Þjóðviljinn - 29.08.1981, Page 11
Helgin 29.-30. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Fálkaungi meö fóstra sínum
Þeir beita gjarnan klóm
og kjafti fálkaungarnir,
sem fóstraðir hafa verið
og aldir á Tilraunastöðinni
á Keldum, en þangað eru
sendir ungar sem teknir
eru af útlendingum. Á
myndunum hér meðfylgj-
andi er fóstri þeirra, Þor-
steinn Þorsteinsson, sem
vinnur á Keldum,með einn
ungann.
Fálkaunginn á myndinni er
einn af fimm ungum sem teknir
voru á Keflavikurflugvelli i fyrra,
en nú hefur þeim verið sleppt og
vita menn ekki annað en þeir
standi sig vel i lifsbaráttunni úti á
viðavangi. Þeim var sleppt i Her-
disarvik, en þeir munu hafa verið
teknir i hreiðri norður i Þingeyj-
arsýslu.
Ævar Petersen hjá Náttúru-
fræðistofnuninni sagði i viðtali við
blaðið að mikil vinna væri við að
ala fálkaungana og væru menn
jafnan uggandi um þá, eftir að
þeim væri sleppt. Ungar, sem
teknir eru nýútskriðnir úr eggi,
læra ekki að veiða af foreldrum
sinum, og erfitt fyrir menn að
reyna að kenna þeim það. Fugl-
arnir eru allgrimmir og þarf að
ala þá á nýmeti, t.d. smáfuglum.
Ævar sagði að engir ungar
hefðu komið i fóstur i sumar þótt
það þýddi ekki endilega aðenginn
hefði reynt að smygla ungum úr
landinu. „En okkur virðist sem
augu almennings séu að opnast og
t.d. fyrir norðan er greinilegt að
menn eru betur vakandi en áður,
þegar útlendingar eru annars
vegar.” Karl Skirnisson tók þess-
ar myndir af Þorsteini með einn
ungann, en Þorsteinn hefur unnið
á Keldum um langt árabil. — þs.
sHák
Súétín í sovésku blaði:
íslendingar miklir
skákáhugamenn
Við rákumst á grein
eftir Súétin þann sem
hingað kom að þjálfa is-
lenska skákmenn i blað-
inu „Moscow News”,
Moskvufréttum, sem
skrifað er á ensku og
ætlað til dreifingar um
heimsbyggðinav
Fyrirsögnin er: ís-
lendingar eru miklir
skákáhugamenn, og sið-
an segir:
Þetta var það sem mér var efst
i huga þegar ég yfirgaf Reyk javik
eftir mánaðardvöl við að þjálfa
islenska landsliðið. Hinir al-
mennu fræðilegu fyrirlestrar
voru tengdir einstaklingstilsögn
og við skipulögðum meira að
segjá æfingamót með styttri tima
en venjulegt er i skák, klukku-
tima á mann. Það var i fyrsta
sinn sem ég tek þátt i sliku móti.
Ég var i 1,— 2. sæti með
sex vinninga af sjö, jafn
hinum unga alþjóðlega meistara
Helga óiafssyni (nafna Friðriks
ólafssonar, forseta alþjóðasam-
bandsins FIDE).
Eg kom til tslands i þann mund
að unglingalið landsins var að
búa sig undir keppnisferð til
Bandarikjanna. Ingimar Jóns-
son, forseti islenska skáksam-
bandsins, bað mig að halda stutt-
an fyrirlestur i byrjunarfræðum
fyrirhópinn. Eftir fyrirlesturinn
fylltist ég áhuga á hæfni þessara
15-16 ára gömlu skákmanna, og
bauð þeim tuttugu til fjölteflis. I
einlægni sagt bjóst ég ekki við
miklum árangri gegn þessum
styrku skákmönnum. Helmingur
þeirra hefur svipaðan styrkleika
og meistarakandidatar hjá okkur
(Candidate Chess Master, sovésk
skákgráða, samsvarar sennilega
tæpum mástara íslenskum).
Siðar fékk ég gott tækifæri að
kynnast þvi af eigin raun hversu
almennur skákáhugi rikir i land-
inu, og að gæði skáklistar meðal
yngstu manna eru mikil, jafnvel á
smæstu stöðum. Til dæmis virðist
skák skipa heiðurssætið hjá
hverri fjölskyldu i Bolungarvik,
sem er fiskiþorp I norðurhluta
landsins. Sérstaklega minnist ég
gestrisninnar hjá Júliusi Sigur-
geirssyni sjómanni og fjölskyldu
hans. Þrir fjögurra sona hans eru
prýðilegir skákmenn.
í stuttu máli sagt er styrkleiki
áhugamanna á íslandi miklu
meiri en i mörgum öðrum miklu
stærri löndum i vestri. Og hinn
griðarmikli áhugi sem islending-
arsýna skáklistinni er einstæður.
Dr. Ingimar Jónsson er aðal-
skipuleggjandi og útbreiðslumað-
ur skákarinnar á Islandi. Enda
voru islendingar mjög undrandi á
þeirri ákvörðun bandariska utan-
rikisráðuneytisins að neita hon-
um um vegabréfsáritun til að
sitja nýafstaðtð FIDE-þing I
Atlanta vegna þess að hann er i
vinstrisinnuðum stjórnmálasam-
tökum.
Eg fékk lika tækifæri til að hitta
Friðrik Ólafsson, forseta FIDE.
Það gerðist i'boði i sovéska sendi-
ráðinu. Við áttum nokkuð opin-
skáar viðræður. Siðan skiptumst
við á bókum. Hann gaf mér fyrstu
bók sina, úrvalsleiki („Selected
Games”), og ég gaf honum mina
seinustu, — Dæmigerðar vit-
leysur („Typical Errors”).
Meðan ég dvaldist á Islandi
hafði ég gott færi á að kynnast
hæfileikum yngri kynslóðar
islenskra skákmanna. Ég varð
mjög hrifinn, og sérstaklega verð
ég aðnefna Jón Arnason og Helga
Ólafsson, sem meðal annars
státar af tveimur sigrum yfir
hollendingnum Timman. Þeir
skara einkum frammúr fyrir
mikið sjálfstæðiviðaö meta stöðu
á borði og eru gæddir einstöku
hugarflugi. Ég held að allir skák-
menn gleðjist af þvi að kynnast
skák sem annar þeirra tefldi á
Skákmóti Norðurlanda:
Margeir Pétursson —
Hdgi Ólafsson.
Benoni-viæn.
1. d4-Kf6
2. c4-e6
3. g3-c5
4. Rf3-cxd4
5. Kxd4-d5
6. Bg2-e5
7. Rf3-d4
8. 0-0-RC6
9. e3-Bc5
10. exd4-exd4
11. Hel + -Be6
12. Rg5-0-0
13. Rxe6-fxe6
14. Rd2-Dd6
Skákmennimir hafa hingað til
teflt mjög nútimalega byrjunar-
gerð. En framhaldið er vand-
ráðið, og i þessari skák gerði
hvitur afdrifarik mistök.
15. Re4 (?)
Eðlilegur leikur, en alls ekki sá
besti. 15. Rb3 er mun nákvæmari.
15. -Rxe4
16. Bxe4-d3
17. Be3?
Ein mistökin enn, og nú verður
feigum varla forðað.l7.Bf4mundi
hafa haldið jafnvæginu.
17. — d2!
18. He2-Bxe3,
19. Hxe3-Had8.
Svartur hefur nú sterkt fripeð á
d2, og það gerir út um leikinn.
20. Kg2-Dd4,
21. Hbl-Hf6,
22. Bc2-Re5
23. Dgl-Rg4
24. Hd3-De4!
Ilvitur gefst upp.
— in þýddi