Þjóðviljinn - 29.08.1981, Qupperneq 5
Helgin 22.-23. ágúst 1981 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 5
Sigríður
Þorsteins-
dóttir
90 ára
31. ágúst
90 ára verður á mánu-
daginn, 31. ágúst, Sigriður
Þorsteinsdóttir, Eyrarvegi
13, á Akureyri.
Sigriður var lengi i hópi
virkustu félaga i stjórnmála-
samtökum sósialista og i
verkalýðshreyfingunni á
Akureyri.
Eiginmaður Sigriðar er
Tryggvi Helgason, fyrr-
verandi formaður Sjó-
mannafélags Akureyrar.
Þjóðviljinn sendir Sigriði
afmæliskveöjur og þakkar
þátt hennar i verkalýðs-
baráttunni á liðnum árum.
Minning;
Jónína Kristín
Benediktsdóttir
Fœdd 31. 1. 1888 — Dáin 19.8. 1981
Þeir sem kynntust Jóninu
Benediktsdóttur eru sjálfsagt
allirsammála um, að minningar-
grein um hana hlaðin miklu lof-
skrúði er ekki i anda Jonnu.
Það var einmitt þessi hógværð
og auðmýkt sem vakti einlæga
virðingu allra, sem kynntust
henni.
Það er hreint ekki svo litill
hvalreki á fjörur barnssálna i
mótun aðbera gæfu til að kynnast
slikri manneskju, en hennar urð-
um við systkinin aðnjótandi.
Minningar frá þeim tima, er
Jonna gekk okkur i ömmustað,
hafa verið veganesti sem gott
hefur verið að gripa til á flóknum
leiðum.
„Allar manneskjur eru góðar,
þeim liður bara misvel”. Það var
lifsspeki, sem mótaði viðhorf
Jonnu til náungans. Ekki bara i
orði heldur streymdi hún frá
henni með hlýju viðmóti til allra,
sem umgengust hana.
Sjálfsagt hefur Jonna haft sina
galla eins og aðrir og hún hefði
alls ekki viljað að neitt væri þar
undan dregið i grein sem þessari,
en þá getum við bara ekki munað
svo vel sé, og vonandi fyrirgefur
frænka okkur það.
Þessum linum er ekki ætlað að
verða úttekt á 93 ára lifshlaupi
þessarar konu, sem fékk margt
að reyna i sinni jarðnesku dvöl.
Aðeins kveðja og þakkir til Jonnu
sem átti sér eitt höfuðmarkmið i
lifinu: Að vera góð mannesskja,
og það tókst.
Halldór og Heiðdis
DODGE ARIES
DODGE ARIES hefur slíka kosti að hann var kjörinn „Bíll ársins1981.“
í Bandaríkjunum. DODGE ARIES er framhjóladrifinn fjölskyldubíll,
með 4 cyl. vél, auk þess búinn sjálfskiptingu, aflhemlum og vökvastýri.
DODGE ARIES eyðir rétt rúmlega 9 I. pr. 100 km. í blönduðum akstri,
en í Sparaksturskeppni BÍKR 17.5.1981 eyddi hann aðeins 8,3 I. pr.
100 og er það afrek sem fáir bílar leika eftir þessum verðlaunahafa.
DODGE ARIES er lúxusbíll hinna vandlátu og er ótrúlega ódýr miðað víð
alla aðra sambærilega bíla miðað við útbúnað og aukahluti. Láttu ekki
lyklana að lúxusbílnum DODGE ARIES bíða eftir þér.
& \\Tökull hf.
Ármúla 36 Sími: 84366
Aukin skyndihjálp
— námskeið I.
Rauði Kross íslands efnir til námskeiðs
fyrir skyndihjálparkennara i aukinni
skyndihjálp og hjartahnoði dagana 30/10
til 2/11 n.k. i kennslusal RKl, Nóatúni 21,
Reykjavik. Þátttökugjald er kr. 250. Um-
sóknarfrestur er til 7. sept. Tekið verður á
móti umsóknum i sima 91-26722 þar sem
einnig verða veittar nánari upplýsingar.
Rauði Kross íslands
Við erum þessa dagana að taka fram nokkur söfn fs-
lenskraogerlendra bóka af ýmsu tagi. Hér er um að ræöa
gamlar bækur og nýjar, allt frá prentsmiðjunni á Hólum i
Hjaltadal til vorra daga.
Nokkur dæmi:
Nokkrarsögureftir Halldór frá Laxnesi, kápueintak af fá-
gætustu bók höfundarins, prentuö i Reykjavik 1923 (sér-
prentúr Morgunblaðinu), Sjálfstætt fólk l-2,frumútgáfan
með kápum i handgerðu skinnbandi, Þóröur gamli halti
eftir Halldór Laxness, hin fræga saga, frumútg., Húss-
postilla Jóns biskups Vidalins, „Vidaltnspostilla”. V.
prentun, Hólum 1723, bundin i lista band, Ævisaga Gizurar
Þorvaldssonareftir dr. Jón Þorkelsson, Rvik 1868, Skaft-
fellskar þjóósögur, útg. Guðm. Hoffells, Hrynjandi is-
Ienskrar tungu eftir Sigurð Kristófer Pétursson, flestar
bækur Guömundar Finnbogasonar, Veraldarsaga Sveins
frá Mælifellsá, Veraldarsaga, útg. Jakob Benediktsson,
Stafrófskver Hallgrims Jónssonar, Kvæöi eftir Huldu
skáldkonu (frumútgáfan), Revian Spánskar nætur,
ób.m.k., Lilja Eysteins munks, Vesturlöndeftir Agúst H.
Bjarnason, Viö andlát ihaldsins eftir Ólaf Friöriksson,
DægradvöIGröndals, Fra Islands Næringsliveftir Bjarna
Jónsson frá Vogi, Saga tsraelsþjóöarinnar eftir dr. As-
mund Guðmundsson, Fjalliö, hin fágæta skáldsaga eftir
Jökul Jakobsson, Regn i mai eftir Einar Braga, Astir
samlyndra hjóna eftir Guöberg, Sagastudier, afmælisrit
til dr. Finns Jónssonar, Afmælisrit til dr. Einars Arnórs-
sonar (upplag 300 eintök), Oröabók Cleasbys, Kortasaga
tslands 1-2 (i hylkjunum), Um fslenzkar orömyndir á 14.
og 15. öldeftirdr. Björn Karel Þórólfsson, Hestar og reiö-
menn á islandi, Skagfirzk fræöi I-VIII, (þ.á.m. Asbirn-
ingar), Stjórnaróöur eftir Gisla Konráðsson, Andstæöur
eftir Svein frá Elivogum, Söguþættir landpóstanna 1-3,
Ljóðagrjót eítir Jóhannes Kjarval, Söngbók Stúdentafé-
lagsins i Kaupmannahöfn („Brennivinsbókin), úrvals
eintak, Sælueyjan eftir Strindberg, Gamli maöurinn og
hafið eftir Hemingway, Horfin sjónarmið eftir James
Hilton, Myndin af Dorian Grayeftir Oscar Wilde, Gróbur
jarðareftir Hamsun, Garðablóm I litum, Villiblóm ilitum,
. Rimur af Oddi sterkaeftir Orn Arnarson, Þjóðsögur JÍns
'Arnasonar I-II, úrvals handunnið skb., Stamtavie for
Slægten Storr, ólafs rima Grænlendingseftir Einar Bene-
diktsson, Tanker undervejseftir Ingibjörgu Ólafsson, Um
Grænland eftir dr. Helga Pjeturss og Finn Jónsson,
Réttarstaöa lslands eftir Einar Arnórsson, Runeind-
skriftet i Piræuseftir C.C. Rafn, ásamt eiginhandarbréfi
frá höfundi, Origines Islandicae I-II eftir Guðbrand Vig-
fússon og F.Y. Powell, Antiquitates Americanæeftir C.C.
Rafn, Um bragfræði islenskra rimna.eftir Helga Sigurðs-
son, Grasafræði eftir Helga Jónsson, Hornstrendingabók
Þórleifs Bjarnasonar, Skútuöldinl-2,ób. góð eintök, Barð-
strendingabók, Ævisaga sr. Jóns Steingrimssonar, Minn-
ingar Guömundar á Stóra-Iiofi, Sögukaflar af sjálfum mér
eftir sr. Matthias (ób. eintak meö kápu), Stóra Fuglabók
Fjölva, Reykjavikurbiblian 1859, úrvals skinnband, The
American Pcoples Encyciopedia 1-20 (1964), Timarit Máis
og menningar 1938-1962 og ótal aðrir skemmtilegir og
fróðlegir hlutir nýkomnir.
Við kaupum og seijum allar istenskar bækur. Þessa stund-
ina höfum við bækur prentaðar frá 1501-1981, auk þess
smáprent, islensk póstkort, islenska gamla muni (minni
gerðar), heilleg timarit, gamlar ljósmyndir. Eigum þessa
stundina gamalt fjölskyldualbúm, bundið i alskinn með
mörgum gömlum Ijósmyndum, flestum i kabinettstærð.
Gefum reglulega út verðskrár um islenskar bækur. Þeir
sem óska að fá þær sendar vinsamlega skrifi eða hringi.
Sendum i póstkröfu hvert sem er. Vinsamiega hringiö,
skrifið eöa litið inn.
BÓKAVARÐAN
Gamlar bækur og nýjar -
Skólavörðustig 20
Reykjavík. Simi 29720