Þjóðviljinn - 29.08.1981, Side 15
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 29.-3». ágúst 1981
Helgin 29.-30. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Texti: Unnur G. Kristjánscjóttir
I<eru vöfnr "
__ Meða n Jt&érúlénd u r
*»,*** sem hreinarnir reika^m.
Meðan til eru skógar
sem skýla bráðinni,
huggar jörðin okkur.
• &
Höf. Paulus Utsi.
(Þýð. Unnur G. Kristjánsdóttir)
Slátrum
Smölum
Viðtal við Sama frá Svíþjóð: Jóhannes Marainen, Nils-Hendrik Sikku og Ann-Catrin Stenberg
Samar eru ein þjóð og landamæri geta engu þar um
breytt.
Við eigum sögu, eigin hefðir, eigin menningu og eigið
tungumál.
Við höfum erft frá forfeðrum okkar land og vötn, rétt
og þekkingu til fæðuöflunar.
Það er líka óvéfengjanlegur réttur okkar að gæta og
hlúa að þessum auðæfum með hiiðsjón af sameiginlegum
þörfum okkar.
Sameinaðir munum vér standa vörð um skóga,
náttúruauðæfi og menningu, svo afkomendur okkar geti
notið þess eftir okkur.
(Ályktun 11 Samaráðstefnunnar
„Lappadjöflar”
Er mikill munur á liínaðarhátt-
um Sama og Svia?
,,Þar er mikill munur á, þö
erfitt sé að benda á hann. Ekki
eru meir en 20 ár siðan að Samar
almennt skömmuðust sin fyrir
uppruna sinn og voru af Svium
kallaðir „Lappadjöflar”. A þeim
árum tóku Samar gjarnan sænsk
nöfn. Við þekkjum mörg hörmu-
leg dæmi þessa. Vinur okkar,
gamall Sami, var eitt sinn i heim-
sókn hjá dætrum sinum sem voru
fluttar til Kiruna. Þegar hann
mætti þeim á götunni, létu þær
sem þær þekktu hann ekki.
Margir Samar sérstaklega kon-
ur, hafa látiö breyta augnalagi
sinu til að uppruni þeirra sjáist
ekki. Annars búa Samar ekki
nema að litlu leyti aðskildir frá
Svium. Það er t.d. ekki lengur til
nema einn alsamiskur bær. Við
erum yfirleitt minnihlutahópur i
sænskum bæjum, og höfum tekið
upp sænska lifnaðarhætti.
Allra siðustu ár hefur orðið
töluverð þjóðernishreyfing meðal
Sama. Arið 1974 var stofnað
iþróttafélag Sama. Það var keppt
i knattspyrnu. Ekki var að sökum
að spyrja, iþróttafélagið varð að
mikilli hreyfingu sem siðan hefur
ýtt mjög undir þjóðerniskennd og
aukið samheidni Sama. Nú er al-
gengt að Samar úr íjölskyldum
sem hafa afneitað uppruna sinum
i 2—3 ættliði, gangi i samiskt
iþróttafélag og fylki liði i þjóð-
ernisbaráttu Sama.
Pólitiskir flokkar i Sviþjóð hafa
ekki enn sem komið er skipt sér af
þessari hreyfingu, enda erum við
fá atkvæði, við höfum heldur ekki
sjálfir staðið fyrir neinu stjórn-
málastarfi, höfum reyndar litla
trú á að það sé til nokkurs.
Hjónaskilnaðir
fátíðir
Eiga Samar við svipuð þjóð-
félagsvandamálaðglimaog aðrir
landar þeirra?
„Liklega ekki. Þó er töluvert
um drykkjuskap, en sist meira en
gerist og gengur. Atvinnuleysi er
samt meira meðal okkar en ann-
ars staðar i Sviþjóð. Það sem
verra er, þeir sem hafa unnið við
hreindýrarækt fá ekki atvinnu-
leysisbætur. Annars eru hrein-
dýraræktarlögin kapituli út af
fyrir sig.
Það er áberandi minna um
hjónaskilnaði hjá Sömum en öðr-
um sem við þekkjum til. Hvernig
á þvi stendur er erfitt að sjá. Að
visu eru Samar mjög trúaðir.
Fjölskyldulif er mjög rótgróið.
Fram á þessa öld tiðkaðist að for-
eldrar eða fjölskyldur tóku
ákvarðanir um hverjir giftust og
þýddi ekkert að malda i móinn.
Þessi hjónabönd urðu engu siður
farsæl en þau rómantisku.
Þjóðfélagsvandamál okkar eru
tengd samskiptum okkar við
Svia. T.d. er hráefni sem er að
finna á okkar landssvæðum flutt
til annarra landshluta. Sama er
að segja um orkuvinnslu hér.
Samabýli sem eru undir raf-
magnslinunum, fá ekkert raf-
magn. Ferðamannastraumur
eykst ár frá ári. Stór svæði af
hreindýrabeitilandi eru ónýtan-
leg lengur vegna ferðamanna-
straumsins og það hefur verið
okkur stór biti að kyngja þegar
við lesum i auglýsingapésum
ferðaskrifstofa að við séum til
sýnis eins og hver önnur furðu-
dýr. 1 einum auglýsingatextanum
las ég — „Komið til Lapplands,
akið hreindýrasleðum, sjáið mið-
nætursólina og Lappana —
Ég minnist þess ætið, þegar
þessi mál eru rædd, sem
frammámaður i ferðamannaút-
gerðinni hér sagði eitt sinn i sjón-
varpsviðtali:
„Við vOjum fyrir alla muni
vinna i friði við Samana. Við höf-
um t.d. boðið þeim að keyra
ferðamennina á hreindýrasleð-
um, en þeir svöruðu okkur ekki
einu sinni.”
A sama tima höfðu samar lokað
brú sem byggð hafði verið til
þæginda fyrir ferðamennina.
Brúin var þannig staðsett að
hreindýrahjarðir frá mörgum
Samabæjum runnu saman og
mikil vinna og vandræði urðu við
að draga i sundur aftur. Brúnni
lokuðum við alveg eftir þetta.
Lappo - Lappland -
Lappar = Endir -
Landsendir -
Fólkið sem býr
á landsenda
I islensku yar orðið — finna-
galdur notað yfir galdra. Samar
hafa verið taldið öðrum færari i
kukli hverskonar?
„Samar hafa alla tiðbúið i nánu
sambandi við náttúruna. Við vor-
>um i aldaraðir mjög einangraðir
og náttúruöflin eru oft óblið i
norður-Skandinaviu. Þess vegna
þekkjum við þessi öfl betur, allt
frá veðurofsanum niður i smæstu
blóm. Það leiddi af sjáifu sér að
þessi þekking, sem var meiri en
gerðist hjá öbru fólki, var nýtt til
margra hluta t.d. lækninga.
Á uppgangstimum Sviakon-
unga á öldum áður, var þessi
kunnátta okkar notuð til aö greiða
veg þeirra um Evrópu. Svo virtist
sem að mikil trú hafi verið á
galdrakunnáttu Sama á þeim
timum.
Svo er þvi ekki að neita að Sam-
ar eru áberandi tortryggnir á
lækna. Uppskurði sérstaklega,
enda þekkjum við i mörgum til-
fellum aðrar lækningaaðferðir
sem hafa dugað.
Mótmælaaðgerðir hefjast viö Alta.
... innan stundar mun lögreglan fjarlægja þá sem sitja.
..Nils Utsi var borinn þrisvar burt af lögreglunni.
,..við sveltum fyrir réttindum Sama".