Þjóðviljinn - 29.08.1981, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 29.08.1981, Qupperneq 3
Helgin 29.-30. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 krikmyndrir Þunnur þrettándi Svo virðist sem breski leikarinn og leikstjórinn David Hemmings hafi ætlað að búa til merkilega mynd um ástandið í Þýskalandi milli stríða, þegar hann tók til við að stjórna ,,Just a Gigolo" (Hlaupið í skarðið, Háskólabíó). Upphafs- atriði myndarinnar benda til þess að hér sé á ferðinni Marlene Dietrich David Bowie athyglisverð mynd, ekkert venjulegt rusl. En eftir- væntingarf ullur áhorf-- andinn verður brátt fyrir vonbrigðum. í fyrsta lagi er einsog David Hemmings hafi ómögulega getaö gert upp viö sig hvort hann ætlaöi aö búa til harmleik, gleöileik, farsa eöa melódrama. I ööru lagi er einsog gleymst hafi aö binda saman marga lausa enda, og þeir dingla lausir i myndarlok, öllum til ama. Auk þess hefur leikstjór- anum ekki tekist aö fá leikarana til aö leika almennilega, og þaö má merkilegt heita, ef haft er i huga aö leikstjórinn er sjálfur leikari og aö margt frægra leik- ara kemur viö sögur. Sorglegast 'af öllu er kannski meöferöin á Marlene Dietrich, sem þarna kemur fram i fremur litlu hlutverki, og syngur titil- sönginn Just a Gigolo.Þeim sem muna Marlene Dietrich einsog hún var hér áöur fyrr er svo sannarlega enginn greiöi geröur meö þvi aö sýna þeim hvilik hryggöarmynd hún er oröin núna: andlitiö stift einsog grima, augun sljó, röddin brostin. Þegar svona er komiö fyrir fólki á þaö aö fá aö vera i friöi fyrir kvik- myndafólki sem áreiöanlega hugsar ekki um annaö en aö græöa nokkrar aukakrónur út á nafniö fræga. David Bowie hefur mér alltaf fundist fremur fráhrindandi náungi, og ekki batnar álit mitt á honum eftir aö sjá hann i þessari mynd — nema siöur sé. Honum viröist vera gjörsamlega fyrir- munaö aö leika þetta hlutverk, meö þeim afleiöingum aö viö vitum næsta litiö um lautinant Przygodsky þegar upp er staöiö, og er þó ævi hans þaö sem myndin snýst um. Þaö kann aö vera nokkuö til i þvi sem einn ágætur vinur minn sagöi um þessa mynd, aö hún væri grinmynd um uppgang fasismans i Þýskalandi, gallinn væri bara sá aö viö gætum ekki tekiö sliku grini, okkur þætti fas- ismi ekki fyndinn. En ýmislegt bendir þó til aö ætlunin hafi ekki veriö aö gera grin eingöngu. Aöalsöguhetjan, Przygodsky, er prússneskur liösforingi sem kemúr á vigvöllinn rétt i þann mund sem fyrri heimsstyrjöld- inni er aö ljúka, og getur þvi ekki látiö hetjudraum sinn rætast. Honum tekst þó aö fá sprengju- brot I hausinn. En aö striöinu loknu finnst honum tilveran næsta fánýt, og hann vill ekki viöurkenna ósigur Þjóöverja. Ekki er hann einn um þetta sálarástand. Kraft kapteinn (David Hemmings) er sama sinnis og ákafur i aö gera eitthvaö i málinu. Hann hefur þvi neöan- jaröarstarfsemi I orösins fyllstu merkingu: býr um sig i neðan- jaröarlest undir Berlin, og safnar um sig hjörö af ungum, sætum strákum sem brátt fara aö þramma einkennisklæddir um göturnar. Przygodsky er i uppáhaldi hjá Kraft og þeir viröast búa saman um hriö. Ekki eru hommasambandi þeirra gerö nein skil, en einhverra hluta vegna veröur Przygodsky ekki einn af þeim sem þramma um göturnar. Hann kýs heldur að gerast „gigolo” (sem i islenska textanum er ýmist þýtt sem „þarfanaut” eöa „leigudansari”) á skemmtistaö sem Marlene Dietrich rekur fyrir rikar og þurf- andi konur. Einskonar kvenkyns hliðstæöa Przygodskys er stúlkan Silly, sem leikin er af Sydne Rome. I upp- hafi er hún kölluö sósialisti og byltingarsinnuö götusöngkona, en þar sem byltingin lætur á sér standa fer hún út i aöra sálma, syngur á kabarett og kemst loks til Hollywood og fær rlkan prins fyrir eiginmann. Henni gengur aö visu betur i líf- inu en lautinantinum, en vel- gengni hennar er fólgin i að selja sig. Niöurlæging þeirra er i raun- inni sambærileg, en Silly gengur betur, kannski vegna þess aö þaö er konum „eölilegra” aö selja sig? Hafi ég lesiö rétt úr stein- runnum andlitsdráttum David Bowie, þá kann Przygodsky illa viö niöurlæginguna. Silly er alveg sama, enda hefur hún efni á þvi aö kaupa sér þjónustu þarfa- nautsins hvenær sem henni sýnist, m.a.s. á brúökaupsnótt hennar og prinsins gamla. Þýskaland milli striöa hefur veriö nokkuö vinsælt viöfangsefni kvikmynda, og hafa margar ágætar myndir veriö geröar um þetta timabil. Frægastar eru sjálfsagt Kabarett eftir Bob Fosse og Slöngueggiö eftir Bergman. Smám saman hefur oröiö til klisjukennd mynd af timabilinu, þar sem spillingin er i hásæti. Just a Gigoloer uppfull af klisjum i þessum dúr. Höfundar hennar fá aö visu nokkrar hug- myndir sjálfir, en þeim tekst ekki aö vinna úr þeim aö neinu gagni. Útkoman er léleg einsog viö mátti búast. Þetta skrifast á reikning handritshöfundar og leikstjóra: myndin er einfaldlega klaufalega skrifuö og ófrumleg, og leikstjór- inn hefur ekki þaö til brunns aö bera sem þarf til aö gera sæmi lega mynd eftir lélegu handriti. ELDAVÉL OFN GRILL POTTUR OG PAIMIMA, eöa pvísem næst! Nýja rafmagnspannan frá Oster gerir þér mögulegt að sjóða, steikja og baka án þess að þurfa að standa yfir pönnunni allan tímann. Með forhitun og hitajafnara geturðu eldað alltfrá kjötréttum til pönnusteiktra eftirrétta - að ólgeymdum pönnukökum - á næstum því sjálfvirkan hátt. Komu og skoðaðu gripinn í verslun okkar! A Bílbeltin hafa bjargað y^FEROAH Óvenjulega hagkvæm kjör — — Við sendum bæklinga til ykkar ef óskað er. FLUG: EXCURSION f jölskylduafsláttur APEX Verðfrá kr. 2.237,- HÖTEL: Penta — International — Stratford Court — Clifton Ford— Londoner — Drury Lane— Piccadilly. Ferdaskrilstofa KJARTANS HELGASONAR Gnodavog 44-104 Reykjavik - Simi 86255 FRIIÐ: Fiesta — Escort — Cortina — Cortina station. 3000 milur innifaldar i hálfan mánuð eða meira. Húftrygging og verðið er frá kr. 1.900,- Öll hótel miðsvæðis, með baði, wc og litasjónvarpi. Verð f rá 12 pundum á mann, miðað viðtveggja manna herbergi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.