 2-1. Siöast lékum við viö Dani 1978 i Reykjavík og varö þaö markalaus leikur. Ekki er laust við að menn hafi meiri áhyggjur af leiknum við Dani ytra á morgun, en vera þyrfti. Er það aðaliega vegna þess, að aðeins tveir af atvinnu- mönnum okkar, þeir Magnús Bergs og Orn Oskarsson koma til með að leika þann leik. Hinir fá ekki fri frá félagsliðum sin- um. Við þetta bætist að Danir verða með sterkt lið og meðal annars kaila þeir til sin menn, sem leika með atvinnumanna- liðum á meginlandinu. Þar á meðal er áðurnefndur Simon- sen, en hann er eins og knatt- spyrnuáhugamenn vita, einn besti leikmaður Evrópu. Ekki bætir það úr skák, að leikmenn danska landsliðsins vita, aö sigri þeir ekki lsiands og það stórt, verður hiegið að þeim og litiö úr beim gert á annan hátt, ekki sist i dönsku blöðunum. Undirritaður skal viðurkenna, að hann er dálitiö hræddur um úrslit þessa leiks, og teiur hann ákaflega mikilvægan fyrir okkur. Hvernig skal þá taka á móti danskinum? Hvernig leik- aöferö skai nota? Hvaöa leik menn eru best til þess fallnir að leika þennanerfiöa leik? Hvaða vopn höfum við á móti hinum léttleikandi Dönum? Ljóst er, að við veröum að ieggja höfuðáherslu á sterkan varnarleik, og treysta á skyndi- sóknir er þær gefast, og okkar fljótu framherja. Fáa menn eig- um við betri til að berjast af grimmd i bakvaröastöðu i svona leik en örn Óskarsson. Hann sýndi að visu ekkert sérstakt gegn Nigeriumönnum, en sá leikur var ekki að hans skapi. Orn vill „fæting” en þá nýtur hann sin best. Við verðum að nota þá menn er hafa mikla reynslu sem landsliðsmenn. Þar er fremstur i flokki Marteinn Geirsson. Ýmsirhalda þvi fram aö Marteinn sé farinn aö dala, en undirritaður er ekki alveg til- búinn aö skrifa undir það. Mart- einn, auk þess að hafa mikla reynslu, er traustur leikmaður sem bregst ekki. Hann ætti að geta skilað „sweeper” stöðu með prýði. En hverjireiga þá að vera miðverðir fyrir framan Martein? Sigurður Halldórsson og Sævar Jónsson eru báðir traustir leikmenn og eru sjálf- sagðir sem miöverðir fyrir framan Martein. Árni Sveinsson hefur áður leikið sem bakvörður með islenska liöinu með miklum ágætum, og þvi ætti hann að spjara sig vel i þeirri stöðu gegn Dönum. Þó Magnús Bergs hafi ekki sýnt neitt sérstakt i landsleikn- um á laugardaginn, veröur vart framhjá honum gengið, þegar tengiliðir verða valdir. Sá er þetta skrifar veit að Magnús er góður knattspyrnumaður og dugnaðarforkur. Sigurður Lárusson hefur sýnt mjög góða leiki meö Skagamönnum i sumar, og þessi mjög svo sterki leikmaður myndi ekki taka á Dönum með neinum vettlinga- tökum á miðjunni. Pétur Ormslev er i toppformi um þessar mundir, og ætti að koma okkur mjög vel sem sóknar- tengiliður. Lárus Guðmundsson hefur staöið sig einna best miðherja i 1. deildinni, og sömu sögu er að segja um Sigurlás Þorleifsson, enda eru þeir markahæstu menn deildarinnar, þeir gætu unnið vel saman sem mið- herjar. Ekki má gleyma markvörö- unum. Þorsteinn Bjarnason og Guðmundur Baldursson eru mjög traustir sem slikir, en hafa ber i huga að Þorsteinn hefur meiri reynslu, og þvi væri e.t.v. rétt að láta hann byrja i markinu. Danireruleiknari enviö. Þeir spila betri knattspyrnu. Við höf- um hins vegar leikmenn sem eru tilbúnir að berjast, og koma i veg fyrir að Danir nái upp góð- um samleik. Með mikilli bar- áttugleði og siðast en ekki sisl með samheldni og einhug ættu strákarnir ab geta veriö sér og okkur öllum til sóma. Hægt er að ná langt, þó fyrst og fremst sé leikið með „hjartanu”. Þjóð- viljinn óskar leikmönnum góðrar ferðar, og vonar svo sannarlega að þeir nái að sýna góðan leik. Þá þari engar áhyggjur að hafa. Gangi ykkur vel strákar. —B. Vonandi veröur ekkert af svonalöguöu, eins og mynd þessi sýnir, uppi á teningnum i leiknum viö Dani á morgun. Myndin, sem — gel — tók.sýnir fyrra mark Manchester City gegn landsliöinu á dögunum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.