Þjóðviljinn - 29.08.1981, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 29.-30. ágúst 1981
í Þjóð-
minja-
safni
Hefur þú komiö í Þjóð-
minjasafnið? — Ef ekki þá
ættir þú að drífa þig — með
alla f jölskylduna. Svo ein-
kennilega sem það
hljómar, er það samt sem
áður satt, að f jöldamargir
islendingar hafa ekki
komið i Þjóðminjasafn is-
lands, þótt þeir hafi ef til
víII skoðað f jölda safna er-
lendis. Við litum við í Þjóð-
minjasafninu á dögunum
og smelltum af nokkrum
myndum og spjölluðum við
fólk.
Dóróthea Stephensen gæslu-
kona sat inni i „músikherberg-
inu” þar sem ýmiss konar hljóö-
færi eru geymd, — langspil,
fiölur, orgel og pianó.
,,Og þetta skrifborö er ættar-
skrifborö Stephensenanna, fyrst
átti þaö Olafur og siöan Magnús
Stephensen”. Dóróthea sýndi
okkur þvi næst inn i baöstofuna,
en s.l. vor var flutt baöstofa frá
Skaröi i Dölum og sett upp i bjóö-
minjasafninu.
,,I þessari baöstofu var búiö
fram til 1957 og hér i loftinu má
sjá svertu eftir reyk, þvi hér var
eldaö I endanum”, og hún bendir
upp i rjáfriö. Baöstofan er meö
rúmum, rúmfötum og húsgögn-
um og meöan viö skoöum hana
koma fjöldamargir útlendingar
að forvitnast um þessi hýbýli for-
feöra okkar.
Við höldum áfram göngu okkar
um safniö og inni viö stórt og
fallegt útskoriö altari hittum viö
Monicu Lauritzen frá Gautaborg.
„Eg er hér á þingi fjölmiöla-
fræöinga og er aö nota timann til
aö kynnast menningu og sögu ts-
lendinga”, segir Monica aðspurð.
Hún kvaöst alltaf reyna aö skoöa
minjasöfn þegar hún ferðast til
annarra landa, þvl þaö segir
henni svo mikiö umþjóöina. Viö
spuröum hana hvaö hún skoðaöi
helst á söfnum.
„Ég hef mestan áhuga á aö
skoöa handverkiö, — hvernig
vinna og list tengist i ýmiss konar
nytjaiist. bað vekur mesta
athygli hér hvaö þessar trúarlegu
myndir og mótiv er miklu lit-
skrúöugra og liflegra en viöa þar
sem ég hef skoöað slikt á erlend-
um söfnum. I raun og veru þykir
mér mjög gaman aö kynnast
menningu tslendinga, yfirleitt,
þvi við vitum svo sáralitiö um
hana i Sviþjóö”, sagöi Monica.
Myndirnar á siöunni segja sína
sögu um þaö sem er aö sjá á bjóö-
minjasafni, en þó ekki nema aö
litlu leyti. Viö hvetjum fólk^l aö
sjá meö eigin augum. —þs
„Trúarlegar myndir eru hér miklu liflegri en viöa erlendis, þar sem ég hef skoöaö hliöstæö verk”, sagöi
Monica frá Sviþjóö.
„Á söfnum kynnist maður þjóðinni”
Þessi guilfallega klukka er eins konar formóöir tölvuúranna sem i dag þykja ómissandi. Þessi segir þér
nokkurn vegin þaö sama, hvaö tfmanum lföur, vikudag, tunglkomur og mánuö. Þessa klukku smiöaöi
Eyjólfur Þorkelsson 1883 og fékk fyrir hana verölaun Iönaöarmannafélagsins.
Doróthea viö æ'ttarskrifboröiö. Ofan á þvf liggja ýmis hljóöfæri, — fiöla
og langspil.
Dóróthea Stephensen i baöstofunni, sem sett hefur veriö upp i Þjóö-
minjasafninu. Ljósm —gel—