Þjóðviljinn - 25.08.1981, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 25.08.1981, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 25. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 frá ISI Ofbýður léttlyndi Ástæðan fyrir þessum skrif- um er sú, að mér oíbýður létt- lyndið i skrifum blaðsins um dægurtónlist. Blaðiö er mál- gagn sósialisma og verkalýðs, en ekki auglýsingabæklingur Steinars hf. eða annarra full- trúa poppkapitalismans. Hvað kemur islenskum verkaiýð við hvort önnur plata ensku skallapopparanna i Any Trouble sé skárri en sú fyrri? Eða þá lofræðan um Janis lan og allar hinar poppstjörnurn- ar sem hafa þvi einu hlulverki að gegna að sljóvga alþýöuna? Þessar poppstjörnur teija sig ekki hafa neitt að segja um hluti sem skipta máli, þær yppta öxlum og segja, að nógu margir séu til að taka málstað þeirra sem minna mega sin. Þvi miður er sú ekki raunin, en engu að siður eru til popp- stjörnur sem styöja sósial- isma og verkalyð i orði sem á boröi. I Bretlandi eru það t.d. Mekons, The Pop Group, Tom Robinson, Gang ol 4, Clash, Crass.Linton Kwesi Johnson, UB 40, The Beat o.m.fl.. 1 Bandarikjunum eru það Dead Kennedys, Bruee Springsteen, Gil Scott-Heron, Tom Paxton o.m.fl., og i Þyskalandi Nina Hagen, Splitt, Wolf Bierman o.m.fl.. Hérlendis eru það Utangarðsmenn og Bubbi, Tolli, Taugadeildin, Spilafifl, kamarorghestar, Orghestar, Án Orma, Megas og m.fl..Ég gæti haldið áfram að telja lengi enn, en ég læt hér staðar numið. Þær poppstjörnur sem ég hef þegar talið upp eru allar mjög vinsælar og þekktar. Samt eyðir málgagn sósial- ismans siðu eftir siðu undir Any Trouble og Janis Ian. Ef svo heldur áfram sem horíir liður ekki á löngu þar til popp skribentar blaðsins lara að leggja metnaðsinn i aö ná sem lengstum viðtölum viö fasista á borö við Erie Clapton, David Bowie, Valla i Fræbbblunum og Magga i Brimkló. Hvert erum við þá komin? Sveinn Sigurðsson Hringið í sima 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum lesendum s tb m QA HEfr/ E/A F) N kiST /\£> V APv P* í-0 A-Ð cÝM FlE’tMt sAKAM/\L4 , féjT) E\NÍ0OG- UE'NN qAROÖAAIMn m Elskulegum vatns- veitumanni þakkað Helga Valdimarsdóttir i Keykjavikhringdi og átti fróð- legt og skemmtilegt spjall við blaðamann um eitt og annaö, aðallega um húsnæðismál. Hún á ibúð sem hún heíur leigt út, en fengið mjög misjafna leigjendur, og lagði áherslu á, að hræösla viö lélega umgengni leigjenda ætti sinn þátt i að húseigendur væru tregir til að leigja. Það væru margir sem kviöu örlögum mannsins sem sagt var frá i Dagblaðinu á dögunum, og fékk ibúð sina i rúst eftir leigu. Helga og blm. komust að þeirri niðurstöðu, aö ef samn- ingar væru gerðir i samræmi við lögin nýju ætti þetta ekki að koma fyrir. Helga benti lika á, og það tekur blm. heils hugar undir, að leigusölum sé hollara að taka tryggingu, 1—2 mánaða leiguupphæð, i stað þeirra óhóflegu lyrirfram- greiðslna sem nú tiðkast. ,,Það er nú alltof mikið kvabb og nöldur i blöðunum”, sagði Helga að lokum ,,og mig langar að bregða útaf venj- unni. Móðir min á tiræðisaldri varð fyrir þvi að vatnskassinn hennar bilaði. Hún leitaði i allar áttir, og fékk enga hjálp þangað til það kom maður frá Vatnsveilunni, mjög elsku- legur, og lagaði þetta fyrir hana. Eg vil koma á framfæri þökkum til þessa manns og til Vatnsveitunnar. Þessi opin- beru fyrirtæki fá vist ekki alltof mikið hrós.” Þvi er hérmeð komið á framfæri, og Helgu þakkað kærlegafyrirspjallið. —m Barnahornid Hvaða skepnur eru þetta? Dragið línu frá a og áf ram eftir staf róf inu. rO V *i % \ 0 6 © ©' .m «P © e g h «# © © #| ®r ®o Umræður í sjónvarpssal: Lýðræðið í verka- lýðshreyfiiigunni Magnús L. Sveinsson Vilmundur Gylfason Eðvarð Sigurðsson Fréttastofa sjónvarps lagði fram tillögu i siðustu viku i út- vaipsráðium gerð umræðuþátt- ar um eftirfarandi efni: ,,Er lýðræði i verkalýðshreyfing- unni?” Það hefur frést-að mörgum útvarpsráðsmanninum hafi þótt skjóta þar skökku við, er berg- málið af ruglukollshætti og frústrasjónum hlutverkalausra stjórnmálaleikara gæti leitt til annarrar eins tillögu. Að loknum umræðum og at- hugasemdum var þó samþykkt að ræða þessi mál en undir ann- arri yfirskrift: „Lýðræði i verkalýðshreyfingunni”. Mörgum verður eflaust spurn hvers vegna þetta efni er sett á oddinn núna og hvers vegna verkalýðshreyfingin er á þenn- an máta dregin fram isviðsljós- ið frekar en önnur félagasamtök i landinu? Ef að lýðræði skal þýða at- kvæðisréttur hins almenna fé- laga i verkalýðsfélögunum og möguleika hans til þess að hafa áhrif I ákvarðanatöku, þá rfkir með þeim hvorki meira né minna lýðræði heldur en i öðr- um islenskum félagasamtökum eða i islensku samfélagi i heild. Þetta veit alþjóð þó einstaka menn þreytist seint á að þrasa ,,um keisarans skegg” og fái jafn vel styrk af almannafé til þess aö gera það opinberlega. Þetta er umræðuþáttur i beinni útsendingu undir stjórn Ölafs Sigurðssonar frétta- manns. Fjdrir menn ræða efnið við hringborð, þeir Eðvarð Sig- urðsson formaður Dagsbrúnar, Guðmundur Sæmundsson verkamaður á Akureyri, Magn- ús L. Sveinsson formaður Versl- unarmannafélags Reykjavikur og Vilmundur Gylfason alþing- ismaður og ritstjóri. Auk þess- ara mun ólafur ræða við þá Guðmund H. Garðarsson fyrr- um formann VR og Björn Bjarnason fyrrum formann Iðju. Viðfangsefni umræðnanna verður að sögn Ölafs, spurning- in um það hvort uppbygging verkalýðshreyfingarinnar sé á þann veg að lýöræöisleg geti tal- ist, enþað telur Vilmundur að sé ekki eins og kunnugt er. Auk þessa velta menn fyrir sér hvort vinnustaðurinn sé heppileg samningseining, en það telur Vilmundur að sé og ennfremur hvernig skýra megi lélega þátttöku hins almenna fé- laga i verkalýðshreyfingunni en þviergjarna haldið fram aðþar sé félagsþroski á lægra stigi en annars staðar. Sjónvarp kl. 21.35 Frá Grlmsey. Héðan og þaðan að norðan Hann er enn á norðan i kvöld, og Guðbrandur Magnússon ætlar aö rabba um hitt og þetta úr fjórðungnum, nýtt og gamalt. Rætt veröur við og um Árna Bjarnason bóksala og útgefanda á Akureyri, sem nú hefur gefið út um 100 bækur, flestar um vesturislensk efni. Fluttur verður pistill um skákáhuga Grimseyinga, og fjallaö um akureyska sögu. Noröan þáttur Guðbrands sem verið hefur einkar áheyrilegur hefst i útvarpi klukkan 22.35. Útvarp kl. 22.35

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.